Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ROKKHLJÓMSVEITIN Mínus er væntanleg til Ísafjarðar innan tíðar og verður þá með tón- leika í íþróttahúsinu á Torfnesi. Það þætti svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skipulagning tónleikanna er í höndum ungs Ísfirðings, Gunnars Atla Gunnarssonar, sem er nemandi í 10. bekk Grunnskólans á Ísafirði. Þetta eru ekki fyrstu tónleikarnir sem Gunnar Atli sér um því í febrúar á síðasta ári skipulagði hann tónleika með hljómsveitinni Írafári og í september sl. stóð hann fyrir góð- gerðartónleikum þar sem vestfirskar hljóm- sveitir tróðu upp. Þá var hann langt kominn með að skipuleggja stórtónleika í Laugardals- höll með hljómsveitinni Metallica en segir að það verkefni bíði nú betri tíma. Afskaplega ákveðinn Þegar reynt var að hafa samband við Gunn- ar Atla til að forvitnast frekar um þennan at- hafnasama unga mann varð mamma hans, Kristín Hálfdánardóttir, fyrir svörum og tjáði blaðamanni að strákurinn væri í skólanum en góðar líkur væru á hægt yrði að ná í hann í gsm-síma. Aðspurð hvað henni fyndist um at- hafnasemi sonarins hló hún við og sagði að for- eldrarnir bæru fullt traust til hans og reyndu að styðja hann eftir bestu getu. Hún yrði þó að játa að stundum hefði hún smááhyggjur ef henni þætti hann vera að færast of mikið í fang og þá væri reynt að stíga á bremsurnar enda væri hann ekki nema fimmtán ára. „Hann er afskaplega ákveðinn. Hann er líka ótrúlega kaldur því hann hringir alltaf beint í toppana en talar aldrei við neinar undirtyllur,“ sagði hún og bætti við að hann skipulegði allt út í hörgul, nema þá helst herbergið sitt. Sér um alla skipulagningu Eins og mamman hafði gefið í skyn náðist í Gunnar Atla í hádegishléinu í skólanum og með glymjandi köll og hróp skólafélaganna á bak við sig var hann spurður frekar um þá tón- leika sem hann hefur staðið fyrir og ástæðu þess að hann lagði út á þessa braut upp- haflega. „Þetta byrjaði eiginlega fyrir rúmu ári þegar Guðjón Þorsteinsson hjá Körfu- knattleiksfélagi Ísafjarðar talaði við mig og bað mig að skipuleggja eitthvað sérstakt til fjáröflunar fyrir KFÍ. Þegar ég var búinn að hugsa málið aðeins ákvað ég að hafa samband við hljómsveitina Írafár og athuga hvort þau væru ekki til í að koma vestur og halda tón- leika hérna. Þau tóku því vel og voru tónleik- arnir haldnir í íþróttahúsinu á Ísafirði og heppnuðust mjög vel en hátt á fimmta hundr- að manns mættu. Ég sá um alla skipulagningu nema hvað KFÍ sá um fjármálin enda er ég ekki fjárráða. Svo sá ég líka um aðra tónleika síðastliðið haust fyrir 10. bekk sem voru haldn- ir í félagsmiðstöðinni og þar komu fram sex vestfirskar hljómsveitir. Framkvæmd þeirra tónleika var alfarið í mínum höndum, líka fjár- málin, en ágóðinn rann í ferðasjóð 10. bekkjar og sömuleiðis til Krabbameinsfélagsins Sig- urvonar.“ Eru oft smáskrýtnir til að byrja með Mínus er ein af skærustu stjörnum íslensks tónlistarlífs um þessir mundir og fyrir for- göngu Gunnars Atla er hljómsveitin nú á leið- inni vestur á Ísafjörð. „Ég ætlaði að fá þá til að koma og spila á balli en þeir spila eingöngu á tónleikum þannig að úr varð að ég bað þá að halda tónleika hér í íþróttahúsinu á Ísafirði. Það er talsverð skipulagning í kringum þetta og ég byrjaði á því að gera fjárhagsáætlun til að vinna út frá. Síðan þarf að auglýsa og ráða fólk til að vinna á tónleikunum, t.d. við að und- irbúa húsnæðið, miðasölu, dyragæslu o.fl. Guðjón Þorsteinsson hefur aðstoðað mig í þessu og er líka ábyrgðarmaður tónleikanna þar sem ég er ekki fjárráða.Tónleikarnir verða miðvikudaginn 25. febrúar og þarna verður að sjálfsögðu um að ræða vímulausa skemmtun sem er opin öllum,“ segir Gunnar Atli og hvet- ur fólk til að mæta. En hvernig er fyrir fimm- tán ára strák að standa í samningaviðræðum við þessar hljómsveitir, er hann tekinn alvar- lega? „Þeir sem ég tala við verða yfirleitt dálít- ið hissa en ég byrja alltaf á því að kynna mig og segja hvað ég er gamall. Þeir eru oft smá- skrýtnir til að byrja með en yfirleitt jákvæðir gagnvart erindinu og enginn hefur skellt á mig ennþá,“ segir hann sposkur. Metallica var tilbúin að koma Eitthvað hefur líka heyrst af því að Gunnar Atli hafi ekki ætlað að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur því hann hafi verið að skipuleggja stórtónleika með hljómsveitinni Metallica í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Hann segir það rétt vera en það dæmi hafi ekki gengið upp af ýmsum ástæðum. „Ég var búinn að hafa samband við Metallica og þeir voru alveg til í að koma þannig að það var ekki málið. Ég var líka búinn að gera fjárhags- áætlun og leggja drög að því að fá húsnæði undir tónleikana. Þetta er hins vegar rosalega stór framkvæmd og öll þessi vinna hefði verið á sama tíma og samræmdu prófin þannig að ég treysti mér ekki til að fara út í þetta núna. Ég geri það bara seinna og verð þá væntanlega með meiri reynslu að baki.“ Langar til að starfa við fjölmiðlun Gunnar Atli er með ýmislegt fleira á prjón- unum. Þegar Mínus-tónleikarnir verða að baki hefst af fullum krafti vinna við skipulagningu brettamóts en hann er nú þegar búinn að fá Sprite til að styrkja mótið sem haldið verður á Skíðaviku Ísfirðinga. Þá er Gunnar Atli um- boðsmaður fyrir hljómsveitina Appollo sem spilar á skólaböllum og skemmst er að minnast þess að hann átti sæti í þriggja manna liði sem komst í úrslit í spurningakeppni grunnskól- anna síðasta haust. Auk þess æfir hann körfu- bolta með KFÍ í drengjaflokki og er óhætt að segja að körfuboltinn sé eitt af stórum áhuga- málum Gunnars Atla því jafnframt því að æfa íþróttina hefur hann til nokkurra ára verið fréttaritari heimasíðu KFÍ, sem er að sögn kunnugra einn besti íslenski körfuboltavef- urinn á Netinu. Hann skrifar sömuleiðis um alla heimaleiki liðsins fyrir Morgunblaðið og hefur verið fréttaritari fyrir heimasíðu Skíða- vikunnar á Ísafirði. Gunnar Atli segir tals- verða vinnu fara í að uppfæra heimasíðu KFÍ. „Síðan ég byrjaði að skrifa fyrir KFÍ hef ég tekið viðtöl við alla í meistaraflokki liðsins, stjórnarmenn og marga fleiri. Þetta tekur mikinn tíma en ég hef gaman af þessu og finnst líka fínt að geta þannig lagt mitt af mörkum fyrir KFÍ. Ég lít líka á þetta sem góða reynslu því í framtíðinni langar mig til að starfa við fjölmiðlun einhvers konar, helst sem blaðamaður eða fréttamaður í sjónvarpi,“ seg- ir Gunnar Atli og stefnir á að fara í fjölmiðla- fræði þegar hann hefur klárað 10. bekkinn og lokið námi í Menntaskólanum á Ísafirði. Ómetanleg reynsla Þessi ungi athafnamaður virðist óneitanlega hafa meira en nóg að gera og því er óhjá- kvæmilegt að spyrja hvort hann hafi tíma til að sinna skólanum? Eða hvort hann slappi nokk- urn tímann af, leggist með tærnar upp í loft og horfi sjónvarp eða myndbönd? „Ég reyni að skipuleggja mig vel og hafa tíma fyrir lærdóm- inn sem ég set auðvitað fremstan í forgangs- röðinni. Ég sest líka oft niður og horfi á sjón- varpið en upphaflega fór ég út í allt þetta stúss til að hafa eitthvað að gera enda á það ekki við mig að sitja auðum höndum. Stundum er þetta vissulega mikil vinna en málið er að skipu- leggja hlutina vel, þá gengur þetta allt saman upp.“ Þegar Gunnar Atli er að lokum spurður að því hvort hann fái eitthvað greitt fyrir þá vinnu sem hann leggur á sig, t.d. í kringum tónleika, segir hann að svo sé ekki en á móti fái hann heilmikla reynslu sem hann telur ómet- anlega. Gunnar Atli Gunnarsson er athafnamaður í 10. bekk í Grunnskólanum á Ísafirði Skipuleggur ýmsa stórvið- burði þrátt fyrir ungan aldur Morgunblaðið/Guðfinna M. Hreiðarsdóttir Gunnar Atli Gunnarsson, athafnamaðurinn ungi, fyrir framan Grunnskólann á Ísafirði. Ísafjörður. Morgunblaðið. VERIÐ er að vinna að gerð landfyll- ingar við svonefndan Skarfabakka við Sundahöfn í Reykjavík. Að sögn Óskars Ásgeirssonar, verkfræðings á tæknideild Reykjavíkurhafnar, er nýlokið við að setja upp farghaug sem er til þess ætlaður að ná fram sigi með skjótum hætti. Stefnt er að því að hefja þilrekstur í júní og verður verkið boðið út í vor. Jón Gunnar Guðlaugsson, frá verkfræðistofunni Hniti, var að vinna við GPS-mælingar á Skarfa- bakka þegar myndin var tekin fyrr í vikunni. Morgunblaðið/Þorkell Þilrekstur í Sundahöfn verðurboðinn út með vorinu ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri sagði á borgarstjórnarfundi í gær að kostnaðarmat fylgdi ekki laga- frumvörpum, breytingum á lögum og reglugerðum sem sneru að hagsmunum og málefnum sveitar- félaga þrátt fyrir samkomulag um það fyrir einu og hálfu ári við fé- lagsmála- og umhverfisráðuneytið. „Þetta skiptir verulegu máli því ef við lítum bara til reglugerð- arsetningar og eingöngu til þeirra tveggja ráðuneyta, sem þegar ætl- uðu að vera búin að hefja kostn- aðarmat á sínum reglugerðum, þá hafa frá félagsmála- og umhverf- isráðuneyti komið 75 reglugerðir frá áramótum 2002-2003 og tals- verður hluti þeirra snýr að sveit- arfélögum,“ sagði Þórólfur. „Reglugerðarútgáfa ráðuneyt- anna er sífellt að aukast. Hún hef- ur vaxið um helming frá árinu 1990 og nú eru gefnar út að jafn- aði um 350 reglugerðir á ári. Sam- kvæmt upplýsingum frá dóms- málaráðuneytinu hafa verið settar tæplega 4.400 reglugerðir frá árinu 1990,“ hélt borgarstjóri áfram. „Hér verður því ekki mótmælt að um framfaramál og réttarbætur kunni að vera að ræða, en jafn- framt hlýtur sú krafa að verða skiljanlegri að með reglugerðunum fylgi trúverðugt mat á kostnaði við að framfylgja þeim. Kostnaði sem oft á tíðum fellur bótalaust á sveit- arfélögin.“ Óvanir að reikna út kostnað „Þessi ráðuneyti eru óvön því, og reyndar eru embættismenn yf- irleitt óvanir því að reikna út kostnað. Þeir hafa meiri skilning á því hvernig eigi að eyða peningum til ýmissa verkefna,“ sagði Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Það er vilji til þess að öll ráðu- neytin verði látin kostnaðarreikna reglugerðir og lög sem snúa að hagsmunamálum sveitarfélaga,“ sagði Vilhjálmur og bætti við að þessi framkvæmd væri í lögum í Danmörku. Það hefði tekið langan tíma að fá ríkið til að taka upp þessa framkvæmd hér á landi en hefði nú tekist. Um 350 reglugerðir gefnar út á ári Ráðuneyti hunsa samning um kostnaðarmat
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.