Morgunblaðið - 01.10.2003, Side 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 41
HJÁ norska knattspyrnufélaginu
Fredrikstad hafa menn nú áhyggj-
ur af því að Ríkharður Daðason
verði valinn í íslenska landsliðið
sem mætir Þjóðverjum í Hamborg
11. október. Þeir eru stoltir yfir því
að eiga möguleika á að eignast sinn
fyrsta A-landsliðsmann í 17 ár en á
móti kemur að daginn eftir leikinn í
Hamborg á Fredrikstad að leika
einn af úrslitaleikjunum um sæti í
norsku úrvalsdeildinni. Liðið leikur
gegn Hönefoss hinn 12. október en
þessi tvö félög eru nú í tveimur
efstu sætum 1. deildarinnar.
„Við verðum að sjá hvað setur.
Það er að sjálfsögðu ekkert víst að
ég spili með landsliðinu, en það er
hæpið að ég hafi orku til að spila
tvo erfiða leiki á tveimur dögum.
En ég yrði þó allavega kominn
heim frá Þýskalandi í tæka tíð,“
sagði Ríkharður á heimasíðu fé-
lagsins.
Knud Thorbjörn Eggen, þjálfari
Fredrikstad, er hæstánægður með
frammistöðu Ríkharðs á sunnudag-
inn en hann skoraði þá tvívegis í 4:1
sigri á öðru toppliði, HamKam.
„Nú vitum við að við erum með
tvo góða markaskorara sem skora
mörk, jafnvel þótt liðið spili illa.
Ríkharður virtist tilbúinn að spila
90 mínútur, samvinna hans við
Markus Ringberg var stórkostleg
og hann gerði hreint ótrúlegt
mark,“ sagði Eggen um nýja sókn-
armanninn sinn.
Hafa áhyggjur
af vali Ríkharðs
DEAN Martin var útnefndur besti
leikmaður úrvalsdeildarliðs KA í
knattspyrnu í ár á lokahófi um sl.
helgi. Pálmi Rafn Pálmason var út-
nefndur efnilegasti leikmaður liðs-
ins. Þorvaldur Örlygsson og Slobod-
an Milisic voru heiðraðir sérstaklega
fyrir framlag sitt til knattspyrnunn-
ar hjá KA en þeir hafa báðir ákveðið
að leggja skóna á hilluna.
ÓLAFUR Ingi Skúlason, leikmað-
ur 21 árs landsliðsins, sem lék með
Fylki í sumar, fékk hrós fyrir
frammistöðu sína með varaliði Ars-
enal sem gerði 0:0 jafntefli við
Charlton í fyrrakvöld. Arsenal tefldi
fram mjög ungu liði þar sem margir
varamanna fóru með aðalliðinu til
Moskvu fyrr um daginn. Charlton
var hins vegar með marga reynda
leikmenn í sínu liði, á borð við Jonat-
an Johansson, Jason Euell, Richard
Rufus og Stephen Hughes.
ÓLAFUR Ingi, sem vanalega leik-
ur á miðjunni, var færður í stöðu
miðvarðar og Eddie Niedzwiecki,
þjálfari varaliðsins, sagði á heima-
síðu Arsenal að hann hefði verið
mjög klókur í leik sínum og sterkur í
skallaeinvígjum.
GÍSLI Kristjánsson, fyrrverandi
leikmaður Gróttu/KR í handknatt-
leik, skoraði 4 mörk og krækti í tvö
vítaköst þegar lið hans, Fredericia
HK, vann Ringsted, 33:25, í dönsku
úrvalsdeildinni í handknattleik á
sunnudagskvöldið.
TOMAS Kavolius, litháískur
landsliðsmaður í handknattleik, er
kominn til liðs við Víkinga og verður
væntanlega með þeim þeir þeir
mæta Stjörnunni í bikarkeppninni í
kvöld. Kavolius er 23 ára, rétthent
skytta og samkvæmt heimasíðu Vík-
ings hefur hann leikið undanfarin
þrjú ár með A-landsliði Litháens.
FÓLK
Flest önnur knattspyrnulið á Eng-landi berjast í bökkum vegna
samdráttar og gífurlegra launa-
krafna leikmanna en United, sem er
ríkasta knattspyrnufélag heims,
virðist hins vegar dafna ágætlega.
Þrátt fyrir þessa góðu stöðu var af-
koman lítillega lakari en reiknað
hafði verið með og munar þar mestu
um afskriftir við sölu Juan Sebastian
Verons til Chelsea en hann féll í
verði 1,8 milljarða á þeim árum sem
hann var hjá félaginu.
Salan á Beckham og Veron
gaf vel í kassann
Sala á David Beckham til Real
Madrid og Juan Sebastian Veron
skilaði talsverðum fjármunum í sjóði
félagsins.
Þá runnu samningar Davids Mays
og Laurents Blancs út en í staðinn
voru Tim Howard, Eric Djemba
Djemba, David Bellion, Kleberson
og Cristiano Ronaldo keyptir. Með-
allaun leikmanna félagsins hafa samt
lækkað en launakostnaður hjá félag-
inu er um 46% af tekjum.
Þess má geta að á síðasta rekstr-
arári seldur 2,5 millj. stykkja af
keppnispeysum félagsins, af þeim
seldur 40% þeirra utan Bretlands-
eyja.
Áætlað verðmæti félagsins eru
500 milljónir punda, um 65 milljarð-
ar króna.
Gríðarlegur
hagnaður á
Old Trafford
HAGNAÐUR enska knattspyrnu-
liðsins Manchester United nam
39,3 milljónum punda, jafnvirði
um 5 milljarða króna, fyrir
skatta á síðasta rekstrarári,
samkvæmt tilkynningu frá fé-
laginu. Þetta er 22% aukning
frá árinu á undan.
Reuters
Manchester United fékk
góðan pening í kassann fyrir
að selja David Beckham til
Real Madrid.
ÞREMUR íslenskum sundmönnum
stendur til boða að æfa með finnska
landsliðinu í sundi í byrjun næsta
árs. Þetta eru Jakob Jóhann Sveins-
son, Ægi, Kolbrún Ýr Kristjáns-
dóttir, ÍA, og Örn Arnarson, ÍRB.
Reiknað er með því að það skýrist
upp úr miðjum þessum mánuði
hvort þau taki boðinu. Jakob og Örn
halda til Svíþjóðar 17. október og
taka þátt í sterku móti þar í landi,
helgina 18. og 19., en það er einn
liður í undirbúningi þeirra fyrir EM
í 25 m laug sem fram fer í Dublin í
desember. Í Svíþjóð hitta þeir fé-
lagar forráðamenn finnska liðsins
og þá kemur í ljós hvort þeir æfi
með finnska landsliðinu eða ekki.
Sundmenn
fá boð frá
Finnlandi PÉTUR Hafliði Marteins-
son, landsliðsmaður í
knattspyrnu, meiddist á
æfingu hjá liði sínu,
Hammarby í Svíþjóð, og
spilaði ekki með því þegar
það vann Enköping, 7:0, í
sænsku úrvalsdeildinni í
fyrrakvöld.
„Ég tognaði á ökkla í
samstuði á æfingu á föstu-
daginn. Þetta var alls ekki
slæmt og ég æfði létt á
mánudag en tók enga áhættu á því
að spila. Þetta var heimaleikur
gegn botnliðinu og hann vannst
með glæsibrag,“ sagði Pétur við
Morgunblaðið í gær.
Hann sagði að meiðslin hefðu
engin áhrif á þátttöku sína í lands-
Pétur Hafliði Marteinsson
meiddist á æfingu
leiknum mikilvæga gegn
Þjóðverjum í Hamborg
hinn 11. október. „Ég verð
kominn á fulla ferð í vik-
unni, spila með gegn
Gautaborg næsta mánu-
dag og fer síðan til Þýska-
lands á miðvikudeginum,“
sagði Pétur. Hann fór til
Hammarby frá Stoke um
síðustu mánaðamót en
hefur til þessa aðeins spil-
að einn leik af þremur frá
þeim tíma. Þá lék hann á miðjunni
og skoraði sigurmarkið gegn
Halmstad, 1:0, með skalla eftir
hornspyrnu. Hammarby er í 3. sæti
deildarinnar, þremur stigum á eftir
Djurgården og einu á eftir Malmö,
þegar þremur umferðum er ólokið.
Pétur
Hafliði