Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 35 ✝ Eva Karlsdóttirfæddist á Efri- Þverá í Vestur-Húna- vatnssýslu 31. októ- ber 1913. Hún lést á Heilbrigðisstofnun- inni á Blönduósi 8. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Sigurð- ardóttir húsmóðir, f. 14. apríl 1893, d. 17. febrúar 1973, og Sig- urður Karl Friðriks- son brúarsmiður, f. 1. apríl 1891, d. 28. mars 1970. Systkini Evu eru Sigurður, f. 1915, d. 1994, Ingunn, f. 1916, d. 2003, Friðrik, f. 1918, d. 1989, Kristín, f. 1920, Baldur, f. 1923, og Ólafur, f. 1927. Eva átti tvo hálfbræður, Sigurð Svein og Jón Vídalín. Eva giftist 6. janúar 1945 Þóri Ó. Magnússyni, f. í Brekku í Sveinsstaðahreppi 1923. Foreldr- ar hans voru Sigrún Sigurðardótt- ir húsmóðir, f. 1895, d. 1981, og Magnús B. Jónsson bóndi í Brekku, f. 1887, d. 1962. Eva á þrjár dætur, þær eru: 1) Guðrún Sigurjónsdóttir, f. 1937, gift Grími Oddmundssyni, f. 1930, d. 2002. Börn þeirra eru Axel, f. 1959, Sveinn, f. 1962, og Elín Eva, f. 1964. Dætur Evu og Þóris eru: 2) Sigrún, f. 1945, gift Gunnlaugi Björnssyni, f. 1937. Börn þeirra eru: a) Eva, f. 1969, gift Sverri Berg, f. 1969, börn þeirra eru Gunnlaugur, f. 1995, og Heiðrún, f. 1999, b) Sigurður Björn, f. 1976, sambýliskona Hrefna Samúelsdótt- ir, f. 1976, sonur þeirra er Ingvar Óli, f. 2002, og c) Þórir Óli, f. 1980. 3) Þór- katla, f. 1952, giftist Gylfa Pálmasyni, f. 1946, þau skildu. Dætur þeirra eru a) Ingibjörg, f. 1971, gift Hannesi Þór Jónssyni, f. 1966, dóttir þeirra er Sól- ey Þóra, f. 2002, og b) Þórey Ólöf, f. 1976. Þórkatla var í sambúð með Gauta Kristmannssyni, f. 1960, þau slitu samvistum. Eva var í barnaskóla á Hvamms- tanga. Veturinn 1933–34 stundaði hún nám við Kvennaskólann á Blönduósi. Eva réð sig í kaupa- vinnu og vistir í upphafi starfsævi sinnar, einnig vann hún á vefstofu í Reykjavík. Þau hjónin hófu bú- skap stuttu eftir að þau giftu sig á hluta jarðarinnar Brekku en stofnuðu nýbýlið Syðri-Brekku um 1960. Ævistarf hennar var í sveit þar sem hún var húsmóðir og vann jöfnum höndum að heimilis- haldi og bústörfum. Eva tók virk- an þátt í starfi Kvenfélags Sveins- staðahrepps um áratuga skeið. Útför Evu verður gerð frá Þing- eyrakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku amma mín. Það er margs að minnast og þakka þér fyrir. Frá því að ég man eftir mér hefur verið hluti af tilveru minni að koma í Syðri- Brekku og heimsækja ykkur afa. Margir hafa notið gestrisni ykkar afa og ekki síst við í fjölskyldunni. Þú lagðir upp úr því að bjóða okkur upp á það sem þú vissir að okkur þætti gott eins og brúnköku með piparmyntu- kremi og hin seinni ár áttir þú gjarn- an jarðarber handa börnunum mín- um. Þér var ýmislegt til lista lagt og þú hafðir gaman af mörgu. Það lék allt í höndunum á þér. Það kom vel í ljós þegar þú fórst að gefa þér meiri tíma til að vinna við ýmiss konar handa- vinnu hin síðari ár. Allar fallegu myndirnar, dúkarnir og fleira sem þú gerðir og gafst mér og fleirum í fjöl- skyldunni prýða nú heimili okkar og gefa þeim svip. Þú hafðir gaman af steinum og áttir fallegt steinasafn. Gunnlaugur hafði gaman af því að skoða steinana með þér og fannst mikið til þeirra koma. Einnig hafðir þú gaman af því að ferðast og sjá þig um. Það var gaman að fara í þessar ferðir með þér því þú vissir margt um landið og sögu þess. Ég minnist þín sem góðrar, mik- ilhæfrar, kjarkmikillar, duglegrar og glaðlegrar konu. Það var gott að tala við þig. Þú sagðir hvað þér bjó í brjósti umbúðalaust, fórst beint að kjarnanum og náðir því samt að gera það svo hlýlega og fallega. Eins og þegar við Sverrir komum saman til þín í Syðri-Brekku í fyrsta sinn þá sagðir þú við hann: „Þú verður góður við hana Evu mína.“ Mér fannst mikið til þess koma. Ég vissi að ég gæti treyst á þig. Þú værir til staðar til að gefa mér heilræði og standa með mér. Ég mun lengi minnast skoðana þinna. Ég, Sverrir, Heiðrún og Gunnlaug- ur munum aldrei gleyma þér og góð- mennsku þinni. Þú hefur í gegnum ár- in haft áhrif á okkur og látið okkur finna að þú vildir veg okkar sem mest- an. Slíkt er ómetanlegt. Þú sýndir áhuga því sem við vorum að gera, vildir að okkur liði vel og vegnaði vel í lífinu. Það kom fram á margvíslegan hátt bæði í orðum og þínum góðu gjöf- um. Við söknum þín og sendum okkar bestu kveðjur til þín þar sem þú ert núna. Ég þakka þér fyrir að hafa ver- ið mér góð amma og börnunum mín- um góð langamma. Guð geymi þig. Þín Eva. Elsku amma mín. Nú ertu farin til Guðs þar sem margir hafa verið til að taka á móti þér. Ég trúi því nú samt að þú hafir enn vakandi auga með okkur hinum eins og ávallt áður. Þú hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu og hjá ykkur afa átti ég mitt annað heimili. Þú kenndir mér svo margt og hjá þér fann ég til öryggis. Þú sýndir mér ætíð ástúð og þolin- mæði sem gaf mér styrk. Ég mun ávallt minnast þín þegar ég sit með Sóleyju Þóru í fanginu og rugga henni og syng fyrir hana eins og þú gerðir svo oft þegar ég var lítil. Það voru yndislegar stundir. Elsku amma mín, ég þakka þér af öllu hjarta fyrir allt sem þú varst mér og gerðir fyrir mig. Ég mun ætíð elska þig og varðveita minningu þína. Þín, Ingibjörg. Þá er hún amma dáin. Enginn er ei- lífur og við eigum víst öll fyrir hönd- um að fara þessa sömu leið. Sú stað- reynd breytir þó í engu þeim tilfinningum sem nú bærast í brjósti. Fyrst og fremst er ég þó ósegjanlega þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista við hana ömmu eins lengi og raunin varð. Ég er svo lánsöm að eiga margar minningar um hana ömmu mína. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór að dvelja í lengri eða skemmri tíma hjá þeim ömmu og afa í Syðri- Brekku. Það voru því ófá kvöldin sem amma söng og sagði þessu stelpu- skotti sögur fyrir svefninn. Ekki voru þau síður mörg skiptin sem ég kallaði á hana ömmu í kaffi þegar ég var búin að malla dýrindis kökur, skreyttar með fíflum og öðrum fínum blómum. Kaffiboðin gátu orðið mörg á dag og ég sjaldnast tilbúin að taka því að hún gæti ekki þegið kaffisopann þá stund- ina. Ég held að það sé óhætt að segja að amma hafi verið mikið náttúrubarn. Hún hafði mjög gaman af að ferðast um landið og skoða íslenska náttúru. Sumt af henni tók hún með sér heim en amma safnaði steinum og mundi hún ótrúlega vel hvaðan hver steinn var og hver hefði fært henni hann ef hún hafði ekki teygt sig eftir honum sjálf. Blómin vöktu ekki síður óskipta athygli ömmu og var engu líkara en það vekti hjá henni gleði ef hún kom auga á lítið blóm sem hafði tekist að brjótast upp á milli steina á melnum. Amma vildi mér og öllum sínum alltaf það besta. Hún var blíð og eft- irlátssöm en þó föst fyrir án þess að vera skömmótt. Amma stóð vörð um velferð sinna og beitti sér hart í þeim efnum ef því var að skipta enda kraft- mikil kona. Hún taldi hvorki eftir sér vökustundir eða handtök svo öðrum liði vel. Það var ekki ömmu háttur að deyja ráðalaus og kom ég aldrei að tómum kofunum hjá henni í þeim efnum hvort sem úrræði hennar voru mér ljós þá stundina eða ekki. Það var mikil sorg einn réttardaginn þegar ég var lasin og þurfti að sitja heima. Til að létta lund mína gróf amma upp gamla dúkku með svörtum leirhaus og endurnýjaði búkinn sem var orð- inn ansi lúinn. Næstu daga saumuð- um við föt og önnur fínheit fyrir Kollu-Brúnu sem í dag situr virðuleg í sínu sæti. Hin síðari ár nýttum við amma okk- ur óspart símatæknina og spjölluðum við þá um heima og geima. Amma hafði skýrar skoðanir og fylgdist vel með því sem var að gerast hvort held- ur sem það var í þjóðfélaginu eða inn- an fjölskyldunnar. Amma hafði gam- an af mannlífinu í sínum víðasta skilningi og átti hún auðvelt með að skilja margbreytileika þess og lét sig líf fólks varða. Ég undraðist oft hvað hún var vel með á öllu mínu umhverfi. Það var sama hvort það var skólinn, vinnan, vinirnir eða hvað annað sem ég var að fást við, hún var með þetta allt á hreinu. Það verður skrýtið að geta ekki slegið á þráðinn til heyra hljóðið í ömmu og spjalla um daginn og veginn. Ég er þess hins vegar full- viss að hún mun halda áfram að fylgj- ast vel með sínum eins og hún hefur alltaf gert. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Þórey. Mig langar að minnast ömmu minnar með nokkrum orðum. Hún var góð húsmóðir og sinnti sínu heim- ili mjög vel. Hún hafði mikinn áhuga á búskap, vann við hann fram eftir öll- um aldri og eftir að hún hætti að geta unnið úti þá fylgdist hún vel með því sem var verið að starfa. Amma mín hafði ýmis áhugamál. Henni fannst mjög gaman að ferðast og skoða náttúru landsins og stund- um var farið í fjölskylduferðalög. Hún safnaði steinum og mundi ótrúlega mikið hvaðan steinarnir hennar voru. Hún hafði mjög gaman af blómum, þekkti mörg blóm úti í náttúrunni og hafði blóm í kringum sig bæði í garð- inum og inni. Handavinna var henni mjög hugleikin og liggja ófá handverk eftir hana. Hún vildi hafa bjart í kringum sig og fannst skipta máli að lýsa upp svartasta skammdegið. Amma fylgdist vel með og vissi hvað um var að vera í þjóðfélaginu og um- heiminum og hafði líka gaman af að horfa á alls konar sjónvarpsefni allt frá spennumyndum til náttúrulífs- mynda. Ég minnist ömmu sem mjög góðrar konu sem gaf svo mikið af sér á allan hátt. Hún bar umhyggju fyrir því að ég væri hlýlega klæddur og þær voru ófáar fallegu peysurnar sem hún gaf mér og leistarnir en hún kallaði ull- arsokkana alltaf leista. Ég man alltaf hvað var gaman að koma í Syðri-Brekku þegar ég var yngri og fá brúnköku sem amma gerði á sinn einstaka hátt. Elsku amma mín. Þegar Ingvar Óli fæddist varst þú iðin við að spyrja um hvernig honum liði og hvernig hann braggaðist og þótti mér mjög vænt um það. Þegar þú hélst upp á níræð- isafmælið þitt síðastliðið haust komu þið afi ásamt fleirum í Nípukot og var þá glatt á hjalla og ég man að þú tal- aðir um hvað væri gaman. Minningin þín mun ætíð ylja mér um hjartarætur. Sigurður Björn. Amma mín. Það er margs að minn- ast þegar ég hugsa um þig. Ég man eftir því þegar ég var lítill, þá varst þú stundum að passa mig. Stundum spil- aðir þú við mig og það þótti mér mjög gaman og oft baðst þú mig að spila á hljóðfæri fyrir þig. Þú sagðir mér líka sögur af því þegar þú varst að alast upp á Hvammstanga. Þú hafðir alltaf áhuga á því sem ég var að hafa fyrir stafni alveg frá því að ég var lítill. Þó að ég væri orðinn full- orðinn hafðir þú áfram áhuga á því sem ég var að vinna og einnig áhuga- málum mínum. Það var gaman að koma í heimsókn til þín. Þú varst allt- af svo hress og jákvæð og talaðir mik- ið við mig. Þú vannst mikið í höndunum og það er gaman að eiga fallega hluti eftir þig. Þér fannst skemmtilegt að ferðast, bæði fara í lengri ferðir og einnig að fara í sunnudagsbílferðir um sýsluna. Oft tókst þú skemmtileg- ar myndir á ferðalögunum. Þú hafðir mikið af myndum í kringum þig og áttir mörg albúm full af ljósmyndum, bæði landslagsmyndum og myndum af fjölskyldunni. Þú hafðir gaman af að lesa og horfa á sjónvarp Þú fylgdist vel með þjóðmálunum og hafðir þínar skoðanir á þeim. Þú hafðir mikinn áhuga á landbúnaðarmálunum og vildir að byggð héldist í sveitunum. Þú varst ákveðin og settir þitt álit hik- laust fram. Umhyggjusemi þín birtist á marg- an hátt. Þú áminntir mig um að búa mig vel þegar ég var úti að vinna og þegar ég var hjá ykkur afa þá var allt- af góður matur og hlaðborð í kaffinu. Það var gaman þegar þú varðst níutíu ára 31. október síðastliðið haust, þú varst svo hress og talaðir heilmikið við fólkið. Þann dag fórst þú til Hvammstanga og skoðaðir æsku- stöðvarnar þínar sem þér þótti alltaf vænt um. Ég ætla að enda þessar línur á tveimur erindum úr sálmi þar sem verið er að tala um vonina. Mitt á hryggðar dimmum degi dýrðlegt oss hún kveikir ljós, mitt í neyð á vorum vegi vaxa lætur gleðirós. Þá er jarðnesk bresta böndin, blítt við hjörtu sorgum þjáð vonin segir: Heilög höndin hnýtir aftur slitinn þráð. (Helgi Hálfdánarson.) Elsku amma mín. Ég þakka fyrir allar góðu minningarnar og er viss um að þú ert að fylgjast með okkur núna. Þórir Óli. Elsku langamma. Á hverju ári hef ég komið nokkrum sinnum í Syðri- Brekku og hitt ykkur langafa. Þið gáfuð okkur alltaf eitthvað gott að borða. Þú vissir hvað mér þykja jarð- arber góð og gafst mér oft jarðarber þegar ég kom í heimsókn. Mamma bað mig að hætta þegar ég var búin með smá en þú leyfðir mér að klára öll jarðaberin. Ég hafði gaman af því að skoða steinana þína með þér. Þú áttir mikið úrval af steinum. Þú gafst mér nokkra sem þú áttir. Þú fékkst í fyrra bók með myndum af steinum í, við skoð- uðum hana saman og það voru margir flottir steinar í henni. Ég minnist þín og alls sem þú gerð- ir með mér. Það hefur alltaf verið gaman að koma í Syðri-Brekku. Þinn Gunnlaugur. Kæra Eva. Það hefur verið gaman að koma í heimsókn á Syðri-Brekku. Alltaf var eitthvað til að gefa okkur þegar við komum; kaffi og kökur og fleira gott og við fundum hlýjuna í hvert skipti sem við komum til ykkar Þóris. Þú varst alltaf mjög ánægð að sjá okkur og varst svo málhress og minnug mið- að við háan aldur. Á milli þess sem við komum til þín töluðum við stundum saman í síma. Þá spurðir þú okkur hvort það væri ekki allt gott að frétta hjá okkur og ég veit að þér var um- hugað um að okkur liði sem best og gerðir þitt besta til að okkur vanhag- aði ekki um neitt. Þú varst alltaf svo góð og blíð og al- veg óþreytandi að gefa ömmubörnun- um þínum og langömmubörnunum gafir og þegar ég kom í fjölskylduna naut ég góðs af því líka. Þú gafst mér alveg ótrúlega margt á þessum örfáu árum sem ég þekkti þig, en ekki varstu mikið fyrir að eyða í sjálfa þig. Þú hafðir hjartað á réttum stað og ég er virkilega þakklát fyrir þessi ár sem ég þekkti þig. Nú er ævin þín öll, elsku Eva mín og þín verður sárt saknað, en ég veit að nú líður þér vel og nú horfir þú niður til okkar og fylgist með okkur öllum. Ég sendi öllum nánustu aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur. Hrefna Samúelsdóttir. Frænka mín, hún Eva í Syðri- Brekku, er látin 90 ára að aldri. Þegar ég hitti hana síðast við útför systur hennar, Ingu, sagði ég einmitt við hana hvað hún væri ótrúlega hress miðað við aldur og fyrri störf. Hún brosti sínu blíðasta og sagði lítið, en ég sá það á henni að hún var orðin þreytt. Ég var svo heppinn sem lítill drengur, 10 ára gamall, að fá að fara í sveitina í Brekku til Evu og Þóris með ömmu minni Guðrúnu. Það þótti þá sjálfsagt að senda börn í sveit og og fá að kynnast vinnunni í sveitinni. Ég fór svo einn í nokkur ár. Sá tími með Evu og Þóri verður mér alltaf ógleyman- legur og lærdómsríkur. Ég man þegar ég kom í fyrsta skipti einn í sveitina árið 1957 frá Reykjavík með Reno-rútunni frá Norðurleiðum. Eva tók á móti mér með sínu blíða fasi, en strax um kvöld- ið saknaði ég mömmu og pabba. Eftir kvöldmatinn gekk ég út á hlað og stóð við snúrustaurana og gat ekki haldið niðri í mér grátinum. Þá kom Eva og tók utan um mig og huggaði litla strákinn, sem fann fyrir hlýju og um- hyggju hjá þessari góðu konu. Eftir þetta fann ég að ég var í öruggum höndum í Brekku. Magnús tengdafaðir Evu var bónd- inn í Brekku og leyfði hann Þóri syni sínum að hefja búskap þar með Evu. Fljótlega ákváðu Eva og Þórir að byggja upp sitt eigið býli. Það var ógleymanlegur og skemmtilegur tími og Eva sá um að elda ofan í alla þá sem komu nálægt þeirri byggingu, það var sko ekki slegið af þar sem að Eva kom nálægt. Dætur hennar hjálpuðu henni mikið og reyndu að létta henni verkin. Eva var sérstaklega dugleg og ósérhlífin. Hún vann myrkranna á milli og hafði mikið dálæti á kúnum sínum. Þegar hún og Þórir fluttu að Syðri-Brekku gátu þau ekki tekið fjósið með sér og því þurfti Eva að labba á milli bæjanna í hvaða veðri sem var. Á veturna í verstu veðrunum strengdi hún band á milli til að verða ekki úti. Það væri hægt að segja svo margt um þessa góðu konu, að ég gæti skrif- að heila bók um dvöl mína með henni og samferðafólki hennar í Brekku og Syðri-Brekku. Ég vil þakka Evu fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og hennar fjölskyldu innilega fyrir ástúð og umhyggju í minn garð, guð veri með ykkur öllum á þessum erfiðu tímamótum. Magnús Ólafsson. Að kvöldi hins 8. febrúar sl. lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi Eva Karlsdóttir húsfreyja í Syðri- Brekku. Ævidagur hennar var orðinn langur, hún var fædd 1913, og það var starfsferillinn einnig, því að ekki lét hún deigan síga allt fram á síðustu vikur lífs síns. Þau hjónin, Þórir Magnússon frá Brekku og Eva, stofnuðu nýbýlið Syðri-Brekku árið 1958 en höfðu áður búið á hluta af Brekku um þrettán ára skeið. Ekki var setið auðum höndum. Fyrir utan heimilisstörf og búsum- stang sem hún tók mjög virkan þátt í fann hún tíma til að sinna hugðarefn- um sínum er lutu að handavinnu. Á sínum yngri árum stundaði hún vefn- að sem hlaut einróma lof fyrir vönduð og smekkleg vinnubrögð. Á efri árum snéri hún sér meira að málun mynda og pennasaumi, sem bera listhneigð hennar og vandvirkni fagurt vitni. Hún sóttist ekki eftir umbun eða vegtyllum fyrir sig hún Eva en um- hyggja hennar fyrir afkomendunum og þeirra velfarnaði var óblandin. Þeir sem nutu hennar umsjár á ein- hvern hátt, skyldir sem vandalausir, fundu glöggt að þar var aldrei hönd- um til kastað að þeim mætti líða sem best eftir því sem í hennar valdi stóð. Ekki má heldur gleyma dýrunum, sem jafnt voru vinir hennar sem hún var vinur þeirra. Við hjónin viljum að endingu þakka henni langt og gott nágrenni og sér- staklega hve hún var krökkunum okkar jafnan hlý og góð. Aðstandend- um vottum við samúð okkar. Haukur Magnússon. EVA KARLSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.