Morgunblaðið - 03.11.2003, Page 24
FRÉTTIR
24 MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RAÐAUGLÝSINGAR
HÚSNÆÐI ÓSKAST
2ja—3ja herbergja íbúð
óskast til leigu
Æskilegt að íbúðin sé miðsvæðis í Reykjavík.
Leigan verður greidd fyrirfram fyrir eins árs
leigutíma.
Ársalir ehf. - fasteignamiðlun,
s. 533 4200, 892 0667 eða 862 9781.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 10 1841138 Dn.
I.O.O.F. 19 1841138 O*
GIMLI 6003110319 II
HEKLA 6003031119 IV/V
HEKLA 6003110319 IV/V
SR. Bragi Skúlason sjúkra-
húsprestur heldur fyrirlestur um
fjölskylduna og sorgina í safn-
aðarheimilinu Vinaminni á Akra-
nesi í kvöld, mánudagskvöld 3. nóv-
ember, kl. 20.
Fjallað verður um breytingar
sem verða í kjölfar missis. Hvaða
áhrif hefur sorgin á hvern ein-
stakan fjölskyldumeðlim? Hvaða
áhrif hefur hún á samskipti fjöl-
skyldunnar í heild? Fyrirspurnir
verða leyfðar.
Missið ekki af athyglisverðum
fyrirlestri. Sr. Bragi er einn helsti
sérfræðingur okkar á þessu sviði.
Heitt á könnunni! Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
Kristin trú
og búddismi
MIÐVIKUDAGINN 5. nóvember
hefst í Leikmannaskóla kirkjunnar
námskeið um kristna trú og búdd-
isma en í hugum flestra er búddismi
ákaflega framandi átrúnaður sem
leiðir hugann að fjarlægum löndum
og menningu sem er ólík okkar.
Á þessu námskeiði verður farið í
helstu grunnþætti búddismans,
sögu hans og útbreiðslu. Skoðaðar
verða þrjár helstu greinar búdd-
ismans en einnig fær búddismi á
Vesturlöndum nokkuð rými. Einnig
verður leitast við að bera saman
siðaboðskap og aðrar kenningar
búddismans og kristinnar trúar.
Lesefni á námskeiðinu er eftir sr.
Þórhall Heimisson sem lokið hefur
framhaldsnámi í trúarbragðafræð-
um.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn
5. nóvember kl. 18 og er kennt í
þrjú skipti, kl. 18–20 í stofu 202 í
Odda.
Skráning fer fram í síma
535 1500 og á vef Leikmannaskól-
ans, www.kirkjan.is/leik-
mannaskoli
Fyrirlestur um sorgina á Akranesi
Hallgrímskirkja.
Æskulýðsfélagið Örk
kl. 20.
Langholtskirkja. Æv-
intýraklúbbur kl. 16–
17. Starf fyrir 7–9 ára
börn í umsjón Þóru
Guðbjargar og Ólafs
Jóhanns. Fjölbreytt
dagskrá og eru allir
krakkar á þessum
aldri velkomnir.
Laugarneskirkja.
Góðar mömmur, kl.
12. María Íris Guð-
mundsdóttir, BA í sál-
arfræði, og Kristjana
Þorgeirsdóttir Heiðdal
líkamsræktarþjálfari
bjóða til fræðslu,
íhugunar og hollrar
hreyfingar með mæðr-
um ungbarna, þar
sem unnið er með
fæðingarþunglyndi.
Gengið inn um aðal-
dyr safnaðarheimilis.
Opinn 12 spora fund-
ur kl. 18 í safnaðar-
heimilinu. Allt fólk vel-
komið. Vinir í bata.
Tólf spora hópar
koma saman kl. 20.
Gengið inn um aðal-
dyr safnaðarheimilis-
ins. Umsjón hafa
Gunnlaugur Ólafsson
og Hafdís Fjeldsted.
Fundur Kvenfélags
Laugarneskirkju kl.
20. (Gengið inn um
aðaldyr safnaðarheim-
ilisins.)
Neskirkja. 6 ára starf
kl. 13.40. Sögur,
söngur, leikir og fönd-
ur. Uppl. og skráning í
síma 511 1560. TTT-
starf kl. 16.30. Starf fyrir 10–12 ára
börn. Amazing Race-ratleikur. Umsjón
Munda og Sigfús. 12 sporin andlegt
ferðalag kl. 20.
Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15
STN-starf með sjö til níu ára börnum í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir full-
orðna í safnaðarheimilinu kl. 13–
15.30 í umsjón Lilju G. Hallgrímsdótt-
ur djákna. Þar verður fræðsla, föndur,
spilað, spjallað og kaffiveitingar verða
í boði. Þeir sem óska eftir akstri láti
vita í síma 557 3280 fyrir hádegi. Fyr-
irbænastund í kapellu kirkjunnar kl.
15.30–15.45. Bænarefnum má koma
til djákna, presta eða annarra starfs-
manna kirkjunnar. Stelpustarf fyrir
stelpur í 6. og 7. bekk kl. 16.30.
Æskulýðsstarf fyrir unglinga í 8., 9. og
10. bekk kl. 20.30. Atriði úr leikverki
um Jobsbók gert eftir texta Stephens
Mitchells í þýðingu Helga Hálfdanar-
sonar í flutningi Arnars Jónssonar leik-
ara. Lenka Mátéová leikur á orgelið
tónlist sem Áskell Másson gerði við
verkið. Kaffiveitingar í safnaðarheim-
ilinu á eftir. Allir velkomnir, ókeypis að-
gangur.
Grafarvogskirkja. Kirkjukrakkar fyrir
börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–
18.30 í Engjaskóla. KFUK fyrir stúlkur
á aldrinum 9–12 ára kl. 17.30–18.30.
Kl. 20 sorg og sorgarviðbrögð vegna
andláts. Sr. Vigfús Þór Árnason sókn-
arprestur hefur áralanga reynslu af
sorgarvinnu sem sóknarprestur. Auk
náms í uppeldis- og kennslufræði við
Háskóla Íslands hefur hann stundað
framhaldsnám meðal annars í sál-
gæslu, prédikunarfræði, sálgæslu og
fjölmiðlafræði við Háskólann í Mün-
chen í Þýskalandi og Pacific School of
Religion í Berkley í Kaliforníu
Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30.
Alfa-námskeið kl. 19–22.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir
16 ára og eldri kl. 20–22.
Ástjarnarsókn. Ponzý (unglingastarf
ætlað árg. 1990 og upp úr) á mánu-
dögum kl. 20–22.
Lágafellskirkja. Bænastund í Lága-
fellskirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar
og tekur við bænarefnum í síma 691-
8041 alla daga frá kl. 9–16. Al-Anon-
fundur í Lágafellskirkju kl. 21. Barna-
starf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, fyrir 6
og 7 ára börn er í Varmárskóla kl.
13.150–14.40. Umsjón hefur Þórdís
djákni.
Keflavíkurkirkja. SOS-hjálparnám-
skeið fyrir foreldra barna og unglinga í
minni sal Kirkjulundar kl. 20.30–22.
Námskeiðin eru haldin á vegum
Fræðsluskrifstofu Reykjanesbækjar
með stuðningi Keflavíkurkirkju. Um-
sjón Hafdís Kjartansdóttir sálfræðing-
ur.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
17.30 æskulýðsfélag fatlaðra, eldri
hópur. Hulda Líney Magnúsdóttir og
sr. Þorvaldur Víðisson. Kl. 20 Kven-
félag Landakirkju undirbýr árlegan jóla-
basar. Kvenfélagskonur hvattar til að
mæta.
Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30–
16.30.
Glerárkirkja. 12 spora starf í kvöld kl.
20. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15
heimilasamband fyrir alla konur. Kl.
17 Örkin hans Nóa, fyrir 1., 2. og 3.
bekk. Kl. 18 KK fyrir 4. og 5. bekk.
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja
Morgunblaðið/Golli
KERLINGAR, sjóræningjar,
pabbi, Manga með svarta vang-
ann, Jesús Kristur og Jim
Morrison voru meðal fyrirmynda
þeirra karla sem tjáðu sig á fyr-
irmyndakvöldi karlahóps Fem-
ínistafélags Íslands. Kvöldið var
haldið á Grand rokki síðastliðinn
miðvikudag og að sögn Hjálmars
Gunnars Sigmarssonar, eins
skipuleggjenda kvöldsins, var þar
mikið hlegið og sagðar yndislegar
sögur.
Jón Gnarr, Einar Már Guð-
mundsson, Ómar Ragnarsson,
Stefán Pálsson og Arnar Eggert
Thoroddsen tjáðu sig um fyr-
irmyndir sínar í fortíð og nútíð en
að sögn Hjálmars var tilgangurinn
að fá karlmenn til að taka þátt í
fjölbreytilegri umræðu og tjá sig
um hluti sem fólk hugsar ekkert
endilega út í daglega. „Þetta er í
raun okkar framlag til að færa
karla nær femínískri umræðu.“
Í tengslum við kvöldið var gef-
inn út bæklingur þar sem fleiri
þjóðþekktir Íslendingar tjá sig um
fyrirmyndir sínar.
Gunnar á Hlíðarenda
helsta fyrirmyndin
Þar segir Gunnar Hersveinn
blaðamaður meðal annars frá dá-
læti sínu á Gunnari á Hlíðarenda.
„Gunnar þykist ekki vita best,
heldur leitar iðulega ráða hjá
ráðagóðum. Það finnst mér
aðdáunarverður eiginleiki: Leita
ráða og ræða málin áður en
ákvörðun er tekin,“ segir Gunnar
Hersveinn.
Andri Snær Magnason
rithöfundur fann ekki fyrirmyndir
sínar fyrr en hann kynntist U2.
„Þeir voru hugsjónamenn og
stóðu fyrir mikilvæga hluti.“ Aðr-
ar fyrirmyndir Andra Snæs voru
meðal annars Hófi, handbolta-
landsliðið, Hulda amma og Þórður
Helgason skáld.
Fyrirmyndakvöld karlahóps Femínistafélags Íslands
Kerlingar,
sjóræn-
ingjar og
pabbi
Morgunblaðið/Jim Smart
Gestir voru til fyrirmyndar á fyrirmyndakvöldi karlahóps félagsins.
NÝLEGA varð opnuð ljósmynda-
stofan Myndahornið, en hún hefur
þann eiginleika að vera nk. flökku-
ljósmyndaþjónusta. Eigandi stof-
unnar er ljósmyndarinn Ernesto
Ortiz Alvarez, en hann er Mexíkó–
Íslendingur, sem hefur lært og starf-
að við greinina í Mexíkó. Mynda-
hornið býður uppá barna- og fjöl-
skylduljósmyndun.
Um þessar mundir hefur Mynda-
hornið aðstöðu í Ævintýralandi
Kringlunnar um helgar en á Lauf-
ásvegi 14 á virkum dögum, segir í
fréttatilkynningu.
Myndahornið
– ný ljós-
myndastofa
NÝLEGA var formlega tekinn í
notkun nýr húsbúnaður í Grunn-
skólanum á Hólmavík. Að sögn
þeirra kennara sem lengstan
starfsaldur hafa við skólann er
þetta einhver mesta bylting sem
orðið hefur í húsnæðismálum skól-
ans á síðustu árum. Keyptir voru á
annað hundrað stólar og borð og
endurnýjað í öllum kennslustofum,
en húsbúnaður mötuneytis var ekki
endurnýjaður að þessu sinni. Talið
er að elstu húsgögnin sem í notkun
voru séu a.m.k. 20-30 ára gömul og
eftir persónulegum ummerkjum
fyrri notenda að dæma hafa nokkr-
ar kynslóðir komið þar við sögu.
Nýi húsbúnaðurinn var keyptur af
fyrirtækinu Á. Guðmundssyni í
Kópavogi. Um er að ræða há borð
með plötu sem hægt er að halla og
háa stóla sem hægt er að snúa og
hækka og lækka eftir þörfum. Auk
meiri þæginda fyrir nemendur er
þetta gjörbylting á vinnuaðstöðu
kennara. Hluti af húsbúnaði fyrir
kennara var einnig endurnýjaður
og hærri nemendaborð eru einnig
til aukinna þæginda fyrir kennara.
Í tilefni af þessu var haldin sam-
koma á sal skólans þar sem Victor
Örn Victorsson skólastjóri ávarpaði
nemendur og gat þess að sú góða
umgengni sem nemendur skólans
sýndu, gerði það að verkum að end-
urnýjun af þessu tagi væri til fram-
búðar og um leið væri viðhalds-
kostnaður minni. Þá taldi hann sýnt
að námsárangur hækkaði enn frek-
ar í samræmi við hæð húsbúnaðar-
ins! Ásdís Leifsdóttir sveitastjóri
og Haraldur V. A. Jónsson oddviti
voru einnig á staðnum. Ásdís tók til
máls og óskaði nemendum til ham-
ingju með nýja húsbúnaðinn og
þann góða námsárangur sem nem-
endur skólans hafa sýnt á síðustu
árum. Á eftir var efnt til veislu þar
sem nemendur, starfsmenn og aðr-
ir viðstaddir gæddu sér á snúðum
og kókómjólk.
Húsbúnaður
endurnýjaður
í grunnskólanum
Hólmavík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Nokkrir nemendur prófa nýju húsgögnin, frá vinstri: Björk Ingvarsdóttir,
Elín Ingimundardóttir, Sigurður Páll Jósteinsson og Hekla Jónsdóttir.
Brautskráðist úr
kennsluréttindanámi
Steinunn Kristjánsdóttir var sögð
útskrifuð með BA-gráðu í þroska-
þjálfun í yfirliti um þá sem braut-
skráðust frá Kennaraháskólanum í
lok október. Listinn var birtur í
blaðinu í gær en hið rétta er að
Steinunn útskrifaðist úr kennslu-
réttindanámi og er beðist velvirðing-
ar á því.
LEIÐRÉTT
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
KIRKJUSTARF