Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 25

Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 25
ÞAÐ var ekki fyrr en tæp-lega hálfu ári seinna þeg-ar leikhópurinn var loks-ins samankomin í stóra sal Young Vic-leikhússins og við sáum með eigin augum að það var verið að koma fyrir heimasmíðaða rólukerfinu okkar uppi við rjáfur að þessi tíðindi komust í eitthvert samhengi við raunveruleikann. Sýningin okkar, Rómeó og Júlía í þýðingu Hallgríms Helgasonar, samstarfsverkefni Vesturports, Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins, sem frumsýnd var í nóvember 2002, er sem sagt í þann veg að komast á fjalirnar í Lond- on. Ekki vegna þess að okkur hafi verið boðið að sýna á alþjóðlegri leikhúshátíð sem séríslenskt fyr- irbæri, þó að góðra gjalda hefði verið vert, heldur vegna þess að forráðamenn Young Vic-leikhúss- ins sáu í sýningunni eitthvað sem boðlegt væri að færa yfir á enska tungu og setja upp og sýna í sex vikur sjö sinnum í viku. Það kemur ekki einu sinni fram á auglýs- ingaspjaldinu utan á leikhúsinu sem sem við rákum augun í þegar við gengum í garð að leiksýningin sé íslensk að uppruna, þó að glöggskyggnir geri sér líklega grein fyrir því að aðstandendur og leikendur, -son þetta og -dóttir hitt, geti ekki allir verið Englend- ingar af norrænum uppruna. Auðvitað hefur það þó eitthvað með ferðalagið að gera að við er- um íslensk, og við förum ekkert með það í felur hvaðan við komum, síður en svo. Það var alltaf hluti af hverri sýningu heima fyrir að í upphafi hélt sirkússtjórinn okkar, Víkingur Kristjánsson, litla tölu, bauð áhorfendur velkomna og gerði á einhvern hátt góðlátlegt eða andstyggilegt grín að því sem honum datt í hug, þar á meðal sýn- ingunni sjálfri. Á síðustu sýningum tók hann það þannig sérstaklega fyrir að við héldum nú að við vær- um á leið til London til þess að sigra heiminn. Íslendingar á ferð Hér úti liggur það þá auðvitað beint við að Víkingur geri dálítið grín að því að hér eru Íslendingar á ferð, og til dæmis hrelli áhorf- endur með langri ræðu á íslensku, svona rétt til að sjá angistarsvip- inn hellast yfir gesti sem fer þá kannski að gruna að leikurinn eigi allur eftir að fara fram á því ást- kæra ylhýra hrognamáli. Eftir að áhorfendur hafa svo verið fullviss- aðir um að sú sé ekki raunin fylgir örlítill formáli að því að íslenskur leikhópur ætli sér hér í kvöld að flytja þennan leik um elskendurna sem ekki máttu unnast, á frummál- inu, og hætta þar með á guðlast. Enda er líklega betra að skýra málið – eða mállýskuna örlítið, þegar útlendingar taka svo stórt upp í sig að hafa herra Shake- speare milli tannanna á heimavelli. Við höfum reyndar ekki miklar áhyggjur af „Shakespeare- lögreglunni“ eins og kalla mætti alhörðustu leikhúsgagnrýnendur hér í borg. Radd- og framburð- arþjálfi okkar Neil Swain leggur sig allan fram um að leiðrétta helstu ambögur okkar en full- vissar okkur þar á milli um að mál- lýska okkar sé „Absoloutly charm- ing“ og það fáum við líka að heyra annars staðar, íslenski hreimurinn þykir einhvers konar óræður norð- ur-enskur blær, með eilítið und- arlegum errum og dulítið loðnum vöffum og tvöföldum vöffum. Þar fyrir utan höfum við trú á því að þar sem allar leikpersónur hafa hér um bil sama hreim þá muni það í besta falli leggjast með okk- ur á árar í þeirri viðleitni að skapa sýningunni sinn eigin sérstaka heim. Enn á þó eftir að láta reyna á það hvernig þetta leggst allt í tjall- ann, nokkrir dagar til stefnu og undirbúningur fyrir frumsýningu rétt að ná hámarki. Aðbúnaður þröngur Frá fyrsta degi var í mörg horn að líta enda er sýningin, þó að sýnd hafi verið á litla sviði Borg- arleikhússins, allt annað en lítil í sniðum. Fyrir það fyrsta er leik- hópurinn ívið stærri en gengur og gerist, 12 fyrirferðarmiklir ís- lenskir leikarar (og einn Búlgari: atvinnueldgleypirinn og fim- leikamaðurinn Stephan Derm- endjiev sem kemur í stað Kristjáns Ársælssonar, herra fitness 2002 og páfagaukatemjara sem því miður komst ekki með vegna anna) deila þremur búningskytrum baksviðs, því þó að Young Vic-leikhúsið hafi stóran sal og annan minni þá er allur aðbúnaður töluvert þrengri en í Borgarleikhúsinu. Sömuleiðis er leikmyndin okkar engin smásmíði, þó að minnst af henni sé reyndar sýnileg fyrirferð. Í myrkrinu ofan við áhorfendasal- inn í Young Vic, (sem er nokkuð svipaður litla sviði Borgarleik- hússins að því leyti áhorfendur sitja hringinn í kringum sviðið) leynast rólur, ljósakrónur sem hægt er að sveifla sér í og alls kyns vírar, kaðlar, talíur og keðjur sem leikmyndahönnuður okkar, Börkur Jónsson, hafði smíðað frá grunni fyrir sýninguna heima en varð um það bil að hanna upp á nýtt með hliðsjón af hinu nýja leik- rými. Í alla staði hefur starfsfólk Young Vic þó reynst ótrúlega al- úðlegt og útsjónarsamt enda val- inn maður í hverjum stað og natn- in og umhyggjan að því er virðist endalaus, sem dæmi getur und- irritaður nefnt að af tilviljun lentu æfingaföt hans, gauðslitnar bræk- ur og svitastorkin peysa með öðr- um búningum þegar pakkað var í upphafi ferðar og þegar þeirra var svo leitað í leikhúsinu kom í ljós að plöggin höfðu verið hreinsuð og stífpressuð og í þokkabót hafði verið gert við hverja einu og ein- ustu saumsprettu og rifu á bless- uðum lörfunum. Reyndar spratt fyrsta raunveru- lega vandamálið sem við stóðum frammi fyrir eingöngu af um- hyggju Bretanna fyrir okkur. Til þess að aðstoða við uppsetningu á áðurnefndum köðlum, rólum og talíum var fenginn fyrirtakshópur atvinnumanna á sviði loftfimleika í leikhúsum, „The Flying Squad“ eða Flugsveitin, eins og þeir kalla sig. Þegar hafist var svo handa við að koma áhöldum okkar og útbún- aði fyrir runnu á þá ágætu menn tvær grímur, suma hlutina höfðu þeir einfaldlega aldrei séð áður, aðra þekktu þeir en hafði ekki komið til hugar að útfæra eins og við höfðum gert og þar kom að þeir stungu við fótum og tjáðu okkur af breskri háttvísi að þó að það gæti vel verið að við hefðum komist klakklaust í gegnum okkar 60 sýningar með þessum útbúnaði þá gætu þeir ekki gengið í ábyrgð fyrir næstu 60 sýningar nema við sættum okkur við að nota þeirra flugkerfi, sverari víra, öryggis- línur og fleiri afar sjónmengandi fyrirbæri. Hér ber að taka það fram að í þeim þremur tilvikum sem eitthvað bar út af á sýningum heima fyrir var mannlegri ógætni og ónákvæmni í alla staði um að kenna og ekki tæknibúnaði eða tækjum, sömuleiðis hafði vinnueft- irlit ríkisins tekið út allan okkar búnað heima, svo við töldum okkur hafa vaðið vel fyrir neðan okkur. En það varð ekki við Flugsveitina tjónkað, engar málamiðlanir þegar kom að öryggi leikaranna og skil- málum tryggingafélaga. Teflt á tæpasta vað Um stund virtist vandamálið óyfirstíganlegt og það var ekki fyrr en forsprakki leikhópsins, Gísli Örn Garðarsson, tefldi á tæp- asta vað og bjóst til þess að blása sýninguna af ef ekki yrði sest að einhvers konar samningum um málamiðlun að stíflan brast. Leikhússtjórinn sjálfur, öðling- urinn David Lan, var kallaður til og settur inn í málið, allir mögu- legir kostir tíndir til og hafist var handa við að finna einhverja úr- lausn sem allir gætu sæst á. Nokkrum tímum síðar lá lausnin fyrir, Íslensku áhöldin – með bresku öryggi og allt skyldi þraut- reynt í umfangsmiklu tæknirennsli sem hefði forgang fram yfir aðrar æfingar. Nú hefur tæknirennslið staðið yfir í þrjá daga linnulaust, frá 10 á morgnana til 10 á kvöldin (breska vinnulöggjöfin takmarkast við þann vinnutíma, – engar íslenskar sólarhrings áhlaupalotur) og ekki laust við að við séum orðin óþreyjufull að fá að renna í gegn- um söguna án þess að þurfa að stoppa og endurtaka hvern mín- útukafla fyrir sig út í hið óend- anlega. En þetta er auðvitað allt fullkomlega nauðsynlegt og okkur fyrir bestu, enda er fleira á seyði en öryggiseftirlit eingöngu. Karl Olgeirsson betrumbætti og jók við þá tónlist og hljóðmynd sem hann samdi fyrir sýninguna heima og nú situr hljóðdeild leikhússins sveitt við að samhæfa hana sýningunni upp á nýtt. Sömuleiðis höfum við fengið breskan ljósahönnuð, Paul Russell, til þess að endurhanna lýs- ingu Kára Gíslasonar (sem vann til verðlauna á Grímu verðlaunahá- tíðinni fyrir sína vinnu, eins og reyndar Þórunn Sveinsdóttir gerði fyrir búninga sýningarinnar). Þetta tekur allt sinn tíma og í raun gengur verkið hratt og vel fyrir sig, þó að það sé fullkomlega af- stætt þegar klukkan tifar og með hverju slagi dregur nær ísl-enskri frumsýningu á Rómeó og Júlíu í Young Vic, á horni The Cut og Waterloo street, í London. Litlar áhyggjur af „Shakespeare-lögreglunni“ Leikhópurinn Vesturport frumsýnir Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare í Young Vic-leikhúsinu í London annað kvöld. Ólafur Egill Egilsson, einn leikenda, segir hér frá undirbúningi ytra og lýsir stemn- ingunni í hópnum. Ólafur Egill Egilsson sveiflar sér.Í þessum sal verður Rómeó og Júlía frumsýnt annað kvöld. Leikarar Vesturports í hlutverkum sínum á æfingu ytra. „Íslenski hreimurinn þykir einhvers konar óræður norður-enskur blær, með eilítið undarlegum errum og dulítið loðnum vöffum og tvöföldum vöffum.“ LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 25 RSH.is Dalvegi 16b • 201 Kópavogur Sími 544 5570 • Fax 544 5573 www.rsh.is • rsh@rsh.is TETRA VERSLUN • VERKSTÆ‹I Radíófljónusta Sigga Har›ar Öll fljónusta fyrir TETRA símkerfi› á einum sta› Fjarskipti framtí›arinnar w w w .d e si g n .is © 2 0 0 3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.