Morgunblaðið - 26.02.2004, Page 41

Morgunblaðið - 26.02.2004, Page 41
MJÖG mikið hefur breyst í há- skólasamfélaginu síðustu ár. Áhugi fyrir margvíslegu háskólanámi hefur aukist verulega og nýir háskólar hafa bæst við. Fyrir rúmum 20 árum voru 3.500 nemendur í Háskóla Íslands en nú eru þeir um 9.000. Þar af eru 1.200 manns í meistaranámi. Nýir skólar eins og Listaháskólinn, Há- skólinn í Reykjavík og Viðskiptaháskólinn á Bifröst hafa blómstrað. Háskólinn á Akureyri, Tækniháskólinn og Kennaraháskólinn hafa einnig vaxið mikið. Hinum mikla áhuga á háskólanámi má líkja við það að fyrsta há- skólagráða, BA- eða BS-próf, sé sambærileg stúdentsprófi fyrir 20 árum og landsprófi fyrir 40 árum. Við verðum að mæta þessum áhuga ungs fólks fyrir aukinni menntun. Tryggja þarf fjölbreytni í háskólasamfélaginu Háskóli Íslands er flaggskip ís- lenskra háskóla og þar hefur margt breyst en meira þarf til. Skólinn hef- ur stækkað svo mikið að hann verður að laga sig að breyttum aðstæðum. Stjórnkerfi Háskólans er orðið þung- lamalegt og ekki í takt við breytta tíma. Viðskipta- og hagfræðideild er t.d. orðin jafnstór og Háskóli Íslands var allur fyrir rúmum 30 árum. Háskólastarf á Íslandi á að vera fjölbreytt og einkennast af sveigj- anleika og aðlögunarhæfni. Háskólar eru með elstu stofnunum mannsins og í sérhverri þjóð býr mikil þekking á háskólastarfi. Þjóðir laga skipulag háskóla að eigin aðstæðum. Háskólar eru svo gamlir að allar hugmyndir um skipulag og form hafa verið ræddar innan þeirra. Í Bandaríkjunum þar sem há- skólastarf og vísindi standa í mestum blóma í heiminum eru allar tegundir af háskólum, allt frá ríkis- eða fylk- isháskólum til hreinræktaðra einka- skóla og allt þar á milli. Það er ekk- ert eitt líkan til fyrir háskóla. Meginmálið er að leyfa fjölbreytn- inni að ráða ferðinni. Frelsi háskóla til að skipuleggja sig og frjálst val nemenda tryggir frelsi vísindanna. Viðskipta- og hagfræðideild fagnar öðrum skólum á háskólastigi sem kenna viðskiptafræði og sú sam- keppni hefur gert öllum gott. Sjálfseignarstofnanir í Háskóla Íslands Hinar ellefu deildir Háskóla Íslands eru grunneiningar hans. Til að tryggja sveigjanleika og samkeppn- ishæfi þarf löggjöf að heimila að deildir Háskóla Íslands geti orðið sjálfstæðar sjálfseignarstofnanir undir regnhlíf Háskóla Íslands. Form sjálfseignarstofnunar hentar vel í háskólastarfi. Þetta á þó að vera valkvætt þannig að þær deildir sem ekki vilja slíkt gætu eftir sem áður búið við núverandi skipulag. Þær há- skóladeildir sem vilja meira sjálf- stæði og taka yfir fleiri verkefni til hagsbóta fyrir nem- endur, kennara og fræðasviðið verða að fá tækifæri til þess. Skólagjöld í meistaranámi Skynsamlegt er að heimila deildum Há- skóla Íslands að taka skólagjöld í meist- aranámi eins og Við- skipta- og hag- fræðideild hefur óskað eftir. Meistaranám er leið að annarri há- skólagráðu og því er eðlismunur á slíku námi og grunnámi. Rétt er að hafa í huga að skólagjöld eru láns- hæf í Lánasjóði íslenskra náms- manna. Það er ekki hægt að líta á það sem hlutverk almannavaldsins að kosta af skattfé að fullu nám til annarrar há- skólagráðu. Allt öðru máli gegnir um fyrstu háskólagráðuna en vel er hægt að sjá það fyrir sér að al- mannavaldið kosti það nám að mestu leyti af almannafé alveg eins og gert er um nám í grunn- og framhalds- skólum. Mikilvægt er að átta sig á því að einn mánuður í leikskóla, sem er fyrsta skólastigið, kostar jafn- mikið og eitt ár í Háskóla Íslands. Aðrir háskólar eiga að fá rannsóknafé Nú eru vísindi orðin miklu stærri at- vinnuvegur en áður. Vísindi eru hluti af skapandi hugsun en skapandi hugsun er einnig aðalsmerki lista. Til skapandi atvinnugreina telst orðið um þriðjungur af störfum í Banda- ríkjunum og þetta er þróun sem við eigum að fylgja af fullum krafti. Blómlegt starf Listaháskóla Ís- lands er dæmi um þetta en hann er sjálfseignarstofnun á háskólastigi og vegnar vel. Nú starfa tugir ein- staklinga í ReykjavíkurAkademíunni sem vinna að rannsóknum af marg- víslegum toga. Þetta var ekki veru- leikinn fyrir 10 árum. Við eigum að styrkja rannsóknir, m.a. í nýju háskólunum. Þeir verða að fá betri aðkomu að rannsóknafé og það verður að stórauka framlög í samkeppnissjóði. Hugmyndin um að vísindamenn keppi um rannsóknafé er að mörgu leyti góð en hún er marklaus nema fé til sjóðanna sé aukið verulega. Háskóli Íslands hefur skyldur sem þjóðskóli Háskólinn notar líkan til að endur- útdeila fé milli deilda Háskólans, svokallað deililíkan. Þessa aðferð á að leggja af og deildir eiga að fá það fé sem ríkisvaldið veitir til þeirra beint. Háskóli Íslands hefur skyldum að gegna sem þjóðskóli og fjárveit- ingavaldið á að koma til móts við þær skyldur með því að fjármagna sérstaklega vísindagreinar sem til- heyra þjóðerni okkar í meira mæli en aðrar. Þannig á að fjármagna bókmenntafræði- og málvísindaskor, íslenskuskor, sagnfræðiskor, jarð- og landfræðiskor og guðfræðideild sér- staklega á fjárlögum en ekki af al- mennu rekstrarfé Háskóla Íslands. Þessar vísindagreinar eru svo stór þáttur af þjóðararfi okkar að þær á að taka út fyrir sviga í fjármögnun. Háskóli Íslands á að vera regn- hlíf fyrir alla háskóla hérlendis Vitanlega byggjum við ekki upp marga rannsóknaháskóla en það er hægt að tengja skólana betur saman. Háskóli Íslands á að vera regnhlíf- arsamtök fyrir alla háskóla á Íslandi. Sumir háskólar leggja áherslu á rannsóknir og framhaldsnám, aðrir á starfstengda menntun og enn aðrir á listsköpun og atvinnutengd fræði eins og landbúnaðarháskólarnir. Allir skólarnir ættu að vera aðilar að slík- um regnhlífarsamtökum. Undir þeirri regnhlíf geta verið skólar með fjölbreytt rekstrarform, sumir geta keppt innbyrðis en aðrir unnið sam- an. Slíkar regnhlífar eru algengar erlendis. Regnhlífin Háskóli Íslands myndi vinna að því að auka vægi íslensks háskólaprófs erlendis, starfa að gæðamálum, efla nemendaskipti, styðja við góða nemendur í námi og koma rannsóknum á framfæri hér- lendis og erlendis. Samkeppni er góð, einnig meðal háskóla, enda hefur Háskóli Íslands keppt við erlenda skóla í tæpa öld. Samvinna fyrir 300.000 manna þjóð er þó einnig lífsnauðsynleg og slík samvinna á háskólastiginu er öllum til framdráttar, ekki hvað síst nem- endum, kennurum og stjórnvöldum. Aukin menntun er eins og útfærsla landhelginnar Enn vantar fé til háskólastigsins til að við stöndum jafnfætis næstu þjóð- um. Við eigum að setja okkur töluleg markmið í þeim efnum samhliða því að auka sjálfstæði deilda Háskólans og veita öðrum skólum á háskólastigi góðan aðgang að rannsóknafé. Sókn í menntamálum má líkja við útfærslu landhelginnar á síðustu öld. Aukin menntun er hin nýja landhelgi okkar og við stöndumst ekki í heimi framtíðarinnar nema við höfum að- gang að vel menntuðu fólki alveg eins og við hefðum ekki getað byggt upp okkar góða samfélag nemaöðlast full yfirráð yfir auðlindum hafsins. Stefna í málefnum háskóla Ágúst Einarsson skrifar um háskóla ’Enn vantar fé til háskólastigsins til að við stöndum jafnfætis næstu þjóðum.‘ Ágúst Einarsson Höfundur er prófessor í Háskóla Íslands og deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 41 FYRIR Alþingi Íslendinga liggja nú ekki færri en þrjár þingsályktun- artillögur um meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga og með tillögu sem lögð var fyrir þingið fyrir um 2 árum hafa alþing- ismenn úr öllum flokk- um staðið að álykt- unum um þessi mál á stuttum tíma. Grein- argerðirnar með þess- um tillögum og umræð- an sem fram fór á Alþingi í síðustu viku voru vitlausar en dæmi- gerðar fyrir þá miklu kreppu sem alþing- ismenn eru í þegar kemur að heil- brigðismálunum. Kreppan lýsir sér í því að alþingis- menn virðast ekki geta nýtt sér þær upplýsingar sem fyrir hendi eru um málefnið hér innanlands og virðist um leið fyrirmunað að hafa að leiðarljósi þekkingu þeirra sem í heilbrigðis- þjónustunni vinna og bera þar faglega ábyrgð. Með umræðunni í lið- inni viku gerðu þing- menn sig því seka um að lítilsvirða það fólk sem í málaflokknum vinnur og ber hitann og þungann af vandanum í sínum daglegu störfum á Sjúkrahúsinu Vogi og Landspítalanum. Þetta mál er alvar- legra en ella þar sem að málinu koma þungavigt- armenn og konur úr öllum stjórn- málaflokkum og vinnubrögðin og um- ræðurnar eiga sér margar og góðar hliðstæður úr fortíðinni. Í grein- argerðum með tillögunum er ítrekað vísað í gamla skýrslu sem amerískur sálfræðikennari erlendur vann í þriggja daga heimsókn til Íslands árið 1996 þar sem hann heimsótti með- ferðarstofnanir sem margar hverjar eru aflagðar. Ekki er vitað til þess að hann hafi unnið við eða stjórnað fyrir- tæki í heilbrigðisþjónustu eða kynnt sér íslenskar sjúkratryggingar. Auk þessa er ítrekað vísað í nafngreindan mann, ómenntaðan í heilbrigð- isfræðum sem aldrei hefur unnið að meðferð áfengis- og vímuefna- sjúklinga. Hvergi er að sjá að vísað sé til nýlegra upplýsinga í málaflokknum eða þeirra sem í málaflokknum vinna hér á landi. Þetta eru dæmigerð vinnubrögð alþingismanna nú um stundir í heilbrigðismálum. Umræðan sem í kjölfarið fór lýsti því vel að þingmennirnir eru gjör- samlega steinrunnir og ekki í neinum tengslum við það sem gerst hefur á Íslandi í vímuefnamálum. Stórkost- legar breytingar á vímuefnaneyslu landsmanna undanfarin ár og þær miklu breytingar sem orðið hafa á starfsemi meðferðarstofnana virðast hafa farið fram hjá þeim. Að manni læðist sá grunur að ráðgjafarnir séu bilaðir eða þingmennirnir komnir í fílabeinsturn. Er nú ekki kominn tími til að þess- ari vitleysu linni og alþingismenn, ráðuneytismenn og embættismenn í heilbrigðismálum verði málefnalegri og vandaðri í umræðum sínum. Það er ekki lengur hægt að bjóða okkur upp á endalausar fréttir af óeirðum og sí- felldum breytingum í heilbrigðis- þjónustunni. Málflutningur stjórnar og stjórnarandstöðu ber þess merki að stjórnmálamenn og embættismenn eru ekki í nokkrum tengslum við at- vinnufyrirtækin í heilbrigðisþjónust- unni og hafa enga heildarsýn eða framtíðarsýn. Ástæðan er augljós, þeir gera ekki fólkið sem vinnur í málaflokknum að bandamönnum sín- um í lausn vandans. Þeir skapa fyr- irtækjunum í heilbrigðisþjónustunni geðveikan rekstrargrunn og efna sí- fellt til óeirða og er svarað í sömu mynt líkt og þessi grein ber með sér. Rekstrargrunnur heilbrigðisfyrirtækja er geðveikur Þórarinn Tyrfingsson skrifar um heilbrigðismál Þórarinn Tyrfingsson ’Að manni læðist ságrunur að ráðgjafarnir séu bilaðir eða þing- mennirnir komnir í fílabeinsturn.‘ Höfundur hefur borið ábyrgð í heilbrigðisrekstri í 28 ár. Í FRAMHALDI af grein Gísla Víkingssonar og Droplaugar Ólafs- dóttur, starfsmanna Hafrann- sóknastofnunar, „Hrefnurannsóknir og hvalaskoðun“ sem birt var í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag vilja Hvalaskoð- unarsamtök Íslands taka fram eftirfarandi: Þegar stjórnvöld ákváðu að hefja hval- veiðar hér við land síð- astliðið sumar var hvalaskoðunarfyr- irtækjum gefið loforð um að veiðar á hrefnu myndu ekki fara fram innan hvalaskoð- unarsvæða. Það loforð gaf sjávarútvegs- ráðherra og samskonar ummæli viðhafði Jó- hann Sigurjónsson for- stjóri Hafró á fundi Rótarýklúbbs Reykja- víkur í júlí á síðasta ári. Bæði aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra og aðstoðarforstjóri Hafró báðust síðan afsökunar á framferði hrefnuveiðibátsins Njarðar þegar bent var á að hann væri að eltast við hrefnu innan aug- lýsts hvalaskoðunarsvæðis á Faxa- flóa síðastliðið haust. Þessir menn fullyrtu einnig á sama fundi sem undirritaður átti með þeim í ráðu- neytinu að ekki yrði veitt innan hvalaskoðunarsvæðanna. Hvalaskoðunarfyrirtækin hafa um árabil auglýst helstu hvalaskoð- unarsvæðin í bæklingum sínum og miðað við upplýsingar Hafró um veiðistaði liggur fyrir að fjölmargar hrefnur voru skotnar innan þessara svæða. Það sætir furðu að Gísli og Droplaug reyni að þræta fyrir þetta. Við höfum hvergi haldið því fram að 1/3 dýranna hafi verið veiddur innan svæðanna eins og fullyrt er í grein Gísla og Droplaugar. Fjórð- ungur er nær lagi. Hvalaskoð- unarsamtökin hafa lagt áherslu á að dýrin voru veidd innan hvalaskoð- unarsvæða. Við erum ósammála full- yrðingu starfsmanna Hafró um að veiðarnar hafi farið fram í „góðu samkomulagi“ við hvalaskoð- unarfyrirtækin. Ákvörðun um að veiða dýrin innan hvalaskoð- unarsvæða var tekin einhliða af starfsmönnum Hafró og getur því varla tal- ist „gott samstarf“ Við vísum einnig á bug ummælum starfs- manna Hafró um að vöxtur í hvalaskoðun sé ekki mikið frá- brugðinn hjá hval- veiðiþjóðum og þeim sem ekki stunda hval- veiðar. Benda má á að í Noregi hefur hvala- skoðun verið stunduð frá árinu 1989, en þar fóru einungis rúmlega 20.000 ferðamenn í hvalaskoðun á síðasta ári. Á Íslandi hófst hvalaskoðun 1995 og á síðasta ári fóru 72.000 ferðamenn í hvala- skoðun. Kortið sýnir hvar hrefnur voru veiddar í haust (rauðu punkt- arnir) og um leið þau svæði sem hvalaskoð- unarfyrirtækin fara um í leit að hvölum (lituð svæði). Kortið sýnir að fjórðungur dýranna var veiddur inni á auglýstum hvalaskoðunarsvæðum eða í næsta nágreni við þau þrátt fyrir að bæði sjávarútvegsráðherra og forstjóri Hafró hafi fullyrt að það yrði ekki gert! Hvalaskoðunarsamtökin ítreka enn nauðsyn þess að gerð verði út- tekt á áhrifum hvalveiða á ferða- þjónustuna, útflutningsgreinarnar og ímynd landsins áður en ákvörðun verður tekin um framhald hvalveiða hér við land. Það eru ýmis álitamál og spurningar sem tengjast skoðun á þessum málum, bæði vísindaleg, efnahagsleg og siðfræðileg, en full- yrða má að allt of mikið af um- ræðunni hefur markast af tilfinn- ingahita. Og þar erum við Íslendingar ekkert frábrugðnir öðr- um þjóðum, bara með öðrum for- merkjum. Svikin loforð Ásbjörn Björgvinsson skrifar um hvalaskoðun og hvalveiðar ’Ákvörðun umað veiða dýrin innan hvalaskoð- unarsvæða var tekin einhliða af starfsmönnum Hafró…‘ Höfundur er formaður Hvalaskoðunarsamtaka Íslands. Ásbjörn Björgvinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.