Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 22
FLAUTAÐ verður til leiks á árlegu Goða-
móti Þórs á Akureyri næsta föstudag, 27.
febrúar, þegar leikmenn 3., 4. og 5. flokks
stúlkna víðs
vegar að af
landinu koma
saman í Bogan-
um, knatt-
spyrnuhúsinu
við Hamar, fé-
lagsheimili
Þórs í Glerár-
hverfi. Þetta
fyrsta mót
stendur yfir
fram á sunnu-
dag.
Unglingaráð
knattspyrnu-
deildar Þórs
hleypti móta-
röð þessari af
stokkunum í
fyrravetur,
fyrir yngstu
flokka drengja.
Prýðilega þótti takast til með Goðamótin,
sem unnið er að með Norðlenska, að því er
segir í frétt.
„Nú er sem sagt komið að framhaldinu
og fullvíst má telja að mótin hafi fest sig í
sessi til frambúðar. Goðamótin verða raun-
ar þrjú í vetur, fyrir 5. og 6. flokk drengja
eins og í fyrra og nú bætist við mót fyrir 3.,
4. og 5. flokk stúlkna, sem verður það
fyrsta í röðinni eins og áður segir.“
Keppni hefst í hvert skipti kl. 15 á föstu-
degi og lýkur síðdegis á sunnudegi. Hálf-
um mánuði eftir stúlknamótið verður kom-
ið að 5. flokki drengja, það mót verður 12.
til 14. mars og 6. flokkur rekur lestina, 26.
til 28. mars.
Ljóst er að þátttaka verður mjög góð í ár
og keppendur alls rúmlega 1100. Þegar er
nánast orðið fullt í tvö fyrstu mótin en eitt-
hvað enn laust í það síðasta í lok mars.
Keppendur eru flestir af Norðurlandi, en í
fyrra tóku einnig þátt nokkur lið af Austur-
landi og höfuðborgarsvæðinu og svo er
einnig nú. Fjölnismenn úr Grafarvogi
verða líklega fjölmennastir aðkomumanna
að þessu sinni, þeir verða um 100 í 5. flokki
og a.m.k. 50 í 6. flokki, auk þess sem Fjöln-
ir sendir einnig stúlknalið til keppni, eins
og HK í Kópavogi. Vitað er af fjölda for-
eldra sem kemur með börnunum til Ak-
ureyrar í tilefni Goðamótanna þannig að
ljóst er að samtals fjölgar í bænum um
nokkur þúsund manns þessar þrjár helgar.
Á Goðamótinu eru sjö leikmenn í hverju
liði og keppt í A-, B-, C- og D-liði.
Keppendur
um 1.100 á
Goðamótum
á Akureyri
Nokkrir leikmanna KS
frá Siglufirði heilsuðu
upp á Nonna í Nonna-
húsinu á Goðamótinu á
Akureyri í fyrra.
Skagaströnd | Hann er ekki stór hnísukálfurinn sem
fannst inni í móður sinni, sem drukknaði í þorskaneti í
Húnaflóa, þó hann sé fullskapaður. Lyklakippan við
hlið hans gefur stærðina til kynna.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Pínulítill hnísukálfur
LÉTTUR andi sveif yfir vötn-
um á Broadway í Reykjavík um
síðustu helgi þegar Karlakórinn
Heimir efndi til þorrablóts þar
sem skagfirskt hráefni var haft í
hávegum. Nóg var af matnum,
súrum og ósúrum, reyktum og
kæstum, og enn meira af fjörinu
sem fylgdi í kjölfar borðhalds-
ins. Í húsinu voru 400–500
manns, fjölmargir burtfluttir
Skagfirðingar, og skemmtu allir
sér hið besta. Veislustjóri var
Óskar Pétursson frá Álftagerði,
sem tók einnig lagið með kórn-
um, ásamt fleiri góðum ein-
söngvurum.
Kvöldið áður hafði Heimir
sungið í Njarðvíkurkirkju fyrir
fullu húsi. Létu tónleikagestir
sig ekki muna um að bíða í
klukkutíma eftir kórnum, sem
tafðist í umferðinni suður yfir
heiðar.
Hagyrðingar úr karlakórnum
létu einnig ljós sitt skína á
Broadway og meðal þeirra var
Kristján Stefánsson frá Gil-
haga. Hann notaði m.a. tæki-
færið og minnti viðstadda blóts-
gesti á helstu kosti Heimis-
manna:
Það er eins satt, og sem ég hérna
stend
og sögur eru það um víða á sveimi;
að feimni eða minnimáttarkennd
muni ekki vera til í Heimi.
Kristján mátti svo til með að
skjóta létt á veislustjórann og
þá Álftagerðisbræður, sem
gjarnan hafa heillað konur af
eldri kynslóðinni:
Frétt um þessa söngvasveina káta
sífellt hefur vakið eftirtekt.
En að láta gamlar konur gráta
getur varla talist skemmtilegt.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Hagyrðingar skiptust á skotum í bundnu máli: Árni Bjarnason frá Uppsölum, Óskar Pétursson frá
Álftagerði, Kristján Stefánsson frá Gilhaga og Sigurður Hansen frá Flugumýri.
Í einu söngatriðinu fóru þeir á
kostum Gísli Pétursson frá
Álftagerði og Einar Hall-
dórsson, sem blés upp júgur
og Gísli „mjólkaði“. Vanir
menn, enda báðir kúabændur.
Skagfirðingar
Slegið á létta strengi á Heimisblóti
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Vilja endurbyggja birgðastöðina | Olíu-
dreifing ehf. og Skeljungur hf. vilja ekki
flytja olíubirgðastöð félaganna niður á Suð-
urtanga á Ísafirði heldur
endurbyggja núverandi
olíubirgðastöð við Suð-
urgötu. Þetta kemur fram
í bréfi Olíudreifingar til
bæjarráðs Ísafjarð-
arbæjar þar sem ítrekuð
er ósk félaganna um að
Ísafjarðarbær úthluti þeim viðbótarlóð við
hlið núverandi birgðastöðvar. Frá þessu er
greint á fréttavef Bæjarins besta.
Olíudreifing áætlar að það kosti fimmtíu
milljónum króna meira að byggja upp nýja
olíubirgðastöð á Suðurtanga en að end-
urbyggja og stækka núverandi birgðastöð
við Suðurgötu. „Það er því ósk félaganna
beggja að aðilar komi sér saman um lausn
sem tryggi að núverandi olíubirgðastöð fé-
laganna á staðnum verði endurbyggð.“ Ósk
um viðbótarlóð segir Olíudreifing tilkomna
vegna augljósra þarfa félaganna fyrir að
lagfæra ástand núverandi birgðastöðvar og
að koma fyrir bensínsbirgðageymum ásamt
nýju áfylliplani sem hvort um sig auki ör-
yggi við geymslu og meðhöndlun eldsneytis
í stöðinni. „Af hálfu Olíudreifingar ehf. og
Skeljungs hf. er brýnt að niðurstaða komist
í þetta mál hið fyrsta svo hefjast megi
handa við endurbyggingu eldsneyt-
isbirgðastöðvar félaganna svo skjótt sem
auðið er þannig að stöðin komist í ásætt-
anlegt lag m.t.t. öryggis og ásýndar.“
Lengi vel lögðu hafnaryfirvöld til lóð
undir nýja olíubirgðastöð neðst í Suð-
urtanga en nú er reiknað með lóð undir
birgðastöðina nær Sundahöfn.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Kynnisferð til Brussel | Um 110 manna
hópur frá Háskólanum í Reykjavík er nú í
vikulangri kynnisferð til Brussel. Annars veg-
ar er um að ræða nemendur lagadeildar HR,
sem sitja námskeiðið Evrópuréttur undir
stjórn Einars Páls Tamimi, lektors og for-
stöðumanns Evrópuréttarstofnunar HR, og
hins vegar nemendur viðskiptadeildar HR úr
námskeiðinu Evrópusambandið sem Jón
Ormur Halldórsson dósent kennir.
Meðal þess sem nemendur HR fá tækifæri
til að kynna sér er starfsemi sendiráðs Íslands
í Brussel, aðkoma Íslands að stofnunum ESB
og þátttaka Íslands í rannsóknar- og þróun-
arstarfi ESB. Þá mun hópurinn heimsækja
Evrópuþingið og framkvæmdastjórn ESB og
fá kynningu á tilurð og virkni innri markaðar-
ins, svo fátt eitt sé nefnt af skipulagðri dag-
skrá ferðarinnar, segir í frétt frá skólanum.
Skinney-Þinganeshefur gefið öllustarfsfólki sínu svo-
nefnda Heilsudagbók
ásamt viku í líkamsrækt í
Sporthöllinni á Höfn í
Hornafirði, skv. frétt á
vefnum horn.is. Bæði ku
tekið á ræktun líkama og
sálar og lögð áhersla á að
fólk finni leið sem hentar
hverjum og einum. „Bókin
á að vera fólki hjálpartæki
til að breyta um lífsstíl. Á
síðasta ári var farið að
bjóða starfsmönnum upp á
vinnustaðanudd. Starfs-
fólkið fer tvisvar í mánuði
til Lilju Hrundar Harð-
ardóttur nuddmeistara og
er áhersla lögð á að draga
úr þreytuverkjum vegna
vinnuálags.“ Á heimasíðu
fyrirtækisins segir að
þetta hafi gefið góða raun.
Heilsudagbók
Steingrímur Sigfús-son orti um í þing-veislu að Halldór
Blöndal vildi friða endur:
Honum drottinn gáfur gaf,
góðan munn og styrk til
handanna.
Halldór Blöndal héðan af
mun heita faðir andanna.
Halldór Blöndal svaraði
með hringhendu:
Áður hraður hann upp sté
heiðursmaðurinn snjalli,
að mér glaður gjörir spé
Gunnarsstaða skalli.
Steingrímur svaraði auð-
vitað með hringhendu:
Vísur hraðar Halldór má
í hauga raða meður galla
er gæfan baðar geislum þá
minn Gunnarsstaðaskalla.
Steingrímur hafði ort
um hallann á höfði Hall-
dórs, sem lagði út af því í
afhendingu:
Eftir drykklanga stund minn Drott-
inn læt ég dóm minn falla:
Betra’ er að hafa halla en skalla.
Endur og skalli
pebl@mbl.is