Morgunblaðið - 15.12.2003, Side 12
MINNSTAÐUR | VESTURLAND
12 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Byggingafélagið
Mark-hús
vill óska
Landsamtökunum
Þroskahjálp til hamingju
með nýja sambýlið
við
Þverholt í Mosfellsbæ
lagsþjónusta 49 milljónir og um-
hverfis-, samgöngu- og skipulagsmál
32 milljónir.
Á árinu 2004 er áætlað að verja 87
milljónum til nýframkvæmda. Rúm-
um 40 milljónum verður varið til
framkvæmda við skólamannvirki, en
fyrirhugað er að byggja við leikskól-
ann Klettaborg og leggja gervigras-
völl við Grunnskólann í Borgarnesi.
Auk þess verður varið rúmum 30
milljónum til gatnagerðar í Borgar-
nesi, stærstu framkvæmdir í gatna-
gerð eru við Brúartorg en þar
hyggst Sparisjóður Mýrasýslu reisa
nýtt húsnæði undir starfsemi sína.
Þá verður unnið áfram að skipulags-
málum í gamla miðbænum í Borg-
arnesi, en þar mun rísa íbúðarbyggð
og þjónustu- og verslunarhúsnæði.
Einnig verður unnið að deiliskipu-
lagi á Varmalandi. Þá er áætlað að
verja um 25 milljónum til viðhalds á
fasteignum sveitarfélagsins og veg-
ur þar þyngst að fyrirhugað er að
skipta um gólf í íþróttahúsinu í Borg-
arnesi. Gert er ráð fyrir að ný lán-
taka á árinu 2004 verði alls 136 millj-
ónir og að afborganir eldri lána verði
tæpar 135 milljónir. Því er áætlað að
skuldir sveitarfélagsins muni aðeins
aukast um eina og hálfa milljón. Ný
lántaka verður því fyrst og fremst
nýtt til að greiða eldri skuldir.
Það sem af er árinu hefur íbúa-
fjölgun í Borgarbyggð verið með því
mesta á landinu. Á fyrstu níu mán-
uðum ársins voru aðfluttir íbúar um-
fram brottflutta alls 70. Fjölgun íbúa
kallar vissulega á eflingu þjónustu
og nýframkvæmdir hjá sveitarfé-
laginu. Fjárhagsáætlun Borgar-
byggðar fyrir árið 2004 tekur mið af
þessu, hún gerir ráð fyrir aðhaldi í
rekstri sem er nauðsynlegt til þess
að áfram megi halda uppi háu þjón-
ustustigi í sveitarfélaginu. En áætl-
unin endurspeglar líka bjartsýni á
framtíð byggðarlagsins þar sem ráð-
ist er í framkvæmdir og fjárfesting-
ar sem eru forsenda fjölgunar íbúa.
en álagningarprósenta fasteigna-
skatts lækkar.
87 milljónir
í nýjar framkvæmdir
Stærstum hluta rekstrarútgjalda,
eða 445 milljónum, er varið til
fræðslu- og uppeldismála. Nemend-
um við grunnskóla sveitarfélagsins í
Borgarnesi og á Varmalandi hefur
fjölgað um tæplega 40 það sem af er
árinu. Borgarbyggð hefur staðið vel
að rekstri grunnskóla, en í báðum
skólunum er boðið upp á mötuneyti
og heilsdagsvistun. Borgarbyggð
rekur þrjá leikskóla og taka þeir við
börnum frá tveggja ára aldri. Aðrir
málaflokkar sem taka hvað mest til
sín í rekstri eru æskulýðs- og
íþróttamál 99 milljónir, sameiginleg-
ur kostnaður 80 milljónir, fé-
Borgarbyggð| Nýsamþykkt fjár-
hagsáætlun Borgarbyggðar fyrir ár-
ið 2004 gerir ráð fyrir að heildar-
tekjur bæjarsjóðs og fyrirtækja
sveitarfélagsins verði 923 milljónir,
en þar af eru skatttekjur rúmar 730
milljónir eða tæp 80% af tekjum. Þá
er gert ráð fyrir að rekstrargjöld og
fjármagnsliðir verði 919 milljónir.
Afgangur frá rekstri verður því rúm-
ar 4 milljónir.
Veltufé frá rekstri er áætlað 31
milljón sem eru tæp 4% af heildar-
tekjum og söluhagnaður eigna er
áætlaður 35 milljónir.
Skatttekjur sveitarfélagsins
hækka á milli ára um tæp 7% miðað
við endurskoðaða fjárhagsáætlun
fyrir árið 2003. Álagning útsvars er
óbreytt, þjónustugjöld vegna vatns-
veitu, fráveitu og sorphirðu hækka,
Fjárhagsáætlun Borgar-
byggðar samþykkt
um vera mjög til bóta. Ég á von á
því að í framhaldi af þessu finni
menn sér fleiri fleti til samstarfs,
þótt ekkert sé uppi á borðinu í
dag. Það gera sér allir grein fyrir
því að sveitarfélögin á svæðinu eru
ekki að keppa innbyrðis, þetta
svæði er fyrst og fremst að keppa
við önnur markaðssvæði,“ sagði
Gísli.
Í þessu nýja samkomulagi sveit-
arfélaganna er meðal annars kveð-
ið á um að sveitarfélögin geri sam-
eiginlega tillögu til
samgöngumálaráðuneytisins um
uppbyggingu safnvega á svæðinu
AKRANESKAUPSTAÐUR, Borg-
arbyggð og Borgarfjarðarsveit
hafa gert með sér samkomulag um
að auka eins og kostur er samstarf
og samvinnu sveitarfélaganna.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri Akra-
neskaupstaðar, segir að menn vilji
horfa á þetta svæði sem eina heild,
en þetta er þriðja samkomulagið
sem þessi sveitarfélög undirrita
varðandi samstarf og samvinnu.
„Vð höfum verið að fikra okkur
áfram og nú stígum við skref til
viðbótar sem geta orðið áhugaverð
í framhaldinu með samrekstri á
ákveðnum stofnunum, sem við telj-
og að beita sér fyrir lagningu
Sundabrautar. Þá eru sveit-
arfélögin sammála um að auka enn
frekar jákvæð áhrif Hvalfjarð-
arganga og knýja á um að ríkið
stuðli með beinum hætti að því að
gjaldtaka af umferð um göngin
verði lækkuð.
Aðilar eru sammála um að auka
samstarf safna, þrýsta á um gerð
menningarsamnings sveitarfélag-
anna á Vesturlandi við ríkið og að
vinna áfram sameiginlega að vímu-
varnarmálum, svo fátt eitt sé talið.
Sveitarfélögin eru sammála um að
bjóða íbúum sveitarfélaganna upp
á þjónustu á sviði dagvistarmála,
heimilishjálpar, vinnu Vinnuskóla
og þjónustu tónlistarskóla án tillits
til þess í hvaða sveitarfélagi við-
komandi aðilar eiga lögheimili.
Þá hefur Akraneskaupstaður
undirritað samkomulag við
Snorrastofu og Byggðasafnið að
Görðum um að styðja rekstur
Snorrastofu með fjárframlagi
næstu þrjú ár. Snorrastofa og
Byggðasafnið að Görðum munu á
þeim tíma leita leiða til að auka
samstarf sitt.
Akranes, Borgarbyggð og Borgarfjarðarsveit undirrita samkomulag um aukið samstarf
Horfum á svæðið
sem eina heild
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Páll Brynjarsson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, Gísli Gíslason, bæjarstjóri
Akraness, og Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar,
undirrita samkomulag um aukið samstarf og samvinnu sveitarfélaganna.
Stykkishólmur | Framkvæmdir við bygg-
ingu nýs skólahúss fyrir Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði eru að byrja.
Stofnað hefur verið eignarhaldsfélagið
Jeratún ehf. sem sveitarfélögin á Snæfells-
nesi standa að. Tilgangur félagsins er að
byggja húsnæði fyrir Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga sem tekur til starfa í Grundarfirði
næsta haust. Félagið mun síðan leigja
Framhaldsskólanum húsnæðið. Í bygging-
arnefnd skólans eru Ásgeir Valdimarsson,
Grundarfirði, formaður, Kristinn Jónasson,
Snæfellsbæ og Óli Jón Gunnarsson, Stykk-
ishólmi.
Byggingarnefnd hefur boðið út fyrsta
áfangann í verkefninu. Um er að ræða
jarðvegsskipti. Gengið hefur verið til
samninga við verktaka í Stykkishólmi og
nágrenni. Þessir aðilar sendu inn sameig-
inlegt tilboð: BB & synir, EB vélar, Palli
Sig ehf., Stefán Björgvinsson og Velverk.
Samningar á milli byggingarnefndar og
verktaka voru undirritaðir í Stykkishólmi
11. desember.
Kostnaðaráætlun er tæpar 15 milljónir
króna og var tilboð verktaka rúmlega 60%
af kostnaðaráætlun. Verklok eru áætluð 15
janúar nk.
Skólahúsnæðið á að vera tilbúið í haust.
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra
tekur fyrstu skóflustunguna næstkomandi
þriðjudag.
Framkvæmdir við Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga að hefjast
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Byggingarnefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands og verktakar eftir að hafa skrifað undir samn-
ing um jarðvegsskipti fyrir nýtt skólahús í Grundarfirði.