Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 23
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 23
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
VARÐSKIPIÐ Týr kom
með Mánafoss, flutn-
ingaskip Eimskipafélags-
ins, í togi til Akureyrar
seinni partinn í gær, en
skipið verður tekið til við-
gerðar í Slippstöðinni í
dag.
Mánafoss tók niðri við
brottför frá Vestmanna-
eyjum í síðustu viku og
urðu m.a. skemndir á
skrúfu skipsins og stýri.
Botnskemmdir eru ekki
ljósar en frekari skoðun á
skemmdum fer fram eftir
að skipið hefur verið tekið
á þurrt í flotkvínni.
Morgunblaðið/Kristján
Varðskipið Týr kemur með Mánafoss í togi til Akureyrar seinnipartinn í gær.
Mánafoss í við-
gerð í Slippnum
LEIKSÝNINGIN Eldað með Elvis
sem gengið hefur fyrir fullu húsi í
Loftkastalanum er nú væntanleg til
Akureyrar. Frumsýning á Akureyri
verður föstudaginn 2. apríl. Sala er
hafin á fyrstu sýningarnar á Akur-
eyri, en sýningarnar norðan heiða
eru óðum að fyllast.
„Leikritið Eldað með Elvis er
óvenjuleg fjölskyldusaga. Við fylgj-
umst með hremmingum sem fjöl-
skyldan gengur í gegnum eftir að
eiginmaðurinn, sem áður var Elvis
eftirherma, lamast. Móðirin hallar
sér að flöskunni, en dóttirin bregst
við sorginni með eldamennskuæði.
Þegar ungur deildarstjóri í Myllu-
bakaríi flytur inn á heimilið er fjand-
inn laus. Úr verður mikil flækja og
ekkert verður eins og það var. Andi
Elvis Presleys vakir yfir fjölskyld-
unni og kóngurinn sjálfur birtist per-
sónunum þegar hversdagurinn verð-
ur óbærilegur,“ segir í tilkynningu
um verkið.
Leikritið Eldað með Elvis er eftir
verðlaunahöfundinn Lee Hall, sem
meðal annars skrifaði handritið af
kvikmyndinni Billy Elliot. Leikstjóri
er Magnús Geir Þórðarson en þýð-
ingu annaðist Hallgrímur Helgason.
Leikarar eru: Steinn Ármann Magn-
ússon, Halldóra Björnsdóttir, Álfrún
Örnólfsdóttir og Friðrik Friðriksson.
Eldað með Elvis er samstarfs-
verkefni Leikfélags Akureyrar og
Menningarfélagsins Eilífs. Sýningar
á Akureyri verða í Samkomuhúsinu.
Fyrstu sýningar eru 2. apríl, 3. apríl,
7. apríl og 8. apríl.
Eldað með
Elvis
Málþing um Gásir | Málþing um mið-
aldaverslunarstaðinn Gásir við
Eyjafjörð verður haldið í Háskól-
anum á Akureyri á laugardag, 28.
febrúar.
Gásir við Eyjafjörð voru helsti
verslunarstaður á Norðurlandi á
miðöldum og eru hvergi á Íslandi
varðveittar jafnmiklar mannvist-
arleifar frá miðaldaverslunarstað.
Frá árinu 2001 hefur farið fram
fornleifarannsókn að Gásum. Mark-
miðið með henni er m.a. að varpa
ljósi á hvenær verslun hófst á Gás-
um, hvers eðlis hún var og af hverju
verslun á staðnum lagðist skyndi-
lega af. Á málþinginu verða flutt ým-
is erindi af íslenskum og erlendum
fræðimönnum. Í lok þingsins verður
farið í skoðunarferð að Gásum.
Ókeypis er bæði á málþingið og í
skoðunarferðina. Að málþinginu
standa Minjasafnið á Akureyri og
Fornleifastofnun Norðurlands.
KK í Vélsmiðjunni | Tónleikar með
KK verða á veitingastaðnum Vél-
smiðjunni í kvöld. Þeir hefjast kl.
21.30 en húsið verður opnað kl. 20.30.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111