Morgunblaðið - 30.09.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
E r miður að íslenskir knatt-spyrnuaðdáendur eigiþess ekki kost að fylgjastmeð Serie A í vetur í sjón-
varpinu og verði að láta sér leiki
ítölsku liðanna í Evrópukeppni duga,
því fyrstu leikirnir í deildinni hafa
verið mjög skemmtilegir og gefa fyr-
irheit um fjöruga leiktíð.
Endurtekið einvígi?
Í fyrra börðust Juventus og Milan
á tveimur vígstöðvum og hafði Juve
betur heima fyrir en Milan í Meist-
aradeildinni. Lið Juventus þótti leika
best og jafnast þótt ekki risi leikur
liðsins kannski ýkjahátt. Juventus
mætir beittara til leiks nú, hefur
bætt skynsamlega við lið sitt og virð-
ist Marcello Lippi þjálfari ætla að
leggja meiri áherslu á sóknarleikinn.
Sömu sögu er að segja af AC Milan,
liðið hefur fengið nokkra trausta
leikmenn til sín, einkanlega í vörn-
ina. Það væri eftir bókinni að þessi
tvö lið einokuðu toppsætin en þó
virðist sem Inter, Lazio og Roma séu
mun sterkari en flestir áttu von á og
að keppnin verði harðari en í árarað-
ir. Einhvern veginn segir manni þó
svo hugur að um endurtekið einvígi
verði að ræða og því er ekki úr vegi
að byrja á því að kíkja á hvernig Ítal-
íumeistararnir og Evrópumeistar-
arnir mæta til leiks.
Tvífarar hjá Juve!
Juventus er með ákaflega breiðan
leikmannahóp, sennilega þann sterk-
asta á Ítalíu. Þeir eiga tvo menn í
flestar stöður og geta skipt út mönn-
um án þess að það riðli leik liðsins.
Sumir eru þó líkari en aðrir! Hol-
lendingurinn Edgar Davids hefur
verið lykilmaður hjá Juventus und-
anfarin ár og elskaður af aðdáendum
félagsins. Hann hefur þó aldrei verið
í sérstökum metum hjá stjórnendum
félagsins, þykir einþykkur og erfiður
í samstarfi, og ekki blíðkuðust Luc-
iano Moggi og félagar í sumar er
Davids neitaði að skrifa undir nýjan
samning við félagið. Hyggst hann
klára síðasta árið sem hann á eftir á
samningnum og halda svo á ný mið.
Yfirleitt reyna lið í þessari stöðu að
selja viðkomandi leikmann og ekki
vantaði kaupendur að Davids. Hann
var hins vegar sjálfum sér sam-
kvæmur, sagðist vilja ráða örlögum
sínum sjálfur og myndi klára sinn
samning og taka svo ákvörðun um
hvert framhaldið yrði. Þvermóðska
Davids er aðdáunarverð, sérstaklega
í ljósi þess að Juventus missti þol-
inmæðina gagnvart honum í sumar
og keypti leikmann sem nefndur er
„litli Davids“ á Ítalíu, Ghanamann-
inn Stephen Appiah sem spilað hefur
firnavel með Brescia og Parma und-
anfarin ár. Appiah er reyndar bæði
stærri og sterkari en Davids og því
er skondið að kalla hann „litla Dav-
ids“ en hann er sjö árum yngri og lík-
ur Hollendingnum í hollningu og
leikstíl. Koma hans þýðir að Davids á
ekki víst sæti í liðinu og fékk að
verma bekkinn í fyrstu leikjunum.
En Juventus er þekkt fyrir að ná að
kreista hvern dropa úr mönnum og
Davids fær eflaust að svitna eitthvað
í vetur, hvort sem hann verður látinn
róa í janúar eða leika út leiktíðina.
Fyrir utan sápuóperuna í kringum
Davids er flest meinhægt að frétta
úr herbúðum Juve. Þeir fengu
ítalska landsliðsvarnarmanninn Nic-
ola Legrottaglie frá Chievo og veitir
ekki af í aldurhnigna vörn liðsins.
Fabrizio Miccoli kom svo frá Perugia
og Enzo Maresca frá Piacenza, ekta
spilarar til að leysa af í meiðslum,
t.d. Alex Del Piero sem enn einu
sinni er kominn á sjúkralistann. Juv-
entus er með ákaflega stöðugt lið og
verður að telja líklegt að liðið nái að
halda titlinum.
Brassabras á Milan
Evrópumeistarar AC Milan mæta
til leiks með nánast sama mannskap
og í fyrra. Vörnin hefur þó verið
styrkt með komu Giuseppe Pancaro
og brasilíska landsliðsfyrirliðans
Cafú auk þess sem samlandi hans
Kaka mun berjast um stöðu leik-
stjórnanda við Rui Costa. Kaka er
efnilegur en óvíst er að honum farn-
ist betur í samkeppninni við Portú-
galann leikna en Rivaldo, sem hefur
verið með leiðindi og farið fram á
sölu að undanförnu. AC Milan hefur
undanfarin ár keypt töluvert af
Brasilíumönnum enda hefð hjá fé-
laginu að vera með leikna og
skemmtilega spilara. Gallinn er að
þeir hafa ansi margir týnst í þokunni
í Mílanó og enginn þeirra hefur náð
að gera neinar meiri háttar rósir.
Milan er óneitanlega skemmtilegt lið
á góðum degi og framlína liðsins er
stórhættuleg. Filippo Inzaghi hefur
aldrei leikið betur og Shevchenko er
að nálgast sitt besta form. Liðið á
hinsvegar oft erfitt með að klára
leiki gegn lakari liðum og það vantar
stundum einhvern með Gennaro
Gattuso til að vinna skítverkin á
miðjunni. Kröfurnar eru miklar hjá
Herra Berlusconi og félögum og
mikið veltur á að liðið nái að byrja
vel, annars getur þetta annars ágæta
lið liðast í sundur.
Áfram hlegið að Inter?
Internazionale eru Evrópumeist-
arar í klúðri. Ekkert lið hefur eytt
jafnmiklu fé miðað við bikartölu (sbr.
höfðatölu) undanfarin áratug. Ævin-
lega skal Inter hrasa við síðustu
hindrun. Síðsumars seldu þeir Hern-
an Crespo til Chelsea aðdáendum fé-
lagsins til sárra vonbrigða og þótti
Christian Vieri það dæmalaust
metnaðarleysi. „Ég hélt að meining-
in væri að styrkja liðið, ekki veikja
það, það er ekki alltaf hægt að
treysta á mig, ég verð að hafa topp-
framherja með mér,“ sagði Vieri.
Salan þótti skrýtin einkum í ljósi
þess að Hector Cuper hafði fengið
tvo kantmenn til liðsins, Hollending-
inn Andy Van der Meyde og Argent-
ínumanninn Kily Gonzalez og áttu
þeir að fóðra Crespo og Vieri sem
eru báðir sterkir skallamenn. En
kannski var salan á Crespo nauðsyn-
leg í tvennu tilliti. Annars vegar til
að létta þeirri pressu á Inter að nú
væri engin afsökun að vinna ekki
deildina og til að skapa pláss fyrir
hið 19 ára undrabarn Obafemi Mart-
ins sem hefur blómstrað í haustleikj-
unum, eins og mátti sjá í stórsigr-
inum gegn Arsenal á Highbury. Það
verður athyglisvert að fylgjast með
Inter og kannski hlæja aðdáendur
félagsins síðastir í þetta skiptið.
Allt á uppleið í Róm
Rómarliðin tvö koma vel undan
sumrinu og virðast líkleg til að velgja
Marco Delvecchio og hinn efnilegi Alessandro
Mancini fagna marki í Róm.
Andriy Shevchenko, fyrir miðju, fær hér hrós frá félögum sín-
um Clarence Seedorf og Andrea Pirlo.
Juventusleikmennirnir Allesandro Del Piero og
Ciro Ferraira fagna marki.
„Systurnar fimm“
til alls líklegar
Ítalir eru kokhraustir mjög í byrjun leiktíðar og stefnir í einhverja
mest spennandi leiktíð í áraraðir. Alítalskur úrslitaleikur í Meist-
aradeildinni sl. vor hefur virkað sem vítamínsprauta á knattspyrn-
una syðra sem og góður leikur ítalska landsliðsins undanfarið.
Stórliðin mæta öll heldur sterkari til leiks nú en í fyrra og hafa
farið mjög vel af stað, bæði í deildinni og Evrópukeppninni.
Einar Logi Vignisson telur að „Systurnar fimm“, eins og lið Milan,
Juventus, Inter, Lazio og Roma eru stundum nefnd, eigi allar
möguleika á meistaratitlinum. Ár og dagar eru síðan jafnmörg lið
hafa verið talin eiga raunhæfa möguleika á titlinum.
EINN besti knattspyrnudómari
heims, Pierluigi Collina, segir að
hegðun leikmanna Manchester
United og Arsenal í leikslok á Old
Trafford sé ekki til eftirbreytni og
vill ítalski dómarinn að leikmenn
og þjálfarar hugsi sinn gang betur.
Gagnkvæm virðing á milli leik-
manna og dómara er eitt það mikil-
vægasta í knattspyrnunni. „Ég óska
þess að ekkert slæmt eigi sér stað í
öllum þeim leikjum sem ég dæmi,
það auðveldar mitt starf, en auðvit-
að er það óskhyggja þar sem um-
deild atvik eiga sér stað í hverjum
leik.
Það er hins vegar skammarlegt
að horfa upp á leikmenn sem reyna
að hagnast með því að hafa rangt
við,“ segir Collina við breska dag-
blaðið The Sun en hann hefur ný-
verið gefið út bók þar sem rekur
feril sinn sem dómari. Collina er
harðorður í garð þjálfara og for-
ráðamanna unglingaliða, og rekur
agavandamál leikmanna í efstu
deild til þeirra sem áttu að kenna
þeim hvað væri rétt og rangt sem
unglingar.
„Leikmenn með yngri liðum
komast upp með slæma hegðun í
garð dómara og þeir skilja hrein-
lega ekki hlutverk dómarans. Börn
og unglingar verða að fá leiðbein-
ingar um hvað sé rétt hegðun við
mismunandi aðstæður,“ segir Coll-
ina, sem sagðist beta mikla virð-
ingu fyrir enska leikmanninum
David Beckham, leikmanni Real
Madrid.
Collina ósáttur við
hegðun leikmanna
AP
Pierluigi Collina heldur hér
á nýútkominni bók sinni.
KÍNA vann Rússland, 1:0, í fyrri-
nótt á heimsmeistaramóti kvenna í
knattspyrnu og tryggði sér þar með
áttunda og síðasta sætið í 8 liða úr-
slitum mótsins sem fram fer í
Bandaríkjunum. Rússar voru þegar
öruggir um sæti í 8 liða úrslitunum
úr þessum riðli áður en flautað var
til leiksins við Kínverja eftir að
hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í
riðlinum, gegn Ástralíu og Gana.
Kínverjar urðu hins vegar að ná
a.m.k. einu stigi í leiknum við Rússa
til að vera vissir um sæti í 8-liða úr-
slitum. Í hinum leik D-riðils vann
Gana landslið Ástralíu, 2:1, og kom
sigur Gana á óvart í ljósi fyrri úr-
slita þjóðarinnar á HM að þessu
sinni. Kínverska liðið vann því rið-
ilinn, fékk sjö stig, Rússar sex,
Gana þrjú en Ástalar ráku lestina
með eitt stig.
Þar með er ljóst hvaða þjóðir
mætast í 8 liða úrslitum. Annað
kvöld mætast í Boston lið Banda-
ríkjanna og Noregs annars vegar
og Brasilía og Svíþjóð hins vegar.
Daginn eftir leika Þjóðverjar við
Rússa og Kínverjar leika við Kan-
ada og fara þeir leikir fram í Port-
land.
Sigurliðið úr viðureign Banda-
ríkjanna og Noregs mætir annað-
hvort Þýskalandi eða Rússlandi í
undanúrslitum. Þá mætir sigurveg-
arinn úr leik Brasilíu og Svíþjóðar
þeirri þjóð sem fer með sigur úr
býtum í leik Kína og Kanada. Und-
anúrslitaleikirnir fara fram í Port-
land 5. október.
Bandaríkin mæta
Norðmönnum á HM