Morgunblaðið - 01.10.2003, Síða 34

Morgunblaðið - 01.10.2003, Síða 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞORFINNA STEFÁNS- DÓTTIR ✝ Þorfinna Stefánsdóttir fædd-ist í Ólafsfirði 28. apríl 1933. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 21. september síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Ólafsfjarðarkirkju 27. septem- ber. Við Þorfinna vorum vinnufélagar fyrir rúmum 20 árum þegar ég bjó í Ólafsfirði. Það voru forréttindi að eiga hana að vini. Ég hef oft vitnað í það þegar við vorum að vinna saman á elliheimilinu, hversu gam- an var. Allir hlutir gengu svo vel, og átti hennar létta og ljúfa lund ekki hvað síst þátt í því. Hún taldi aldrei eftir sér að hlaupa til ef það gat glatt gamla fólkið. Mörg voru faðmlögin, kossarnir og vinalegt klapp á kinn sem hún gaf. Ég minnist þess þegar við fórum í grasaferð upp á Lágheiði og var Stebbi Villi með í þeirri ferð. Mikið var hlegið og gert að gamni sínu. Það var þvílíkt rok að við vorum orðin vindbarin er þau frændsystk- in drógu upp úr pússi sínu konfekt og harðfisk. Ég man líka hvað hún hló að mér þegar við vorum að ösla snjóinn eftir næturvaktir. Hún sagði að ég kynni ekki að vaða snjó. Eða þegar Þröstur kom á snjósleðanum að sækja mömmu sína, og það var hlaðið svo á sleð- ann að þegar farið var á stað þá sat einn eftir í skaflinum. Ég verð að segja það, að það hefur enginn far- ið í sporin hennar Þorfinnu. Hún gerði alla hluti vel, það var alveg sama hvað hún tók sér fyrir hend- ur, allt var svo ótrúlega fallegt. Ég hef t.d. aldrei séð jafnfallega raðað í skápa eins og hjá henni. Maður minnist nú ekki á geymsluna, ég grínaðist stundum með það að sennilega sneru allir naglar eins. Þetta lýsir henni einmitt, því allt sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún af alúð og kærleika. Fjölskyld- an var henni allt og talaði hún um þau af mikilli ástúð. Að leiðarlokum þá get ég sagt að Þorfinna er ein sú besta og heið- arlegasta manneskja sem ég hef kynnst, og er ég ríkari fyrir. Hún hafði hjarta úr gulli og var svo sönn í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Við Palli sendum fjölskyld- unni samúðarkveðjur og biðjum al- góðan guð að blessa minningu hennar. Margrét Thorsteinson. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í grein- unum sjálfum. Formáli minningar- greina Elskulegi eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTINN FRIÐBJÖRN ÁSGEIRSSON (Dengsi), Hringbraut 128C, Keflavík, áður til heimilis á Ísafirði, sem lést sunnudaginn 21. september, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 4. október kl. 14.00. Lína Þóra Gestsdóttir, Páll Þór Kristinsson, Ólafía Halldórsdóttir, Ásgeir Haraldur Kristinsson, Julie Kristinsson, Ingibjörg Lára Kristinsdóttir, Per Kristinsson, Ásta Guðríður Kristinsdóttir, Friðbert Jón Kristjánsson, Kristinn Þór Kristinsson, Hafrún Ebba Gestsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU ÞÓRUNNAR VIGFÚSDÓTTUR frá Stóru Hvalsá, síðar búsett á Selfossi. Haukur Arnarr Gíslason, Gunnþór Gíslason, Vígsteinn S. Gíslason, Þorbjörg S. Gísladóttir, Einar Þór Gíslason, Ragnar Gíslason og fjölskyldur. Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ANNA J.G. BETÚELSDÓTTIR frá Görðum, Aðalvík, Furugerði 13, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 3. október kl. 15.00. Þorkell Guðmundsson, Erna K. Þorkelsdóttir, Ágúst Guðmundsson, Hildur Þorkelsdóttir, Atli V. Jónsson, Gerður Þorkelsdóttir, Torfi E. Kristjánsson, Fanney Þorkelsdóttir, Hafsteinn Þ. Hilmarsson, barnabörn og langömmubarn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS M. LÁRUSSON, Sóltúni 2, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 23. september, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkapellu fimmtu- daginn 2. október kl. 15.00. Rannveig Jónasdóttir Fagerås, Trygve Fagerås, Lára Jónasdóttir, Birgir K. Johnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON frá Engey í Vestmannaeyjum, síðast til heimilis á Hásteinsvegi 53, Vestmannaeyjum, sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja þriðjudaginn 23. september, verður jarðsung- inn frá Landakirkju laugardaginn 4. október nk., kl. 14.00. Ægir Sigurðsson, Arnþór Sigurðsson, Guðlaug Björk Sigurðardóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og lang- amma okkar, ERNA ERLENDSDÓTTIR, Dalbraut 20, Reykjavík, sem lést að kvöldi laugardagsins 20. septem- ber sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. október kl. 13.30. Bjarni Ólafsson Alda Magnúsdóttir, Haukur Ólafsson, Björg Friðriksdóttir, Hrefna Ólafsdóttir, Ólafur Árni Bjarnason, Erna Björg Bjarnadóttir, Markús Bjarnason, Bryndhildur Hauksdóttir, Margrét Hauksdóttir, Bjarni Haukur Þórsson og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, systir og amma, ESTHER FINNBOGADÓTTIR, Tjarnargötu 10, Innri-Njarðvík, sem lést á heimili sínu föstudaginn 19. sept- ember, verður jarðsungin frá Innri-Njarðvíkur- kirkju föstudaginn 3. október kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Gylfi Pálsson, Guðmundur Kr. Sigurðsson, Guðfinna Finnbogadóttir og barnabörn. Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og ómetanlega aðstoð við andlát og útför okkar ástkæra sonar, bróður, barnabarns og barna- barnabarns, ANDRA SNÆS ÓÐINSSONAR. Óðinn Kristjánsson, Hulda Sæland Árnadóttir, Sveinbjörn Kristinn Óðinsson, Guðlaug Hartmannsdóttir, Aníta Óðinsdóttir, Sigríður Sæland Óðinsdóttir, Breki Þór Óðinsson, Árni Sverrir Erlingsson, Sigríður Sæland Eiríksdóttir, Hulda Gústavsdóttir Sæland. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRIR BENEDIKT SIGURJÓNSSON fyrrv. deildarstjóri, er lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugar- daginn 27. september sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskrikju fimmtudaginn 2. október kl. 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Barnaspítala Hringsins. Ásta S. Þorkelsdóttir, Steinunn Þórisdóttir, Björn S. Jónsson, Björgvin Þórisson, Helga Jónatansdóttir, Unnur B. Morgan, Björg H. Björgvinsdóttir, Valdimar Karlsson, afabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTJÁN STEFÁNSSON fyrrverandi yfirverkstjóri, til heimilis á dvalarheimilinu Hlíð, áður Einholti 6c, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 3. október kl. 13.30. Valgerður Jónasdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Júlíus Kristjánsson, Svanhildur Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.