Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 51
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
Um það leyti sem þú heyrir í honum eða
sérð hann. Er það um seinan. Svakaleg hrollvekja
sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum
ATH! FYRSTA SÝNISHORNIÐ ÚR LORD OF THE
RINGS:THE RETURN OF THE KING ER
SÝNT Á UNDAN MYNDINNI.
Námsmannalínu félagar fá
2 fyrir 1 á myndina ef greitt
er með ISIC debetkortinu
Frábær gamanmynd með hinum vinsæla Ashton
Kutcher. Hann er skotinn í dóttur yfirmann síns
og gerir allt til að komast yfir hana.
En Suma hluti gerir maður bara ekki!
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16 .
SV MBL
ZOMBIE- SKONROKK
FM 90.9
HK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6. Ísl. tal. BOÐSÝNING KL. 6.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 6. Með ísl. tali - Tilboð 400 kr.
Fór beint átoppinn í
USA!
Þeir eru mættir aftur! Frá ofur
framleiðandanum Jerry
Bruckheimer.
i tti ft ! f
f l i
i .
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16 áraSýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára
Um það leyti sem þú heyrir í honum eða sérð hann.
Er það um seinan.Svakaleg hrollvekja sem fór beint
á toppinn í Bandaríkjunum
ATH! FYRSTA SÝNISHORNIÐ ÚR LORD OF THE
RINGS:THE RETURN OF THE KING VERÐUR
SÝNT Á UNDAN MYNDINNI.
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku, hvað
myndir þú gera? BRUCE
Spæjarinn Kalli Blómkvist lendir í
svakalegum ævintýrum með vini sínum
Rasmus. Frábær skemmtun fyrir alla
fjölskylduna.
LEIKSTJÓRINN Elia Kazan er lát-
inn, níutíu og fjögurra ára að aldri.
Elia átti langan og farsælan leik-
stjórnarferil og var margverðlaun-
aður fyrir leikstjórn sína, bæði á
kvikmyndum og leikverkum. Hann
vann meðal annars Óskarsverðlaun
fyrir kvikmyndirnar On the water-
front, þar sem hann leikstýrði
Marlon Brando, og Gentleman’s
agreement með Gregory Peck.
Einnig fékk hann Tony-verðlaun
fyrir uppsetningu sína á Death of a
salesman eftir Arthur Miller. Hann
fékk margar tilnefningar til Ósk-
arsverðlauna á ferli sínum og starf-
aði með mörgum helstu stjörnum
gulláranna.
Elia Kazan fæddist árið 1909 í
borginni Konstantínópel, sem nú er
Istanbúl. Foreldrar hans voru
grískir og fluttu til Bandaríkjanna
þegar hann var barn. Á fimmta ára-
tugnum var hann farinn að láta að
sér kveða í leikstjórn sviðsverka og
kvikmynda. Hann leikstýrði sinni
fyrstu mynd, A tree grows in
Brooklyn, árið 1945 og aðeins
tveimur árum síðar hafði hann unn-
ið Óskarsverðlaunin fyrir Gentle-
man’s agreement. Elia mótaði á
þessu tímabili sinn sérstaka nátt-
úrulega og meðvitaða stíl sem hafði
áhrif á þroska næstu kynslóða
ungra kvikmyndagerðarmanna.
Meðal annarra kvikmynda sem
hann gerði voru A streetcar named
Desire, sem skaut Marlon Brando
upp á stjörnuhimininn, og East of
Eden, sem gerði slíkt hið sama fyrir
hinn unga James Dean.
Samvinna við McCarthy
Elia var einnig rithöfundur og
gaf út tvær skáldsögur, America,
America og The arrangement, sem
hann kvikmyndaði. Einnig gaf hann
út sjálfsævisögu sína, Elia Kazan –
A life.
Á sjötta áratugnum var skugga
varpað á sögu leikstjórans þegar
hann bar vitni fyrir þingnefnd
bandaríska þingmannsins Josephs
McCarthys, sem stóð í nornaveiðum
gegn „and-amerískum öflum“. Elia
lét undan þrýstingi og var meðal
þeirra fyrstu til að nefna nöfn fólks
í Kommúnistaflokknum til að
sleppa við svarta listann alræmda,
þar sem nöfn „and-amerískra“
listamanna voru geymd. Ofsóknir
McCarthys eyðilögðu líf og starfs-
feril fjölda fólks og eru nú almennt
álitnar afar dökkur hluti sögu
Bandaríkjanna. Elia lýsti því yfir að
hann sæi ekki eftir neinu og lenti í
mikilli ónáð meðal kollega sinna.
Segja má að hann hafi ekki náð sér
á strik eftir þetta tímabil og aldrei
fengið uppreisn æru.
Elia Kazan hlaut viðurkenningu
bandarísku kvikmyndaakadem-
íunnar fyrir ævistarf sitt í kvik-
myndum árið 1999 og var sú við-
urkenning afar umdeild. Margir
viðstaddir neituðu að standa upp og
klappa og sátu sem fastast í sætum
sínum til að minna á samvinnu hans
við þingnefndina forðum. Engu að
síður er ljóst að með Elia Kazan er
farinn brautryðjandi og snillingur
sem lagði margt gott fram til kvik-
myndalistarinnar.
Elia Kazan ásamt vini sínum og starfsfélaga, Tennesee Williams.
Elia Kazan allur
Reuters
Leikstjórinn Elia Kazan er látinn,
níutíu og fjögurra ára að aldri.
SKJÁRTVEIR, ný íslensk áskrift-
arstöð, hefur útsendingar 1. októ-
ber. Verður dagskránni dreift um
Breiðband Símans til að tryggja
myndgæði og stöðuga móttöku
stöðvarinnar.
Skjártveir er ætluð sem algjör
viðbót við Skjáeinn, sem er í opinni
dagskrá og rekinn með auglýsing-
um. Að sögn talsmanna Íslenska
sjónvarpsfélagsins er ætlunin að
stöðvarnar tvær vinni saman, svo
áhorfendur geti alltaf fundið eitt-
hvað við sitt hæfi.
Meðal efnis á Skjátveimur verða
kvikmyndir, en ætlunin er að hafa
kvikmyndakvöld minnst þrjú kvöld í
viku, auk þess sem myndir verða
sýndar síðdegis og um miðnætti.
Einnig verða ýmsar þáttaraðir á
dagskrá. Nýir spennuþættir verða í
boði, þar á meðal Hack, sem fjallar
um lögreglumann sem er rekinn úr
lögreglunni með smán. Einnig verða
sýndir spennuþættirnir John Doe
sem fjalla um hinn leyndardóms-
fulla John Doe sem notar einstaka
hæfileika sína til að leysa leysa erfið
mál.
Gamlir kunningjar af Skjáeinum
færa sig yfir á Skjátvo; Law & Ord-
er: Criminal Intent, Charmed og
CSI verða í sýningum auk gam-
anþáttanna Everybody loves Ray-
mond, Will og Grace og Yes, Dear,
sem munu sjá um að kitla hlát-
urtaugar skjáeygra. Einnig verður
tekinn til sýninga hinn dramatíski
og umdeildi breski þáttur Queer as
Folk. Þar er fylgst með lífi þriggja
samkynhneigðra karla sem búsettir
eru í Manchester.
Gagnrýnendur hafa sagt þáttinn
vera beinskeytta umfjöllun um ástir
og örlög í nútímanum og bera með
sér ferskan blæ.
Notendum Breiðbandsins gefst
kostur á að fylgjast með opinni dag-
skrá til 15. október og þeir sem
kaupa sér áskrift fyrir þann tíma fá
myndlykilinn frían og áskriftina
endurgjaldslausa út mánuðinn.
Áskriftin mun síðan kosta 2.995
krónur á mánuði.
Skjártveir hefur göngu sína
Queer as Folk er umdeildur þáttur. David Morse fer með aðalhlutverkið í Hack.
Fjölbreytt afþreyingarefni
MAGNÚS Ólafsson er helsti frum-
herji íslenskrar ljósmyndunar en
sýning á myndum hans var opnuð á
laugardaginn í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur.
Myndirnar á sýningunni varpa
sýn á þróun Reykjavíkurborgar frá
upphafi 20. aldar og fram að mið-
biki hennar og veita glögga sýn á
þroska þann sem hún tók út á tíma-
bili mikilla breytinga. Á sýningunni
er jafnframt kynnt ný og glæsileg
bók um Magnús þar sem er að finna
108 myndir.
Sýningin stendur til 1. desember.
Sýning á myndum Magnúsar Ólafssonar opnuð
Gamla Reykjavík ljóslifandi
Gestir virða fyrir sér myndirnar. Borgarstjórinn, Þórólfur Árnason, blaðar í bókinni.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
E
in
ar
F
al
ur