Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 26
LISTIR 26 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vesturport frumsýnir í kvöldí gamla vélasalnum í Vest-mannaeyjum leikritiðBrim eftir Jón Atla Jón- asson. Þetta er annað verk Jóns Atla sem frumsýnt er í vikunni, en á mið- vikudag var fyrsta leikrit hans, Draugalest, frumsýnt í Borgarleik- húsinu. Brim gerist um borð í línuskipi, sem velkist um á landgrunni Íslands og er komið til fyrirheitna landsins á Bankanum í lok verks. Verkið segir frá fimm manna áhöfn skipsins og samfélagi þeirra um borð. Þegar stelpa kemur til liðs við áhöfnina breytist ýmislegt; – valdajafnvægi riðlast og sýn sjómannanna hvers á annan. Gleði, depurð og draumar áhafnarinnar renna saman við brælu hafsins og rótleysi tilverunnar í ljúf- sárum, mannlegum gleðileik. Þetta er íslenskt raunsæisverk, að sögn höfundarins Jóns Atla Jónassonar. „Atburðirnir sem eiga sér stað í verkinu byggjast allir á sannsögu- legum atburðum héðan og þaðan, – bæði af minni upplifun og annarra. Þetta eru allt atburðir sem hafa gerst í einni eða annarri mynd; – ekkert endilega á sama bátnum eða á sama tíma. Þetta er atlaga að sjó- mannakúlturnum, – ég er að reyna að gera honum skil. Mér finnst það hafa tekist misvel gegnum tíðina í ís- lensku leikhúsi. Mér fannst ég mæta svolitlum fordómum þegar ég stakk upp á þessari hugmynd, – sumum fannst hún alveg fráleit.“ Ólafur Egill Egilsson leikur einn skipverja, Kidda. „Afi minn var lengi til sjós og kallaður sjófuglinn. Þegar ég sagði honum að við værum að setja upp leikrit um sjómenn rumdi hann pent og sagði: „Jæja, og hvern- ig ætlið þið að gera það?“ … það lá í orðunum að við hefðum kannski ekki mikið vit á sjómennskunni, hafandi aldrei migið í saltan sjó.“ En leikhús er leikhús, – og leikari þarf ekki að hafa drepið mann til að geta leikið morðingja, – og heldur ekki að hafa verið sjómaður til að leika sjómann. „Við höfum í það minnsta haft mjög gaman af því að vinna þetta,“ segir Ólafur Egill, „… og ekki sakar að hafa haft höf- undinn svona innan seilingar.“ Leikmyndin er nánast persóna út af fyrir sig, að sögn Ólafs Egils, og víst er hún flott; alvöru káeta með eldhúskróki og kojum, og – alvöru veltingi. „Vélin er að gefa sig, – það er að fara stimpill, – dynkir, bank og suð.“ Umgjörð verksins og leikmynd er unnin út frá grunnhugmyndinni um þá yfirþyrmandi nálægð sem persónur verksins búa við, hver við aðra, þau andlegu og efnislegu þrengsli sem ríkja um borð í hinu ónefnda línuskipi sem veltur um lífs- ins ólgusjó. Vettvangur leiksins er þröngt stálbúr, messi og káeta neð- anþilja. Gólfið hangir í vírum, ótengt jörðinni og riðar því til og frá við minnstu hreyfingu skipverja, allt er á ferð og flugi. Allir sitja við sama borð Jón Atli segir að hugmyndin að samvinnunni um uppsetninguna hafi orðið til eftir skemmtileg skoð- anaskipti. „Við sátum nokkur ansi lengi við borð, og töluðum saman. Við kölluðum ýmsa til liðs við okkur, leikhópinn, leikstjóra og aðra, og við vorum dálítið leitandi og ræddum málin á hástemmdum nótum um til- ganginn með vinnunni og listinni, út á hvað það gengi. Upp úr þeim sam- ræðum ákváðum við að kýla á þetta leikrit í sameiningu. Í vinnunni hérna finnst mér allir sitja við sama borð. Það er ánægjulegt við þessa vinnu. Hér leggja allir sitt af mörkum.“ Brim verður sýnt á þremur stöð- um á landsbyggðinni, nú í Vest- mannaeyjum, en svo bæði í Stykk- ishólmi og á Ísafirði. Ólafur Egill segir að þegar hugmyndin kom upp að sýna verkið úti á landi hafi þeim þótt hún ríma fullkomlega við inni- hald verksins, og stemmninguna í hópnum. „Svo er líka skemmtilegt að fara út á land. Þar eru allir af vilja gerðir að hjálpa okkur að koma þessu upp.“ „Við skynjum líka svolít- ið stress í þessari viku, vegna þess að í Vestmannaeyjum mætum við fólki sem gjörþekkir þetta líf,“ bætir Jón Atli við. „Þannig að nú þarf viðfangs- efnið að einhverju leyti að horfa á sig sjálft, sem er alltaf svolítið spenn- andi. Við rennum blint í sjóinn, en þetta verður gaman.“ Jón Atli Jónasson hefur áður skrif- að tvö verk sem frumflutt verða á yf- irstandandi leikári. Rambó 7 fyrir leiksmiðju Þjóðleikhússins og Draugalest fyrir nýja svið Borg- arleikhússins. Rambó 7 var nýlega valið eitt af tíu nýjum evrópskum leikverkum sem flutt verða í öllum helstu höfuðborgum Evrópu á þessu ári. Auk þessa hefur Jón Atli und- anfarið misseri unnið að leikverki fyrir Royal Court-leikhúsið í London sem getið hefur sér orð sem helsti suðupottur nýsköpunnar leiklistar í Evrópu. Jón Atli hefur einnig sent frá sér smásagnasafnið Brotinn takt. Vesturport – Leikhús var stofnað árið 2001 og er félagsskapur fagfólks úr öllum listgreinum sem vinnur saman að ögrandi leiklist af öllu tagi. Uppsetningar Vesturports eru orðn- ar fimm talsins: Diskópakk, Titus, Herra maður, Lykill um hálsinn og fimleikhúsverkið Rómeó og Júlía sem vann til tvennra Grímuverð- launa og tekið var til sýningar í hinu virta Young Vic-leikhúsi í London við mikla hylli gagnrýnenda og áhorf- enda. Brim verður sem fyrr segir frum- sýnt í gamla vélasalnum í Vest- mannaeyjum í kvöld, en um næstu helgi verður það sýnt í félagsheim- ilinu Hnífsdal. Miðasölusími er 685 4755. Þetta er atlaga að sjómanna- kúltúrnum Atburðirnir sem eiga sér stað í verkinu byggjast allir á sannsögulegum atburðum, héðan og þaðan. Vélstjórinn um borð spilar á nikku: Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki sínu. eftir Jón Atla Jónasson Leikstjóri: Hafliði Arngrímsson Aðstoðarleikstjóri: Ólafur Darri Ólafsson Framkvæmdastjóri: Rakel Garðarsdóttir Hljóð, ljós og leikmynd: Björn Kristjánsson, Börkur Jónsson, Hlynur Kristjánsson og Sigurjón Brink. Leikendur: Jónas: Björn Hlynur Haraldsson Benni kokkur: Gísli Örn Garðarsson Vélstjórinn: Ingvar E. Sigurðsson Stelpan: Nína Dögg Filippusdóttir Kiddi: Ólafur Egill Egilsson Jóngeir: Víkingur Kristjánsson Brim Þ etta eru myndir sem ég tók á götum Lundúnaborgar, þar sem ég bý. Ég saknaði náttúrunnar frá Íslandi, fór að leita að henni í Lundúnum – og fann hana,“ segir Hrafnkell Sigurðsson listamaður sem í kvöld, föstudag, opnar sýningu á nýjum verkum sínum í Safni, Laugavegi 37. Á sýningunni sýnir Hrafnkell nýjar ljós- myndir úr seríu sem hvergi hefur verið sýnd opinberlega. Hann hefur áður unnið seríur með bráðnandi snjósköflum, mis- litum tjöldum á snævilagðri sléttu og hús- um í byggingu. Allt eru það verk sem eiga rætur að rekja í íslenskan veruleika en að þessu sinni kveður við nýjan tón og efnivið- urinn er sóttur í götur stórborgarinnar. Um er að ræða stórar myndir sem sýna hvers- dagslega hluti – sem þó eru Íslendingum framandi – á litríkan og áhrifaríkan hátt. Að auki mun Hrafnkell sýna tvö eldri verk, skúlptúr og myndband – en myndbandinu verður varpað á nærliggjandi hús í tilefni Vetrarhátíðar. Möguleikarnir í umhverfinu Skemmst er að minnast þess að Hrafn- kell flutti gjörning, „Málarann“, við góðar undirtektir í gluggum Safns rétt fyrir síð- ustu jól. En Lundúnaborg og náttúra – eru ein- hver tengsl þarna á milli? „Ég náði tengslum við eitthvað nýtt,“ segir Hrafnkell. „Það opnaðist gátt inn í heim sem er heillandi og í beinu og rök- réttu framhaldi af því sem ég var að gera hér heima. Kannski fór ég sjálfur að opna meira fyrir möguleikana í umhverfinu mitt í London vegna þess að mér fannst dálítið skrýtið að búa þar en vera alltaf með Ísland – hér – á heilanum. Samt er það í sjálfu sér ekkert skrýtið. Ég er dálítið að fjalla um þennan dúalisma á sýningunni. Upphaflega var það vegna þess hvað það er mikil klisja, þetta með Íslendinginn með heimþrána í út- löndum. Hrafnkell hefur búið í Lundúnum í ellefu ár og þegar hann er spurður hvar hann kallar „heim“, segir hann: „Núna finnst mér ég eiga heima í Lund- únum, þótt ég kalli Ísland „heim“. En ég kalla Lundúnir líka „heim“. Eru nokkuð til reglur um það hversu margir staðir geta verið „heim“? Það er dálítið spennandi að velta því fyrir sér hvað við meinum með því að „fara heim“. Er það hús? Er það land? Er það ást? Er það andlegur þroski? Er það staður sem maður fer á?“ Það er of hörð birta hér „Um leið og ég hef verið að vinna með ís- lenskt umhverfi – og kalla það það heim, á ég samt heima annars staðar. Þá er þráð- urinn einhvers konar leið, eða flótti frá blá- köldum veruleikanum. Ísland er of raun- verulegt. Þessi kalda, harða birta. Það er kannski hún sem ég er að flýja. Það er of hörð birta hér. En kannski er ég einmitt að leita að henni í verkunum. Ég veit að þetta er mótsagnakennt – en verkin fjalla alltaf um þá þörf að komast nær einhverjum sannleika, einhverju raun- verulegu. Maður er að flýja en leitar aftur til baka – kannski til þess að skilja þennan veruleika, til þess að læra og þroskast. Er það ekki tilgangur lífsins?“ Sýning Hrafnkels verður opnuð klukkan 20 en á morgun, laugardag, opnar hann síð- an aðra sýningu í Nýlistasafninu ásamt fleiri listamönnum og verður forvitnilegt að skoða þessar tvær sýningar í samhengi til þess að öðlast frekari innsýn í verk lista- mannsins. Ísland er of raunverulegt Listamaðurinn Hrafnkell Sigurðsson opnar sýningu á nýrri ljósmyndaseríu í Safni í kvöld. Súsanna Svavars- dóttir ræddi við hann um viðfangsefni sýningarinnar flóttann, heimþrána og leit- ina að sannleiksgildinu . Morgunblaðið/Golli Myndlistarmaðurinn Hrafnkell Sigurðsson opnar sýningu í Safni, Laugavegi 37, í kvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.