Morgunblaðið - 01.10.2003, Side 21
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 21
Skrifstofutækni
250 stundir!
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum
og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög
hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum.
Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj-
andi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
Handfært bókhald
Tölvugrunnur
Ritvinnsla
Töflureiknir
Verslunarreikningur
Glærugerð
Mannleg samskipti
Tölvubókhald
Internet
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í
öllum almennum skrifstofustörfum og eftir
vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla
Íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word-
ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði
hand- og tölvufært bókhald, glærugerð,
verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum
í mannlegum samskiptum og Interneti.
Námið er vel skipulagt og kennsla frábær.
Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjó!.
Steinunn Rósq, þjónustu-
fulltrúi,
Íslenska Útvarpsfélaginu
Öll námsgögn innifalin
Tölvuskóli Íslands
B í l d s h ö f ð a 1 8 , s í m i 5 6 7 1 4 6 6
Opið til kl. 22.00
Sérblað um heilsu, útivist og
næringu að hausti kemur út
sunnudaginn 12. október nk.
Auglýsendur!
Í blaðinu verður fjallað um skotveiði og hestamennsku, haustlitaferðir,
fjallgöngur og aðra útiveru, skoðað hvernig best sé að verja sig fyrir vatni
og vindum og í kjölfarið ágangi kvefs, hálsbólgu og leiðum
umgangspestum. Ennfremur verður fjallað um dæmigert hráefni í
haustmatargerð, til dæmis villibráð, nýslátrað lambakjöt og fleira.
Efnistök verða af öllu landinu.
Þeir sem hafa áhuga á því að auglýsa og koma á framfæri efni í blaðið eru
vinsamlegast beðnir að hafa samband við auglýsingadeild
Morgunblaðsins.
Pöntunar- og skilafrestur auglýsinga er til kl. 16
þriðjudaginn 7. október.
Hafið samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins
í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is
EITT af því sem kemur for-eldrum ungra barna í upp-nám eru starfsdagar á leik-
skólum. Á starfsdögum eru
leikskólar lokaðir og foreldrar verða
að finna annað dvalarúrræði fyrir
barnið til þess að geta stundað sitt
nám, eða vinnu. Það er auðvitað upp
og ofan hversu auðveldlega það
gengur og upp og ofan hvernig for-
eldrar taka þessum starfsdögum.
Sumir skilja ekki tilgang þeirra og
finnst þeir jafnvel óþarfir.
„Starfsdaga nýtir starfsfólk leik-
skólanna til þess að undirbúa starf-
ið,“ útskýrir Helga Hansdóttir, að-
stoðarleikskólastjórinn á Álftaborg.
„Við fáum tvo starfs-
daga á vetri, annan á
haustönn, hinn á vorönn.
Hér á Álftaborg reynum
við að halda annan
starfsdaginn um mán-
aðamótin september/
október og hinn um
mánaðamótin janúar/
febrúar. Það er hins vegar allur
gangur á því hvenær þeir eru haldnir
á hinum ýmsu leikskólum. Sumir
vilja halda þá í lok annar – en mark-
miðið með þeim er að skipuleggja
skólastarfið næstu önn á eftir.“
Ekki frí hjá starfsfólkinu
Þótt börnin eigi frí frá leikskól-
anum þennan dag, er þó síður en svo
að starfsfólkið eigi frí. Starfsdagur á
leikskóla skiptist yfirleitt í tvennt.
„Við spjöllum saman um hvaða verk-
efni við ætlum að taka fyrir á önn-
inni, veljum úr þeim og ákveðum
hvernig við ætlum að skipuleggja
starfið. Seinni hluta dagsins höldum
við síðan deildarfundi þar sem við
skipuleggjum hverja deild fyrir sig,
segir Helga og bætir við að stundum
fari starfsmenn á aðra leikskóla til
þess að kynna sér starfið hjá öðrum.
Hún segir að einn dagur á önn nægi
ekki til að skipuleggja allt leikskóla-
starfið, en dugi þó til að leggja meg-
inlínurnar.
„Starfsfundir eru síðan á leik-
skólatíma þar sem við skipuleggjum
starf deildanna enn frekar. Þá fund-
ar ein deild í einu og við skiptumst á
að líta eftir börnunum. Þeir standa
aðeins í um það bil klukkustund.“
Helgu finnst nauðsynlegt að halda
starfsdaga, vegna þess að alltaf sé
mikið að gera á leikskólum og starfs-
menn fái ekki mörg tækifæri til að
ræða saman um starfið. „Auðvitað
væri hægt að taka laugardag eða
sunnudag í starfsdag en Reykjavík-
urborg er ekki tilbúin til þess að
greiða okkur fyrir þann aukadag.
Alltaf verið að
spara aukavinnu
Þar er alltaf verið að spara auka-
vinnu – og kannski alveg skiljanlegt,
vegna þess að það er mikill fjöldi af
starfsfólki sem vinnur á
leikskólum borg-
arinnar. Hins vegar fer
fram skipulagt skóla-
starf á leikskólum og
við þurfum tíma til að
sinna því skipulagi. Það
tekur aðeins lengri tíma
en einn dag. Við fáum
greiddan einn starfsmannafund í
hverjum mánuði og sá fundur er
haldinn að kvöldi til, eða þegar börn-
in eru farinn heim. Hver starfsmaður
fær greidda tíu aukavinnutíma á ári
vegna þessara starfsmannafunda, en
það er ekki ætlast til að þeir séu
haldnir á sumrin.“
Helga bendir á að þeir sem vinna á
leikskólunum fái ekki sömu frí og
þeir sem kenna, til dæmis, í grunn-
skólum. Hvorki lengra jólafrí, né
páskafrí – og ekki lengra sumarfrí en
almennir launþegar. „Þannig að við
verðum að finna aðrar leiðir til þess
að skipuleggja starfið.
Nám í leikskóla er orðið við-
urkennt nám og það væri full þörf á
meiri tíma til þess að skipuleggja
það.“.
Undirbúningur slíks náms segir
Helga vera inni í skólastarfinu og
alla leikskólakennara fá fjóra til
fimm tíma á viku til þess að undirbúa
verkefni. „Þá reynum við að hafa
skipulagið þannig að hver starfs-
maður fái tiltekinn morgun til þess
að undirbúa sig og inn á leikskólana
er ráðið afleysingafólk vegna þessara
undirbúningstíma okkar,“ segir
Helga.
STARFSDAGAR | Ekki frí hjá starfsfólki leikskólanna
Tveir dagar í
skipulagningu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Líf og fjör: Á Álftaborg er mikið að gera og starfsmenn þar fá ekki, frekar
en á öðrum leikskólum, mörg tækifæri til að ræða saman um starfið.
Margir foreldrar kom-
ast í uppnám þegar
haldnir eru starfsdagar
á leikskólum barna
þeirra. Súsanna Svav-
arsdóttir spurði Helgu
Hansdóttur, aðstoð-
arleikskólastjóra á
Álftaborg, um tilgang
og tíðni slíkra daga.
Þegar leik-
skólum er lokað
þurfa foreldrar
að finna börnum
sínum annan
samastað
Fallegt í eldhúsgluggann
Laugavegi 63 • sími 551 2040i í i