Morgunblaðið - 01.10.2003, Page 33

Morgunblaðið - 01.10.2003, Page 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 33 ✝ Anna Árnadóttirfæddist á Bakka á Kópaskeri 19. jan- úar 1918. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 24. september síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Ást- fríður Árnadóttir, f. í Þistilfirði 4. desem- ber 1881, d. 5. júlí 1960, og Árni Ingi- mundarson, f. á Brekku í Núpasveit 25. október 1874, d. 3. júlí 1951. Systkini Önnu eru Ingunn, f. 8. nóvember 1899, d. 22. mars 1983, Unnur, f. 15. desember 1900, d. 12. apríl 1987, Jón, f. 9 október 1902, d. 12. ágúst 1962, Hólmfríður, f. 19. september 1904, d. 17. júlí 1992, Sabína, f. 27. maí 1908, d. 18. febrúar 1993, Guðrún, f. 26. september 1911, d. 31. maí 2003, Aðalheiður, f. 23. október 1913, Árni, f. 15. nóv- ember 1915, d. 31. júlí 1987, Ingi- ríður, f. 19. janúar 1918, Sigurð- ur, f. 16. júlí 1919, d. 29. mars 2002, og Ingimundur, f. 28. júní 1922. Anna giftist 1. júlí 1940 Odd- geiri Péturssyni, f. 29. desember 1915, d. 27. nóvember 1989. Anna eignaðist sex börn og einn fósturson. Þau eru: 1) Gígja Friðgeirsdóttir, f. 14. jan. 1939. Maki Örn Erlends- son. 2) Árni Hrafn Árnason, f. 10. okt. 1943. Maki Hlín P. Wíum. 3) Örlygur Örn Oddgeirsson, f. 1. sept. 1945. Maki Jóhanna Hauksdótt- ir. 4) Þorbjörg Odd- geirsdóttir, f. 15. apríl 1948. Maki Óttar Geirsson. 5) Auður Oddgeirs- dóttir, f. 13. des. 1952. Maki Árni Viðar Árnason. 6) Pétur Oddgeirsson, f. 13. des. 1952. Maki Kristrún Tómasdóttir. 7) Sigurgeir Odd- geirsson, f. 4. apríl 1955. Barnabörnin eru 18 og barna- barnabörnin 12. Anna ólst upp á Kópaskeri. Þau Oddgeir bjuggu fyrstu árin á Kópaskeri en hófu búskap á ný- býlinu Vatnsenda sem þau byggðu úr landi Oddstaða á Mel- rakkasléttu, um áramót 1949–50. Þau bjuggu þar til 1957 en brugðu þá búi og fluttu til Reykjavíkur. Þar störfuðu þau við ýmis störf. Anna vann einkum við prjóna- og saumaskap með heimilisstörfunum, lengst hjá Belgjagerðinni. Útför Önnu fer fram frá Breið- holtskirkju í Mjódd í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Mamma. Svo undarlegt sem það er, þá er maður aldrei viðbúinn andláti kærs ættingja eða vinar, jafnvel þó að viðkomandi hafi þráð að fá að deyja og maður sjálfur hafi séð að hvíldin var það besta, úr því sem komið var. Mamma mín fékk hægt andlát að morgni 24. september. Minningar og myndir streymdu fram í hugann þegar ég sat við rúmið hennar síðustu næturnar sem hún lifði. Ein fyrsta myndin er af henni að spila á orgelið heima í stofunni á Bakka og við tekur hver minningin af annarri, þar sem mamma eða systur hennar leika á orgelið, Daddi frændi spilar á harmónikk- una og allir syngja og dansa og kenna mér danssporin, 3–5 ára krakkanum. Allar minningarnar frá bernskuheimilinu á Bakka, með afa, ömmu, mömmu, pabba og systkinum mömmu eru bjartar og glaðar. Og enn sé ég mömmu við hljóð- færið, nú erum við flutt í læknisbú- staðinn Ás. Pabbi hafði komið frá Akureyri með píanó í farteskinu, svo nú er spilað og sungið í stof- unni í Ási. Kidda á loftinu kemur niður og þær mamma æfa tvísöng. Pabbi og Kidda syngja og mamma spilar undir. Enn var flutt, nú austur í Vatns- enda á Melrakkasléttu og áfram var sungið og spilað. Ef nágrann- arnir komu einhverra erinda, Siggi Finnboga, mágur pabba, eða Brynki, mágur mömmu, var farið inn í stofu og lagið tekið. Mamma kenndi raddirnar og þeir sungu, pabbi og Brynki eða pabbi og Siggi. Einhvern tíma bættist Árni Pétur Lund í hópinn og þá var æfð- ur kvartett. Ég sé Brynka og pabba fyrir mér þar sem þeir syngja Gunnar og Njáll og Gunnar og Kolskeggur við undirleik mömmu og enda á að syngja Sól- seturrsljóðin úti á hlaði, á björtu sumarkvöldi. Alla sína ævi hafði mamma yndi af söng og hljóðfæra- leik, þó að hún lærði aldrei meira en að þekkja nóturnar og æfði sig svo sjálf. Eftir að við fluttum til Reykja- víkur urðu mamma og pabbi bæði að vinna úti til að hafa í og á sína stóru fjölskyldu, svo minni tími gafst til hljóðfæraleiks. Þegar mamma hætti að vinna fór hún að syngja með kór aldraðra í Gerðubergi og síðar á Vesturgötu og hafði ómælda ánægju af því. Af öllum þessum söng lærði ég mörg lög og ljóð en mest lærði ég þó þegar mamma sat með krakka- hópinn í kringum sig á dimmum vetrarkvöldum, stoppandi í sokka eða prjónandi einhverja flík á okk- ur, lét mig vera með Vasasöngbók- ina og fletta í gegnum hana. Hún söng hvert einasta lag og þannig kenndi hún okkur lögin og ljóðin. Hún kenndi mér líka að vinna. Af því að ég var elst af barnahópnum og lærði ég allt um heimilishald og barnaumönnun af henni. Eftir að við systkinin stofnuðum heimili og eignuðumst okkar börn, var hún boðin og búin að passa þau og rétta hjálparhönd hvenær sem var. Mamma var mikil hannyrða- kona og saumaði og prjónaði lengi fatnað á krakkahópinn sinn. Hún var mjög umhyggjusöm amma og langamma, enda voru öll börnin mjög elsk að henni og dáðu hana. Eftir að hún var orðin veik og átti erfitt um mál var hún enn að spyrja um þau. Hún var svo lánsöm að geta lesið fram undir það síðasta, fékk reglu- lega sendan bókakassa frá Borg- arbókasafninu, þökk sé þeim þar. Hún var mjög minnug og mundi allt sem hún las. Oft endursagði hún okkur heilu bækurnar. Síðastliðið vor flutti hún á Hjúkrunarheimilið Skjól. Hún var farin að finna sig heima þar og var ánægð, enda allir góðir við hana. Starfsfólkið annaðist um hana og hjúkraði frábærlega vel til hinstu stundar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Gígja. Léttstíg hljóp Anna með öðrum krökkum í fjörusandinum neðan við æskuheimilið á Bakka. Í fjörunni, á sjónum og út um holt og móa á Kópaskeri var vettvangur bernsku og uppvaxtaráranna. Á stóru heim- ili, í litlu húsi rétt við fjöruborðið mótaðist Anna. Þar lærði hún og stóri systkinahópurinn að tileinka sér tillitssemi og nægjusemi, þar lærði hún og þau öll að gera litlar kröfur, til annarra en sjálfra sín. Hún var ekki há í loftinu þegar hún fór að hjálpa til, jafnt utan húss sem innan, jafnt á sjó og landi. Hún náði vart upp fyrir borð- stokkinn á uppskipunarbátnum Kára þegar hún var búin að ná ára- laginu og saman nutu þær Ída tví- burasystir hennar og krakkarnir allir, frelsis og fegurðar og héldu að það væri sjálfsagður hlutur öll- um, alls staðar. Lífið kenndi henni, eins og öðr- um, að það er ekki alltaf sól og sæla. Hún þurfti, eins og flestir af hennar kynslóð að hafa fyrir lífinu. Hún fékk að kynnast fátækt og erf- iði, myrkri og illviðrum, veikindum og einangrun. En hún naut líka andstæðunnar. Ekkert jafnast á við sumarlanga, nóttlausa undraveröld Sléttunnar, ekkert á við samsöng vina og nágranna á frostkyrru vetr- arkvöldi, ekkert á við vorkvöld í Reykjavík. Alls þessa naut Anna í ríkum mæli. Hún naut líka unaðar og ástúðar og nú, þegar ævin er öll, deyr hún rík. Hún skilur eftir sig mikla auðlegð sem er þrotlaus vinna alla ævi og fjöldi þakklátra afkomenda sem hún hlúði að alla tíð á alla lund. Fyrir það var hún elskuð og virt og verður eftirsjá okkur öllum, sem þekktum hana best, eins lengi og við lifum. Guð blessi Önnu og okkur öll. Örn Erlendsson. Elsku amma mín. Það er erfitt að sætta sig við það að þú sért farin frá okkur, en þú skilur eftir svo margar minningar. Ég man alltaf eftir því að maður fékk alltaf ís hjá þér, ef maður vildi ekki ís þá varstu alltaf að gefa okk- ur eitthvað annað að borða. Ég man eftir dótinu sem þú áttir í gamladaga sem ég og Anna systir lékum okkur að. Áður en mamma fór að vinna í Hagkaup kom hún alltaf á föstudögum og verslaði fyr- ir þig og ég kom með til að hitta þig og síðan alltaf á sunudögum. Eftir mamma fór að vinna þá hitti ég þig alltaf á sunnudögum og eins oft og ég gat þess á milli. Nú er svo erfitt að hafa þig ekki til að heim- sækja, en ég kom eins oft og ég gat eftir að þú veiktist og það besta sem ég gat var að vera hjá þér. Ég bað til Guðs að hann tæki á móti þér svo þér liði betur. Það var gott að þú varst tilbúin að fara, elsku amma mín. Ég mun aldrei gleyma þér. Arnrún Árnadóttir. ANNA ÁRNADÓTTIR LEGSTEINAR Mikið úrval af legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960, fax 587 1986. Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG MAGNÚSDÓTTIR, Bauganesi 44, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 27. september, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 3. október kl. 13.30. Margrét Kristín Jónsdóttir, Helgi Jónsson, Jytte Marcher, Sveinn Jónsson, Ásta Jónsdóttir, Anna Jónsdóttir, Finn Larsen, Bjarnþór Gunnarsson, Hanna Sigurjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLÍN ÁGÚSTSDÓTTIR, Hringbraut 15, Hafnarfirði, lést á Landspítala Hringbraut mánudaginn 29. september síðastliðinn. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Gústaf Magnússon, Jóna Þórunn Vernharðsdóttir, Alfreð Guðmundsson, May R. Opina, Lilja Ágústa Guðmundsdóttir, Ingólfur Sverrisson, Guðmundur Gunnar Guðmundsson, Steinunn Jónsdóttir, Ársæll Guðmundsson, Ragnheiður Birna Kristjánsdóttir, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, Atli Þór Ólason. Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR ÞÓRARINSDÓTTUR, Hvassaleiti 37, Reykjavík, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 3. október kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minn- ingarsjóð Kjartans B. Kjartanssonar læknis hjá Geðverndarfélagi Íslands. Þórarinn B. Kjartansson, Þorbjörg Kr. Kjartansdóttir, Jónas Gunnar Einarsson, Kjartan J. Kjartansson, Lilja Einarsdóttir og barnabörn. Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, GUÐRÚN HALLDÓRA RICHARDSDÓTTIR, Lækjarkinn 26, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt mánudagsins 29. september. Jóhannes C. Klein, Áslaug Skúladóttir, Jónas Gunnar Allansson, Trausti Skúlason, Brynja Steinarsdóttir, Emilía Ósk Bjarnadóttir, Richard Jónsson, Erla Þórðardóttir, Þórdís Richardsdóttir, P.O. Sylwan, Ingibjörg Richardsdóttir, Kristinn Karl Dulaney og aðrir aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALMA ÁSMUNDSDÓTTIR, Álfheimum 36, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans Landakoti föstudaginn 26. september. Bára Benediktsdóttir, Edda Guðgeirsdóttir, Baldur Guðgeirsson, Björg Kristinsdóttir, Iðunn Guðgeirsdóttir, Guðmundur Þórsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.