Morgunblaðið - 01.10.2003, Page 26

Morgunblaðið - 01.10.2003, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. A ÐGANGI að einkaskjalasafni Halldórs Lax- ness hefur verið lokað, en samkvæmt samn- ingi aðstandenda Halldórs við forsætisráðu- neytið var safnið vistað á handritadeild Landsbókasafns. Fjölskylda nóbelskáldsins segir að á meðan safnið er ekki fullskráð sé eðlilegt að óviðkomandi hafi ekki aðgang að því. Safn Halldórs var formlega afhent handritadeild Lands- bókasafns Íslands án kvaða á degi íslenskrar tungu árið 1996. Ögmundur Helgason, forstöðumaður handritadeildar Landsbókasafns, segir þá grundvallarreglu sjálfsagða og eðlilega þegar tekið er á móti einkaskjalasöfnum til varð- veislu, að fólk sem það gerir setji þær aðgangsreglur sem það sjálft vill. Jafnframt sé það ekki einsdæmi að reglum um aðgang og umgengni sé bætt við eftir á og söfnum sem hafa verið opin einhvern tíma sé lokað. „Þetta er gert til að hvetja fólk til að skila slíku efni til okkar, – efnið er þá kom- ið inn á opinbera varðveislustofnun, og það er okkur mik- ilvægt.“ Ögmundur segir höfundarréttinn hvíla á þessu efni eins og öðru og hann er afdráttarlaus. „Höfundarrétturinn nær til 70 ára eftir andlát viðkomandi einstaklings, og það er enginn smátími. Þótt gögnin séu varðveitt í opinberri stofnun er höfundarrétturinn eins og hver önnur landslög, þannig að aðstandendur og rétthafar ráða öllu um aðgang að gögnunum. Séu engar kvaðir á einkasöfnum af þessu tagi lítum við svo á að allir megi skoða þau, en engu að síð- ur þarf fólk að virða höfundarréttinn. Það má varla vitna í meira en eina línu án leyfis höfundar eða eigenda höfund- arréttarins, og fólk getur ekki nýtt sér þetta efni til útgáfu án leyfis, meðan höfundarréttur hvílir á því.“ Landsbókasafnið hefur frumkvæði að því að eignast einkaskjalasöfn og leitar eftir gögnum, til dæmis við andlát fólks sem talið er eiga merkar heimildir í fórum sínum. Ög- mundur segir að mjög misjafnt sé hvernig staðið er að samningum um afnot. „Flestir sem koma með einkasöfn til okkar segja þau kvaðalaus af sinni hálfu. Aðrir vilja hafa söfnin lokuð í einhvern tíma. Við erum með fulla skápa af efni sem almenningur hefur ekki aðgang að, en 90% af einkasöfnum eru þó opin án kvaða.“ Dæmi eru um að höfundar hafi innsiglað hluta skjala sinna í kössum og kistum, og ekki leyft að efnið væri skoð- að fyrr en að tilgreindum tíma liðnum. Árið 2000 var kassi Erlendar í Unuhúsi opnaður með viðhöfn, en hann hafði verið innsiglaður í 20 ár. Kista með gögnum Jóns Leifs var einnig lokuð árum saman, en opnuð þegar ekkja Jóns af- létti þeirri kvöð. „Oft eru þetta sendibréf sem fólk hefur haft áhyggjur af og ekki viljað birta á sínu ig dagbækur og fleira sem ekki hefur átt heldur birta strax.“ Þannig getur hluti einkaskjalasafna ve annað efni þeirra sé aðgengilegt. Þegar e uð er algengast að fulltrúi rétthafa sjái staklingum leyfi til að skoða þau. Þegar s hafa verið opin er lokað geta ástæður þ Ögmundur nefnir dæmi um að efni úr slík notað í tímaritsgrein án þess að heimilda verið getið. Í því tilfelli hafi ættingjar h beðið um að því yrði lokað öðrum en þeim sérstakt leyfi. Þá er einnig talsvert um það að hand séu varðveitt á handritadeild Landsbó setja þá sjálf þá fyrirvara á notkun þeirra Slakað á kröfum vegna ág Skjalasafn Halldórs Laxness er gríðar en með fjögur stöðugildi hefur handrita fullnægjandi burði til að sökkva sér í skrá höfum þó verið að vinna í því og reyna að g legt. Það er sjaldan að við fáum efnið fullk sorterað.“ Ögmundur segir að áður fyrr hafi ekki því að gögn væru aðgengileg til skoðunar m Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Forstöðumaður handritadeildar, Ögmundur Helgason, seg Mikilvægt að ré takmörkunar sé Spurningar um vistun og skrán- ingu einkaskjalasafna hafa verið í umræðu síðustu daga. Samn- ingar um vistun slíkra safna hjá Landsbókasafni geta verið mjög mismunandi, eftir þeim kvöðum sem rétthafar leggja á þau. Bergþóra Jónsdóttir ræddi við forsvarsmenn Landsbókasafns og fræðimenn sem hafa aug- ljósra hagsmuna að gæta. Guðmundur Hálfdán- arson prófessor. Hannes Hó Gissurarso Ögmundur Helgason, forstöðumaður han landsbókavörður (til hægri) taka við eink úr hendi Lilju Sólveigar Kristjánsdóttur. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sa Einkaskjalasafn Halldórs Laxness var afh STYTTING FRAMHALDSSKÓLANS Tómas Ingi Olrich menntamála-ráðherra kynnti í fyrradag til-lögur verkefnisstjórnar, sem skoðaði leiðir til að stytta námstíma til stúdentsprófs. Verkefnisstjórnin leggur til að námsárum framhalds- skólans verði fækkað úr fjórum í þrjú, en skólaárið lengt sáralítið á móti; þannig verði kennsludögum fjölgað um tíu á ári en prófadögum á móti fækkað um fimm, þannig að skólaárið lengist aðeins um fimm daga. Þetta hefði í för með sér að kennslustundum til stúdentsprófs myndi fækka úr 2.707 í 2.170, sem er um 20% fækkun. Kennslustundafjöldi yrði þá ekki ósvipaður því, sem gerist í hinum norrænu ríkjunum sem Ís- land ber sig ævinlega saman við. Í skýrslu verkefnisstjórnarinnar kem- ur fram að slíkt leiðir óhjákvæmilega af sér að draga þarf úr möguleikum nemenda á sérhæfingu í náminu með því að velja sér fög; hlutfall kjarna- greina á borð við stærðfræði, ís- lenzku og ensku mun m.ö.o. vaxa á kostnað valgreina. Markmið breytingarinnar, sem lögð er til, er að nemendur ljúki stúd- ensprófi ári fyrr en verið hefur, ljúki þannig háskólanámi fyrr og komist að sama skapi fljótar út á vinnumarkað- inn. Um það verður varla deilt að það er æskilegt markmið. Af hverju ættu íslenzk ungmenni að útskrifast með stúdentspróf tvítug, þegar í flestum nágrannalöndunum nær fólk þessum árangri átján eða nítján ára? Margir hafa lengi verið þeirrar skoðunar að tíminn, sem líður frá því að börn hefja skólagöngu og þar til þau taka stúdentspróf, sé of illa nýtt- ur. Hins vegar má spyrja, hvort það eigi aðallega við um framhaldsskól- ann. Undanfarinn hálfan annan ára- tug hefur bætzt bekkur við grunn- skólann, með því að sex ára börn urðu skólaskyld, auk þess að skólaárið hef- ur lengzt talsvert. Hvorugt hefur orð- ið til þess að börn ljúki grunnskóla- námi fyrr. Það má þess vegna færa rök fyrir því að tækifærið til að stytta nám til stúdentsprófs liggi ekki síður og jafnvel mun fremur í grunnskól- anum en í framhaldsskólanum. Verkefnisstjórnin kemst hins veg- ar að þeirri niðurstöðu að fara þurfi eins einfalda leið og hægt er, með lág- marksbreytingu og tilkostnaði, og þess vegna beri eingöngu að horfa til styttingar framhaldsskólanámsins. Í skýrslunni segir m.a.: „Engar augljósar forsendur eru fyrir því að stytta skólaskyldu eða færa bóknám á yngri nemendur þannig að það komi í stað leiks.“ Þetta er umdeilanleg staðhæfing – margir foreldrar telja að nota mætti betur tækifærin til að kenna börnum á þeim tíma, sem þau eru hvað fróðleiksfúsust og móttæki- legust fyrir lærdómi. Það er t.d. um- hugsunarefni hvað tungumála- kennsla hefst seint í grunnskólanum. Verkefnisstjórnin bendir jafnframt á að það sé ekki æskilegt á dreifbýlis- svæðum að nemendur þurfi að fara yngri og óþroskaðri að heiman en nú er til að sækja framhaldsskóla. Jafn- framt sé ljóst að verði gerðar breyt- ingar á skipulagi leikskóla eða grunn- skóla kalli það á endurskoðun verkaskiptingar milli ríkis og sveitar- félaga. Þetta eru hvor tveggja gild rök, en spurning hvort þau vega þyngra en þau tækifæri, sem blasa við til að nota betur tímann í grunn- skólum landsins. Jafnframt hlýtur að þurfa að skoða hvað sú fækkun kennslustunda og niðurskurður á námsefni framhalds- skóla, sem boðaður er í skýrslunni, leiðir af sér. Boðað er að sérhæfing minnki og meiri áherzla verði lögð á kjarnagreinar. Það getur verið góðra gjalda vert, en hafa verður í huga að háskólar landsins hafa á undanförn- um árum kvartað undan því að stúd- entar komi of illa undirbúnir til há- skólanáms, bæði í þeim sérgreinum sem þeir hyggjast leggja stund á og ekki síður í kjarnanum, íslenzku, stærðfræði og ensku. Ýmsir fram- haldsskólar hafa þó lagt upp úr því að fólk geti bæði sérhæft sig, t.d. búið sig undir raungreinanám í háskóla, og um leið öðlazt breiðan, almennan grunn. Það er mikilvægt að sá mögu- leiki verði áfram fyrir hendi. Jafn- framt skiptir miklu máli að sá fjöl- breytileiki, sem hefur þrifizt innan framhaldsskólakerfisins, annars veg- ar með fjölbrautaskólum og hins veg- ar með hefðbundnum, almennum menntaskólum með bekkjakerfi, verði varðveittur en ekki gengið lengra á þeirri varhugaverðu braut að steypa alla framhaldsskólana í sama mót. Eins og verkefnisstjórnin bendir raunar sjálf á þarf að gefa mjög ræki- lega gaum að inntaki framhaldsskóla- námsins, þurfi að stytta það eins og lagt er til. Jafnframt þarf að huga að þeim möguleika að lengja fremur skólaárið en draga svo mjög úr kennslu. Sú spurning vaknar t.d. hvernig það geti farið saman að fækka prófdögum og taka um leið upp samræmd próf í framhaldsskólunum, eins og nú hefur verið ákveðið. Ekkert er hins vegar enn afráðið í þessum efnum. Það vekur raunar sér- staka athygli og er hrósvert, hvernig staðið er að ákvarðanatöku um þetta stóra mál af hálfu menntamálaráð- herra. Opnað hefur verið umræðu- þing um málið á vefnum menntagatt- .is, þar sem almenningur og fagfólk getur tjáð sig um tillögur verkefnis- stjórnar ráðuneytisins. Eins og Borg- ar Þór Einarsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, benti á er til- lögurnar voru kynntar markar þessi aðferð nokkur tímamót, þar sem al- menningi gefst nú kostur á að taka þátt í skoðanaskiptum, sem tekið verður tillit til í lokaundirbúningi málsins. Hér er um stóra breytingu að ræða, sem þarf að undirbúa vel. Það er ekki endilega eftirsóknarverðast að fara einföldustu og fljótlegustu leiðina í málinu. Markmiðið á að vera að veita íslenzkum ungmennum betri mennt- un, gera þau betur í stakk búin til að takast á við æ flóknari verkefni á vinnumarkaðnum og samkeppnis- hæfari við jafnaldra sína erlendis. Það eru ekki hagsmunir eða þægindi stjórnmálamanna, embættismanna, skólastjórnenda eða kennara, sem eiga að sitja í fyrirrúmi við slíka breytingu, heldur hagsmunir nem- endanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.