Morgunblaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 51
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 51
RASHEED Wallace var í gærkvöld
skipt frá NBA-liðinu Atlanta
Hawks til Detroit Pistons en Wall-
ace lék aðeins einn leik með
Hawks frá því að hann kom frá
Portland Trailblazers í síðustu
viku.
Í gær var síðasti möguleiki fyrir
NBA-liðin að gera breytingar á
liðum sínum en það var alltaf vitað
að Wallace myndi aldrei setjast að
í Atlanta þar sem að hann vildi
fara til liðs sem ætti möguleika á
að ná árangri á næstu árum.
Larry Brown þjálfari Detroit Pist-
ons er viss um að Wallace muni
hjálpa liðinu en hann hefur verið
til vandræða undanfarin ár í her-
búðum Portland Trailblazers.
Wallace setti met í tæknivillum í
NBA og að auki átti hann í erf-
iðleikum utan vallar þar sem að
kannabisefni komu við sögu.
Hawks fær miðherjann Zeljko
Rebraca, bakvörðinn Bob Sura auk
valréttar frá Pistons. Að auki fóru
þeir Lindsey Hunter og Chucky
Atkins frá Pistons til Boston sem
sendi frá sér bakvörðinn Mike
James til Pistons.
Utah Jazz skipti einnig á leik-
mönnum í gærkvöld og fengu
Gordan Giricek frá Orlando og
Tom Gugliotta frá Phoenix. Bak-
vörðurinn DeShawn Stevenson fer
frá Jazz til Orlando. Keon Clark
og Ben Handlogten fóru til Phoe-
nix í staðinn fyrir Gugliotta.
Rasheed Wallace frá
Hawks til Pistons
FÓLK
ANDRI Berg Haraldsson, hand-
knattleiksmaður úr Víkingi, putta-
brotnaði í leik með 2. flokki félagsins í
vikunni og verður frá keppni næstu
3-6 vikurnar, samkvæmt vef félags-
ins. Þar með er ljóst að hann missir af
að minnsta kosti næstu fjórum leikj-
um Víkings í 1. deildinni, jafnvel öll-
um átta leikjunum sem liðið á eftir.
BANDARÍSKA landsliðið í körfu-
knattleik hefur skipulagt sex vináttu-
landsleiki áður en liðið mætir til leiks
á Ólympíuleikana í Aþenu. Á ferð
sinni um Evrópu mætir liðið Þýska-
landi, Ítalíu, Tyrklandi og Serbíu/
Svartfjallalandi sem er ríkjandi
heimsmeistari.
FRANSKI knattspyrnumaðurinn
Christian Karembeu sem leikur með
Olympiakos í Grikklandi hefur boðið
fram starfskrafta sína á meðan Ól-
ympíuleikunum stendur í Aþenu í
ágúst. „Ég hef ekki hugmynd um
hvaða verkefni ég fæ en ég mun
mæta þangað sem mér er ætlað að
vera,“ sagði Karembeu en hann var í
liði Frakka sem varð heimsmeistari
árið 1998 í Frakklandi.
MARGIR þekktir íþróttamenn í
Grikklandi hafa gefið kost á sér í
sjálfboðaliðastörf líkt og Karembeu
sem er 32 ára gamall og hefur leikið
með Nantes, Sampdoria, Real Ma-
drid og Middlesbrough.
IAAF, ætlar að bregðast við
ákvörðun bandaríska frjálsíþrótta-
sambandsins, USATF, þess efnis að
sýkna Jerome Young heimsmeistara
í 400 metra hlaupi en hann féll á lyfja-
prófi árið 1999 vegna notkunar á
nandrolone. Young vann til gullverð-
launa í 4x400 metra boðhlaupi með
bandarísku sveitinni á ÓL í Sydney
ári eftir að hann hafði fallið á lyfja-
prófi en stjórn USATF ákvað að leyfa
honum að taka þátt þrátt fyrir nið-
urstöðu lyfjamálsins.
STJÓRN IAAF segir að málið sé í
óvenjulegum farvegi en verði tekið
fyrir á ný í þeirra röðum.
BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylf-
ingur úr Keili, byrjaði ekki vel á
Opna Carlsberg-golfmótinu í Mal-
asíu, lék fyrsta hringinn í gær á 79
höggum, eða sjö höggum yfir pari
og er í 147. sæti af 150 keppendum.
Byrjunin hjá honum var reyndar
allt í lagi því hann lék fyrstu fjórar
holurnar á pari, en síðan komu
tveir skollar og á 16. braut, sem er
par þrír, fékk hann skramba. Síð-
ari hringinn lék hann síðan á fjór-
um yfir pari.
Það er ljóst eftir fyrsta dag
mótsins að Björgvin kemst ekki
áfram, nema hann eigi undrahring
í nótt. Félagar hans í ráshópnum
náðu sér misvel á strik. Martin Ma-
ritz frá Suður-Afríku lék manna
best í fyrsta hring, kom inn á 6
höggum undir pari og hefur for-
ystu. Kóreumaðurinn Joon Chung
lék svipað og Björgvin, lauk leik á
sex höggum yfir pari og er í 140.
sæti.
Björgvin sagði að allt sjálfs-
traust hefði vantað á flötunum og
stutta spilið hefði ekki verið gott
hjá sér.
Björgvin
byrjar illa
í Malasíu
MARK Viduka, leikmaður
Leeds United, hefur verið sett-
ur í fimm daga keppnisbann
fyrir að mæta ekki til leiks með
ástralska landsliðinu gegn
Venesúela í Caracas í fyrra-
kvöld. Ástralska knattspyrnu-
sambandið nýtti sér reglur
FIFA til að setja Viduka í bann,
sem þýðir að hann getur ekki
spilað með Leeds gegn Man-
chester United í úrvalsdeild-
inni um helgina.
Viduka er ekki sá eini því
Ástralar kröfðust þess líka að
Scott Chipperfield, leikmaður
Basel í Sviss, yrði settur í sams
konar bann. Chipperfield fór til
Madríd á Spáni en missti þar af
flugi til Venesúela og hélt þá
aftur til Sviss og kom því ekki
til leiks í Caracas.
„Ég harma hvernig þetta
mál hefur þróast, og ég tel að
Leeds og ég sem leikmaður
hafi ekki gert neitt rangt. Það
var mat lækna liðsins að ég
hefði ekki gott af því að ferðast
til S-Ameríku vegna meiðsla en
forsvarsmenn landsliðsins eru
á öðru máli,“ sagði Viduka í
gær.
Liðsheildin hjá okkur vann í kvöldog þessi sigur mun hjálpa okkur
mikið upp á framahaldið. Það er mjög
erfitt að spila hér í
Hveragerði, Ham-
arsmenn spila fast og
5-6 stiga forskot hef-
ur lítið að segja. Það
var ekki fyrr en munurinn var orðinn
10-12 stig að ég fór að eygja von um
sigur. Við höfum aðeins átt það til að
tapa niður forystunni á lokamínútun-
um, en það gerðist ekki núna. Við
bökkuðum hver annan upp í leiknum
og það var nánast sama hvað gerðist,
við leystum úr því. Það er ég ánægð-
astur með,“ sagði Kári Marísson, að-
stoðarþjálfari Tindastóls.
Leikurinn fór fjörlega af stað en
um miðjan fyrsta leikhluta náðu
Tindastólsmenn 2-4 stiga forystu
sem þeir héldu allt fram í hálfleik. Í
lok þriðja leikhluta fór að renna í
sundur með liðinum, en þegar 10
mínútur voru eftir, var staðan 57:69.
Svo gott forskot létu norðanmenn
ekki frá sér, spiluðu skynsamlega
síðustu mínúturnar á meðan heima-
menn hófu mikla skothríð til að
minnka muninn, en ekkert gekk.
Niðurstaðan var góður sigur gest-
anna.
„Fráköstin eru búin að há okkur í
síðustu leikjum en við erum að gefa
mótherjum okkar alltof mikið af til-
raunum í sömu sókninni. Við hittum
illa en vorum þó að spila ágætlega í
fyrri hálfleik en í þeim seinni fórum
við að spila sem einstaklingar en ekki
sem lið. Við verðum bara að rífa okk-
ur upp úr þessari lægð og það þýðir
ekkert að hengja haus þótt við höfum
tapað þremur leikjum í röð. Taka
verður með í reikninginn að Tinda-
stóll er með gott lið, þeir eru með
góða útlendinga og duglega íslend-
inga. Þetta er alls ekki verra lið en
t.d. Snæfell eða Grindavík, þótt stað-
an í deildinni segi okkur annað. Það
er enginn skömm að því að tapa fyrir
þeim en eins og ég sagði, við verðum
að rífa okkur upp og vinna núna þrjá
leiki í röð fram að úrslitakeppni,“
sagði Lárus Jónsson, fyrirliði Ham-
ars.
Hjá Hamri var það Lárus Jónsson
sem barði sína menn áfram en hann
var með 12 stoðsendingar í leiknum
og stal sjö boltum. Faheem Nelson
var með 18 stig og 8 fráköst og nýi
Kaninn, Lavell Owens tók 11 fráköst.
Þá var Chris Dade með 28 stig, en í
öðrum hlutum leiksins gekk honum
ekki eins vel.
Hjá gestunum var það Clifton
Cooke sem var einna bestur sinna
manna ásamt Nick Boyd. Cooke
skoraði 24 stig en Boyd var með 30
stig og 15 fráköst. David Sanders
skilaði einnig sínu hlutverki vel með
15 stig og 11 fráköst og gaman var að
sjá til Axels Kárasonar sem átti góð-
ar innkomur á mikilvægum augna-
blikum.
Ljósmynd/Helgi Valberg Jensson
Faheem Nelson, miðherji Hamars, skorar gegn Tindastóli.
„Töpuðum ekki
niður forystunni“
TINDASTÓLSMENN unnu góðan útisigur á Hamri í gærkvöldi í úr-
valsdeild karla í körfuknattleik, 82:94. Með sigrinum hafði Tinda-
stóll sætaskipti við Hamar og komst í 7. sæti Intersport-deild-
arinnar með 20 stig, jafnmörg og KR-ingar en þeir síðarnefndu eiga
leik til góða í kvöld. Hamar hefur nú tapað þremur leikjum í röð og
sitja í 8. sæti sem stendur með 18 stig, en Stólarnir fylgja eftir góð-
um sigri á Keflavík í síðustu umferð.
Helgi
Valberg
skrifar
Viduka í
bann hjá
Leeds
Magnús Már
með ÍBV
ÚRVALSDEILDARLIÐ ÍBV
í knattspyrnu hefur fengið til
liðs við sig sóknarmanninn
Magnús Má Lúðvíksson.
Hann er KR-ingur að upplagi
og hefur spilað fjóra leiki
með Vesturbæjarliðinu í
efstu deild, en gekk síðan til
liðs við Valsmenn sumarið
2002 og var þá markahæsti
leikmaður þeirra í 1. deild-
inni með 8 mörk. Magnús
Már tók sér frí frá knatt-
spyrnunni á síðasta ári, nema
hvað hann lék nokkra leiki
með 3. deildarliðinu Drangi.