Morgunblaðið - 30.09.2003, Side 46

Morgunblaðið - 30.09.2003, Side 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ RAJA Bell, sem lék með liði Dallas Mavericks á síðustu leiktíð, hefur samið við Utah Jazz í NBA-deildinni. Bell er bakvörður líkt og Jón Arnór Stefánsson, en íslenski landsliðsmaðurinn er samningsbundinn Dallas Maver- icks til næstu fimm ára. Á heimasíðu Dallas er Jón Arnór á leikmannalista liðsins en auk hans eru nú fimmtán leikmenn á listan- um. Það fækkar því um einn í hópi þeirra sem „berjast“ um sæti í leikmannahópi liðsins í vetur en þar munu fimmtán leikmenn komast að. Jón Arnór á þar í höggi við leikmenn á borð við Chris Mills sem leikið hefur m.a. með Cleveland Cavaliers, New York Knicks og Golden State Warriors á undanförnum áratug. Mills kom til Dallas í sumar í leikmannaskiptum og er, auk Jóns Arnórs og nýliðans Marguis Daniels, líklegastur til þess að þurfa að hafa mikið fyrir því að komast í liðið. Keppinautum Jóns Arnórs í Dallas fækkar Morgunblaðið/Ásdís Jón Arnór Stefánsson FORRÁÐAMENN handknattleiks- deildar Þórs á Akureyri tilkynntu Handknattleikssambandi Íslands það í gær að félagið sæi sér ekki fært að senda karlalið sitt til keppni í Vest- mannaeyjum í kvöld þar sem liðið átti að sækja ÍBV heim í fyrstu umferð SS- bikarkeppninnar. Þórsarar drógu lið sitt þar með úr keppni en þurfa þess í stað að greiða 60.000 kr. sekt til HSÍ. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins lágu ýmsar ástæður að baki ákvörð- un félagsins og vegur þar þyngst að fjárhagur handknattleiksdeildarinnar er ekki góður og var ekki til handbært fé til þess að koma liðinu á áfangastað með flugi til Vestmannaeyja. Þór dregur sig úr bikar- keppni HSÍ FÓLK HANDKNATTLEIKUR Bikarkeppni karla, SS-bikarinn, 32 liða úrslit: Framhús: Fram – HK................................20 Seltjarnarn.: Grótta/KR 2 – UMFA ....19.15 Hlíðarendi: World Class – Valur...............20 Seljaskóli: ÍR 2 – Breiðablik .....................20 KÖRFUKNATTLEIKUR Reykjavíkurmót karla Laugardalshöll: Ármann/Þróttur – KR ...20 Í KVÖLD KNATTSPYRNA Svíþjóð Hammarby - Enköping.............................7:0 Landskrona - Sundsvall............................3:2 Elfsborg - Halmstad .................................2:1 Staðan: Djurgården 23 15 2 6 49:22 47 Malmö 23 13 6 4 48:19 45 Hammarby 23 13 5 5 46:29 44 Halmstad 23 11 3 9 36:28 36 Helsingborg 23 10 4 9 27:29 34 Gautaborg 22 9 6 7 32:21 33 Örebro 23 9 6 8 27:30 33 Örgryte 22 10 3 9 33:37 33 AIK 23 8 7 8 32:32 31 Elfsborg 23 8 7 8 25:31 31 Landskrona 23 7 7 9 22:34 28 Sundsvall 23 2 10 11 21:36 16 Öster 23 3 7 13 26:44 16 Enköping 23 3 5 15 21:53 14 Noregur Viking - Odd Grenland..............................0:1  HANNES Þ. Sigurðsson lék síðasta stundarfjórðunginn með liði Viking. Staðan: Rosenborg 22 17 4 1 61:19 55 Bodö/Glimt 22 11 5 6 36:25 38 Odd Grenland 22 11 3 8 40:32 36 Stabæk 22 8 9 5 35:30 33 Viking 22 7 10 5 40:29 31 Sogndal 22 8 7 7 36:36 31 Brann 22 7 7 8 38:40 28 Lilleström 22 7 7 8 25:33 28 Molde 22 8 3 11 27:34 27 Tromsö 22 7 5 10 28:43 26 Lyn 22 6 5 11 27:40 23 Vålerenga 22 4 10 8 22:26 22 Bryne 22 7 1 14 30:43 22 Ålesund 22 5 6 11 24:39 21 England 1. deild Walsall - Gillingham..................................2:1 KÖRFUKNATTLEIKUR Reykjanesmótið Keflavík - Njarðvík ..............................98:89 Gangur leiksins: 21:6, 34:24, 55: 46, 71:70, 98:89. Stig Keflavíkur: Derrick Allen 31, Gunnar Einarsson 15, Magnús Gunnarsson 13, Fal- ur Harðarson 9, Nick Bradford 8, DavíðÞór Jónsson 8, Hjörtur Harðarson 7, Gunnar Stefánsson 3, Jón Nordal Hafsteinsson 2, Halldór Halldórsson 2. Stig Njarðvíkur: Brandon Woudstra 36, Páll Kristinsson 18, Friðrik Stefánsson 13, Guðmundur Jónsson 9, Arnar Smárason 9, Ólafur Ingvason 4. Grindavík - Breiðablik.........................99:76  Keflavík og Haukar leika til úrslita þann 2. okt og fer úrslitaleikurinn fram í Njarð- vík og hefst hann kl: 19:00.  Grindavík og Njarðvík leika um 3. sætið og er sá leikur einnig í Njarðvík þann 2. okt og hefst hann kl: 17:00.  Breiðablik endaði í fimmta og neðsta sæti og er úr leik. ÚRSLIT Það þykja ekki stórtíðindi að bandaríski kylfingur-inn Tiger Woods sé efstur á heimslistanum í golfi enda hefur hann verið efstur á þeim lista í rúm fjögur ár eða 215 vikur samfleytt. Á listanum sem birtur var í gær er Englendingurinn Lee Westwood hástökkvarinn ásamt Tommy Armour III, en Westwood er nú í 61. sæti en var áður í því 111., Armour III fór úr 212. sæti í það 140. Hinn þrítugi Westwood var í 250. sæti um tíma á þessu ári en tveir sigrar á sl. tveimur mánuðum hafa bjargað málunum hjá Westwood sem átti á hættu að þurfa að öðlast þátttökurétt með því að leika á úrtöku- móti í haust. Woods er sem fyrr segir efstur, Ernie Els frá S-Afríku er annar, en engar meiriháttar breytingar hafa átt sér stað á listanum frá því að hann var birtur síðast. Els hefur unnið um 500 millj. Woods er hinsvegar í þriðja sæti á þessu keppn- istímabili ef tekið er mið af verðlaunafé á bandarísku mótaröðinni, PGA. Þar er Vijay Sing efstur með 444 millj. kr., Davis Love III er annar með um 420 millj. kr. og Woods er „aðeins“ með um 400 millj. kr. Ernie Els frá S-Afríku hefur náð í 258 millj. kr. á evrópsku móta- röðinni og er efstur á þeim vettvangi, Darren Clarke er þar annar með 164 millj. kr. og Ian Poulter er þriðji með 124 millj. kr. Els hefur hinsvegar verið iðinn við kolann beggja vegna Atlantshafsins og á PGA-móta- röðinni náði hann í 240 millj. kr. og varð í 8. sæti á þeim lista en samtals hefur hann fengið um 500 millj. kr. það sem af er árinu í verðlaunafé. FIMM leikmenn hafa bæst í ís- lenska landsliðshópinn í knatt- spyrnu fyrir leikinn á móti Þjóð- verjum sem fram fer í Hamborg hinn 11. október en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hafa landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sig- urvinsson og Logi Ólafsson til- kynnt 22 leikmenn til UEFA. Bjarni Guðjónsson, Tryggvi Guð- mundsson, Ríkharður Daðason, Gylfi Einarsson og Hjálmar Jóns- son koma nýir inn í hópinn en end- anlegur 18 manna hópur verður síðan valinn fyrstu vikuna í októ- ber. Úr 20 manna hópnum sem valinn var fyrir leikinn á móti Þjóðverjum á Laugardalsvelli hafa tveir helst úr lestinni vegna meiðsla, Lárus Orri Sigurðsson og Heiðar Helgu- son, og þá tekur Jóhannes Karl Guðjónsson út leikbann. 22 manna landsliðshópurinn lít- ur þannig út: Markverðir: Birkir Kristinsson, ÍBV Árni G. Arason, Rosenborg Varnarmenn: Hermann Hreiðarsson, Charlton Pétur Marteinsson, Hammarby Ívar Ingimarsson, Wolves Ólafur Ö. Bjarnason, Grindavík Indriði Sigurðsson, Genk Kristján Ö. Sigurðsson, KR Hjálmar Jónsson, Gautaborg Miðjumenn: Arnar Grétarsson, Lokeren Brynjar B. Gunnarsson, N.Forest Arnar Þór Viðarsson, Lokeren Bjarni Guðjónsson, Bochum Þórður Guðjónsson, Bochum Rúnar Kristinsson, Lokeren Gylfi Einarsson, Lilleström Framherjar: Eiður S. Guðjohnsen, Chelsea Helgi Sigurðsson, Lyn Marel Baldvinsson, Lokeren Ríkharður Daðason, Fredrikstad Tryggvi Guðmundsson, Stabæk Veigar P. Gunnarsson, KR Landsliðshópurinn sem mætir Þjóðverjum Tiger sam- fleytt í 215 vik- ur í efsta sæti Reuters Tiger Woods  FORRÁÐAMENN knattspyrnu- deildar FH hafa komist að samkomu- lagi við Sigurð Víðisson um að hann haldi áfram þjálfun kvennaliðs félags- ins til næstu tveggja ára en Sigurður hefur verið við stjórnvölin hjá FH sl. tvö ár.  KVENNALIÐ FH hélt lokahóf sitt á dögunum og þar var Sigríður Guðmundsdóttir útnefnd sem besti leikmaður sumarsins, Sif Atladóttir sú efnilegasta og FH-kona ársins er Hlín Pétursdóttir.  KYLFINGURINN Jim Furyk sem sigraði á Opna bandaríska meistara- mótinu á dögunum hefur afboðað komu sína á óopinbert heimsmeist- aramót í holukeppni sem fram fer í Wentworth á Englandi í næsta mán- uði, en alls er 12 kylfingum boðið að taka þátt.  VERÐLAUNAFÉÐ er um 130 millj. kr. en þrátt fyrir það hafa Davis Love III, Tiger Woods, David Toms, Kenny Perry og Phil Mickelson af- þakkað boð um að taka þátt og verða því færri „stór nöfn“ að þessu sinni.  ERNIE Els verður á meðal kepp- enda en hann hefur unnið mótið fjór- um sinnum og getur jafnað met þeirra Gary Player og Seve Ballest- eros, sem unnu mótið fimm sinnum.  Í fyrsta sinn í sögu keppninnar verða ekki keppendur frá Englandi eða Írlandi, en stærstu nöfnin að þessu sinni verða auk Els þeir Mike Weir, Ben Curtis og Shaun Micheel.  FORRÁÐAMENN frá knatt- spyrnusambandi Nígeríu funduðu í gær með Bryan Robson í London og hafa þeir áhuga á að fá Robson til að taka að sér þjálfun landsliðs Nígeríu. Robson er 46 ára gamall og lék 90 landsleiki fyrir England. AUÐUN Helgason skoraði annað mark sænska úrvalsdeildarliðsins Landskrona í gærkvöldi er liðið vann GIF Sundsvall, 3:2. Auðun skoraði markið á 36. mínútu en Landskrona komst þremur mörkum yfir áður en gestirnir náðu að skora tvívegis í síð- ari hálfleik. Landskrona er í 11. sæti með 28 stig en GIF Sundsvall er í 12. sæti með 12 stig. Pétur Marteinsson og félagar hans í Hammarby áttu stórleik í Stokkhólmi gegn botnliðinu Enköp- ing og skoruðu heimamenn 5 mörk í fyrri hálfleik og bættu við 2 mörkum í þeim síðari. Hammarby er í 3. sæti deildarinnar með 44 stig en Malmö er þar fyrir ofan með 45 stig en Djurgården er í efsta sæti með 47 stig en aðeins þrjár umferðir eru eft- ir af sænsku deildinni. Auðun skoraði gegn Sundsvall

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.