Morgunblaðið - 02.01.2004, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 35
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 12.30, 2.30, 4.30, 6.30, 8.30 og powersýning kl. 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.
Stranglega bönnuð yngri en 16 ára
Skonrokk FM909
Sýnd kl. 2, 4 og 6. B.i. 10 ára.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. B.i. 10.
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
Pow
er-
sýni
ng
kl. 10
.30
www .regnboginn.is
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
Yfir 40.000 gestir á 5 dögum!
Gleðilegt
nýtt ár
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 2.30, 5, 6.30, 9 og 10.30
„Ein besta jólamynd
sem sést hefur...“
Hjörleifur Pálsson,
Kvikmyndir.com
Kl. 6.30, 8.30 og 10.30. Með ensku tali.
Sýnd kl. 2.30 og 4.30. Með íslensku tali.
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
www.laugarasbio.is
Gleðilegt
nýtt ár
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Yfir 40.000 gestir á 5 dögum!
KRINGLUNNI
SMÁRALIND
40-70%
afsláttur
ÚTSALAN
HEFST
3. JANÚAR
söguheimi Vigdísar. Táknrænt og
sjónrænt svið kvikmyndarinnar er
þannig nýtt á markvissan og næman
máta til þess að fanga litbrigðin í vit-
undarlífi Gríms, koma að upplýsing-
um og vísbendingum um fortíð hans
og tengsl við aðrar persónur, og
árétta og undirbyggja leiðandi tákn
og áherslur sögunnar. Þessi tákn-
ræna og oft skorinyrta frásagnarleið
gerir það þó að verkum að áhorfand-
inn þarf stundum að rýna vel í leið-
arvísinn og fylla inn upplýsingar út
frá snyrtilega afgreiddum vísbend-
ingum. Á stöku stað í upphafi sögunn-
ar hefði e.t.v. mátt fylla betur í eyð-
urnar, en eftir því sem byggt er betur
undir söguheiminn verður hið skor-
inyrta tungumál kvikmyndarinnar
meira flæðandi.
Í þeirri heild sem kvikmyndin er
gerir margt smátt eitt stórt. Vönduð
og bráðfalleg kvikmyndatakan fangar
jafnt harðneskju og fegurð fjarðarins
sem fínleg svipbrigði persónanna og
er faglega að öllum þáttum kvik-
myndagerðarinnar staðið. Það er ekki
síst fyrir krafta hinna sterku leikara
kvikmyndarinnar og magnaðrar tón-
listarinnar, að táknheimur sögunnar
fer á flug. Feðgarnir Ingvar E. Sig-
urðsson og Áslákur Ingvarsson eru
stórkostlegir í hlutverkum Gríms
eldri og Gríms yngri, og oftar en ekki
er það í gegnum svipbrigði og fas sem
hvað mest er sagt. Gríðarlega mikið
mæðir á hinum barnunga Ásláki við
túlkun þeirrar margflóknu persónu
sem drengurinn Grímur er, og sýnir
frammistaða hans, ekki síst í tilfinn-
ingalega þrungnum atriðum, að þar
fer leikari af guðs náð. Aðrir leikarar
eiga jafnframt hrós skilið, en þeir
vinna vel og á samstilltan hátt úr fyr-
irferðarminni hlutverkum ástvina og
kunningja Gríms. Snæfríður Ingv-
arsdóttir er ekki síður sterk í mótleik
við bróður sinn Áslák og Kristbjörg
Kjeld gefur Álfrúnu gömlu dýpt og
þunga sem bætir upp fyrir það hversu
dregið er úr umfangi samskipta
þeirra Gríms í samanburði við skáld-
söguna. Hin tregafulla og fallega tón-
list Hjálmars H. Ragnarssonar gegn-
ir jafnframt stóru hlutverki í að miðla
tilfinningalegum umbrotum sögunn-
ar. Einnig er vert að minnast á hið
bráðfallega lag sem leikstjórinn
samdi sjálfur og KK flytur. Lagið er
leikið á mikilvægum stað í sögunni,
þegar Grímur snýr aftur til æsku- og
minningaslóðanna.
Sem íslensk kvikmynd stendur
Kaldaljós í áhugaverðu samspili við
bæði samtímakvikmyndagerð og ís-
lenska sagnahefð, og er það athygl-
isverð tilviljun að kvikmyndin Nói
albínói fjallar um ekki ósvipaða hluti.
Hér líkt og víðar er unnið með kunn-
uglegt minni sjávarþorpsins og æsku-
stöðvanna, en með sinni sjálfstæðu og
faglegu frásagnaraðferð tekst Hilm-
ari Oddssyni að gæða söguna fersk-
leika og krafti.
Ástir í skugga erfiðrar æskureynslu: Ingvar E. Sigurðsson og Ruth Ólafs-
dóttir í hlutverkum sínum í Kaldaljósi.
Heiða Jóhannsdóttir