Morgunblaðið - 01.10.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 265. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hyundai í
halarófu
Hyundai-jeppaeigendur efndu
til hópferðar á fjöll Bílar 8
Íslenskir
huliðsheimar
Jean Michel Roux rannsakar
álfatrú Íslendinga Fólk 48
Snarpt
haustþing
Þingmenn koma saman í dag við
setningu 130. löggjafarþings 10
ORKUVEITA Reykjavíkur hefur fest kaup á
55 trjám í Svíþjóð. Verður þeim plantað við
höfuðstöðvar OR á Bæjarhálsi 1, meðal ann-
ars framan við innganginn þar sem greinar
hlyntrjáa eiga að breiða úr sér og mynda lauf-
þak eins og í gömlum hallargörðum í Evrópu.
Hingað komin kosta trén um 4 milljónir.
Orkuveitan kaupir 10 garðahlyni og 45
seljureyni frá gróðrarstöð á Hallandi í Sví-
þjóð. Trjáútflutningurinn til Íslands vakti at-
hygli sænska blaðsins Hallandsposten sem
birti frétt um málið í gær. Fram kemur þar að
trén eru allt að 15–20 ára gömul og þau
stærstu sex til sjö metra há.
Kristinn Þorsteinsson, garðyrkjustjóri OR,
segir að von sé á trjánum í nóvember. Hlyn-
irnir verði gróðursettir framan við inngang
höfuðstöðva fyrirtækisins. Þegar trén verði
orðin hæfilega há, kannski um sjö metrar,
verði toppurinn klipptur þannig að greinarn-
ar breiði úr sér og myndi laufþak sem fólk
gengur undir þegar það fer inn í húsið eða yf-
irgefur það. Segir Kristinn að þetta fyrir-
komulag sé þekkt í Evrópu, meðal annars í
hallargörðum. Segir hann að trén verði gömul
og standi vonandi þarna í 400 til 500 ár.
Spurður um ástæðu þess að trén eru flutt
inn frá Svíþjóð en ekki ræktuð hér segir
Kristinn að valdar hafi verið trjátegundir sem
verði mjög gamlar í sínum heimkynnum.
Ekki sé hægt að fá tré af þessari gerð og
stærð hér á landi. Reykjavíkurborg hafi flutt
inn tré frá þessari gróðrarstöð í Svíþjóð, með-
al annars til að gróðursetja á Ingólfstorgi, og
hafi þau reynst afbragðs vel.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Garðahlynunum er ætlað að mynda laufþak
framan við aðalinngang höfuðstöðva Orku-
veitu Reykjavíkur.
OR flytur inn
sænsk hall-
argarðstré
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti gaf í gær
starfsmönnum Hvíta hússins fyrirmæli um að
veita dómsmálaráðuneytinu allar upplýsingar
sem kynnu að tengjast rannsókn ráðuneytisins
á því hvort einn eða fleiri embættismenn í
Hvíta húsinu hefðu brotið lög með því að nafn-
greina einn af starfsmönnum bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA. „Ég vil að sannleikurinn
verði leiddur í ljós,“ sagði forsetinn á fundi í
Chicago. Ef einhverjir af embættismönnum
hans hefðu lekið nafninu yrði tekið á því máli af
festu, sagði hann.
Áhrifamiklir öldungadeildarþingmenn úr
röðum demókrata sögðu í gær að skipa bæri
sérstakan óháðan rannsóknardómara til að
kanna málið. Rannsóknin yrði þá trúverðugri;
hæpið væri að láta John Ashcroft dómsmála-
ráðherra, sem Bush skipaði sjálfur í embætti,
Níger í Afríku byggðust á fölsuðum skjölum.
Scott McClellan, talsmaður Bush forseta,
sagði í gær að ásökunin um lekann væri „mjög
alvarlegt mál“. Hann neitaði því hins vegar að
embættismenn forsetans eða Dicks Cheneys
varaforseta hefðu lekið upplýsingunum í fjöl-
miðla. Hann nefndi Karl Rove, einn helsta ráð-
gjafa Bush, sérstaklega í þessu sambandi og
sagði að það væri „fáránlegt“ að bendla hann
við málið.
Fréttamaðurinn Robert Novak skýrði frá
starfi Plame í blaðagrein í júlí. Hann er einn af
stjórnendum þáttarins Crossfire hjá CNN-
sjónvarpsstöðinni og segist í samtali við stöð-
ina ekki hafa fengið upplýsingarnar um Plame
hjá embættismanni í Hvíta húsinu heldur hjá
manni er starfi hjá CIA. Novak neitar að
greina frekar frá heimildarmanni sínum.
hafa umsjón með rannsókninni á lekanum.
Starfsmönnum Hvíta hússins var skýrt frá
því í tölvupósti í gær að dómsmálaráðuneytið
hefði hafið „allsherjar glæparannsókn“ á mál-
inu, ekki aðeins forrannsókn eins og venja er.
Alberto R. Gonzales, lögmaður Hvíta hússins,
sagði í tölvupósti til starfsmanna að þeir ættu
að „geyma öll gögn sem kynnu með einhverjum
hætti að tengjast rannsókn ráðuneytisins“ og
átti væntanlega m.a. við tölvupóst, skrifleg
skilaboð, skrár yfir símtöl og önnur skjöl.
Rannsóknin var hafin að beiðni yfirmanns
CIA eftir að því var lekið í fjölmiðla að Valerie
Plame, eiginkona Josephs C. Wilsons, fyrrver-
andi sendiherra í Afríkuríkinu Gabon, væri
meðal starfsmanna leyniþjónustunnar. Wilson
upplýsti í fyrra að fullyrðingar breskra stjórn-
valda um að Írakar hefðu reynt að kaupa úran í
Starfsmenn Hvíta hússins sakaðir um að nafngreina CIA-njósnara
Allsherjar glæpa-
rannsókn hafin á leka
Washington. AP, AFP.
UMDEILDUR öryggismúr, sem
Ísraelar eru nú að reisa milli
landsins og Vesturbakkans, jafn-
gildir því að palestínskt landsvæði
sé með ólöglegum hætti innlimað í
Ísrael og ríki heims ættu því að
fordæma hann, segir í nýrri
skýrslu mannréttindafulltrúa
Sameinuðu þjóðanna í Mið-Aust-
urlöndum, Johns Dugards. Múr-
inn liggur sums staðar talsvert inn
á palestínsk svæði og umlykur
þannig nýjar byggðir um 200 þús-
und landtökumanna úr röðum
gyðinga.
„Tími er kominn til að fordæma
múrinn sem merki um ólöglega
innlimun á sama hátt og innlimun
Ísraela á Austur-Jerúsalem og
Gólanhæðum hefur verið for-
dæmd sem ólögleg,“ sagði
Dugard.
Ísraelar segja nauðsynlegt að
reisa múrinn til að hindra palest-
ínska hryðjuverkamenn í að laum-
ast inn í Ísrael. Fulltrúar stjórnar
Ariels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels, vísuðu niðurstöðu
Dugards umsvifalaust á bug og
sökuðu hann um hlutdrægni. Þeir
sögðu hann m.a. hunsa algerlega
þá staðreynd að um 900 Ísraelar
hefðu fallið í árásum hryðjuverka-
manna undanfarin þrjú ár.
Bandaríkjamenn hafa lýst and-
stöðu sinni við múrinn og segja,
eins og Palestínumenn, að honum
sé greinilega ætlað að afmarka
endanleg landamæri. William
Burns, sem er aðstoðarutanríkis-
ráðherra og fer með málefni Mið-
Austurlanda, varaði á ráðstefnu á
mánudag Ísraela við því að halda
áfram að treysta í sessi og stækka
landtökubyggðirnar. Hann benti á
tölur um mannfjöldaþróun sem
sýndu að árið 2020 yrðu Palestínu-
innlima palestínsku svæðin gæti
það því á endanum ógnað „framtíð
Ísraels sem lýðræðisríkis gyð-
inga“.
menn en ekki Ísraelar í meirihluta
á samanlögðu svæði þjóðanna
tveggja, þ.e. Ísrael, Vesturbakk-
anum og Gaza. Ef reynt væri að
Mannréttindafulltrúi SÞ í Mið-Austurlöndum
Múrinn ólögmætur
Genf, Jerúsalem, Gaza. AP, AFP.
Reuters
Palestínumaður gægist út um glufu á múr sem skilur að Austur-
Jerúsalem og eina af borgum Palestínumanna, Abu Dis.
TANNHEILSA barna í Nor-
egi, heimalandi Karíusar og
Baktusar, hefur versnað mjög
síðustu árin og í héraðinu
Heiðmörk eru nú um 66%
fimm ára barna með holur, að
sögn fréttavefjar Aftenposten.
Árið 1997 var hlutfallið aðeins
28%. Gosþambi og tímaskorti
foreldra sem bursti ekki tenn-
ur barna nógu oft er kennt um.
Annað sem skýrir þróunina er
vaxandi hlutfall barna innflytj-
enda, að sögn Carls Christians
Blich, forseta tannlækna-
sambandsins norska.
Flest börnin sem rannsökuð
voru reyndust hafa verið með
svo slæmar skemmdir að tann-
læknir þurfti að setja fyllingar
í þær. Rannsóknir í Ósló og
Bergen sýna að þar er þriðja
hvert þriggja ára barn með
eða hefur verið með holur.
„Tölurnar valda okkur
áhyggjum,“ segir Blich. „Þeg-
ar meðhöndla þarf svo lítil
börn erum við smeykir um að
þau fái tannlæknahræðslu sem
vari allt lífið. Þau vita ekki al-
veg hvað er að gerast og þess
vegna verða þetta algerar
pyntingar,“ segir Blich.
Nýjar rannsóknir sýna sem
fyrr að menntun og uppruni
foreldranna skipta máli. Tíðni
tannskemmda er mun hærri
hjá börnum innflytjenda en al-
mennt meðal þjóðarinnar. Um
60% innflytjendabarna í Ósló
eru með holur en aðeins 24%
barna innfæddra Norðmanna.
Segir Blich að skilningur á
nauðsyn forvarna eins og
tannburstunar og rétts mat-
aræðis sé líklega minni í röð-
um innflytjenda.
Karíus og
Baktus á
heimavelli
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós hefur verið til-
nefnd til evrópsku MTV-verðlaunanna fyrir
myndband sitt við lagið „Ónefnt 1“ sem tek-
ið er af plötunni ( )
sem út kom í fyrra.
Myndbandinu leik-
stýrir Ítalinn Floria
Sigismondi sem hef-
ur unnið með lista-
mönnum eins og
Robert Plant, David
Bowie, Leonard Cohen, Marilyn Manson og
Björk. Fjórir listamenn aðrir eru tilnefndir;
rapparinn Missy Elliot, rokksveitirnar
White Stripes og Queens of the Stone Age
og raf/danssveitin U.N.K.L.E. Verðlaunin
verða afhent í Edinborg 6. nóvember.
Sigur Rós til-
nefnd til evr-
ópsku MTV-
verðlaunanna
♦ ♦ ♦