Morgunblaðið - 20.02.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Ma
llorc
a
34.142kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
41.730 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Pil Lari Playa,
10.000 kr. bókunarafsláttur og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
SUÐURLANDSVEGUR lokaðist í gærmorgun
þegar flutningabíll með tengivagni valt í brekk-
unni ofan við Litlu kaffistofuna. Að sögn lögregl-
unnar á Selfossi virðist sem vindhviða hafi feykt
tengivagninum með þeim afleiðingum að bíllinn
valt. Ökumann sakaði ekki og var Suðurlands-
vegur opnaður á ný um hádegisbil. Bíllinn og
tengivagninn voru hífðir út fyrir veg og var stefnt
að því að færa ökutækið á brott þegar lægði.
Morgunblaðið/Rax
Flutningabíll valt við Litlu kaffistofuna
HELGI Sæmundsson
ritstjóri lést á Land-
spítalanum – háskóla-
sjúkrahúsi í Fossvogi
þann 18. febrúar síð-
astliðinn, 83 ára að
aldri.
Helgi fæddist 17. júlí
1920 á Stokkseyri, son-
ur hjónanna Sæmund-
ar Benediktssonar sjó-
manns og Ástríðar
Helgadóttur húsmóð-
ur.
Helgi kvæntist árið
1943 Valnýju Bárðar-
dóttur, f. 24. október
1917, og eignuðust þau saman átta
syni.
Helgi lauk Samvinnuskólaprófi
árið 1940. Hann var ritstjóri Al-
þýðublaðsins 1952 til 1959, ritstjóri
tímaritsins Andvara 1960 til 1972 og
útgáfuráðunautur Menningarsjóðs
1960 til 1990. Helgi átti sæti í
Menntamálaráði frá 1956 til 1972 og
var um árabil formað-
ur þess. Hann átti
einnig sæti í úthlutun-
arnefnd listamanna-
launa frá 1952 til 1978
og var annar af
fulltrúum Íslands í út-
hlutunarnefnd bók-
menntaverðlauna
Norðurlandaráðs 1961
til 1972.
Helgi var jafnaðar-
maður og tók virkan
þátt í starfi Alþýðu-
flokksins, sat m.a. í
miðstjórn og flokks-
stjórn og gegndi öðr-
um trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.
Helgi gaf út sína fyrstu ljóðabók,
Sól yfir sundum, árið 1940, tvítugur
að aldri, og orti alla sína ævi. Alls
sendi hann frá sér sjö ljóðabækur.
Helgi þýddi margar bækur og skrif-
aði mikið um bókmenntir, menning-
armál og stjórnmál í blöð og tímarit
og flutti mörg útvarpserindi.
Andlát
HELGI
SÆMUNDSSON
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og
sýknað Ástþór Magnússon, forsvars-
mann Friðar 2000, af ákæru um að
senda tilhæfulausrar viðvaranir um
yfirvofandi sprengjutilræði við ís-
lenska flugfarþega.
Í dómi Hæstaréttar er vísað til
framburðar Ástþórs þess efnis að
hann hafi trúað því að íslenskum
flugvélum stafaði raunveruleg hætta
af flugránum og sprengjutilræðum
og því talið nauðsynlegt að vara við
þeirri hættu.
Í dómi Hæstaréttar segir að þegar
framangreindur framburður ákærða
og orðalag viðvörunarinnar sé virt
þyki ekki komin fram lögfull sönnun
að með ákærða hafi búið sá ásetn-
ingur sem áskilinn sé í lögum og
verði þegar af þeirri ástæðu staðfest
niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að
sýkna beri ákærða af öllum kröfum
ákæruvaldsins.
Ástþór
Magnússon
sýknaður í
Hæstarétti
DAVÍÐ Odds-
son forsætis-
ráðherra verð-
ur í opinberri
heimsókn í
Úkraínu 23. –
24. febrúar
næstkomandi í
boði Viktors
Yanukovych
forsætisráðherra. Í heimsókn-
inni mun hann eiga fundi með
forseta, forsætisráðherra og ut-
anríkisráðherra Úkraínu.
Í för með forsætisráðherra
verður íslensk viðskiptanefnd
og mun hann ávarpa viðskipta-
ráðstefnu íslenskra og úkra-
ínskra fyrirtækja sem Útflutn-
ingsráð hefur undirbúið og
haldin verður í Kiev 23. febrúar.
Forsætis-
ráðherra til
Úkraínu
KONA og barn eru alvarlega slös-
uð og enn í lífshættu eftir umferð-
arslys við Blönduós í fyrrakvöld,
samkvæmt upplýsingum frá gjör-
gæsludeild Landspítala í Fossvogi.
Karlmaður slasaðist einnig en
hann er ekki í lífshættu. Fólkið var
flutt með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar til Reykjavíkur eftir að
jeppi, sem fólkið var í, ók aftan á
kyrrstæðan malarflutningabíl.
Skyggni var slæmt á slysstað.
Tvennt í lífshættu
SÚ hætta er fyrir hendi að hylki með
fíkniefnum sem svonefnd burðardýr
bera innvortis stífli þarmana á
ákveðnum stöðum og getur það
dregið fólk til dauða leiti það sér ekki
hjálpar, segir sérfræðingur í melt-
ingarsjúkdómum.
Erlendir aðilar hafa í auknum
mæli sýnt áhuga á að koma fíkniefn-
um til landsins með burðardýrum
sem bera fíkniefnin innvortis, að
mati yfirmanns fíkniefnadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík.
„Það sem getur gerst, sé þetta
stórt umfangs, er að þetta getur
hreinlega stoppað á einhverju
þrengslasvæði. Það eru á nokkrum
stöðum þrengslasvæði, gjarnan
hringvöðvar, sem tempra svolítið
flæði þarmainnihaldsins frá einum
stað til annars. Svona aðskotahlutir
geta vissulega stoppað á þeim stöð-
um og valdið þarmastíflu,“ segir Ás-
geirs Theodórs, læknir og sérfræð-
ingur í meltingarsjúkdómum.
Ástandið þarf ekki að vera lífs-
hættulegt, en getur verið það, segir
Ásgeir. „Ef þetta stendur í nokkurn
tíma getur þetta valdið gífurlegri
þenslu í þarminum, en fyrstu ein-
kenni eru kviðverkir og uppköst.“
Ef viðkomandi leitar sér ekki
hjálpar getur að sögn Ásgeirs orðið
rof í þarminum. Hann segir að þetta
myndi vera augljóst við krufningu en
ekki sjáanlegt á líkinu án krufningar.
Ef maður með þarmastíflu leitar
sér ekki hjálpar getur hún dregið
hann til dauða, en það fer eftir því
hvar stíflan er hversu langan tíma
það tekur. Ásgeir segir það í hið
minnsta taka nokkra sólarhringa sé
stíflan í smágirninu, eða smáþörm-
unum, en mun lengri tíma ef stíflan
er í maga eða vélinda.
Ásgeir segir þó að þetta sé alls
ekki algengt að þarmastífla verði í
málum sem þessum. Hann segir að
þegar vandamál koma upp hjá burð-
ardýrunum svonefndu tengist það
mun oftar því að umbúðir um fíkni-
efnin rofni og þau komist út í blóðið.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, segir að erlendir aðilar hafi í
auknum mæli sýnt áhuga á að koma
fíkniefnum til landsins með svoköll-
uðum „burðardýrum“ af ýmsum
þjóðernum. Fjöldi slíkra mála hafi
aukist á seinni árum.
Skipulögð glæpastarfsemi?
Hvort þróunin sé merki þess að al-
þjóðleg og skipulögð glæpastarfsemi
sé að færast í auknum mæli til Ís-
lands segist Ásgeir ekkert geta full-
yrt um. Spurður um málið á Nes-
kaupstað segir Ásgeir að það hafi
ekki komið til rannsóknar fíkniefna-
deildar lögreglunnar í Reykjavík.
Að sögn Ásgeirs er það þekkt
smyglleið með fíkniefni að biðja fólk
að flytja þau milli landa, annað hvort
í farangri eða innvortis. Við kaup á
fíkniefnum erlendis sé allur gangur á
því hvort kaupandi eða seljandi sjái
um flutninginn til Íslands. Langoft-
ast sé þetta gert með vitund og vilja
„burðardýrsins“, sjaldnast sé fíkni-
efnum laumað á fólk óafvitandi.
Sem fyrr segir hefur fíkniefna-
deildin ekki komið að rannsókn lík-
fundarins á Neskaupstað, en sam-
kvæmt upplýsingum sem fram komu
á blaðamannafundi lögreglunnar á
miðvikudag var Litháinn með rúm
400 grömm af fíkniefnum, líklega
amfetamíni, innvortis og telur lög-
reglan í Litháen að maðurinn hafi
innbyrt efnið í Kaupmannahöfn á
leið sinni frá Litháen til Íslands.
Eiturlyf sem svonefnd burðardýr flytja innvortis geta stíflað þarma og valdið miklum veikindum
Ásgeir Theodórs,
sérfræðingur í melt-
ingarsjúkdómum.
Getur dregið menn til
dauða á nokkrum dögum
Ásgeir Karlsson,
aðstoðaryfirlög-
regluþjónn.
DAGBLAÐIÐ Respublika, annað
stærsta dagblað Litháens, birti í
gær stutta frétt þar sem sagt er
frá fundi mannsins í höfninni í
Neskaupstað fyrir um viku. Greint
er frá helstu atvikum málsins, eit-
urlyf hafi fundist í maga hans og
hann hafi hugsanlega borið þau
hingað til lands frá Litháen. Greint
er frá því að föt hans séu fram-
leidd í Litháen og það hafi komið
íslenskum rannsóknarlög-
reglumönnum á sporið. Lögregla
þar í landi hafi í kjölfarið fengið
sýni af manninum til rannsóknar.
Að sögn Mindaugas Peleckis,
blaðamanns hjá Respublika, er
borgin Kaunas sem er önnur
stærsta borg Litháens, þekkt fyrir
stórfellda framleiðslu á eiturlyfjum
og hefur amfetamín verið framleitt
þar á tilraunastofum og því dreift
til annarra Evrópulanda og selt
þar. Í fyrra og hitteðfyrra hafi lög-
regla fundið verksmiðjur í borg-
inni þar sem eiturlyf voru fram-
leidd og m.a. lagt hald á um 100
kíló af amfetamíntöflum. Hann
segir mjög algengt að burðardýr
séu notuð til að smygla eiturlyfjum
úr landi.
Stórfelldur
útflutningur
á eiturlyfjum
frá Kaunas