Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Það er ekki orðið öfundsvert hlutskipti að vera veiðimaður í þessu gæludýra þjóðfélagi.
Hvatningarverðlaun Rannís
Eiga að hvetja
menn til dáða
Nú líður að vali ogafhendinguHvatningarverð-
launa Rannís. Formaður
dómnefndar er Áslaug
Helgadóttir og svaraði
hún nokkrum spurningum
á dögunum.
Segðu okkur eitthvað
frá verðlaununum …
„Verðlaunin hafa verið
veitt 14 sinnum frá árinu
1987. Fyrsti verðlauna-
hafinn var Jakob K. Krist-
jánsson sem þá var sér-
fræðingur á
Iðntæknistofnun en er nú
forstjóri Prokaria hf. Þau
voru síðan veitt annað
hvert ár fyrstu árin en síð-
an árlega frá 1996. Verð-
launahafar eru orðnir 18
talsins, því sum árin voru
þeir tveir, og koma þeir víða að. Í
hópnum eru starfsmenn háskóla,
rannsóknastofnana og fyrirtækja
á almennum markaði. Nokkrir
leika tveimur skjöldum, eru
kennarar við Háskóla Íslands en
jafnframt starfandi við eigin fyr-
irtæki sem sprottið hafa upp úr
rannsóknum þeirra. Má þar
nefna Jakob hjá Prokaria, Svein-
björn Gizurarson, framkvæmda-
stjóra Lyfjaþróunar hf., og Orra
Vésteinsson hjá Fornleifastofnun
Íslands. Aðrir verðlaunahafar
eru Gunnar Stefánsson tölfræð-
ingur, Hörður Arnarson, for-
stjóri Marels, Reynir Arngríms-
son læknir, Ástráður
Eysteinsson bókmenntafræðing-
ur, Kristján Kristjánsson heim-
spekingur, Jón Atli Benediktsson
verkfræðingur, Ingibjörg Harð-
ardóttir lífefnafræðingur, Valur
Ingimundarson sagnfræðingur,
Hilmar B. Janusson verkfræð-
ingur, Eiríkur Steingrímsson
erfðafræðingur, Anna K. Daní-
elsdóttir stofnerfðafræðingur,
Magnús Már Halldórsson tölvun-
arfræðingur, Steinunn Thorla-
cius líffræðingur og Svanhildur
Óskarsdóttir bókmenntafræðing-
ur.“
Hver er tilurð verðlaunanna?
„Verðlaunin voru fyrst veitt
árið 1987 á 50 ára afmæli at-
vinnudeildar Háskóla Íslands að
frumkvæði Rannsóknaráðs ríkis-
ins sem þá var. Undir það heyrðu
rannsóknastofnanir atvinnuveg-
anna sem sprottið höfðu upp úr
gömlu atvinnudeildinni. Upphaf-
legt markmið með verðlaunaveit-
ingunni var að vekja athygli á
ungum vísindamanni og rann-
sóknum hans sem skilað hefðu
verulegu framlagi til hagsbóta
fyrir íslenskt atvinnulíf og hvetja
þannig aðra til dáða. Verðlauna-
veitingin var því einskorðuð við
hagnýtar rannsóknir fyrstu árin.
Með tilkomu Rannsóknarráðs Ís-
lands, við sameiningu gamla
rannsóknaráðsins og vísindaráðs,
fékk hún svo víðari skírskotun.“
Hver er tilgangur verð-
launanna og markmið?
„Markmiðið með veitingu
hvatningarverðlaunanna er að
hvetja unga vísinda-
menn til dáða og vekja
athygli almennings á
gildi rannsókna og
störfum vísinda-
manna. Þau eru veitt
vísindamanni sem snemma á ferl-
inum þykir hafa skarað fram úr
og skapað væntingar um framlag
í vísindastarfi er treystir stoðir
mannlífs á Íslandi.“
Eftir hverju er farið?
„Það er litið til ýmissa þátta og
valið hefur oft verið erfitt því
jafnan eru ákaflega færir vís-
indamenn tilnefndir. Tekið er til-
lit til námsferils, sjálfstæðis í
störfum, frumleika og árangurs í
vísindastörfum að loknu námi.
Má þar nefna ritverk, einkaleyfi,
framlag í störfum á alþjóðavett-
vangi svo og aðrar vísbendingar
um líklegan árangur af störfum
viðkomandi. Sérstaklega er litið
til brautryðjandastarfs í vísind-
um. Þá er litið á faglegt framlag
hans til samstarfsmanna á vinnu-
stað og miðlunar á þekkingu til
samfélagsins.“
Hvaða þýðingu hafa verðlaun-
in?
„Verðlaunin hafa ótvírætt gildi
fyrir verðlaunahafann. Viðkom-
andi einstaklingur fær þau til-
tölulega snemma á ferli sínum
því miðað hefur verið við aldurs-
takmarkið 40 ár, en þó hefur ver-
ið tekið tillit til tafa sem kunna að
verða á ferli vísindamannsins
vegna umönnunar barna. Verð-
laununum er ætlað að hvetja
hann til dáða í störfum sínum og
vekja jafnframt athygli á við-
fangsefnum hans. Slíkt er ómet-
anlegt, einkum í ljósi þeirra að-
stæðna sem vísindamenn starfa
nú orðið í þar sem þeir þurfa oft-
ar en ekki að sækja um stuðning
til verkefna sinna í harðri sam-
keppni við aðra.“
Hver eru verðlaunin?
„Verðlaunin eru nú 2 milljónir
króna og eru þar með stærstu
vísindaverðlaun sem veitt eru á
Íslandi. Það er því eftir allmiklu
að slægjast.“
Hver fær verðlaunin?
„Það veit enginn. Nú er verið
að óska eftir tilnefn-
ingum og mega þær
koma frá öllum sviðum
vísinda, tækni og
fræða. Nefna má vís-
indafólk sem starfar
við háskóla, rannsóknastofnanir,
fyrirtæki eða er sjálfstætt starf-
andi Frestur til að skila tilnefn-
ingum er til 15. mars nk. Allir,
sem eru í aðstöðu til að meta
störf einstakra vísindamanna,
mega tilnefna verðuga einstak-
linga og eru þeir hér með hvattir
til þess. Við gerum svo ráð fyrir
að veita verðlaunin við hátíðlega
athöfn í apríl næstkomandi.“
Áslaug Helgadóttir
Áslaug Helgadóttir fæddist í
Reykjavík 17. júlí 1953. Lauk BS-
prófi í landbúnaðarvísindum frá
Manitobaháskóla 1976 og dokt-
orsprófi í hagnýtri grasafræði
með erfðavistfræði sem sérgrein
1982. Hefur starfað við Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins frá
námslokum. Sviðsstjóri jarð-
ræktarsviðs frá 1991 og aðstoð-
arforstjóri frá 2001. Maki er
Nikulás Hall, eðlisfræðingur hjá
Íslenskri erfðagreiningu, og eiga
þau fjögur börn. Áslaug hlaut
Hvatningarverðlaun Rannís
1990.
… og skapað
væntingar um
framlag
GERA má ráð fyrir að greiðslur al-
mannatrygginga lækkuðu um rúm-
lega 300 milljónir króna eða að með-
altali um 20% vegna tíu söluhæstu
lyfjanna ef þau kostuðu það sama hér
á landi og í Danmörku. Samtals námu
greiðslur Tryggingastofnunar ríkis-
ins (TR) í fyrra vegna þessara lyfja
hátt í 1,6 milljörðum króna, að því er
kemur fram í frétt á vef TR.
TR greiddi nærri 265 milljónir fyrir
söluhæsta lyfið, Nexium, sem er lyf
gegn sársjúkdómi og maga- og vél-
indabakflæði en lyfið er 10,7% dýrara
hér en í Danmörku. Tæplega 253
milljónir voru greiddar fyrir Seretide,
lyfi gegn teppusjúkdómi í öndunar-
vegi en það er nær 20% dýrara hér.
Þriðja og fjórða lyfið á listanum eru
Zarator og Zocor sem eru blóðfitu-
lækkandi lyf en Zarator er 21,6% dýr-
ara hér en í Danmörku og Zocor
38,5% dýrara. Í sjötta sætinu er Siva-
cor, sem einnig er blóðfitulækkandi
lyf en Zocor og Sivacor innihalda
sama virka efnið. Zocor er frumlyf og
Sivacor er samheitalyf framleitt á Ís-
landi. TR miðar greiðslu á Zocor við
viðmiðunarverð, sem er það sama og
smásöluverð lyfsins Sivacor eða
16.357 krónur en almannatryggingar
í Danmörku miða sínar greiðslur fyrir
lyfið Zocor við viðmiðunarverð sem er
2.542 kr. Íslenska viðmiðunarverðið
fyrir Zocor er því yfir 500% hærra en
það danska. Geðdeyfðarlyfið Efexor
Depot er í fimmta sæti en verðið á því
er litlu hærra hér en í Danmörku.
Vioxx, sem er bólgueyðandi lyf og
gigtarlyf, er sjöunda söluhæsta lyfið
og er það 21,3% dýrara hér og það átt-
unda er geðlyfið Zyprexa en það er
16,6% dýrara hér en í Danmörku.
Greiðslur TR vegna tíu söluhæstu lyfjanna
Verðið að meðaltali 20%
hærra en í Danmörku
!"#$ %
#& "' #
!"
#
!$%&'(
)
#
*&+*
"
&,,-
.
"
*/
0
12
)
#
(
!*,!345
,%33+6 )
# 77
$
8 "
8
#9
. !
: # (;)
#9
)
#/#
8 !!
,,*3'
%'%%+,
+3,4*
+&+33
+%4+%*
,,+**
+$&&%+
*3,$
+$++$
43*$
( )! 9!*,!,,
* + !
< !%,,!$, , !#!*,!,,
,-!#!*,!34
. )/ %! !'&!34
*& -!#!*,!34
))!#!*&!34
,% ) !#!,!&$
01 0%
!#!$*!&!34
0 + )!#!&,!%,
+$+'
$+'&
$+*4
%%3'
%,$,
*'$
+*43
%%*'
3*,3
&*4'&
*
:=
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sektað tvo atvinnurekendur
og verkstjóra um 750.000 krónur
fyrir að vanrækja að setja upp
handrið, hné- og fótlista á röra-
verkpalla á byggingarstað á
Naustabryggju en í febrúar í fyrra
féll starfsmaður þar af efsta verk-
pallinum og beið bana.
Fram kemur í niðurstöðum
dómsins að starfsmenn Vinnueft-
irlits ríkisins höfðu komið þrisvar
sinnum á byggingarstaðinn áður
en slysið varð og gert athuga-
semdir við fallvarnir á vinnupöll-
unum. Þeim var ekki sinnt.
Vanræksla atvinnu-
rekenda olli slysinu
Mennirnir voru sakfelldir fyrir
brot á lögum og reglum um öryggi
á vinnustöðum og reglum um verk-
palla með því að hafa vanrækt að
stuðla sameiginlega að því að
tryggja örugg starfsskilyrði fyrir
starfsmenn. Þannig hafi þeir ekki
séð til þess að verkpallar sem unn-
ið var á væru búnir fullnægjandi
fallvörnum, handriði með hand-
lista, hnélista og fótlista. Í ákæru
segir að það hafi orðið til þess að
starfsmaðurinn hafi fallið af hand-
riðslausum verkpalli og beðið
bana.
Auk sektar til ríkissjóðs voru
mennirnir dæmdir til að borga
samtals 390.000 í málsvarnarlaun
en dóminn kvað upp Ingveldur
Einarsdóttir héraðsdómari.
Banaslys á byggingarstað við Naustabryggju í fyrra
Brugðust ekki við athuga-
semdum Vinnueftirlitsins