Morgunblaðið - 01.10.2003, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 01.10.2003, Qupperneq 19
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 19 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri á skíði til eins vinsælasta skíðabæjar í Austurrísku ölpunum, Zell am See. Beint leiguflug til Salzburg, þaðan sem er aðeins um klukkustund- arakstur til Zell. Í boði eru góð þriggja og fjögurra stjörnu hótel í hjarta Zell, rétt við skíðalyfturnar, veitingastaði, verslanir og kvöldlífið. Í Zell er að finna frábærar aðstæður fyrir skíðamanninn. 55 lyftur eru á svæðinu þ.a. hægt er að velja um allar tegundir af brekkum, allt eftir getu hvers og eins. Úrval verslana, veitinga- og skemmtistaða er í bænum sem og í næstu bæjum. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 39.950 Salzburg, flugsæti og skattar. Verð kr. 59.950 Flug, skattar og gisting, m.v. hótel án nafns, Zell am See/Kaprun. Vikuferð með morgunverð, m.v. 2 í herbergi. · 31. jan. · 7. feb. · 14. feb. Beint flug til Salzburg Skíðaveisla Heimsferða Austurríki Zell am See – St. Anton - Lech "   ## $    % #     $ %" &'(()*'( +, '(()*-- !   !. / 2,  3   0  0  123  ,!+""  / 8  %       +  +      #$    %       "    %       %   "   *  *    0.4 5 9%         : %: % #$           # % % +   + 6   4  ;  3  $: 5         . 4   7      ,  1       " Krakkarnir í Njarðvíkurskóla eru meðal þeirra sem eru duglegir að nota strætisvagna í Reykjanesbæ. Strætisvagninn fylltist þegar hópur úr Njarðvíkurskóla steig upp í vagn- inn á leiðinni til Innri-Njarðvíkur. Flest létu þau vel af því að taka strætó í og úr skóla. Áslaug er í 6. bekk í Njarðvík- urskóla. Hún er frá Innri-Njarðvík og tekur strætó í skólann á hverjum degi: „Það er ekkert svakalega skemmtilegt, það er svo mikill troðn- ingur.“ Eva og Maggi taka undir þessi orð og segja að það sé svaka- lega mikið af fólki á morgnana. Maggi segist nota strætó til að kom- ast í og úr skóla og tónlistarskóla, og fer líka stundum með strætó þess á milli til að heimsækja vini sína. Hon- um finnst mikill munur að þurfa ekki að borga, þá verður minni troðningur, enginn gleymir kortinu og allt gengur betur fyrir sig. Það taka ekki allir strætó bara til þess að komast milli staða. Bjarki Már í 7. bekk býr í Ytri-Njarðvík en fer stundum rúntinn til Innri- Njarðvíkur með krökkunum sem búa þar. „Það er svo skemmtilegt að geta talað við vinina, við megum ekki tala saman í tímum í skól- anum,“ segir Bjarki. Eldri krakkarnir nota líka strætó, Margrét og Vaka eru í 10. bekk í Njarðvíkurskóla, en sækja ensku- tíma í Fjölbrautaskóla Suðurnesja nokkrum sinnum í viku. Þær eru sammála um að það sé ágætt að taka strætó í Reykjanesbæ, en það geti verið svolítið troðið á morgnana þegar allir eru að fara í og úr skóla eða vinnu. Margrét og Vaka: Taka strætó í Fjölbrauta skóla Suðurnesja. Pakkað af hressum krökkum í strætó þegar skólinn er búinn í Reykjanesbæ Morgunblaðið/Brjánn Jónasson Heim í strætó: Krakkar úr Njarðvíkurskóla fylltu vagninn á leið hans til Innri-Njarðvíkur og einn fór auka hring. „Það er áberandi fjölgun á farþegum síðan farið var að gefa frítt í strætó,“ segir Hjalti Gústavsson strætóbíl- stjóri, sem keyrði krakkana úr Njarð- víkurskóla heim. Hann segir alltaf hafa verið visst vesen með strætó- kortin sem krakkarnir höfðu, ein- hverjir gleymdu þeim, týndu þeim eða voru ekki með peninga. „Það er mikill léttir að losna við þvargið sem þessu fylgdi. Nú getur maður einbeitt sér að því að keyra bílinn.“ Hjalti segir að krakkarnir séu allir góðir krakkar, þótt stundum þurfi hann að skamma þá fyrir að standa í sætunum og vera með hjólabretti í strætó. Hann er búinn að keyra strætisvagn í Reykjanesbæ í fjögur ár og segir þetta skemmtilega vinnu, gjörólíka því að keyra vörubíl eins og hann gerði áður. Þó að krakkarnir séu duglegir að taka vagnana segir Hjalti að eldri borgarar, sem einnig fá ókeypis í vagnana, mættu vera duglegri að nýta sér þá. Hann segir skýringuna á því að þeir geri það ekki ef til vill helgast af því að þau séu ekki vön að taka strætó. Keyrir krakkana: Hjalti Gústavsson keyrir strætisvagn í Reykjanesbæ. Léttir að losna við þvargið Funda um ábyrgð | Bæjarstjóri og lögmaður Sandgerðisbæjar funduðu í gær með Fasteignamati ríkisins um hvort fasteignamatið eigi að taka þátt í 37 milljóna króna kostnaði sem bæjarfélagið lendir í vegna þess sem það segir vera mistök Fasteignamats ríkisins. „Við áttum ágætan fund og þetta mál er í skoðun. Meira hef ég ekki um það að segja,“ segir Haukur Ingibergsson, forstjóri Fast- eignamats ríkisins, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Haukur vildi hvorki greina frá því hvort Fasteignamat ríkisins bæri ábyrgð á málinu, né hvernig yrði brugðist við. Hann sagðist ekki geta sagt til um hvenær niðurstaða væri vænt- anleg í málinu. Reykjanesbæ | Krakkarnir í Reykjanesbæ eru hæstánægðir með að fá ókeypis í strætó, en frá áramótum hafa börn að 18 ára aldri, eldri borg- arar og öryrkjar fengið að ferðast ókeypis með al- menningsvögnunum í Reykjanesbæ. „Reynslan er einfaldlega mjög góð, þetta hefur reynst mjög vel,“ segir Einar Steinþórsson, fram- kvæmdastjóri SBK, rekstraraðila vagnanna. „Krakkarnir eru orðnir svo vanir að nota stræt- isvagnana, þau hoppa bara í og úr. Þetta er nátt- úrulega mikið notað sem skólabíll. Það voru tímar inn á milli þar sem vagnarnir voru minna notaðir en það er farið að nýta þá betur á þeim tímum.“ Einar segir að ekki hafi verið teknar saman töl- ur um aukna nýtingu vagnanna eftir áramót, en segir aukninguna „mjög verulega“. Börn, eldri borgarar og öryrkjar fá ókeypis í vagnana, en þeir sem ekki fá ókeypis þurfa að greiða 100 kr. far- gjald. Til samanburðar kostar 220 kr. í stræt- isvagna á höfuðborgarsvæðinu. Lærdómur fyrir önnur sveitarfélög „Þetta er lærdómur sem önnur sveitarfélög gætu dregið af þessu ef þau vilja draga úr notkun einkabíla, t.d. hjá nemendum á framhalds- skólastiginu,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Hann segir að tekjurnar hafi verið litlar og vagnarnir illa nýttir fyrir áramót: „Það liggur í augum uppi að almenningssamgöngur eru niðurgreiddar en tekjurnar vegna strætisvagn- anna voru svo litlar [fyrir áramót] að það var freistandi að sjá hvort við gætum aukið nýtingu vagnanna með því að bjóða ókeypis í strætó.“ Kostnaðurinn við að reka strætisvagna í Reykjanesbæ er mikill, en í það fara um 37 millj- ónir króna á ári. Þar af fást einungis um 400 þús- und krónur til baka með fargjöldum. „Þetta sem kemur inn í krónum er bara brotabrot af rekstr- arkostnaði,“ segir Viðar Már Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri umhverfis- og skipulagssviðs hjá Reykjanesbæ. Ekki stendur til að draga úr þjónustu, og áfram verður gefið ókeypis í strætó, í það minnsta út ár- ið, segir Viðar. Jafnvel mætti hugsa sér að fara einhverjar ferðir um helgar á vissum tímum. Krakkarnir í Reykjanesbæ eru duglegir að nota strætó ókeypis alla daga Nýtingin á strætó margfaldaðist

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.