Morgunblaðið - 02.01.2004, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
56,4% á nýliðnu ári sem er mesta
hækkun frá upphafi. Ein helsta
skýringin á þessari hækkun er
hækkun á gengi bréfa Pharmaco,
en þau hækkuðu um 183,5% á
árinu, langmest allra bréfa á Að-
allista Kauphallar Íslands.
Samkvæmt Hálffimm fréttum
Kaupþings Búnaðarbanka var mest
velta á síðasta ári með bréf Íslands-
banka, 75,6 milljarðar króna. Næst-
mest velta var með bréf Kaupþings
Búnaðarbanka, 53,8 milljarðar
króna, og í þriðja sæti var Pharma-
co með 44,9 milljarða króna veltu.
Þó að hlutabréf margra fyr-
irtækja hafi hækkað mikið í verði á
árinu 2003, sér í lagi Pharmaco og
fjármálafyrirtækjanna, lækkuðu
önnur töluvert. Lækkunar gætir
einkum meðal sjávarútvegsfyr-
irtækja og er vísitala sjávarútvegs
sú eina sem lækkaði á árinu. Eina
fyrirtækið í sjávarútvegi sem er á
Aðallista og hækkaði á árinu er
Grandi, sem hækkaði um 16,5%, en
öll önnur lækkuðu, fyrir utan Þor-
móð ramma-Sæberg, sem stóð í
stað. Þormóður rammi-Sæberg er
raunar það fyrirtæki sem hækkaði
mest í viðskiptum á síðasta degi
ársins, um 8,1%, en fyrirtækið hefði
að öðrum kosti lækkað á árinu líkt
og flest hinna sjávarútvegsfyrir-
tækjanna.
Langmest hækkun
hjá Pharmaco
!"
#"
$!
%& '
() "&
*
+
"
!
,
,"-
#& "&
'
.
!"
-
,
/
-
&
01!
!"
."
2 3#4!
$!!
+ !
#
/
#!
2& !
,
)" 3' %&
5 "&
6
#4"
#7%
7
(
-& 7 8%%7 "& . " $!! % 7 9%!!
NOTKUN þessarar nýju rannsókn-
artækni Stjörnu-Odda á heimsvísu
hófst nú fyrir jólin er Jóhannes
Sturlaugsson hjá Laxfiskum
merkti nokkra af hinum fornfrægu
stóru urriðum úr Þingvallavatni
með GPS-mælimerkjum. Þau GPS-
merki munu mæla og skrá næstu 2
árin upplýsingar um hegðun
fiskanna og umhverfi.
Umræddar merkingar eru hluti
af ítarlegum rannsóknum sem
Laxfiskar standa fyrir á atferl-
isvistfræði Þingvallaurriðans í
samvinnu við Stjörnu-Odda og
Hafrannsóknastofnun. Verkefnið
er stutt af Landsvirkjun, Orku-
veitu Reykjavíkur og Þjóðgarð-
inum Þingvöllum, auk þess sem
bændur við Þingvallavatn hafa
lagt rannsóknunum lið á ýmsan
máta.
„Rannsóknirnar hófust 2003 og
munu ef fjármögnun gengur eftir
fela í sér umfangsmiklar merking-
ar á Þingvallaurriða árin 2004 til
2006 er skila eiga dýrmætum upp-
lýsingum frá GPS-mælimerkj-
umum um það hvar urriðinn í
Þingvallavatni heldur sig hverju
sinni þrátt fyrir víðáttur þessa
stærsta náttúrulega vatns Íslands.
Merkingar á stórurriðum úr Öx-
ará hafa nú þegar sýnt að þegar
veturseta þeirra hefst í kjölfar
hrygningar þá kjósa þeir sér dval-
arstaði við lindir vatnsins. Flestir
dvelja langdvölum um veturinn í
kaldavermslum lindanna við norð-
anvert Þingvallavatn, en einstaka
fiskar finna sig í því að dvelja ein-
hverja daga eða vikur við heitar
lindir sunnanvert í vatninu.
Rannsóknir með þessari nýju
tækni í Þingvallavatni gefa ekki
einungis dýrmætar upplýsingar
um Þingvallaurriðann heldur verð-
ur ennfremur notadrjúgt viðmið í
þeim fiskirannsóknum með GPS-
merkjum er sigla munu í kjölfarið
hjá Laxfiskum og Hafrann-
sóknastofnun, sem og öðrum að-
ilum er taka í notkun þessa rann-
sóknaraðferð,“ segir Jóhannes
Sturlaugsson.
Urriðinn úr Þingvallavatni merktur
Jóhannes Sturlaugsson merkir Þingvallaurriða.
STJÖRNU-Oddi hefur undanfarin
ár þróað GPS-mælimerkin og til-
svarandi GPS sendibúnað í sam-
starfi við Simrad í Noregi með
stuðningi frá Rannsóknaráði Ís-
lands. Framleiðsla á merkjunum
hófst í desembermánuði, í kjölfar
prófana á merkjunum sem staðið
hafa yfir frá því í maí 2003. Merkin
og tilheyrandi sendibúnaður gera
kleift að safna GPS staðarákvörð-
unarupplýsingum frá farleið fiska
sem bera GPS-rafeindamerkin.
„Stjörnu-Oddi hefur frá því að
fyrirtækið hóf framleiðslu á raf-
eindafiskmerkjum verið leiðandi í
framleiðslu mælimerkja er gefa
færi á að afla ýmissa ítarlegra upp-
lýsinga um atferli fiska (fiskdýpi
o.fl.) og umhverfi þeirra (hiti o.fl.),
en út frá þeim upplýsingum hefur
m.a. tekist að ákvarða á hvaða
svæðum fiskarnir hafa haldið sig
fyrir tiltekin tímabil,“ segir Sigmar
Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Nýju GPS mælimerkin safna
slíkum upplýsingum sem fyrr, en
safna til viðbótar með beinum hætti
upplýsingum um landfræðilega
staðsetningu fiskanna. Aðilar í fiski-
rannsóknum hafa hingað til talið
staðsetningu mikilvægasta einstaka
þáttinn sem þörf væri að mæla með
rafeindafiskmerkjum hjá fiskum
sem fara víða. Nú hefur Stjörnu-
Oddi í samvinnu við rannsókn-
araðila þróað tækni sem gefur færi
á slíkum upplýsingum og skapar
um leið færi á að efla rannsóknir og
ráðgjöf fiskifræðinga.
„Stjörnu-Oddi hefur selt vörur
félagsins til 28 landa og miklar von-
ir eru bundnar því að hin nýju GPS
rafeindafiskmerki muni auka um-
svif félagsins enn frekar. Þess má
geta að félaginu hefur tekist að
vernda þróunarvinnuna með einka-
leyfum á GPS merkjunum og hafa
slík einkaleyfi verið gefin út til
Stjörnu-Odda víða um heim,“ segir
Sigmar.
Stjörnu-Oddi kynnir nýja
tækni í fiskirannsóknum
Ásgeir Sverrisson, einn af tæknimönnum Stjörnu-Odda, notar GPS-sendinn.
ÚR VERINU
OG Vodafone (Og fjarskipti hf.) og
Landsbanki Íslands hafa skrifað
undir samning um endurfjár-
mögnun nær allra langtímalána
félagsins. Fjárhæð lánsins er 4,7
milljarðar kr. og er lánið veitt til
hálfs fimmta árs. Tæplega helm-
ingur lánsins er eingreiðslulán
með vaxtagjalddögum en rúmlega
helmingur lánsins er afborgunar-
lán.
Og Vodafone skrifaði undir
sambankalán fjögurra banka
snemma á þessu ári upp á 53 millj-
ónir bandaríkjadala. Sá samning-
ur var til tveggja ára um endur-
fjármögnun allra lána þeirra
félaga sem sameinuðust undir
nafni Og Vodafone. Lánið sem nú
er tekið er nýtt til uppgreiðslu
sambankalánsins auk annarra
lána og lækkar vaxtabyrði félags-
ins, að því er segir í tilkynningu til
Kauphallar Íslands.
Og Vodafone endur-
nýjar lánasamninga
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Föt fyrir
allar konur