Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SAKSÓKNARAR í réttarhöldunum
yfir Slobodan Milosevic, fyrrverandi
Júgóslavíufor-
seta, fyrir stríðs-
glæpadómstóln-
um í Haag í
Hollandi, luku í
gær málflutningi
sínum, þrátt fyrir
að þeir eigi skv.
áætlunum enn eft-
ir tvo daga til að
kalla fyrir vitni.
Ákvörðun þeirra,
um að flýta fyrir málum með þessum
hætti, er sögð tengjast veikindum
sakbornings og þeirri staðreynd að
yfirdómari í málinu, Richard May,
lætur senn af embætti.
Tilkynning Florence Hartmann,
saksóknara við stríðsglæpadómstól-
inn, kom nokkuð á óvart en gert er
ráð fyrir að dómarar bregðist skjótt
við henni. Samþykki þeir hana, sem
líklegt þykir að þeir geri, mun rétt-
arhöldunum verða frestað í þrjá mán-
uði og fengi Milosevic þann tíma til að
undirbúa vörn sína.
Tilkynnt var um síðustu helgi að
May dómari myndi láta af embætti
31. maí nk. vegna heilsubrests. Hart-
mann tók hins vegar fram í gær að
brotthvarf hans hefði ekki skipt sköp-
um fyrir saksóknara. „Það eru allir að
tala um brotthvarf eins dómara en
það kemur annað til [...] eins og til
dæmis ítrekuð fjarvera sakbornings-
ins,“ sagði Hartmann í gær þegar hún
tilkynnti um ákvörðun sækjenda.
„Við viljum ekki að aðstæður Milosev-
ics verði til að draga málið á langinn.“
Nýr dómari í málinu mun þurfa, að
því er fram kom á fréttasíðu BBC,
fara yfir framburð allra vitna í málinu
fram til þessa. Þykir því ljóst að brott-
hvarf Mays mun tefja fyrir því að
dómur verði felldur í málinu. Er held-
ur ekki ósennilegt að brotthvarf hans
skapi forsendur fyrir Milosevic til að
fara fram á að réttarhöldin verði
dæmd ómerk.
Réttarhöldin yfir Milosevic hófust í
febrúar 2002. Hann hefur átt við
hjartasjúkdóma og háan blóðþrýsting
að stríða og hafa veikindi hans og
fjarvera í réttarsal valdið því að rétt-
arhöldin hafa dregist á langinn.
Málflutningi saksóknara lokið
Dómarinn í réttarhöldunum yfir
Slobodan Milosevic fær lausn frá
störfum af heilsufarsástæðum
Slobodan Milosevic
Haag. AFP.
JOHN Kerry, öldungadeildar-
þingmaður fyrir Massachusetts,
sigraði örugglega í forkosning-
um og á kjörfundum í Utah,
Hawaii og Idaho í fyrradag.
Senda þessi ríki að vísu fremur
fáa fulltrúa á flokksþing Demó-
krataflokksins en sigrarnir gera
það enn líklegra en áður, að
Kerry verði frambjóðandi
demókrata í forsetakosningun-
um í Bandaríkjunum í haust. Í
kosningunum í Utah fékk Kerry
55% atkvæða en John Edwards,
öldungadeildarþingmaður fyrir
Norður-Karólínu, 30%.
Á kjörfundum í Idaho fékk
Kerry 54% á móti 22% fyrir
Edwards og á kjörfundum á
Hawaii fékk Kerry 46%. Þar
varð Dennis Kucinich, fulltrúa-
deildarþingmaður fyrir Ohio,
annar með 30% en Edwards
fékk aðeins 13%.
Hvetur þing-
ið til aðgerða
ALAN Greenspan, seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, hvatti
þingið í gær til að grípa strax til
aðgerða til að
rétta fjárlaga-
hallann, einn-
ig aðgerða
sem gætu
skert bætur í
framtíðinni, til
að forðast það
að skapa jafn-
vel enn stærri
vandamál, að
því er segir í frétt CNN.
Þá ítrekaði Greenspan það
mat sitt að nýlegar skattalækk-
anir ættu að vera varanlegar og
sagði að betra væri að laga hall-
ann með því að draga úr eyðslu
en að hækka skatta.
Fyrstu
ákærurnar
YFIRVÖLD í Bandaríkjunum
hafa formlega ákært tvo fanga í
Guantanamo, þá Ali Hamza
Ahmed Sulayman al Bahlul og
Ibrahim Ahmoud al Qosi, fyrir
stríðsglæpi og verður fjallað um
mál þeirra fyrir herrétti, þeim
fyrsta í Bandaríkjunum frá lok-
um síðari heimsstyrjaldar. Voru
mennirnir lífverðir og ráðgjafar
Osama bin Laden, leiðtoga al-
Qaeda-hryðjuverkasamtak-
anna. Er al-Bahlul sagður hafa
verið „áróðursmaður al-Qaeda
og framleitt myndbönd þar sem
morð á Bandaríkjamönnum
voru vegsömuð“. Al-Qosi er
sagður hafa annast fjármál sam-
takanna og séð um vopnasmygl.
Sonur
Zawahiris
tekinn?
MEIRA en 20 al-Qaeda-liðar og
Talibanar voru handteknir í
Pakistan á þriðjudag en ekki
hefur verið staðfest, að meðal
þeirra sé Khalid, sonur Ayman
al-Zawahiris, næstæðsta manns
al-Qaeda. Var því haldið fram í
pakistönsku blaði. Bandaríkja-
menn telja sig aftur á móti hafa
fellt nánasta aðstoðarmann
Musab al-Zarqawis, sem grun-
aður er um að stýra aðgerðum
al-Qaeda í Írak.
STUTT
Kerry
sigraði í
þremur
ríkjum
Alan Greenspan
VEGFARANDI í borginni Im Zourem í norðaust-
anverðu Marokkó á leið framhjá hálfhrundu húsi.
Enn er leitað í örvæntingu að fólki í rústunum eft-
ir jarðskjálftann á þriðjudag, víða notar fólk ber-
ar hendurnar en einnig er komið erlent rústa-
björgunarlið á vettvang, m.a. frá Íslandi. „Þetta
er Guðs vilji“, sagði ung, slæðuklædd stúlka í
helstu hafnarborg héraðsins, Al Hoceima, en aðr-
ir létu í ljós reiði yfir því að hjálp bærist of seint.
Vitað er að minnst 564 fórust í hamförunum og
hundruð manna slösuðust, lítið er auk þess vitað
um manntjónið í litlum, afskekktum þorpum.
Eftirskjálftar hafa valdið miklum ótta og sefur
allt að helmingur íbúa í Al Hoceima, sem eru um
100.000, því utandyra.
AP
Leita enn að fórnarlömbum
Í ARABARÍKJUNUM eru alls stað-
ar gefin út dagblöð sem lýsa má sem
málgögnum stjórnvalda. Svoleiðis
var það líka í Írak í valdatíð Sadd-
ams Husseins. Nú er öldin hins veg-
ar önnur, blaðamarkaðurinn er al-
gerlega frjáls og valdhafar gefa ekki
út sitt eigið málgagn, þó að vissulega
líti margir Írakar svo á að Al-Sabah
– sem nýtur fjárhagslegs stuðnings
bandarísku bráðabirgðastjórn-
arinnar í Írak – gegni sama hlut-
verki og málgögn Saddams áður.
Í miðborg Bagdad hafa risið fjöl-
margir dagblaðastandar á síðustu
mánuðum og í boði er fjöldinn allur
af dagblöðum. Þróunin er til marks
um þá sprengingu sem hefur orðið í
blaðaútgáfu frá því að stjórn Sadd-
ams var felld af stalli í apríl á síðasta
ári. Hvergi í arabaheiminum er eins
mikil samkeppni og hvergi eru jafn
mörg blöð í boði fyrir áhugasama
lesendur.
Ritskoðun hefur verið útrýmt og
engin lög hafa verið sett um rekstur
fjölmiðla, markaðurinn hefur því
sumpartinn breyst í frumskóg á
skömmum tíma. Í staðinn fyrir að
fimm dagblöð séu á boðstólum –
nokkuð sem átti við í valdatíð Sadd-
ams – geta Írakar nú valið á milli allt
að 170 blaða. Allir hópar í samfélag-
inu – hvort sem um er að ræða
súnníta, sjíta eða Kúrda – geta fund-
ið eitthvað við sitt hæfi; sumir blaða-
útgefendur vilja hafa áhrif á stjórn-
málaástandið í landinu, aðrir vonast
fyrst og fremst eftir því að græða á
öllu saman.
Eins og í öðrum arabalöndum
reka flest stjórnmálaöfl semsé sitt
eigið dagblað í Írak, margir fulltrú-
anna í íraska framkvæmdaráðinu
hafa jafnvel sitt eigið málgagn. Út-
breiðsla hvers blaðs er hins vegar
tiltölulega lítil, stærsta blaðið, Al-
Sabah, er aðeins prentað í 75 þúsund
eintökum og ber að hafa í huga í því
sambandi að 25 milljónir manna búa
í Írak.
Óvissa um framhaldið
Það sem sameinar starfsfólk blað-
anna er sú von að fjölmiðlaveislunni,
sem svo má kalla, ljúki ekki í kjölfar
þess að Bandaríkjamenn framselja
völd í landinu í hendur heimamönn-
um 1. júlí nk. „Það er nokkuð sem við
höfum áhyggjur af. Staðan í stjórn-
málunum er svo óljós einmitt núna
og enginn veit hvers konar stjórn
tekur við,“ segir Nada Shoukat, rit-
stjóri á Azzaman, einu af stærstu
dagblöðunum. „Það verður að setja
einhverjar reglur um blaðamark-
aðinn en það vill enginn að hlutirnir
verði sem áður.“
Einu hömlurnar sem gilda núna
um blaðaútgáfu í Írak eru þau tak-
mörk sem Bandaríkjamenn kunna
að setja hverju sinni. Þannig lokuðu
þeir blaðinu Al-Mustaqillah í júlí á
síðasta ári eftir að þar var hvatt ber-
um orðum til árása gegn bandarísk-
um hermönnum. Alaa el Din Elsadr,
Íraki sem sinnir samskiptum við
íraska fjölmiðla fyrir hönd banda-
rísku bráðabirgðastjórnarinnar,
segir að fyrr í þessum mánuði hafi
forráðamönnum Al-Sa’ah einnig ver-
ið veitt viðvörun vegna greina sem
Bandaríkjaher áleit að væru til þess
fallnar að æsa til ofbeldis.
Al-Sa’ah er gefið út af bók-
stafstrúar-súnnítum og er eitt fárra
blaða í Bagdad sem gagnrýnir
Bandaríkjamenn harkalega á degi
hverjum. Mikið rými er tekið undir
fréttir af vafasömum gjörðum
bandarískra hermanna og í nýlegum
leiðara var Paul Bremer, bandaríska
landstjóranum í Írak, líkt við Adolf
Hitler.
Bein ástæða viðvörunarinnar voru
hins vegar frásagnir í blaðinu um
morð bandarískra hermanna á kon-
um og börnum. Elsadr segir að um
„hreinan tilbúning“ hafi verið að
ræða og að blaðinu verði lokað, haldi
það áfram á sömu braut. „Svona
fréttaflutningur hefur afleiðingar.
Fólk les þetta. Ef Bandaríkjaher
metur það svo að svona greinar
stefni lífi hermanna í hættu þá mun
blaðinu verða lokað.“
Sagðir þola gagnrýni illa
Hugsanlegt er, að aðgerðir
Bandaríkjamanna og Íraska fram-
kvæmdaráðsins – sem nokkrum
sinnum hefur refsað arabísku sjón-
varpsstöðinni Al-Jazeera fyrir frétt-
ir sem þar hafa verið sagðar af störf-
um embættismanna ráðsins – stuðli
að því að gagnrýni á störf valdhafa í
landinu er ekki jafn áberandi og í
dagblöðum í hinum arabaríkjunum.
Sögur af ógnarstjórn Saddams eru
enn í mestu uppáhaldi hjá flestum
blöðunum í Írak.
Abdul-Sattar Samer, ritstjóri Al-
Sa’ah, ver fréttastefnu blaðsins og
segir að leiðréttingar hafi verið birt-
ar vegna nokkurra umræddra frétta.
Hann fullyrðir hins vegar einnig að
Bandaríkjamenn hafi einfaldlega
horn í síðu blaðsins vegna andstöðu
þess við veru Bandaríkjahers í land-
inu. „Við erum þeirrar skoðunar að
Írak sé hersetið land en að það eigi
rétt á að ráða eigin málum,“ segir
hann. „Bandarískir hermenn hafa
drepið börn þar sem þeir hafa verið
að reyna að ráða niðurlögum upp-
reisnarmanna. Og við flytjum fréttir
af slíkum atburðum. Svo virðist sem
þeim líki það ekki.“
Blaðaútgáfa blómstrar í Írak
AP
Prentarar að störfum í dagblaða-
prentsmiðju í Bagdad á sunnudag.
Allt að 170 dagblöð eru nú gefin út í Írak og ritskoðun er engin
Bagdad. AP.