Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 1
Straumar
og Stefán
Kraftmikil og kjarngóð soul-tónlist
af ýmsu tagi | Fólk í fréttum
Dýralæknir
heimsóttur
Hundum og köttum er mjög hætt
við að fá tannstein | Daglegt líf
Fólkið í dag
STOFNAÐ 1913 50. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Þetta er allt að koma Lífið í
Barcelona Konudagurinn List
á uppboði Sugababes Útgáfan
MAÐURINN sem fannst látinn í höfninni á
Neskaupstað 11. febrúar hét Vaidas Jucevi-
cius. Hann var á þrítugasta aldursári þegar
hann lést, fæddur í
smábænum Telsiai í
vesturhluta Litháen í
nóvember árið 1974.
Ekki hefur fengist
staðfest að nokkurt
þeirra tæplega 60
lyfjahylkja sem mað-
urinn bar innvortis
hafi rofnað í melting-
arfærum hans.
Lögregla fékk stað-
festingu á réttu nafni
mannsins í gær, og bar móðir hins látna
kennsl á hann af myndum frá lögreglunni í
Þýskalandi, segir Inger L. Jónsdóttir,
sýslumaður á Eskifirði. Maðurinn gekk
undir öðrum nöfnum þ. á m. Vaidas Vilkas.
Jucevicius var myndaður og tekin voru af
honum fingraför í tengslum við afbrot í
Þýskalandi.
Respublika, annað stærsta blað Litháens,
birti í gær stutta frétt þar sem sagt er frá
líkfundinum á Neskaupstað. Mindaugas Pe-
leckis, blaðamaður blaðsins, segir að borgin
Kaunas sé þekkt fyrir stórfellda framleiðslu
á eiturlyfjum, þar á meðal amfetamíni.
Yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar
í Reykjavík segist verða var við aukinn
áhuga erlendra aðila á að koma fíkniefnum
til Íslands með svokölluðum burðardýrum
af ýmsum þjóðernum, og segir hann fjölda
slíkra mála hafa aukist undanfarið.
Ekki stað-
fest að lyfja-
hylki hafi
sprungið
Vaidas Jucevicius
Getur dregið til dauða/4
HANN var einbeittur á svip með
kyndilinn snáðinn sem var við-
staddur setningu vetrarhátíðar
Reykjavíkur í Bankastræti í gær-
kvöldi. Þó fékk hann smá aðstoð
við að halda honum réttum enda
var mikill mannfjöldi samankom-
inn að fagna upphafi þessarar
fjölskylduskemmtunar. Þórólfur
Árnason borgarstjóri flutti ávarp
og síðan var farið í kyndlagöngu
ásamt lúðrasveit á Miðbakka
Reykjavíkurhafnar. Þar höfðu fé-
lagar í slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins undirbúið einstaka
leysigeislasýningu í samvinnu við
ljósahönnuði. Vetrarhátíð byrjaði
því sem sannkölluð ljósahátíð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kyndlaganga í upphafi vetrarhátíðar
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, SÞ, sagði í gær að of snemmt yrði að
halda kosningar í Írak áður en Bandaríkjamenn
færa stjórn landsins í hendur heimamanna 30.
júní. Er þetta niðurstaða sendinefndar SÞ sem í
síðustu viku fór til Íraks til að meta hvort hægt
væri að halda þar kosningar á næstu þremur
mánuðum.
Annan lagði þó áherslu á að stjórnarskiptin
skyldu eftir sem áður fara fram 30. júní. Hann
sagði að finna þyrfti leið til að skipa ríkisstjórn
og síðan vinna að undirbúningi kosninga sem
yrðu „einhvern tímann í framtíðinni.“
Yfirmenn bandaríska hersins og bandamanna
þeirra í Írak fögnuðu ákvörðuninni. Sjítar tóku
henni hins vegar illa enda hafa þeir krafist þess
að kosningar verði haldnar sem fyrst.
Bandaríkjamenn höfðu áður sagt að öryggi
væri ekki nógu tryggt og undirbúningstími of
skammur til að hægt væri að halda kosningar
innan þriggja mánaða. Þá hafa sérfræðingar SÞ
bent á að kosningar nú myndu koma íslömskum
öfgasinnum vel en spenna eykst nú á milli harð-
línusinna og hófsamra afla í samfélaginu.
Sjítar óánægðir
Sjítar, sem eru um 60% íbúa í Írak, hafa þrýst
mjög á um að kosningar verði haldnar fyrir
stjórnarskiptin. Einn valdamesti klerkur
þeirra, Ayatollah Ali al-Husseini al-Sistani, seg-
ir að ríkisstjórn sem mynduð verði án kosninga
sé „ólögmæt“. Var hann áður búinn að hóta
fjöldamótmælum ef kosningar yrðu ekki haldn-
ar bráðlega. Hann sætti sig þó við ákvörðun SÞ í
gær rétt eins og leiðtogar helstu stjórnmála-
flokka sjíta. Talsmaður stærsta flokksins,
Æðstaráðs íslömsku byltingarinnar, sagði
ákvörðunina þó mikil vonbrigði.
Telur of snemmt að
halda kosningar í Írak
Sameinuðu þjóðunum. AP. AFP.
AP
Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, ræðir hér
við fréttamenn ásamt Lakhdar Brahimi, ráð-
gjafa sínum í málefnum Íraks, í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í New York í gær.
BRESKA ríkisstjórnin íhug-
ar nú að leggja sérstakan
„fituskatt“ á óhollan mat til
að bregðast við vaxandi of-
fituvandamáli hjá þjóðinni.
Einnig kemur til greina að
láta fitu- og sykurinnihald
koma fram á umbúðum allra
unninna matvara til upplýs-
ingar fyrir neytendur.
Stjórnin vill með þessu
reyna að bregðast við mikilli
neyslu almennings á óhollum
mat eins og hamborgurum,
kartöfluflögum og gosdrykkj-
um, að því er fram kemur í
dagblaðinu Times.
Fyrr í mánuðinum hvöttu
bresk læknasamtök stjórn-
völd til að bregðast skjótt við
þeim „hræðilegu heilsufars-
legu afleiðingum“ sem hlyt-
ust af offituvandamáli þjóðar-
innar. Hafa læknar varað við
því að verði ekkert að gert
muni þriðjungur fullorðinna
Breta þjást af offitu árið 2020.
Þá muni einnig þriðjungur
stúlkubarna eiga við offitu-
vandamál að stríða og fimmt-
ungur drengja.
Íhuga
fituskatt
Lundúnum. AFP.
GARÐABÆR hefur ákveðið að kaupa raf-
orku af Hitaveitu Suðurnesja (HS) til Sjá-
landsskóla, sem byrjað verður að reisa á
þessu ári á mörkum Sjálands og Grunda-
hverfis í bænum. Byggingin verður beggja
vegna Hraunholtslækjar, með tengibygg-
ingu yfir lækinn, og lendir þar með á svæð-
um sem tilheyra frá gamalli tíð HS sunnan
megin og Orkuveitu Reykjavíkur (OR)
norðan megin.
Garðbæingar leituðu upplýsinga hjá veit-
unum um einingarverð rafmagns. Í svörum
HS og OR kom fram umtalsverður munur á
verðinu og var ákveðið að kaupa rafmagn af
HS. Eiríkur Bjarnason bæjarverkfræðing-
ur segir að með þessu spari sveitarfélagið
sér um 400 þúsund kr. á ári, miðað við orku-
notkun upp á 600 þúsund kílóvattstundir.
Hraunholtslækur rennur undir Sjálands-
skóla og tengibygging verður yfir lækinn.
Á tveimur
orkuveitu-
svæðum
ÞRÍTUGUR Norðmaður var orðinn svo leiður á að þurfa sífellt
að vera bílstjóri fyrir kærustuna sína að hann greip til ör-
þrifaráða. Hann sá lögreglubíl á undan sér, gaf hraustlega í og
fór fram úr á 137 km hraða í von um að missa ökuleyfið. Leyfð-
ur hámarkshraði á veginum var aðeins 80 kílómetrar. Aðgerð-
in tókst því vel, hann var að sögn Þrændablaðsins stöðvaður
fyrir of hraðan akstur.
Blaðið segir að maðurinn hafi játað sekt sína fyrir dómara í
Þrándheimi í vikunni og gefið áðurnefnda skýringu á fram-
ferðinu. Dómarinn hrósaði honum fyrir hreinskilnina en sagð-
ist ekki skilja almennilega þankaganginn. Manninum varð að
ósk sinni, missti prófið í ár og var dæmdur í 14 daga fangelsi.
Ráp með kærustuna
Ósló. AP.