Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 16

Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 16
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Bryndís Sveinsdóttir, bryndis@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hall- grímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Krist- jánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund skapti@mbl.is „Sá sem ætlar að verða sannur sjómaður gefst aldrei upp.“ Þetta svar fékk tólf ára piltur frá formanni sínum á árabátnum þeg- ar hann var að þrotum kominn við róður á leiðinni heim af miðunum og spurði í þriðja sinn hvort hann mætti leggja inn árina til að laga vettling á hendi sér. „Mér fannst eins og það færi rafstraumur í gegnum mig. Ég skyldi ekki gefast upp, meðan ég gæti árina hreyft. Þótt mörgum kunni að finnast þetta hart svar, þá er það staðreynd, að þetta svar hefur oft bjargað mínu lífi, þegar ég hef ver- ið kominn á ystu takmörk með að gefast upp á vissum augnablikum minnar löngu ævi,“ skrifaði þessi strákur 65 árum seinna, þegar hann gaf út æviminningar sínar. Maðurinn er Karvel Ögmundsson, útgerðarmaður í Njarðvík, sem í dag fyllir tíunda tuginn.    Karvel er fæddur og uppalinn á Snæfells- nesi og flutti þrítugur til Njarðvíkur og hef- ur átt heima þar alla tíð síðan, fyrstu árin í Innri-Njarðvík en lengst af í Ytri Njarðvík þar sem hann stundaði útgerð og fiskvinnslu með bræðrum sínum, byggði meðal annars fyrsta hraðfrystihúsið á Suðurnesjum. Hef- ur hann víða komið við í félagsmálum út- gerðarmanna og sveitarstjórnarmálum. Var hann aðal-forystumaður Njarðvíkinga þeg- ar þeir klufu sig um skeið frá Keflvíkingum eftir nokkurra áratuga sambúð og stofnuðu Njarðvíkurhrepp hinn síðari. Var hann odd- viti sveitarfélagsins fyrstu tuttugu árin.    Uppbygging hafnar í Ytri-Njarðvík var mikið áhugamál íbúanna og þar lét Karvel ekki sinn hlut eftir liggja. Samþykkt var að höfnin yrði landshöfn en peningarnar frá ríkinu kláruðust fljótt. Þegar hafnarnefnd- armenn settust niður á Hressingarskál- anum í Reykjavík, þreyttir eftir göngu milli peningastofnana, buðust Karvel og Þór- arinn bróðir hans til taka að sér fram- kvæmdina og lána peninga til verksins úr sjóðum frystihússins sem hafði gengið vel. Fengu þeir á móti ríkisskuldabréf sem þeir síðan seldu með afföllum og gátu þannig haldið framkvæmdunum lengi áfram.    Ákafi Karvels við uppbyggingu Njarðvík- ur var frægur og ýmsar sögur til af honum í því hlutverki. Frásögn Gunnars Kristjáns- sonar er birt í Sögu Njarðvíkur eftir Krist- ján Sveinsson: „Karvel sá sjálfur um að áætla hversu mikið efni þyrfti í raflínuna. Það varð frægt hvernig hann stikaði stórum um í Njarðvík, taldi og mældi. „Fjögur- hundruðáttatíuogtveir góðan daginn“ sagði hann kannski. Þá var hann að telja hvað það þyrfti marga staura í raflínuna.“ Úr bæjarlífinu NJARÐVÍK EFTIR HELGA BJARNASON BLAÐAMANN Alls komu 6.600 gest-ir á atvinnuvega-sýninguna Akra- nes Expó 2003; Þeir fiska sem róa, sem lauk á sunnu- dagskvöld. Markaðsráð Akraness skipulagði sýn- inguna og kynntu 70 fyr- irtæki þjónustu sína á um 1.000 ferm. sýningarsvæði. Langflestir gestanna komu í boði þátttökufyrirtækja. Mælingar sýna að um 70% gesta hafi verið Akurnes- ingar, eða um 4.600 manns, og um 2.000 gestir hafi komið lengra að. Fyrirtæki af öllum stærðum gerðum sýndu framleiðslu sína og þjónustu á sýningunni. Á laugardag var bikarúr- slitaleikur ÍA og FH í knattspyrnu sýndur á breiðtjaldi á sýning- arsvæðinu. Fjöldi gesta Borgarnesi | Félag hjarta- sjúklinga á Vesturlandi stóð fyrir hjartagöngu sunnudaginn 28. sept- ember, sem er alþjóðlegur hjartadagur, og tilefnið var 20 ára afmæli Lands- samtaka hjartasjúklinga. Gengið var frá Ölveri að Heiðarskóla, samtals um 7 kílómetrar. Tveir bílar fylgdu göngunni fyrir þá sem vildu hvíla sig á milli göngutarna og eins þurfti að ferja þátttakendur yfir Leirá. Rúmlega þrjátíu manns á öllum aldri tóku þátt í göngunni, sem tók um tvo tíma. Veðrið var milt, þurrt og sólskin öðru hverju. Að lokinni göngu var grillað saman og bauð félagið öllum upp á pyls- ur. Morgunblaðið/Guðrún Vala Hjartaganga á Vesturlandi Hjónin SigurðurHaraldsson ogGuðrún Svavars- dóttir frá Jaðri í Reykja- dal rákust á Friðrik Stein- grímsson í gufunni í Mývatnssveit. Sigurður er sjómaður hjá Samherja en Guðrún vinnur í mötu- neytinu í Kröflu. Þau sögðust því hittast sjaldan og þá helst í gufubaðinu. Friðrik orti: Jaðarshjónin tímaleysið trega tæpast annað neitt um hitt því veit; þau hittast sirka hálfsmánaðarlega í heitri gufu uppi í Mývatnssveit. Tímaleysið trega Ólína Þorvarðardóttir á Ísafirði þakkar bæði Að- alsteini Valdimarssyni og Hjálmari Jónssyni fyrir hluttekninguna, en þeir áttu vísur í þessu horni á laugardaginn: Vissulega var og er víða blá og loppin, en kveðjur ykkar ylja mér um allan kroppinn. Ólína þakkar Laxamýri | Miklar fram- kvæmdir hafa verið í sumar á Héðinshöfða á Tjörnesi þar sem Jónas Bjarnason bóndi hefur verið að endurgera gamla húsið sem byggt var 1880 af Benedikt Sveinssyni, þáverandi sýslu- manni í Þingeyjarþingi. Húsið er eitt af fáum stein- hlöðnum húsum frá 19. öld og hefur lítið breyst að innan frá því að það brann að hluta 1892. Veggirnir voru gerðir úr til- höggnu grjóti úr Reyðarárgili sem er skammt frá bænum og var grjótið í það höggvið vet- urinn áður en það var flutt á byggingarstað. Steinsmiðurinn var Steinþór Björnsson sem lært hafði steinsmíði í Kaup- mannahöfn á 19. öld og byggði hann m.a. húsið sem enn stend- ur á Stóruvöllum í Bárðardal. Jónas, sem bjó ásamt fjöl- skyldu sinn í Héðinshöfðahús- inu til ársins 1974, hefur í sum- ar ásamt syni sínum Stefáni skipt um alla glugga, skipt um bárujárnsklæðningu á stöfnum og skipt um þak. Þá hefur hann einangrað upp á nýtt þar sem þess var þörf, skipt um útidyra- hurð, sett allt tréverk á stafna s.s. gluggalista, vindskeiðar o.fl. Það var Svandís Sverris- dóttir, húsasmiður á Húsavík, sem smíðaði gluggana, en Eiður Árnason múrari sá um að múr- húðunina, en eftir er að mynst- urmúra norðurhlið hússins en til stendur að klára það verk. Að sögn Jónasar er hér um mjög kostnaðarsama fram- kvæmd að ræða en þess virði að bjarga þessu fornfræga húsi sem á sér mjög merkilega sögu og áhugafólk um húsafriðun hefur mjög lofað framtak þetta. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Jónas bóndi: Kostnaðarsöm framkvæmd, en þess virði að bjarga fornfrægu húsi með merkilega sögu. Sögufrægt hús endurbyggt Á Héðinshöfða HREINAR tekjur sem mynda laun eig- enda og hagnað eru tvöfalt meiri á kúabú- um en sauðfjárbúum. Uppgjör búreikninga sýnir að hagnaður fyrir laun eigenda var að meðaltali tæpar tvær milljónir á sérhæfð- um kúabúum en innan við ein milljón á sér- hæfðum sauðfjárbúum. Kúabændur á Norðurlandi eystra hafa mesta möguleika á að greiða sér laun en þar eru búin stærst. Þótt tiltölulega fá bú liggi til grundvallar skýrslu um niðurstöður Hagþjónustu land- búnaðarins fyrir árið 2002 eru þær taldar gefa vísbendingu um afkomuna í hefð- bundnum búgreinum, einkum sérhæfðra kúabúa. Alls bárust 188 búreikningar á árinu, 119 vegna kúabúa og 50 vegna sauð- fjárbúa, auk 19 vegna blandaðra búa eða búa með sauðfé og annan rekstur. Niðurstöðurnar sýna að kúabúin hafa stækkað frá árinu á undan, eru að meðaltali með um 149 þúsund lítra framleiðslu. Afgang- ur til að greiða eig- anda laun var að jafnaði 1.981 þúsund krónur á árinu. Bústærð sauð- fjárbúanna stendur nokkurn veginn í stað frá fyrra ári og reyndist tæplega 320 ærgildi að meðaltali. Afgangur til að greiða eiganda laun eykst um tæp 19% frá fyrra ári og er um 979 þúsund að meðaltali. Ef hins vegar einungis eru borin saman þau sauðfjárbú sem eru í samanburðinum bæði árin sést að möguleikar til að greiða eigendum laun hefur minnkað milli þess- arra tveggja ára, um tæp 8%. Lægst laun á Norðurlandi vestra Mikill munur er á afkomu búa eftir landshlutum. Þannig gátu kúabændur á Norðurlandi eystra, þar sem búin eru stærst, greitt sér liðlega 2,9 milljónir í laun að jafnaði á árinu 2002 en bændur á Norð- urlandi vestra gátu greitt sér rúma milljón í laun. Það eru hins vegar sauðfjárbændur á Vestfjörðum sem hafa best út úr búum sín- um, geta greitt sér rúmar 1,3 milljónir í laun á árinu að meðtaltali á sama tíma og sauðfjárbændur á Norðurlandi vestra eiga aðeins 240 þúsund kr. til að greiða sér laun. Laun bænda tvö- falt hærri á kúabúum Ódýrt fyrir alla! Ódýrt fyrir alla!LYNGHÁLSI 4 - SKÚTUVOGI 2 OPIÐ 11-20 ALLA DAGA LÁGT OG STÖÐUGT VÖRUVERÐ! pr.kg.499- ÝSUFLÖK FROSIN roðlaus og beinlaus 1 flokkur Toppurinn í dag!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.