Morgunblaðið - 26.02.2004, Side 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
hefur bannað innflutning á alifuglum
frá Bandaríkjunum vegna hænsna-
pestar og gildir bannið í einn mánuð
frá síðastliðnum þriðjudegi, eða til 23.
mars næstkomandi. Ekki hefur verið
um að ræða innflutning á hráum af-
urðum alifugla frá Bandaríkjunum
hingað til lands og innflutningur á
soðnum afurðum hefur verið sáralítill.
Í auglýsingu landbúnaðarráðu-
neytisins vegna þessa kemur fram að
bannið taki til innflutnings til landsins
á lifandi fuglum, frjóeggjum og
hráum afurðum alifugla frá Banda-
ríkjunum, þar sem þar hafi komið upp
hænsnapest, en hænsnapest sé skæð-
ur fuglasjúkdómur sem geti dreifst
vegna milliríkjaviðskipta.
Gísli Halldórsson, dýralæknir inn-
og útflutningseftirlits hjá yfirdýra-
lækni, sagði að pestin hefði komið upp
í Texas í Bandaríkjunum að kvöldi
mánudagsins, daginn áður en auglýs-
ing landbúnaðarráðherra er gefin út.
Hins vegar væri ekki um nákvæm-
lega sama stofn að ræða og menn
hefðu verið að glíma við í Asíulöndum
og hefði verið í fréttum. Talað væri
um vægar og skæðar hænsnapestir
og þessi stofn væri skæður, en ekki
alveg jafn illvígur, til dæmis gagnvart
fólki, og sá sem hefði verið að koma
upp í Asíulöndum að undanförnu.
Gísli sagði að þessar aðgerðir væru
í samræmi við það sem gert hefði ver-
ið þegar hænsnapestin hefði komið
upp í Asíu í endaðan janúar, en þá
hefði verið sett innflutningsbann á
það sem þaðan kæmi og það bann
væri í gildi til loka mars.
Gísli sagði að menn væru á varð-
bergi vegna þessa þar sem svo mikil
viðskipti væru með vörur á milli þess-
ara heimsálfa og líklegasta smitleiðin,
fyrir utan að smit bærist með mann-
fólkinu, væru flutningar á milli landa.
Enginn innflutningur á ósoðnu
Gísli sagði að ef varan væri soðin
umfram 70 gráður væri talið alveg
óhætt að flytja hana inn, þannig að
ekki væri um að ræða að banna inn-
flutning á soðnum fuglaafurðum. Því
væri við að bæta að það hefði ekkert
verið um innflutning á hráum afurð-
um alifugla frá Bandaríkjunum hing-
að til lands og raunar mjög óveruleg-
ur innflutningur á soðnum fugla-
afurðum einnig.
Afbrigði af hænsnapest kemur upp í Texas í Bandaríkjunum
Innflutningur á hráum
afurðum alifugla bannaður
ÞAÐ ER að jafnaði hart barist í
körfuboltaleikjum við Austurbæj-
arskóla. Þessir strákar notuðu frí-
mínúturnar til að taka einn leik.
Engum sögum fer af því hvernig
leikar fóru, en greinilegt er af til-
burðunum að þeir félagar hafa náð
góðum tökum á leiknum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Barist undir körfunni
PILTUR um tvítugt, sem staðinn
var að verki í Verslunarskóla Ís-
lands í fyrradag við það að reyna að
stela myndvarpa, var handtekinn í
gær. Húsvörður í skólanum stóð
hann að verki og við það réðst pilt-
urinn á manninn. Hann var fluttur
með sjúkrabíl á slysadeild en pilt-
urinn, sem er innan við tvítugt að
sögn Harðar Jóhannessonar yfirlög-
regluþjóns, komst undan án mynd-
varpans. Hann var svo handtekinn
eftir hádegið í gær og hefur játað
brot sín.
Í fyrrinótt var bortist inn í
Laugalækjarskóla og þremur tölv-
um stolið. Ein þeirra fannst strax
fyrir utan skólann og hinar tvær í
gærdag. Hörður segir búið að skila
tölvunum en enginn hafi verið hand-
tekinn.
Síðastliðna helgi var farið inn í
Borgarholtsskóla í Grafarvogi og
tölvu stolið.
Hörður segir búið að finna þann
sem þar var að verki og tölvuna.
Málið sé því upplýst.
Tölvum stolið
úr skólum
Réðst á
húsvörðinn
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
lét þau ummæli falla í Pressukvöldi,
þætti Sjónvarpsins, í gærkvöldi að
það kæmi vel til greina hjá sér að
breyta til í haust og hann myndi
hugsa sig vel um áður en hann segði
nei við því að fara í utanríkisráðu-
neytið.
Var Geir spurður að þessu í tilefni
ummæla Davíðs Oddssonar í þætt-
inum Í brennidepli sl. sunnudags-
kvöld um að dómsmálaráðuneytið
kæmi til greina hjá sér þegar hann
hætti sem forsætisráðherra og Hall-
dór Ásgrímsson tekur við af honum
og fer úr utanríkisráðuneytinu.
Þegar Geir var spurður í þætt-
inum hvort hann langaði ekki í utan-
ríkisráðuneytið svaraði hann eftir-
farandi: „Ég hef ekkert útilokað í
þeim efnum, en það er auðvitað
þingflokkurinn sem hefur síðasta
orðið um það. Ég verð í haust, ef
Guð lofar, búinn að sitja í fjármála-
ráðuneytinu í sex og hálft ár, lengur
en allir nema tveir menn í sögu
Stjórnarráðsins. Þar hefur margt
áunnist og margt skemmtilegt gerst
en auðvitað getur maður ekki neitað
því að það kemur vel til greina að
breyta til.“
Síðan var Geir spurður hvort ekki
yrði þá annasamt fyrir „verðandi
formann“ og vísað þar til for-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum og
hann svaraði: „Það er margt fram-
undan í utanríkismálum sem væri
gaman að glíma við, alþjóðaviðskipti
sérstaklega og þess háttar, en ég
hef ekki gert þetta upp við mig og
ég ræð þessu ekki. Þingflokkurinn
ræður þessu og auðvitað koma fleiri
menn til greina.“
Næst var Geir spurður hvort ekki
væri rökrétt að ætla að hann hefði,
með sína menntun og sinn bak-
grunn, áhuga á utanríkisráðuneyt-
inu og þeim verkefnum sem þar
væru. Hann svaraði þá:
„Ég hef alla tíð haft áhuga á utan-
ríkismálum og ég mundi að minnsta
kosti hugsa mig vel um áður en ég
segði nei við því, ef það væri mögu-
leiki.“
Geir H. Haarde útilokaði ekki utanríkisráðuneytið í Pressukvöldi
„Myndi hugsa mig vel
um áður en ég segði nei“
RÚGBRAUÐSGERÐIN svokallaða
við Borgartún 6 í Reykjavík er nú til
sölu hjá Ríkiskaupum en Delta hf.
hefur undanfarin ár leigt stóran
hluta hússins undir lyfjaverksmiðju
og þróunarstarfsemi. Efstu hæðir
hýstu áður funda- og ráðstefnusali
ríkisstofnana en þeirri starfsemi var
hætt um síðustu áramót. Leigu-
samningur Delta hf., sem er dóttur-
fyrirtæki Pharmaco, rennur út um
næstu áramót. Svo gæti farið að
starfsemi Delta flytjist úr landi geti
það ekki haldið henni áfram í húsinu.
Að sögn Harðar Þórhallssonar,
framkvæmdastjóra Delta, óskaði
fyrirtækið eftir því að fá leigusamn-
ing framlengdan en því hafi Ríkis-
kaup hafnað. „Við höfum þann val-
kost að bjóða í húsið eins og aðrir,“
segir Hörður spurður að því hvort til
greina komi að Delta kaupi allt hús-
ið. Hann segir húsið þó ekki munu
nýtast fyrirtækinu í heilu lagi. Starf-
semi Delta er í um 3.000 fermetrum
á 1. og 2. hæð hússins auk kjallara en
heildarfermetrafjöldi er rúmir 5.200
fermetrar.
Flutningur tækja kann
að kosta hundruð milljóna
Sá hluti hússins, sem Delta hefur
til afnota, er búinn afar sérhæfðum
tækjum og segir Hörður að lagt hafi
verið út í verulegar fjárfestingar við
að innrétta húsnæðið. Þarna inni séu
m.a. loftræsti- og vatnskerfi sem fyr-
irtækið hafi lagt mikla fjármuni í og
ekki sé hægt að flytja úr húsinu.
„Þetta er mjög erfið staða sem við
erum í. Kostnaður við flutning starf-
seminnar í nýtt húsnæði gæti numið
hundruðum milljóna króna. Það gæti
jafnvel komið til þess að við þyrftum
að flytja starfsemina úr landi. En
það er ekki búið að ákveða neitt í
þessu máli.“
Milli 30 og 35 starfsmenn eru í
lyfjaverksmiðju Delta í húsinu.
„Þessi starfsemi er mikilvæg fyrir
okkar vöruúrval, ekki út frá veltu,
heldur af því að margt af því sem
þarna er framleitt er eitthvað sem
aðrir eru ekki að bjóða hér á landi,“
segir Hörður.
Funda- og ráðstefnusalir ríkis-
stofnana hafa verið til húsa í Borg-
artúni 6 í hátt í þrjá áratugi. Elías
Einarsson hefur stýrt funda- og ráð-
stefnusölum ríkisstofnana undanfar-
in 27 ár. Hann segir vissulega vera
eftirsjá að starfseminni. Úr henni
hafi hins vegar dregið mikið undan-
farin ár. Nú séu flest ráðuneyti og
ríkisstofnanir búin fundarsölum og
því sé ekki lengur þörf fyrir fund-
arsalina á efri hæðum hússins.
Ríkiskaup veita áhugasömum
kaupendum frest til 17. mars til að
skila inn tilboðum í húsið.
Hús Rúgbrauðsgerðarinnar til sölu
Óvíst með
afdrif lyfjaverk-
smiðju í húsinu
HÆGT miðar í viðræðum sjómanna
og útvegsmanna hjá ríkissáttasemj-
ara, að sögn Sævars Gunnarssonar,
formanns Sjómannasambands Ís-
lands. Fundur var haldinn í gær án
þess að nýr væri boðaður.
Sævar segir deiluaðila hafa hist
að undanförnu vikulega í húsakynn-
um sáttasemjara og farið yfir stöð-
una. Spurður hvort verið sé að bíða
eftir niðurstöðu í öðrum kjarasamn-
ingum segir Sævar svo ekki vera,
sjómenn þurfi þess ekki vegna allt
annars launakerfis en aðrir, að
kauptryggingu undanskilinni.
Sævar segir áform fjármálaráð-
herra um að afnema sjómannaaf-
sláttinn klárlega ekki liðka fyrir
lausn mála, en samningsaðilar séu
ekki að bíða eftir neinu þar.
Miðar hægt
í viðræðum
sjómanna
♦♦♦
KARLMAÐUR óð inn í verslun 10–
11 í Arnarbakka í Breiðholti í gær-
kvöldi og ógnaði starfsmanni. Hann
hafði óverulega fjárhæð með sér á
brott að sögn lögreglu en starfs-
manninn sakaði ekki. Hann gat gefið
greinargóða lýsingu á þjófnum og
náði lögreglan honum 20 mínútum
síðar. Var hann í annarlegu ástandi
og verður yfirheyrður í dag.
Rændi verslun
♦♦♦