Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 57
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 57 „ÉG verð bara að vinna leikinn í Madrid upp á eigin spýtur,“ sagði Oliver Kahn, markvörður og fyrirliði Bayern München, í viðtölum við þýska fjölmiðla í gær. Kahn var helsta skotmark þýsku íþróttapressunnar í gær í kjölfar herfilegra mis- taka í leik Bæjara og Real Madrid í Meistara- deildinni í fyrrakvöld þegar hann missti undir sig skot Carlosar af 30 metra færi. „Skólastrákamistök kostuðu Bayern sigurinn“ sagði í fyrirsögn Bild og í AZ-blaðinu í München var fyrirsögnin: „Kahn kom í veg fyrir krafta- verk“. Svipuð mistök hentu Kahn í úrslitaleik Þjóð- verja og Brasilíumanna á HM í S-Kóreu fyrir tveimur árum þegar hann missti undir sig laust skot Rivaldos þegar Brassar fögnuðu sigri, 2:0, og nudduðu þýskir fjölmiðlar salti í sár Kahns með því að rifja það upp. „Ég verð auðvitað að spyrja sjálfan mig hvað sé að gerast hjá mér þessa dagana. Ég hef sjald- an eða aldrei verið í betra formi og nú enda hef ég aldrei æft eins mikið. En það er eitthvað sem bjátar á og ég verð að leita skýringanna hjá mér sjálfum,“ sagði Kahn við fréttamenn í gær. Í síð- ustu viku gerði þessi frábæri markvörður sig sekan um mistök í landsleik Þjóðverja og Króata og í leikjum Bæjara í þýsku deildinni hefur hann ekki þótt of sannfærandi á milli stanganna. Kahn nýtur stuðnings þjálfara og forráða- manna Bayern-liðsins. „Hann hefur unnið marga leiki fyrir okkur og ég er alveg sannfærður um að hann gerir það í Madrid,“ sagði Karl-Heins Rummenigge, stjórnarmaður Bayern, en Kahn var hetja Bæjara í Meistaradeildinni vorið 2001 þegar hann varði þrjár vítaspyrnur í vítaspyrnu- keppninni í úrslitaleiknum gegn Valencia. Kahn hefur ekki gengið heill til skógar og til að mynda missti hann af leik Bayern gegn Hamburger um síðustu helgi vegna bakmeiðsla. Kahn kennir þó ekki þeim meiðslum um ófar- irnar gegn Real Madrid. „Þetta skot átti ég að stöðva jafnvel þó svo ég hefði engar hendur né fætur,“ sagði Kahn. Þýsku götublöðin hafa undanfarna mánuði birt ótt og títt fréttir af markverðinum eftir að hann skildi við ófríska eiginkonu sína á síðasta ári og tók í stað hennar ástfóstri við gengilbeinu á þrítugsaldri. „Verð að vinna leikinn í Madrid,“ segir Oliver Kahn, fyrirliði Bayern Reuters Oliver Kahn eftir mistökin. NÍNA K. Björnsdóttir er byrjuð að æfa á nýjan leik með Íslandsmeist- urum ÍBV í handknattleik en hún hefur ekkert leikið með Eyjaliðinu eftir áramótin bæði vegna meiðsla og anna í vinnu. „Ég fagna því mjög að vera búinn að fá Nínu aftur í liðið. Hún styrkir hópinn og ekki veitir af í þeim verk- efnum sem eru framundan hjá okk- ur,“ sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, við Morgunblaðið í gær. Aðalsteinn reiknar með að tefla Nínu fram í úrslitaleiknum í bikar- keppninni á lugardaginn, en þá mæta Eyjastúlkur liði bikarmeist- ara Hauka úr Hafnarfirði gegn bik- armeisturum Hauka. Nína lék með Haukum og þar áður Stjörnunni. Nína aftur með ÍBV  SKÍÐAKONAN Emma Furuvik tók þátt í heimsbikarmóti í stórsvigi í Åre í Svíþjóð á sunnudaginn. Hún var ein fjölmargra sem komust ekki áfram í aðalkeppnina.  MALMÖ FF, lið Ásthildar Helga- dóttur, landsliðsfyrirliða í knatt- spyrnu, sigraði enska liðið Arsenal, 3:1, í æfingaleik í London í gær. Ást- hildur missti af leiknum þar sem hún veiktist eftir fyrsta leik sænska liðs- ins í Englandsferðinni. Hann var gegn Charlton í fyrrakvöld og end- aði 3:3.  HANNES Þ. Sigurðsson lék allan leikinn með Viking frá Stavanger sem sigraði bandaríska liðið Metro- stars, 1:0, í æfingaleik á La Manga á Spáni í gær.  HELGI Sigurðsson, landsliðs- framherji í knattspyrnu, lék hins- vegar ekki með danska liðinu AGF sem vann Wisla Plock frá Póllandi, 2:1, á Kýpur.  FELIX Magath, þjálfari Stutt- gart, framlengdi samning sinn við félagið um tvö ár í gær – hann er samningsbundinn því til sumarsins 2007.  EMILE Heskey mun ekki leika með Liverpool gegn Levski Sofía á Anfield í kvöld í UEFA-leik liðanna. Hann er meiddur í baki. Salif Diao og Vladimir Smicer eru einnig úr leik vegna meiðsla.  GERARD Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, segist viss um að hann verði við stjórnvölinn hjá liðinu á næstu leiktíð. Houllier situr undir vaxandi gagnrýni um þessar mundir þar sem árangur Liverpool hefur verið lakari en vonir stóðu til. Houll- ier segist viss um að Liverpool takist að ná 4. sæti í ensku úrvalsdeildinni og öðlast rétt til þátttöku í Meist- aradeild Evrópu næsta vetur.  BIXENTE Lizarazu verður ekki með Bayern München þegar liðið mætir Real Madrid í síðari viðureign liðanna í Meistaradeildinni í Madrid 10. mars. Frakkinn varð fyrir meiðslum í læri og er reiknað með að hann verði frá æfingum og keppni næstu tvær til þrjár vikurnar.  MALCOLM Glazer, bandarískur viðskiptajöfur, jók í gær eignarhlut sinn í Manchester United. Glazer keypti milljón hluti í félaginu á 265 pens hvern og á nú 16,69% í United, en átti fyrir viðskiptin í gær 16,31%. Stærstu hluthafar eru sem fyrr Ír- arnir John Magnier og JP McManus en þeir eiga samtals 28,9%.  KEVIN Blackwell, þjálfari hjá Leeds, hefur verið orðaður við fram- kvæmdastjórastólinn hjá South- ampton.  CHRISTOPHE Dugarry, leik- manni Birmingham, hefur verið boð- ið að samningur hans við félagið verði greiddur upp þannig að hann geti farið strax frá félaginu. FÓLK „AUÐVITAÐ er aldrei hægt að full- yrða neitt fyrirfram, en ég tel að ef allt er eðlilegt þá eigum við að verða í baráttu við Armeníu um efsta sæt- ið í 3. deild,“ segir Magnús Jón- asson, formaður íshokkífélagsins Bjarnarins og íshokkífrömuður, þegar leitað var til hans í gær vegna fyrirhugaðrar keppni í 3. deild heimsmeistaramótsins í íshokki sem fram fer í Skautahöllinni í Laug- ardal 16. til 21. mars nk. Þá keppir íslenska landsliðið við Armena, Íra, Tyrki og Mexíkó í 3. deild heims- meistaramótsins. Efsta þjóðin tryggir sér þátttökurétt í 2. deild heimsmeistaramótsins. Írar og Armenar hafa ekki spreytt sig í fullorðinsflokki í ís- hokkí á alþjóðlegum mótum síðustu ár. Mexíkóar kepptu hér á landi fyr- ir tveimur árum og þá voru þeir lak- ari en Íslendingar. Tyrkir eiga að vera með lakasta liðið enda reka þeir lestina á styrkleikalista Alþjóða íshokkísambandsins. „Það er samt aldrei að vita hversu sterkt Mexíkó er. Það getur vel ver- ið að það hafi fengið Bandaríkja- menn með mexíkósk vegabréf til liðs við sig, en að öllu jöfnu eigum við að vera með sterkara lið,“ segir Magnús sem telur að það megi bú- ast við sterku liði frá Armeníu vegna þess að þar sé hefð fyrir íþróttinni frá Sovét-tímanum. Arm- enar voru útilokaðir frá keppni á al- þjóðlegu móti í fyrra þegar þeir hugðust tefla fram liði leikmanna sem allir voru með rússnesk vega- bréf. „Þá setti Alþjóða íshokkísam- bandið Armenum stólinn fyrir dyrn- ar. Síðan hafa Armenar örugglega kippt sínum málum í liðinn, víst er að þeir mæta með löglegt lið núna, þótt það verður kannski skipað fyrr- verandi Rússum,“ segir Magnús. Nýlega valdi Peter Bolin, lands- liðsþjálfari Íslands í íshokkí, hóp 23 leikmanna en auk þess hyggst hann velja til viðbótar nokkra leikmenn sem búa og leika í Evrópu, aðallega á Norðurlöndunum. Reiknað er með að þegar endanlegur æfingahópur verði klár þá skipi hann 26 leik- menn. Af þeim þarf Bolin síðan að velja 20 leikmenn, 18 útileikmenn og tvo markverði til þess að leika fyrir hönd Íslands í 3. deildar keppninni. Íslendingar sterkastir Birgir tók við formennsku af PáliHreinssyni á ársþingi SÍL um síðustu helgi. Birgir hefur verið í stjórn SÍL sl. tíu ár og sagðist ekki hafa getað skorist undan að taka að sér formannsstarfið þegar eftir var leitað þegar ljóst var að Páll gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Birgir Ari segir það skipta íþrótt- ina hér á landi miklu máli að eiga keppanda á Ólympíuleikunum í sum- ar og því verði staðið þétt við bakið á Hafsteini Ægi á næstu vikum og mánuðum. Hann eigi nokkuð góða möguleika á að taka þátt í leikunum, en hann var einnig með á ÓL í Sydn- ey fyrir fjórum árum. Hafsteinn hafi æft í Frakklandi í vetur, sé heima í fríi um þessar mundir en haldi á ný út í mars þar sem hann stundar æf- ingar og keppni af krafti fram að heimsmeistaramótinu sem fram fer í Tyrklandi í maí. Þá kemur í ljós hvort hann verður á meðal þeirra fjörutíu siglingamanna sem keppa í laser-kænuflokki á leikunum. „Hver þjóð fær aðeins eitt sæti á leikunum og þegar hafa 32 þjóðir tryggt sér keppnisrétt. Hafsteinn er einn þeirra sem kemur til með að berjast um eitt þeirra átta sæta sem eftir á að ráðstafa og ég tel möguleika hans á því að tryggja sér eitt þeirra vera raunhæfa, en þetta kemur allt í ljós að heimsmeistarakeppninni lokinni,“ segir Birgir sem var Hafsteini til halds og trausts á Ólympíuleikunum í Sydney. Nú eru sjö siglingafélög virk á landinu en þau eru á höfuðborgar- svæðinu, á Suðurnesjum, á Akureyri og Ísafirði. Alls eru skráðir um 1.500 iðkendur hjá félögunum sjö og sagði Birgir að áhugi hefði aukist mikið á undanförnum árum, ekki síst vegna vaxandi áhuga á róðri. „Það hefur sannkölluð sprenging átt sér stað í róðraíþróttinni víða um land enda til- tölulega þægileg íþrótt að eiga við,“ segir Birgir sem ætlar ásamt stjórn sinni að leggja ríka áherslu á út- breiðslumál í vor og sumar. „Draum- ur okkar er að fara með nokkra báta á kerrum um landið og kynna sigl- ingaíþróttina sem víðast því úti um landið er öll aðstaða fyrir hendi og einnig áhugi, það er bara spurningin um að virkja hann,“ segir Birgir Ari Hilmarsson, nýkjörinn formaður Siglingasambands Íslands. Birgir Ari Hilmarsson, nýkjörinn formaður Siglingasambands Íslands Mikilvægt að eiga keppanda í Aþenu „ÞAÐ verður engin kúvending í stjórn sambandsins en ljóst er að við höfum í hyggju að leggja aukinn þunga í útbreiðslu- og kynning- armál íþróttarinnar. Fyrst um sinn verður hins vegar megináhersla lögð á að styðja við bakið á Hafsteini Ægi Geirssyni til að geta náð því markmiði að keppa á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar,“ segir Birgir Ari Hilmarsson, nýkjörinn formaður Siglingasambands Ís- lands (SÍL), í samtali við Morgunblaðið. Birgir Ari Hilmarsson, formaður Siglingasambands Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.