Morgunblaðið - 01.10.2003, Page 49
ur í Snot (eina plata Snot, Get
Some frá 1997 er orðin að einhvers
konar kaleik, en söngvari Snot,
Lynn Strait, lést á voveiflegan hátt
og var þungarokkssenunni á Vest-
urströnd Bandaríkjanna mikill
harmdauði).
Platan var tekin upp í Bleiku
höllinni (Pink Palace), húsi sem
stendur hátt upp á Beverly Hills-
hæðum. Plötusnúður sveitarinnar,
DJ Lethal, tók þar þá ákvörðun að
slaka á hipp-hoppinu, eitthvað sem
alla tíð hefur verið stór partur í
listsköpun Limp-liða.
Gítarhetjan Durst?
Og til að pumpa smá lífi í sig
tóku Durst og félagar til við töku-
lög og reyndu sig m.a. við „Total
Eclipse of the Heart“ með Bonnie
Tyler. Enda hins vegar á að tækla
gamlan Who-slagara, „Behind Blue
Eyes“ (glöggir muna kannski eftir
grallaralegri útgáfu Limp-manna á
„Faith“ George Michael sem finna
má á fyrstu plötunni). Durst stóð
þá lengi vel á gati hvað textasmíð
varðaði og það var ekki fyrr en
Britney gaf honum langt nef að
flóðgáttin brast. Durst lætur hana
heyra það í laginu „Just Drop
Dead“ sem er þó ekki á plötunni.
Hlutirnir fóru svo loks að rúlla
þegar Snoop Dogg mætti í stúd-
íóið, glaður og reifur af kampavíni
og appelsínusafa. Þetta kom víst
félögunum loksins í gott stuð. Og
loks fannst gítarleikari eins og áð-
ur segir, en Eddie Van Halen og
Durst sjálfur voru m.a. búnir að
taka í gítarinn!
En látum gagnrýnendur um að
meta hvort Limp Bizkit skipti enn
máli og hvort að þar með sé enn líf
í nýþungarokkinu sem þeir bera
talsverða ábyrgð á að hafa skapað.
Loksins er nýja Limp Bizkit-platan komin!
Limp Bizkit í stuði: Durst er annar frá vinstri.
HANN er umdeildur maður, hann
Fred karlinn Durst, leiðtogi Limp
Bizkit. Sumir segja hann markaðs-
hóru með athyglissýki; syngi með
hverjum sem er svo fremi að hann
komist í miðlana og hann geri hvað
sem er fyrir aurinn. Aðrir hampa
honum sem glúrnum skemmti-
krafti sem kunni vel að rokka sé
því að skipta, og það sé hann sem
tók við kyndlinum af Korn og
færði nýþungarokkið inn á millj-
ónir unglingaheimila og tendraði
með því hamingjuglóð í hjörtum
rokkþyrstra ungmenna. Hvað sem
þeim vangaveltum líður stafar
óneitanlega sjarmi frá strák, sem
fetar einstigið milli trúðsháttar og
alvörugefna rokkarans af mikilli
list.
Snoop Dogg
kíkir í heimsókn
Durst og félagar eru nánast
búnir að lifa á loftinu undanfarið,
það er tónlistar- og fjölmiðlalega
séð. Biðin eftir nýju plötunni, sem
loks er komin út og heitir Results
May Vary, er búin að vera löng og
ströng og hefur allt hrjáð sveitina
sem hægt er að hrjá rokksveitir
með sköpunarstíflu. Gítarleikarinn
hætti á þessu tímabili (sjarmbróðir
Durst, Wes Borland, og er missir
að honum), ekkert var gerast í
lagasmíðamálum og fyllt var upp í
úgáfugat á meðan með ömurlegri
endurhljóðblöndunarplötu sem er
ekki þriggja dollara virði. Ofan á
allt virtist Durst vera uppteknari
af sjálfum sér en sveitinni og var
m.a. að nuddast utan í Britney
Spears og er hann víst enn að ná
sér eftir það.
Platan nýja er sextán laga og á
meðal gesta eru m.a. Snoop Dogg
og Head úr Korn. Nýi gítarleik-
arinn er heldur enginn aukvisi, en
hann heitir Mike Smith og var áð-
Er líf í ný-
þungarokkinu?
arnart@mbl.is
ÁLFABAKKI
kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.05.
KEFLAVÍK
Kl. 8.
AKUREYRI
Kl. 6 og 8.
KRINGLAN
Kl. 6 og 8.
Stórkostleg
gamanmynd sem
er búin að gera allt
sjóðvitlaust í USA
með Jamie Lee
Curtis og
Lindsay Lohan í
aðalhlutverki.
Antonio Banderas, Johnny Depp og Salma
Hayek í mögnuðu framhaldi af hinni
geysivinsælu mynd Desperado.
DV
Yfir 100 M$
í USA!
Þetta er sko
stuðmynd í
lagi!
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10. . B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45 og 6.10. Ísl tal
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Ísl tal
ÁLFABAKKI
kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
KRINGLAN
kl. 10. B.i. 16.
AKUREYRI
kl. 8 og 10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30.
Frá leikstjóranum Ridley Scott sem
færði okkur myndirnar Gladiator,
Hannibal, Blade Runner og Alien
"Skotheldur leikur
og frábært handrit."
HP KVIKMYNDIR.COM
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 10. B.i. 10.
KVIKMYNDIR.IS
L.A. TIMES
BBCI
KVIKMYNDIR.IS
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 49
ÞAU eru fá lögin sem hljóma eins ótt þessa dagana á Popp Tíví og þeim út-
varpsstöðvum sem leika nýja tónlist og hið léttrokkaða, ofurgrípandi og
tilfinningaríka „In The Shadow“.
Flytjendur lagsins, eins og sjá má í myndbandi, hata ekki svarta litinn,
veigra sér ekki við þótt drengir séu að klína smá augnskugga á sig og leika
í myndbandinu eins og þeir eigi lífið að leysa. Og kannski er það svo.
Flytjandurnir kalla sig því sérkennilega nafni The Rasmus sem kemur
rækilega upp um frá hvaða slóðum bandið er. Þeir eru nefnilega finnskir
drengirnir. Ekki á hverjum degi sem leikin eru finnsk dægurlög á FM957!
En grípandi lag er grípandi lag, sama hvaðan það kemur.
Þótt nafnið sé nýtt í augum okkar Frónverja þá er The Rasmus búin að
vera starfandi í næstum áratug síðan á skólaárunum. Lauri söngvari og að-
allagasmiður og Pauli aðalgítarleikari og upptökustjóri hafa verið með frá
upphafi en svo hafa þeir bæst í hópinn Aki og Eero. The Rasmus hefur gef-
ið út fjórar plötur síðan 1996 og sú nýjasta heitir Dead Letter. Sveitin hef-
ur verið sú allra vinsælasta í heimalandinu síðustu árin og með laginu „In
The Shadow“ ná þeir fyrir alvöru til eyrna alheimsins.
Ljósmynd/Nauska
Liðsmenn finnsku sveitarinnar The Rasmus.
Sjóðheitt! The Rasmus
PLÖTUR LIMP BIZKIT
-Three Dollar Bill Y’All (’97)
-Significant Other (’99)
-Chocolate Starfish and the
Hotdog Flavored Water (’00)
-New Old Songs [endurhljóð-
blandanir] (’01)
-Results May Vary (’03)
STAÐREYNDIR UM
FRED DURST
Rekur eigin útgáfu, Flawless
Records sem hefur gefið út
Puddle of Mud, The Revolution
Smile og Ringside
Hefur m.a. sungið með Bono,
DMX, Staind, Korn, Soulfly og
... já ... Britney Spears! (þó ólík-
legt sé að það efni komi fyrir
eyru almennings).
er alltaf hress!