Morgunblaðið - 01.10.2003, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl tal
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 10 ára.
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COMSkonrokk FM 90.9
Frá leikstjóranum Ridley Scott sem
færði okkur myndirnar Gladiator,
Hannibal, Blade Runner og Alien
"Skotheldur leikur
og frábært handrit."
HP KVIKMYNDIR.COM
Yfir
43.000
gestir!
Sýnd kl. 8 og 10.
Sjáið sannleikann!
Frábær tryllir
THE TIMES
Spacey er í
toppformi
UNCUT
i
í
i
Ný mynd frá breska leikstjóranum Alan Parker með
tvöföldum Óskarsverðlaunahafa, KevinSpacey.
VINSÆLUSTU MYNDIRNAR Á BRESKUM BÍÓDÖGUM SÝNDAR ÁFRAM.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Kl. 10.15.kl. 6. kl. 6. kl. 8. kl. 10.15.kl. 6.
H.J. MBL
S.G. DV
„Áhrifarík og lofsamleg.“
HJ. MBL
THE
MAGDALENE
SISTERS
Skonrok Fm 90.9
H.K. DV
SG DV
SV. MBLPlots
With a View
SG DV
SG MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12.
Frá leikstjóranum Ridley Scott sem
færði okkur myndirnar Gladiator,
Hannibal, Blade Runner og Alien
"Skotheldur leikur
og frábært handrit."
HP KVIKMYNDIR.COM
H.K. DV
Nói Albinói
sýnd um helgar
E
INS og segir í kynn-
ingu vakti myndin
Rannsókn á huliðs-
heimum (Enquête
sur le monde in-
visible) gríðarlega athygli á hinni
virtu kvikmyndahátíð í Toronto
sem nú er nýliðin. Myndin er tek-
in hérlendis, er alfarið á íslensku
og áhorfendur í Toronto horfðu
þannig í forundran á venjulega Ís-
lendinga lýsa kynnum sínum af
álfum og huldufólki eins og ekkert
væri sjálfsagðara. Í kvöld verður
myndin frumsýnd hérlendis í Há-
skólabíói og er leikstjórinn, Jean
Michel Roux, kominn hingað til
lands til að vera viðstaddur sýn-
inguna. Mun hann ennfremur sitja
pallborðsumræður um myndina
kvöldið eftir. Í spjallinu hér á eftir
kemur m.a. fram að Roux er afar
spenntur að sjá hverjar viðtökur
Íslendinga sjálfra verða við þess-
ari nýstárlegu heimildamynd hans.
Bíður í ofvæni
„Það var franska sendiráðið,
með Sebastien Nollet í broddi
fylkingar, sem barðist fyrir því að
fá myndina hingað,“ er það fyrsta
sem Roux segir og er sýnilega
kampakátur en um leið spenntur
yfir því að sýning hér á landi skuli
vera að bresta á. Með honum er
hans hægri hönd í verkefninu og
aðstoðarleikstjóri, Mireya Samper,
og biðja þau blaðamann innvirðu-
legast að gleyma ekki að nefna
tökumanninn þeirra, Jean Louis
Viallard.
„Í kvöld verður viðstatt fullt af
fólki sem rætt var við í myndinni,
og er það að fara að sjá hana í
fyrsta skipti. Sama gildir um aðila
sem hjálpuðu okkur að gera
hana.“
Roux segist bíða í ofvæni eftir
að sjá hvernig Íslendingar bregð-
ist við mynd sem fjallar um þenn-
an þátt í menningu þeirra.
Roux kom hingað árið 1990 er
hann var að vinna að mynd
byggðri á vísindaskáldskap.
„Sólveig Anspach leikstjóri
hjálpaði mér mikið hérlendis
(mynd hennar, Stormviðri, er nú
sýnd hérlendis). Henni þótti það
skondið að vera að hjálpa manni
sem hafði einungis fengist við
skáldað efni fram að því, en þá
fékkst hún við heimildamyndagerð
og lýsti hálfgerðu frati á leiknar
kvikmyndir. Mér finnst því dálítið
fyndið að við tvö erum að sýna í
sömu vikunni myndir okkar þar
sem hlutverk okkar tveggja hafa
snúist við (hlær).“
Skapandi heimildamynd
Það sem er hvað athyglisverðast
við Rannsókn á huliðsheimum sem
heimildamynd er áferð hennar.
Tökur eru mjög listrænar og per-
sónulegt handbragð Roux er yfir
og allt um kring í draumkenndum
senunum. Dulræn tónlist norska
raftónlistarmannsins Biosphere
eykur svo á töframáttinn, að ekki
sé talað um ansi magnaðar lands-
lagssenur héðan.
„Ég nota ýmsar brellur til að ná
fram anda þess um er rætt,“ út-
skýrir Roux. „Mér fannst afar
mikilvægt að ná fram ákveðnum
myndrænum áhrifum sem myndu
fara vel með því sem fólk er að
tala um, þ.e. álfum, draugum og
tröllum.“
Roux segir að gerð heim-
ildamynda sé oft ansi hefðbundin
og sköpunin sem formið geti boðið
upp á sé of oft fjarri. Hægt sé að
undirstrika efnistök með ýmsum
þáttum án þess að fara út fyrir
sanna og rétta heimildavinnu.
Með þetta að markmiði lagðist
Roux t.d. í miklar rannsóknir hvað
tónlistarval áhrærði. Hann hefði
að sjálfsögðu viljað nota sem mest
af íslenskri tónlist en endaði ein-
ungis á að nota tvennt; verk eftir
Magnús Blöndal Jóhannsson og
kvæðasöng af Röddum.
„Og eins falleg og tónlist Sigur
Rósar er, þá er hún einfaldlega of
falleg. Hún er heil kvikmynd í
sjálfri sér og drekkti því atrið-
unum. En tónlist Geirs Jensen
(norskur raftónlistarmaður sem
hljóðritar undir listamannsnafninu
Biosphere) var alveg fullkomin.
Áhrifamikil án þess að kæfa efn-
ið.“
Filman sjálf er einnig draum-
kennd ef svo mætti segja, líkt og
þunn, hvít slæða liggi yfir henni.
„Við urðum að beita brögðum til
að ná þessu fram. Allt er svo
„hreint“ í dag, margt lítur út eins
og auglýsingar. Við sóttumst eftir
kornóttari áferð.“
Gagnrýni
Eins sjálfsagðar og álfabyggðir
þykja hérlendis er ekki talað um
þetta í Frakklandi. Roux var ger-
samlega heillaður af því hversu
opinskátt er talað um þetta hér,
fannst eins og hann hefði uppgötv-
að hálfgert fjölskylduleyndarmál.
Hann var efins í fyrstu en er hann
sá hversu einlægt fólkið var, og sú
staðreynd að þetta voru Jónar og
Gunnur úti í bæ, sannfærðist hann
um hversu sterkar rætur þessi trú
hefði hér. Í myndinni koma m.a.
fram Vigdís Finnbogadóttir, sr.
Þórhallur Heimisson, Helgi Hall-
grímsson vegamálastjóri, Magnús
Gunnarsson fyrrverandi bæj-
arstjóri Hafnarfjarðar og Ragnar
„skjálfti“ Stefánsson og segja sín-
ar sögur af þessum málefnum.
„Ég vildi komast að því af
hverju þetta væri svona,“ segir
Roux og hnyklar brýrnar. „Af
hverju fólk, sem væri algerlega
heilt á geðsmunum, væri að segja
svona sögur. Hvaða merkingu hef-
ur þetta?“
Roux segir að í heimalandi sínu
hafi hann mætt töluverðri gagn-
rýni vegna þessa efnisvals. Þar sé
engin hefð fyrir þessu og honum
hafi m.a. annars verið brigslað um
að setja þetta á svið.
„En ég hef hins vegar enga
ástæðu til að gera það og ég nálg-
aðist þetta viðfangsefni af virðingu
og alvöru. Ég er mjög stoltur af
þessari mynd minni og tel að mér
hafi tekist að koma á framfæri
einlægninni sem þetta fólk býr yf-
ir. Það var ekki auðvelt fyrir
marga viðmælendur að segja frá
þessari reynslu. Fyllstu aðgátar
þurfti því að gæta og sýna fólkinu
fram á að okkur væri alvara með
þessu.“
Eru álfar
kannski …
Morgunblaðið/ÞorkellJean Michel Roux.
Franska myndin Rannsókn á huliðsheim-
um, sem fjallar um trú Íslendinga á álfa og
huliðsheima, vakti gríðarlega athygli á kvik-
myndahátíðinni í Toronto. Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi við leikstjórann, Jean
Michel Roux, um tilurð myndarinnar.
Atriði úr Rannsókn á huliðsheimum.
Rannsókn á huliðsheimum verð-
ur frumsýnd í Háskólabíói í kvöld
kl. 20.30. Næstu sýningar
verða í Háskólabíói föstudaginn
3. október kl. 22.20, sunnudag-
inn 5. október kl. 18.00 og
mánudaginn 6. október kl.
20.00. Ráðstefna um myndina
með Jean Michel Roux og hluta
þátttakenda í myndinni (miðlar,
vísindamenn) verður haldin á
morgun kl. 20.00 í nýju hús-
næði Alliance Française við
Tryggvagötu 14. Leiðandi um-
ræðna er Gérard Lemarquis.
Fundurinn fer fram á íslensku og
ensku. Aðgangur er ókeypis og
allir eru velkomnir.
www.lemondeinvisible.com.
arnart@mbl.is
Háskólabíó sýnir Rannsókn á huliðsheimum