Morgunblaðið - 03.11.2003, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2003 31
Nýr og betri
Sýnd kl. 6 og 10
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
www .regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
„Frábær mynd“
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÞÞ FBL
Ein magnaðasta
heimildarmynd
seinni ára!
ÞÞ FBL
HK DV
SV MBL
HK. DV
SKONROKK 90.9
Kvikmyndir.isi i .i
SV MBL
.
Stærsta grínmynd ársins!
Þú deyrð úr hlátri
enn og aftur!
Stærsta október opnun
allra tíma í USA!
TOPP
MYNDIN
Í USA!
Sýnd kl. 6 8.30 og 10.30 B.i. 10 ára.
Yfir 20.000 gestir
www.laugarasbio.is
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 6. Bara sýnd um helgar
Sýnd kl. 6. Með ísl tali
Miða
verð
kr. 50
0
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12.
OPEN RANGE
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
„Frábær mynd“
ÞÞ FBL
DV
Kvikmyndir.com
Stórkostlegur vestri frá
Kevin Costner leikstjóra
DANSAR VIÐ ÚLFA
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10
Þú deyrð úr hlátri
enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
Stærsta grínmynd ársins!
TOPP
MYNDIN
Í USA!
Yfir 20.000 gestir
SJALLINN á Akureyri er án
efa eitt elsta og virtasta
danshús Íslands, en á laug-
ardaginn var haldið upp á
fjörutíu ára afmæli hans með
pomp og prakt. Í Sjallanum
hefur rjóminn af íslenskum
tónlistarmönnum stigið á
svið til þess að skemmta
Norðlendingum í gegnum
tíðina og sjaldnast komið að
tómum kofunum. Sjallinn er
sögufrægur gleðistaður og
vekur góðar og skemmti-
legar minningar hjá vel-
flestum íslenskum skemmti-
kröftum. Afmælisbarninu
fertuga var fagnað af ungum
jafnt sem öldnum listamönn-
um og var leikið á ýmis hljóð-
færi auk þess sem söngurinn
ómaði.
Afmælisfögnuðurinn náði
síðan hámarki þegar hljóm-
sveitin Hljómar steig á svið
og hélt viðhafnardansleik, en
sveitin fagnar einmitt sjálf
fjörutíu ára starfsafmæli um
þessar mundir. Sannaðist þá
hið fornkveðna að allt er fer-
tugum fært. Ekki er heldur
ólíklegt að allnokkrir fertug-
ir Íslendingar og ófáir dulítið
yngri eigi tilvist sína að
þakka því sem gerðist „þeg-
ar ballið var búið“ í Sjall-
anum forðum.
Dansinn dunaði og gleðin bunaði í Sjallanum
Allt er fertugum fært
Morgunblaðið/Kristján
Það vantaði ekkert upp á stemmninguna á dansgólfinu í Sjallanum þegar Hljómar
stigu á svið og léku öll sín þekktu lög.
Sigmundur Ernir Rúnarsson var veislustjóri og skilaði því starfi með miklum
sóma. Hér er hann að kynna nokkra nemendur úr Hafralækjarskóla í Aðaldal sem
léku fyrir gesti á afrísk hljóðfæri og vakti flutningur þeirra verðskuldaða athygli.
Jóhanna Vala og Sessý halda áfram í stjörnuleitinni
Þær Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sesselja „Sessý“ Magn-
úsdóttir urðu hlutskarpastar í öðrum hluta þrjátíu og tveggja
manna úrslita í Idol stjörnuleit á föstudagskvöldið. Hlaut
Sessý 30% atkvæða en Jóhanna Vala fylgdi fast á eftir með 28% atkvæða.
JÓHANNA Vala Höskuldsdóttir er
fædd og uppalin á Akureyri. Hún er á
þriðja ári í MA og gengur vel. „Samt
vantar mig frjálsa mætingu þessa
dagana vegna þess að ég er mikið að
stússa í alls kyns félags- og listalífi.“
Jóhanna Vala segir skemmtilegt
að hafa komist áfram, „en ég er ekki
almennilega búin að pæla í því, mér
líður samt pínu skringilega. Þegar ég
sá mig í sjónvarpinu ákvað ég að
næst skyldi ég sýna að ég geti líka
sungið, ég sé ekki bara með attítjúd.
Ég fór fyrst í þetta upp á djókið af því
mér fannst þetta skemmtilegt, þess
vegna var ég kannski ekki með eins
miklar væntingar og ella. Ég tek
þessu létt og ákvað að skemmta mér
bara, en nú er kominn dálítill metn-
aður í mig og ég vil syngja eins vel og
ég get.“
Að verða fær í flestan sjó
Jóhanna Vala hefur afskaplega
gaman af því að syngja, þó hún eigi
ekki að baki neinn langan feril í söng,
enda aðeins átján ára. „Ég er búin að
vera að læra söng og koma fram
nokkrum sinnum í brúðkaupum og
með karlakórnum á Akureyri og
svona skemmtilegt. Ég syng mikið
almennt, bæði með vinum mínum og í
boðum. Það væri
gaman ef lífið væri
söngleikur og allir
þessir hversdags-
legu hlutir væru
allt í einu orðnir að
lögum, Ó hvað ég
er með mikið kvef í
dag,“ syngur hún
og hlær. „Mig langar mjög mikið til
að leika, syngja og dansa. Mig langar
til að vera fær í flestan sjó á því sviði
að vera á sviði. Mér finnst ekki gam-
an að syngja mjög róleg lög, það eru
aðrir söngvarar sem geta sungið þau
betur og mér finnst gott að hlusta á
þannig lög sungin með gullröddum.
Mér finnst meira gaman að syngja
lög sem koma fólki í fíling.“
Ef lífið væri söngleikur
SESSÝ er fædd og uppalin í
Reykjavík og segist vera hundrað
prósent borgarbarn. Hún er ham-
ingjusamlega gift og er stjórnandi
þjónustuborðs Kringlunnar. Hún
segir starfið frábært, blöndu af
mannlegum samskiptum og
ábyrgð.
„Ég bjóst alls ekki við þessu.
Auðvitað vissi ég að ég átti séns
eins og allir aðrir,“ segir Sesselja,
sem tekur lífinu með ró. „En ég var
búin að búa mig undir að komast
ekki áfram og gerði bara ráð fyrir
því. Þess vegna kom þetta skemmti-
lega á óvart. Þetta er fyrst núna að
verða raunverulegt.“
Sessý segir stemmninguna meðal
keppenda búna að vera ótrúlega og
hafa komið sér mikið á óvart. „Við
erum búin að vera mjög náin, miðað
við þennan stutta tíma sem við höf-
um þekkst.“ Sessý hefur sungið frá
blautu barnsbeini, „en ég byrjaði að
syngja opinberlega sem unglingur í
menntaskóla, tók
þátt í söngva-
keppnum í Versló
og svoleiðis. Eftir
stúdentsprófið var
ég í hljómsveit í
eitt og hálft ár,
ásamt því að hafa
sungið við ýmis
tækifæri. Ég hef miklar væntingar
til tónlistarinnar. þetta er al-
gjörlega það sem ég stefni á. Þetta
er draumur sem ég ætla að láta
rætast. Idolið er frábært tækifæri
en ef það gengur ekki upp held ég
bara ótrauð áfram.“
Sessý segist aldrei hafa getað
flokkað tónlistarsmekk sinn sér-
staklega „Það er grundvallaratriði
að það sé sál í tónlistinni, en mis-
munandi stefnur höfða til mín. Ég
er voðalega hrifin af soul og blues,
en með öllu hinu í bland. Ég vil bara
syngja það sem ég fíla, eitthvað sem
ég hef tilfinningu fyrir.“
Vill tónlist með sál