Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 27
TÓNSKÓLI Sigursveins D. Krist-
inssonar gengst á morgun fyrir mál-
þingi um stöðu og framtíð tónlistar-
menntunar. Forgöngu að
málþinginu hefur Tónskóli Sigur-
sveins D. Kristinssonar í samvinnu
við Reykjavíkurborg, menntamála-
ráðuneyti, Félag íslenskra hljómlist-
armanna, Félag tónlistarskólakenn-
ara, Listaháskóla Íslands, Samtök
tónlistarskóla í Reykjavík, Samtök
tónlistarskólastjóra, Tónmennta-
kennarafélag Íslands og samtök tón-
listarnemenda.
Húsið verður opnað kl. 13.30 og kl.
14 leika nemendur skólans áður en
skólastjóri Tónskólans, Sigursveinn
K. Magnússon, setur þingið. Ávörp
flytja Steingrímur Sigurgeirsson,
aðstoðarmaður menntamálaráð-
herra, Stefán Jón Hafstein, formað-
ur fræðsluráðs Reykjavíkur, Anna
Tryggvadóttir tónlistarnemi og
Halldóra Aradóttir píanókennari.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Íslands, flytur erindi
um gildi tónlistarmenntunar á 21.
öld og Steinunn Birna Ragnarsdóttir
píanóleikari gerir grein fyrir niður-
stöðum af vinnu starfshóps á vegum
fræðsluráðs Reykjavíkur um stöðu
kennaramenntunar. Magnús Árni
Skúlason rekstrarhagfræðingur
fjallar um vinnureglur um fjárveit-
ingar Reykjavíkurborgar til tónlist-
arskóla og greinir frá verkefnum og
störfum vinnuhóps á vegum fræðslu-
ráðs Reykjavíkur og Jón Torfi Jón-
asson prófessor og Silja Björk Bald-
ursdóttir félagsfræðinemi leita svara
við spurningunni hvernig tónlistar-
skólar falli inn í skólakerfi 21. ald-
arinnar.
Eftir kaffihlé tala Bryndís Björk
Ásgeirsdóttir og Inga Dóra Sigfús-
dóttir félagsfræðingar um gildi tón-
listarnáms fyrir íslenska unglinga og
Haukur F. Hannesson, tónlistar-
kennari og listrekstrarfræðingur,
fjallar um reykvíska tónlistarmennt-
un í alþjóðlegu samhengi – aðgengi
tónlistarmenntunar, skipulag henn-
ar og þjóðhagslega hagkvæmni.
Erfitt að ráða í framtíðina
Að sögn Sigursveins K. Magnús-
sonar er málþingið haldið þegar
miklar breytingar eru að verða í mál-
efnum tónlistarmenntunar. „Í þessu
sambandi nægir að minna á endur-
skoðun laga um fjárhagslegan stuðn-
ing við tónlistarskóla sem nú er að
hefjast. Jafnframt fara fram viðræð-
ur milli ríkis og sveitarfélaga um
hver eigi að bera kostnað af tónlist-
arnámi á framhaldsstigum, og það er
mjög stórt mál. Í þriðja lagi veldur
túlkun á ákvæðum samkeppnislaga
tónlistarskólum í Reykjavík erfið-
leikum og skapar óvissu um framtíð
þeirra. Þessi þrjú mál gera það að
verkum að tónlistarskólarnir í
Reykjavík eru svolítið á floti í augna-
blikinu. Það er erfitt að ráða í fram-
tíðina, en við höldum málþingið til að
upplýsa okkur sjálf, og þá sem koma
að þessum málum. Að lokum má svo
nefna þá þróun sem er að verða á al-
þjóðlegum vettvangi á þessu mála-
sviði. Þar er ýmislegt að gerast.
Markmiðið er að þeir sem þingið
sækja geti nýtt sér þær upplýsingar
sem þar koma fram og þau erindi
sem þar verða flutt liggja útprentuð í
fundarlok, þannig að fundarmenn
geta tekið þau með sér. Ég vona að
fólk fari upplýstara út og geti nýtt
eitthvað af því sem þarna kemur
fram í umræðu næstu mánaða um
málefni tónlistarskólanna,“ segir
Sigursveinn K. Magnússon.
Stjórnandi málþingsins verður
Ævar Kjartansson og allir sem
áhuga hafa eru velkomnir. Skráning
er í síma 568 5828 eða á tsdk@is-
mennt.is í síðasta lagi í dag.
Málþing um tónlistarmenntun
Morgunblaðið/Golli
Gildi tónlistarnáms fyrir unglinga, er meðal þess sem rætt verður á málþinginu á morgun.
Föstudagur
Iðnó kl. 8–10 Mannauður innflytjenda, morg-
unverðarmálþing. Pallborðsumræður með
þátttöku frummælenda og fulltrúa innflytj-
enda.
Íþróttamiðstöðin við Dalhús kl. 9–11
Leikskólabörn úr Grafarvogi hitta hvert ann-
að og Línu Langsokk, búa til Vinaorminn og
æfa dans.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1 kl.
10 Grunnskólanemendur úr Árbænum
syngja og Skólahljómsveit Árbæjar og Breið-
holts leikur.
Undirgöng borgarinnar kl. 11 Árbæj-
arstífla, Bakkatún, Útvarpshúsið, Steinahlíð,
tjaldstæði í Laugardal, Miklatún, Aust-
urvöllur og á Ægisíðu hjá grásleppukof-
unum. Leikskólabörn mætast á opnum
svæðum til að biðja um betri og friðsælli
heim.
Borgarskjalasafn, Tryggvagötu kl. 11–12
Finndu skjölin þín! Námskeið Borg-
arskjalasafns Reykjavíkur endurtekið.
Borgarleikhúsið kl. 11.30–13 Íslenski
dansflokkurinn. Opin æfing á dansverkinu
Lúna – tvö verk um ástina og lífið.
Listasafn Íslands kl. 12.10 Leiðsögn um
sýninguna Löng og margþætt saga, Flúxus í
Þýskalandi 1962–1994.
Söngskólinn í Reykjavík, Snorrabraut 24
kl. 12.15 María Jónsdóttir flytur ljóða-
flokkinn Wesendonk – Lieder eftir Wagner.
Elín Guðmundsdóttir leikur með á píanó.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg kl.
13.30 Jóhann Pálsson, fyrrverandi garð-
yrkjustjóri Reykjavíkur, segir frá gömlu trján-
um í Reykjavík í máli og myndum. Gerðu-
bergskórinn tekur lagið og börn úr
leikskólanum Hraunborg koma í heimsókn.
Höfuðborgarstofa, Ingólfsnausti, kl. 16
Sýning á hellaljósmyndum Árna B. Stef-
ánssonar hellakönnuðar. Einnig er til sýnis
líkan af Þríhnúkagíg og kynning á hug-
myndum um aðgengi.
Kringlan (við Hagkaup á efri hæð) kl. 16
Ljósmyndasýning Ljósmyndafélagsins Fók-
uss. Til 29. febrúar.
Hitt húsið, Pósthússtræti 16–20 Útþrá
2004 og brú milli menningarheima. Kynning
á möguleikum fyrir ungt fólk hérlendis og
erlendis. Afrískar trommur hljóma.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir kl.
18–20 Barcelónsk menningarhelgi.
Grafíksalurinn, Hafnarhúsinu kl. 18–20
Opið hús á sýninguna Fljúgandi teppi.
Borgarbókasafn, Grófarhúsinu kl.
19.15–21.15 Ljósmyndaskyggnusýning.
Iðnó kl. 20–21.30 Marion Herrera hörpuleik-
ari leikur verkið Spices eftir Bernard Andrés.
Café Culture, Alþjóðahúsi, Hverfisgötu
18 kl. 20.30 Salsanámskeið.
Árbæjarkirkja kl. 20–21 Fimm kórar undir
stjórn Krisztina Kallo Szklenár.
Sundlaug Grafarvogs kl. 21–22 Sund-rokk.
Hljómsveitirnar Zether og Royal Fluzh rokka.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús kl.
21–23 Sérstakir gestir Vetrarhátíðar:
Hljómsveitin Voices for Peace.
ÞESSI leiksýning stingur nokkuð í stúf
við aðrar slíkar sem ætlaðar eru börnum.
Hér er fengist við sammannlegt vandamál –
kvíða og skort á sjálfstrausti – og fylgst með
hvernig tvær stúlkur bregðast við þessum
vanda og reyna að leysa hann með tilvísun í
takmarkaða reynslu sína af lífinu og með
vangaveltum um hvað beri til bragðs að taka
þegar slíkar aðstæður koma upp.
Í raun er lausnin mjög trúverðug; stúlk-
urnar komast að þeirri niðurstöðu að það
þýði ekki annað en að herða upp hugann,
reyna að koma auga á jákvæðu hliðarnar og
berjast ötular áfram við þau verkefni sem
upp munu koma í lífinu og sem sigrast verð-
ur á. Til að ná þessu markmiði verður bæði
að læra að treysta á æðri máttarvöld og
dauðlegar verur en umfram allt á sjálfan
sig. Neikvæð viðhorf brjóta niður trú ein-
staklingsins á eigin getu og valda þannig
kvíða og vanlíðan. Hér eru engar einfaldar
lausnir í boði heldur er bent á að það að
breyta hugarástandi sínu sé erfitt enda
næst árangur einungis með góðra vina
hjálp.
Þessi sýning er sögð ætluð börnum á aldr-
inum sex til tólf ára. Það verður að telja lík-
legt að börn sem eru á eldri aldursmörkum
finnist þessi sýning fyrir neðan sína virð-
ingu og ólíklegt að yngstu börnin í hópnum
bregðist við öðru en skemmtilegustu brönd-
urunum. Textinn hefði þurft meiri yfirlegu
til að gera úr efninu heildstæða og kröftuga
undirstöðu sýningar. Það þarf að tengja bet-
ur atriðin með það í huga að umræðan í
verkinu verði rökræn heild og hvað leiði af
öðru í dramatískri framvindu. Leikstjórinn
og leikararnir falla í þá gryfju að velja leik-
máta sem jaðrar við að vera vanvirðing við
ætlaðan áhorfendahóp. Ingibjörg Stefáns-
dóttir hefur leikið í fjölmörgum sýningum
auk starfa sinna sem tónlistarmaður, en hún
er höfundur einfaldrar og grípandi tónlistar
í sýningunni. Hún stendur sig með prýði ef
frá er talinn leikstíllinn sem persónunum er
valinn og áður er minnst á. Ásta Sighvats
Ólafsdóttir hefur gert garðinn frægan er-
lendis og m.a. leikið með Théatre de
Complicité og í Breska þjóðleikhúsinu. Hún
náði persónulegri tökum á hlutverki sínu
hér en allajafna tekst í leiksýningu ætlaðri
börnum hér á landi, m.a. vegna mjög sér-
stakrar og stórrar raddar sem kemur á
óvart úr svo litlum líkama. Hér hélst í hend-
ur að persónan fær skýr karaktereinkenni
og hve vel Ástu tekst að koma á framfæri
vanmetakennd hennar og uppgjöf gagnvart
aðstæðum. Túlkun hennar hjálpaði áhorf-
endum að horfa framhjá annmörkum text-
ans og fáránleika framsagnarmátans og á
stundum látbragðsins líka. Lestur Jóhönnu
Vigdísar Hjaltadóttur var í beinni mótsögn
við leikmátann – enda dytti vonandi engum í
hug að túlka fullorðna persónu á eins hrap-
allegan hátt og börn eru á stundum túlkuð á
sviði. Það vantaði betri samhæfingu og um-
fram allt meiri kraft í samleik Ingibjargar
og Ástu og í raun er eins og þá sem að verk-
inu standa skorti trú á sjálfa sig sem lista-
menn til að skila betra verki. Það er aftur á
móti ólíklegt að leikhúslistamönnum sem
væru uppfullir af eigin ágæti hefði dottið í
hug eins gott efni í barnaleiksýningu og hér
um ræðir.
Að öðlast trú
á sjálfan sig
LEIKLIST
Furðuleikhúsið
Höfundur: Ólöf Sverrisdóttir og leikhópurinn. Leik-
stjóri: Ólafur Guðmundsson. Höfundur tónlistar: Ingi-
björg Stefánsdóttir. Rödd af segulbandi: Jóhanna
Vigdís Hjaltadóttir. Leikarar: Ásta Sighvats Ólafs-
dóttir og Ingibjörg Stefánsdóttir. Föstudagur 13.
febrúar.
EINS OG FUGLAR HIMINSINS
Sveinn Haraldsson
SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og
nágrennis gaf Reykvíkingum í
gær útilistaverk eftir Steinunni
Þórarinsdóttur sem Þórólfur
Árnason borgarstjóri afhjúpaði
við upphaf Vetrarhátíðar í gær.
Listaverkinu, sem ber heitið Ræt-
ur, var fundinn staður neðarlega í
Bankastræti. Guðmundur Hauks-
son sparisjóðsstjóri afhenti Reyk-
víkingum listaverkið fyrir hönd
Spron. Með því hófst hin fjögurra
daga Vetrarhátíð í Reykjavík-
urborg. Gengið var í kjölfarið við
undirleik Lúðrasveitarinnar Svans
með logandi kyndla niður á Mið-
bakka þar sem leysiljósasýning
Vetrarhátíðar gladdi augu gesta
með hjálp Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins.
Á myndinni er höfundurinn,
Steinunn Þórarinsdóttir, við verk-
ið.
Spron gaf
Reykvíking-
um „Rætur“
Morgunblaðið/Jim Smart
RICHARD Wagner-félagið á Íslandi
hefur á liðnum vikum staðið fyrir
sýningum á óperunum fjórum úr
Niflungahring Wagners af DVD
mynddiskum í Norræna húsinu. Á
sunnudag kl. 13 er röðin komin að
þriðju Hringóperunni, Sigurði Fáfn-
isbana eða Siegfried á frummálinu.
Sýndar verða upptökur frá 1980 af
hinni margrómuðu Bayreuth-upp-
setningu franska leikstjórans Pat-
rice Chéreau með hljómsveitarstjór-
anum Pierre Boulez. Helstu
söngvarar í Siegfried eru þau Man-
fred Jung í titilhlutverkinu, Donald
McIntyre sem Óðinn, Gwyneth Jon-
es sem Brynhildur og Heinz Zednik
fer með hlutverk Mímis.
Sigurður Fáfnisbani tekur tæpa
fjóra tíma í flutningi. Sýningunni
verður varpað á veggtjald og er hún
með enskum skjátexta. Aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
Sigurður
Fáfnisbani
sýndur