Morgunblaðið - 01.10.2003, Side 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hluthafafundur í SÍF hf. ver›ur haldinn mi›vikudaginn 15.
október 2003 í a›alstö›vum félagsins a› Fornubú›um 5,
Hafnarfir›i og hefst fundurinn kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Kjör tveggja stjórnarmanna.
2. Tillögur um breytingar á samflykktum.
Stjórn félagsins leggur fram tillögurnar um breytingar á samflykktum
félagsins. Lúta flær a› flví a› stytta samflykktirnar og einfalda en helstu
efnisbreytingar eru:
a) Hluthafafundir ver›i lögmætir án tillits til fundarsóknar.
b) Vi› stjórnarkjör flurfa frambjó›endur a› tilkynna frambo› sitt skriflega
til stjórnar 5 sólarhringum fyrir upphaf hluthafafundar.
Tillögur stjórnarinnar um breytingar á samflykktunum geta hluthafar
kynnt sér á vefsí›u félagsins, www.sif.is, e›a á a›alskrifstofu félagsins
flar sem flær liggja frammi.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á fundinum skulu vera komnar
í hendur stjórnarinnar eigi sí›ar en sjö dögum fyrir fundinn.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins
hluthöfum til s‡nis sjö dögum fyrir fundinn. Ennfremur er hægt a›
nálgast flær á vefsí›u félagsins.
A›göngumi›ar, atkvæ›ase›lar og fundargögn ver›a afhent á fundarsta›
frá kl. 15.00 fundardaginn.
Stjórn SÍF hf.
Athygli hluthafa er vakin á n‡jum fundarsta›.
SÍF HF.
HLUTHAFAFUNDUR
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
•
N
M
1
0
4
1
2
/
s
ia
.i
s
FRANSKA flugfélagið Air France
og hollenska flugfélagið KLM hafa
ákveðið að sameinast um eignarhald
á félögunum. Ekki er um eiginlegan
samruna félaganna að ræða og verða
þau áfram rekin hvort í sínu lagi.
Hins vegar mun nýtt eignarhalds-
félag, Air france-KLM, reka bæði
flugfélögin og þeirra leiðarkerfi und-
ir einum hatti. Félögin telja að með
þessu verði til ýmsir hagræðingar-
möguleikar en hafa tekið fram að
starfsfólki flugfélaganna verði ekki
sagt upp.
Stærra en British Airways
Samstæðan verður sú stærsta í
flugrekstri í Evrópu og slær þar með
British Airways við hvað stærð varð-
ar. Áætlaðar tekjur samstæðunnar
eru 19,2 milljarðar evra á ári, eða
sem svarar til rúmlega 2.000 millj-
arða íslenskra króna, en tekjur BA
voru 12,4 milljarðar evra í fyrra (um
1.350 milljarðar króna). Gert er ráð
fyrir að samstæðan muni flytja 58,8
milljónir farþega á ári til 226 áfanga-
staða um allan heim. Það kemur til
með að reka 540 flugvéla flota og
hafa um 106 þúsund manns í vinnu.
Forstjóri KLM, Leo van Wijk,
sagði á blaðamannafundi um málið
að fullljóst væri að núverandi skipan
á flugmarkaði í Evrópu yrði að
breytast. Sá háttur að reka flugfélög
í ríkiseigu í hverju landi fyrir sig
væri að hverfa.
Jean-Cyril Spinetta, stjórnar-
formnaður Air France og yfirmaður
nýju samstæðunnar sagði núverandi
rekstur Air France ekki skapa hlut-
höfum félagsins nægar tekjur og
tími væri kominn til breytinga þar á.
„Þetta eru þáttaskil fyrir KLM og
Air France og mikilvægur tíma-
punktur fyrir flugrekstur í Evrópu,“
sagði Spinetta.
Franska ríkið verður stærsti hlut-
hafinn í Air France-KLM með 44%
hlut, aðrir hluthafar Air France
eignast 37% og hluthafar í KLM fá
19% hlutafjár í hinu nýja eignar-
haldsfélagi.
Gert er ráð fyrir að gengið verði
endanlega frá samningum félaganna
á næstu vikum og vinnu við sam-
þættingu flugfélaganna á að vera
lokið í apríl á næsta ári.
Alitalia vill hlut að máli
Þá hefur ítalska flugfélagið Alit-
alia undirritað þríhliða samstarfs-
samning við félögin tvö og tilkynnt
um að það muni hefja viðræður um
að ganga til liðs við nýju samstæð-
una um leið og ítalska ríkið láti
stjórnun félagsins af hendi.
Air France og KLM
saman í eina sæng
Reuters
Jean-Cyril Spinetta, stjórnarformaður Air France, og Leo van Wijk, for-
stjóri KLM, á blaðamannafundi sem haldinn var á Schiphol-flugvelli í gær.
Segja núverandi
skipan á flugmark-
aði í Evrópu verða
að breytast og rík-
isrekin flugfélög
muni hverfa
ICELANDAIR ehf. braut gegn
ákvæðum samkeppnislaga með kynn-
ingu og sölu á flugfargjöldunum vor-
smellum að upphæð 14.900 krónur.
Viðskiptavinum félagsins stóðu þessi
fargjöld til boða fyrir ferðatímabilið
frá 1. mars til 15. maí 2003 á flugleið-
unum milli Keflavíkur og Kaup-
mannahafnar, annars vegar, og milli
Keflavíkur og Lundúna, hins vegar.
Þetta er úrskurðar áfrýjunarnefndar
samkeppnismála sem birtur var í
gær. Áfrýjunarnefndin hefur þar með
staðfest ákvörðun Samkeppnisráðs
varðandi þetta sama mál frá því í júlí
síðastliðnum.
Eins og fram kemur í niðurstöðum
úrskurðar áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála snýst þetta mál um það
hvort Icelandair hafi sem markaðs-
ráðandi fyrirtæki beitt svonefndri
skaðlegri undirverðlagningu við
markaðssetningu fargjalda sinna.
Slík verðlagning er talin fela í sér mis-
notkun.
Iceland Express fór fram á það að
áfrýjunarnefnd samkeppnismála
beitti Icelandair stjórnvaldssektum
vegna þessa máls, sem Samkeppnis-
ráð hafði ekki gert. Nefndin varð ekki
við þessari kröfu Iceland Express.
Jóhannes Georgsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Express, segir
um úrskurð áfrýjunarnefndar: „Þetta
staðfestir að þessir vorsmellir hafi
verið ólöglegir og Flugleiðir hafi brot-
ið gegn samkeppnislögum hvað það
varðar. Þetta er í raun óbreytt nið-
urstaða frá úrskurði Samkeppnis-
ráðs.“ Hann segist munu kynna sér
úrskurðinn nánar á næstu dögum.
Veita aftur vildarpunkta
Í tilkynningu sem barst frá Ice-
landair í gær segir að Icelandair fagni
úrskurði áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála, þar sem „áfrýjunar-
nefndin hnekkir í meginatriðum
ákvörðun Samkeppnisráðs frá því 15.
júlí.“ Þá segir að með úrskurði sínum
staðfesti áfrýjunarnefndin „að Ice-
landair var heimilt að kynna og selja
Netsmelli og viðskiptafargjöld sem
Samkeppnisráð hafði talið brot á sam-
keppnislögum.“ Ennfremur segir að
Icelandair muni nú aftur veita vild-
arpunkta með lægstu Netsmellum.
„Úrskurðarnefndin tekur í aðalat-
riðum undir sjónarmið Icelandair og
fellir úr gildi úrskurð Samkeppnis-
ráðs í tveimur af þremur áfrýjunarlið-
um. Það er jafnframt ánægjuefni að
mati félagsins að áfrýjunarnefndin
hafnar öllum kröfum Iceland
Express, sem allar miðuðu að því að
takmarka samkeppni og halda uppi
verði flugfargjalda. Icelandair mun
nú íhuga viðbrögð við þeirri niður-
stöðu nefndarinnar að félagið hafi
með Vorsmellum brotið gegn sam-
keppnislögum. Þeir voru tímabundið
tilboð fyrir afmarkaðan hóp við-
skiptavina og ótengdir almennri verð-
stefnu félagsins,“ segir í tilkynning-
unni.
Báðir aðilar kærðu
Bæði Icelandair og Iceland
Express kærðu í ágúst síðastliðnum
ákvörðun Samkeppnisráðs, sem tekin
var 4. júlí 2003. Í hinni kærðu ákvörð-
un taldi Samkeppnisráð að með kynn-
ingu og sölu á tilteknum fargjöldum
hefði Icelandair brotið gegn 11. grein
samkeppnislaga nr. 8/1993. Jafnframt
bannaði Samkeppnisráð fyrirtækinu,
með vísan til samkeppnislaga, að
kynna og selja umrædda netsmelli og
vorsmelli. Ennfremur ógilti Sam-
keppnisráð verðlækkun Icelandair á
viðskiptafargjöldum.
Icelandair krafðist þess að hin
kærða ákvörðun Samkeppnisráðs
verði felld úr gildi. Af hálfu Iceland
Express var þess krafist að áfrýjun-
arnefnd samkeppnismála taki til end-
urskoðunar einstaka þætti í forsend-
um og niðurstöðum hinnar kærðu
ákvörðunar, sem og að Icelandair
verði gert að greiða sektir á grund-
velli samkeppnislaga.
Samkeppnisráð krafðist þess að
áfrýjunarnefnd samkeppnismála
staðfesti ákvörðun ráðsins, sem og
var gert. Ásgeir Einarsson, yfirlög-
fræðingur Samkeppnisstofnunar,
segir að stofnunin sé í öllum aðalatrið-
um ánægð með úrskurð áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála.
Tilboð á sömu flugleiðum
Forsaga þessa máls er sú að hinn 9.
janúar 2003 hóf Iceland Express
starfsemi sína hér á landi. Verð á
ódýrustu flugmiðum félagsins milli
Keflavíkur og Kaupmannahafnar,
annars vegar, og milli Keflavíkur og
Lundúna, hins vegar, fram og til
baka, var 14.460 krónur. Í lok janúar
2003 kynnti Icelandair tilboð sem
kallað var vorsmellir, þar sem félagið
bauð að sögn þúsundir sæta á sömu
flugleiðum á 14.900 krónur.
Það vakti athygli Samkeppnis-
stofnunar að tilboð Icelandair náði að-
eins til sömu flugleiða og Iceland
Express sinnti. Var fyrirtækinu til-
kynnt að stofnunin myndi hefja
athugun á því hvort tilboðið kynni að
brjóta gegn 11. grein samkeppnis-
laga. Einnig barst Samkeppnisstofn-
un erindi frá Iceland Express þar
sem farið var fram á að stofnunin tæki
ákvörðun til bráðabirgða í þessu máli.
Ekki kom til þess þar sem Icelandair
lýsti því yfir að fyrirtækið myndi
hætta sölu á vorsmellum eða sam-
bærilegum fargjöldum og halda að
sér höndum við markaðssetningu og
kynningu á ódýrum netsmellum til
Kaupmannahafnar og Lundúna.
Áfrýjunarnefnd staðfestir ákvörðun Samkeppnisráðs
Icelandair braut gegn
samkeppnislögum
KANADÍSKI álframleiðandinn
Alcan, sem meðal annars á Alcan á
Íslandi sem rekur álverið í
Straumsvík, mun samkvæmt frétt
FT.com leggja fram yfirtökutilboð
í franska álfyrirtækið Pechiney á
næstu dögum. Alcan fékk grænt
ljós á yfirtökuna frá evrópskum og
bandarískum samkeppnisyfirvöld-
um sl. mánudag að ákveðnum skil-
yrðum uppfylltum. Alcan þarf m.a.
að selja annað hvort 50% hlut sinn
í Alunorf álverksmiðjunni og verk-
smiðjurnar í Göttingen og
Nachterstedt, eða verksmiðjur
Pechiney í Neuf-Brisach í Frakk-
landi, Rugles verksmiðjuna og
Annecy verksmiðjuna. Bandarísk
yfirvöld settu það skilyrði að Alcan
seldi verksmiðju Pechiney í Vest-
ur-Virginíu.
Verðmæti yfirtökutilboðsins er
4,6 milljarðar Bandaríkjadala eða
350 milljarðar íslenskra króna.
Alcan fékk grænt
ljós á Pechiney
HORFUR eru á mun betri afkomu
af rekstri Íslandsbanka hf. á árinu
2003 en gert hafði verið ráð fyrir.
Bankinn hefur tilkynnt um að bráða-
birgðatölur fyrir þriðja ársfjórðung
bendi til þess, að hagnaður fyrstu níu
mánuði þessa árs verði talsvert meiri
en var allt árið í fyrra. Hagnaður Ís-
landsbanka á fyrstu 9 mánuðum árs-
ins 2002 nam 2.359 milljónum króna
en hagnaður ársins í heild var 3.407
milljónir. Útlit er því fyrir að hagn-
aður fyrstu níu mánaða ársins í ár
verði a.m.k. 1 milljarði króna hærri
en á sama tímabili í fyrra.
Í sex mánaða uppgjöri 2003 sem
birt var í lok júlí sl. sagði að Íslands-
banki gerði sem fyrr ráð fyrir meiri
hagnaði ársins 2003 en á síðasta ári
og aukinni arðsemi eigin fjár á milli
ára, að gefnum forsendum um
áframhaldandi stöðugleika í efna-
hagslífinu og aukna innlenda eftir-
spurn.
Horfur á betri
afkomu Íslandsbanka
LANDSBANKI Íslands hf. hefur
ákveðið að lækka vexti óverð-
tryggðra innlána og útlána frá og
með 1. október. Ástæðan er sögð
batnandi lausafjárstaða bankans og
vaxtaþróun á markaði.
Mest er lækkunin á óverðtryggð-
um skuldabréfum en vextir þeirra
lækka um 0,4% og eru 8,50%. Á inn-
lánahlið er helsta breytingin sú að
vextir Vaxtareiknings og Kjörbóka
lækka um 0,15% og eru á bilinu
2,50%-5,05%. Vextir á lífeyrisbók
verða hins vegar óbreyttir.
Til samanburðar eru kjörvextir
óverðtryggðra skuldabréfa hjá Ís-
landsbanka 8,40% og 8,45% hjá
Kaupþingi-Búnaðarbanka. Vextir
verðtryggðra reikninga hjá Íslands-
banka eru á bilinu 4,20% til 4,80%.
Landsbankinn lækkar vexti