Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 31 Klassískt nudd, vöðvanudd, slökunarnudd, andlitslyfting, varanleg förðun, hárlenging og hárlengingarnámskeið. Linnet Jones and Sakina Laugavegi 101 - S: 551 2042 fyrir eftir Hair and Body Art ... að hafa ÞORRABLÓTIÐ eða ÁRSHÁTÍÐINA svolítið öðruvísi í ár með því að halda veisluna á einhverjum óvenjulegum stað.    Upplýsingar í síma 562-7700 • travel-2.isallt að 150 manns 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s LISTASAFN Reykjanesbæjar geymir þessa dagana verk portú- galska listamannsins Carlosar Barã- os, sem síðast sýndi hér á landi í Saltfisksetrinu í Grindavík árið 2002 og fellur því væntanlega í flokk hinna sífjölgandi Íslandsvina. Það er óneitanlega óróleiki í list Barãos sem einkennist af primitíf- um, eða frumstæðum, krafti sem liggur líkt og rauður þráður í gegn- um sýninguna. Fyrir vikið er líka sterkur heildarsvipur með myndun- um 13, sem engu að síður má skipta í þrjá ólíka flokka. Þannig er einn flokkurinn byggður upp af riss- myndum þar sem 4–6 ólíkir mynd- flekar, sem endurspegla hina mynd- flokkana tvo, eru látnir um að mynda hverja verkheild, annar flokkurinn einkennist hins vegar af láréttum línuverkum sem einkennast af öllu meiri kyrrð og friði en önnur verk Barãosar og loks má svo nefna hin órólegu hringmynduðu verk á borð við My team, Upper Circle og Game Boy og þar er það hrár ljótleikinn sem hafður er í fyrirrúmi. Það er óneitanlega viss hraði í verkum Barãosar sem unnin eru í brúnum, bleikum, rauðum blágráum og svörtum litatónum er auka ásamt tæknilegri nálgun listamannsins á viðfangsefni sínu á hið primitífa yf- irbragð. Hér er slett og skafið í mál- aðan grunn og hraðar pensilstrokur yfirborðsins. Barnsleg rithönd þar sem heiti verksins hefur verið skrif- að með stirðbusalegum hætti í myndflötinn er þá ekki síður í þess- um anda. Ólík nálgun Barãosar á viðfangs- efni sitt skilar hins vegar misáhrifa- miklum verkum. Þannig eru verk á borð við Watch the Game, Run Baby run, My Team og Watch Me og önn- ur þau verk þar sem listamaðurinn einbeitir sér að einu ákveðnu við- fangsefni mun sterkari en samsettu og nafnlausu myndflekarnir þrír sem um margt eru ekki annað en ófullkomið endurvarp hinna verk- anna. Í verki nr. 9 má svo dæmi sé tekið sjá endurtekningu myndanna Watch the Game, Run Baby run, How to win og Watch Me, hvert á sínum flekanum, sem eins konar hröð, ófullgerð skissa hvers verks fyrir sig sem hér er stillt upp saman án þess að augljós tenging nái að myndast. Fyrir vikið verða viðbrögð sýningargesta líka eingöngu við hröðu áreiti ólíkra augnablika í stað myndefnisins sjálfs sem í myndum á borð við hina hauskúpulaga My Team, býr ein og sér yfir nægum æs- ingi og óróleika til að krefjast fullrar athygli áhorfandans. Og þó að hin allt að því kyrralífslegu láréttu myndbyggingar verka á borð við Watch the Game og Run Baby run séu e.t.v. rólegri á að líta nýtur list Barãosar sín samt sem áður best undir þeim formmerkjum að hvert og eitt verkanna fái athygli áhorf- andans fulla og óskipta. Grjót og gróður Það er öllu meiri friður yfir verk- um Sunnu Bjargar Sigfríðardóttur sem nú sýnir verk sín í Teitsgalleríi í Kópavogi, nýjum sýningarstað á höf- uðborgarsvæðinu sem opnaður var rétt fyrir jól í verslunarkjarnanum Engihjalla. Sunna Björg hefur enda valið sér grjót og gróður úr nátt- úrunni sem viðfangsefni á þessari þriðju sýningu sem haldin er í gall- eríinu, sem hentar ágætlega fyrir sýningu smærri verka. Flest verka Sunnu Bjargar á sýn- ingunni Draumur eru teikningar og sýnir listakonan sig hafa ágætt vald á miðlinum og búa verkin mörg hver yfir bæði dýpt og mýkt sem hentar myndefninu þar sem einfaldleikinn er hafður í fyrirrúmi. Þannig velur Sunna Björg ýmist grjót, sjávarlíf- verur eða gróður sem myndefni og beinir athyglinni að einum hlut – laufblaði, rós eða steini sem strípað hefðbundnu umhverfi sínu verður viðkvæmnislegra á að líta. Þessi að- ferð Sunnu Bjargar nýtur sín einkar vel í verkum nr. 1 og 3. Í fyrrnefnda verkinu skilar rúnað form, sléttleiki og mýkt grjótsins sér vel og í raun mun betur en í verkum nr. 9 og 11 þar sem formmyndun grjótsins er endurtekin með öðrum áherslum. Sami styrkur listakonunnar er aug- ljós í verki nr. 3, margfaldlega stækkaðri rós, sem sýnir að hún hræðist ekki viðfangsefni sitt. Styrk- ur og ákveðni áðurnefndra verka nær þó ekki að njóta sín í öllum verk- um Sunnu Bjargar og er ekki laust við að visst óöryggi geri vart við sig í ljósleitari og fíngerðari verkum lista- konunnar. Þannig er til að mynda viss stirðleiki yfir teikningunni í verki nr. 13 svo dæmi sé tekið og eins er líkt og viss hræðsla við miðilinn geri vart við sig í verki nr. 11. Sunna Björg hefur engu að síður í flestum tilfellum gott vald á teikn- ingunni sem miðli sínum, þó verk nr. 2 sé skemmtileg vísbending um að málverkið sé miðill sem henti henni e.t.v. ekki síður. Verkið, sem er sterk og ákveðin abstrakt mynd í hárauð- um lit, sker sig líka fullkomlega frá öðrum verkum sýningarinnar sem gefur til kynna að listakonan kunni að eiga sér aðra og áhugaverða hlið sem vonandi á eftir að bera meira á í framtíðinni. Kyrrð og óróleiki MYNDLIST Listasafn Reykjanesbæjar CARLOS BARÃO Sýningin stendur til 14. mars. Hún er opin alla daga frá kl. 13–17. Teitsgallerí DRAUMUR SUNNA BJÖRG SIGFRÍÐARDÓTTIR Sýningin stendur til 12. mars. Hún er opin í dag og föstudag frá kl. 18– 20, virka daga í næstu viku frá kl. 14–18 og vikuna þar á eftir frá kl. 18–20. Anna Sigríður Einarsdóttir Run Baby run eftir Carlos Barão. Morgunblaðið/Þorkell Verk nr. 1 á sýningu Sunnu Bjargar Sigfríðardóttur, Draumur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.