Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 15
Kringlunni, sími 568 9033.
Ráðgjafi frá Ester Lauder verður í
verslunni í dag og á morgun
www.esteelauder.com
Frískari og fallegri húð,
án þess að fara á stofu.
Við kynnum
Idealist Micro-D
Deep Thermal Refinisher
Í samfélagi við Idealist Skin Refinisher
Með þessu nýja kornakremi gefst þér kostur á mildri
húðslípun heima við. Hið einstaka TripleSphere
Refinishing System endurnýjar yfirborð húðarinnar á
undraverðan hátt. Hitagæf kornin ná djúpt inn í húðina,
hjálpa til við að losa hana við eiturefni og minnka
umfang svitaholanna. Strax við fyrstu notkun Idealist
Micro-D Deep Thermal Refinisher hefurðu öðlast þessa
geislandi húð sem þú óskar þér. Þú finnur hve hún er
slétt og mjúk. Þú sérð hve hún er hrein og björt,
smáhrukkur og svitaholur varla sjáanlegar lengur.
Árvekni um
brjóstakrabbamein
STEINGERÐ mannabein, sem
fundust í gömlum bjarnarhelli í
Karpatafjöllum í Rúmeníu, eru
talin vera elstu bein evrópska nú-
tímamannsins sem fundist hafa,
að sögn vísindamanna. Eitt
þeirra, kjálkabein fullorðins
manns, er samkvæmt aldurs-
greiningum á bilinu 34–36 þús-
und ára gömul. Þrír rúmenskir
hellaáhugamenn rákust á beinin
fyrir tilviljun. Er talið hugsanlegt
að hellirinn hafi verið frum-
stæður grafreitur.
Elstu bein nútímamanns sem
áður hafa fundist eru um 30 þús-
und ára gömul. „Þegar tekið er
tillit til allra þátta er um að ræða
fyrsta fundinn sem hægt er að
nota til að slá því föstu hvernig
nútímamaðurinn leit út um það
leyti sem hann var að dreifast um
Evrópu,“ sagði Erik Trinkaus,
prófessor í mannfræði við Wash-
ington-háskóla í Saint Louis í
Missouri í Bandaríkjunum.
Trinkaus sagði að þótt talað væri
um nútímamann, homo sapiens,
væri samt sem áður nokkur líf-
fræðilegur munur á þessum for-
feðrum okkar og nútímafólki, til
dæmis eru tennurnar stærri í for-
feðrunum.
Beinin fundust í fyrra og hafa
þau síðan verið rannsökuð af
kappi, meðal annars gerð á þeim
aldursgreining með kolefnismæl-
ingum. Aldursgreiningu á öðrum
beinum en kjálkabeinunum, þar á
meðal andlitsbeinum úr full-
orðnum manni og höfuðkúpubein-
um, hefur ekki verið lokið að
fullu, en allt þykir benda til þess
að þau séu álíka gömul og hin
beinin. Það þýðir að bein fólks-
ins, alls úr þremur einstakling-
um, eru frá þeim tíma sem nú-
tímamaðurinn er talinn hafa deilt
kjörum með Neanderthalsmann-
inum, sem er löngu útdauður.
Vísindamennirnir segja að
beinaleifarnar sýni vísbendingar
um einhverja blöndun milli nú-
tímamannsins og Neanderthals-
mannsins. Benda þeir meðal ann-
ars á tannastærðina í því
sambandi og jafnframt að andlits-
beinin séu stór eins og í Neand-
erthalsmanni. Vísdómstönnin sé
risastór, miklu stærri en í venju-
legum nútímamanni.
Um langt árabil hefur á hinn
bóginn verið deilt hart um það
hvort slík kynblöndun hafi orðið.
Í frétt á vef breska ríkisútvarps-
ins, BBC, segir að rannsóknir á
DNA-erfðaefni hafi gefið til
kynna að ekkert eða nær ekkert
af erfðaefni nútímamannsins sé
ættað frá Neanderthalsmönnum.
En aðrir benda hins vegar á að
ekki sé hægt að slá neinu föstu í
þeim efnum, sárafá bein hafi
fundist frá þessum tíma og sýnin
því afar fá.
Fundu elstu beina-
leifar nútímamanns
Varð blöndun
milli forfeðra
nútímamanna
og Neander-
thalsmanna?
Washington. AFP.
Reuters
Bein sem fundust í hellinum í Karpatafjöllum í Rúmeníu. Aldursgreining
bendir til að þau séu líklega á bilinu 34–36 þúsund ára gömul.
ÓVENJULEG eining var á Banda-
ríkjaþingi í liðinni viku þegar þorri
þingmanna samþykkti lög um tak-
markanir á svonefndri símasölu, að
sögn The New York Times. Alrík-
isnefnd viðskiptamála, FTC, hefur
frá því í júní gefið almenningi kost á
að láta skrá sig á lista þeirra sem
vilja vera lausir við slíka sölu-
mennsku og hafa þegar um 50 millj-
ónir heimila látið skrá sig.
Alríkisdómari í Oklahoma hafði
áður úrskurðað lista FTC ólöglegan
á þeirri forsendu að þingið hefði
ekki látið rétta stofnun hafa umsjón
með aðgerðunum. Þingmenn brugð-
ust því hart við enda málið geysi-
lega vinsælt og margir þingmenn
gátu sjálfir sagt sorgarsögur af
ónæði af hálfu símasölufólks.
Reyndust 95 af 100 öldungadeild-
arþingmönnum meðmæltir og í full-
trúadeildinni féllu atkvæði 412 með
en 8 á móti. Einn þeirra sem var á
móti benti á að tugþúsundir manna í
kjördæmi hans, Nebraska, hefðu
beint og óbeint atvinnu af símasöl-
unni. Nokkrum stundum eftir at-
kvæðagreiðsluna á fimmtudag kom
enn babb í bátinn. Þá úrskurðaði
annar alríkisdómari, Edward W.
Nottingham í Colorado, að með list-
anum væri verið að mismuna með
óréttmætum hætti og skerða tján-
ingarfrelsið. Símasala til þeirra sem
hafa skráð sig á listann verður
bönnuð að viðlagðri sekt er nemur
allt að 11.000 dollurum, um 770 þús-
und krónum en eftir sem áður verð-
ur stjórnmálasamtökum og góð-
gerðarfélögum leyft að hringja til
allra. Nottingham segir að með lista
FTC sé því verið að stýra aðgangi
almennings að upplýsingum og það
stangist á við stjórnarskrána. Er nú
ljóst að málið kemur til kasta
hæstaréttar í Washington.
Þess má geta að hér á landi er
hægt að láta merkja við nafn sitt í
símaskránni til að losna við síma-
sölu og óskir um fjárstuðning við fé-
lagasamtök.
Vilja losna við
ónæði af símasölu
Alríkisdómari telur nýtt fyrirkomu-
lag stangast á við stjórnarskrána
FELLIBYLURINN Juan gekk yfir
Nýja Skotland eða Nova Scotia á
austurströnd Kanada í fyrrinótt
og olli allnokkru tjóni í Halifax.
Fréttir voru um, að tveir menn
hefðu látist í veðurhamnum en
verulega hafði dregið úr vindhrað-
anum í gærmorgun.
Hundruð manna voru flutt burt
frá láglendinu við ströndina og
fólk var varað við að vera á ferli
utanhúss. Var ástæðan ekki síst
sú, að í veðrinu brotnuðu margir
rafmagnsstaurar og lágu raflín-
urnar, margar með straumi á, á
götunum. Var ástandið verst í
Halifax, stærstu borginni á austur-
ströndinni, en þar var vindhraðinn
rúmlega 39 metrar á sekúndu.
Ökumaður sjúkrabíls lét lífið er
stórt tré féll á bílinn og annar
maður lét lífið með líkum hætti.
Þá varð að flytja burt íbúa einnar
blokkar eftir að þakið hafði fokið
af og nokkrar aðrar skemmdir
orðið á húsinu. Í gær hafði dregið
mikið úr vindstyrknum og var
hann þá kominn niður í 18 metra
á sekúndu.
AP
Einn lét lífið er tré féll á þennan sjúkrabíl, sem var í útkalli í Halifax.
Stórviðri
í Halifax
Halifax. AP.
STUÐNINGURINN við kvik-
myndaleikarann Arnold Schwarzen-
egger vegna ríkisstjórakosninganna í
Kaliforníu hefur aukist síðustu daga
og hann er nú með 15 prósentustiga
forskot á helsta keppinautinn.
Þetta kemur fram í Gallup-könnun
sem USAToday og CNN birtu á
sunnudag. 40% aðspurðra sögðust
ætla að kjósa Schwarzenegger á
þriðjudaginn kemur en 25% demó-
kratann og vararíkisstjórann Cruz
Bustamente. Helsti keppinautur
Schwarzeneggers úr röðum re-
públikana, Tom McClintock, var í
þriðja sæti með
18% fylgi.
Vikmörkin
voru fjögur pró-
sentustig og
könnunin var
gerð 26.–28. sept-
ember, eftir einu
sjónvarpskapp-
ræðurnar sem
Schwarzenegger
féllst á að taka
þátt í.
Könnunin bendir einnig til þess að
63% kjósendanna í Kaliforníu ætli að
greiða atkvæði með því að ríkisstjór-
inn Gray Davis láti af embætti. 35%
sögðust ætla að greiða atkvæði á móti
því.
Í könnuninni var reynt að komast
að því hversu mikil áhrif ferill
Schwarzeneggers sem kvikmynda-
leikara hefði á afstöðu kjósenda. Að-
eins 39% aðspurðra sögðust vera
aðdáendur hans sem leikara en 59%
töldu hann færan um að stjórna rík-
inu.
63% aðspurðra sögðust hafa mikið
álit á Schwarzenegger og aðeins 37%
sögðust hafa mikið álit á Bustamente.
Los Angeles. AFP.
Arnold
Schwarzenegger
Arnold Schwarzenegger með
15 prósentustiga forskot
YFIRVÖLD í Úkraínu hafa
ákveðið að sekta þá, sem gera ná-
grönnum sínum lífið leitt með illa
þefjandi húsdýrum á heimilum
sínum, til dæmis svínum, kúm og
geitum.
Valentín Svíderskí, yfirmaður
dýralæknaþjónustunnar í höfuð-
borginni, Kíev, telur, að ákvörð-
unin muni snerta nokkur hundruð
manna en á einkaheimilum í borg-
inni eru að minnsta kosti 3.000
svín, 500 kýr og um 1.000 geitur.
Sagði hann, að raunar væri slíkt
skepnuhald alls ekki bannað með
lögum.
Yfirvöldin neyddust til að gera
eitthvað í málinu vegna fjölda
kvartana frá fólki, sem sagðist
ekki þola lengur fnykinn frá
skepnunum auk þess sem með-
ferðin á þeim væri oft til skamm-
ar.
Ekki er óalgengt í fjölbýlishús-
um, að fólk sé með skepnuhald á
svölunum til að verða sér úti um
kjötmeti, sem það hefur annars
ekki efni á.
Sektað fyrir fnykinn
Kíev. AFP.