Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 19 HEKLA, Laugavegi 170-174, sími 590 5000 www.hekla.is, hekla@hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 HUGSAÐU LENGRA TERNO: ENN MEIRI BÚNAÐ UR Skoda Octavia hefur alltaf staðist samanburð við mun dýrari bíla í sama stærðarflokki. Og nú er forskotið orðið enn meira því við höfum fengið sendingu af Octavia Terno til landsins! Terno er mun betur búin útgáfa af Octavia, þar sem gengið er skrefinu lengra í glæsilegu útliti og þægindum, með rafdrifnum rúðum og álfelgum. Orðið Terno þýðir raunar óvæntur fengur á tékknesku, sem undirstrikar að þú ættir að drífa þig í HEKLU og tryggja þér eintak. SkodaOctavia Terno kostar frá 1.745 þús. N Ý O G B E T R I Ú T G Á F A F R Á S K O D A OCTAVIA TERNO AÐ ÞAÐ VÆRI EKKI HÆGT AÐ FÁ MEIRA OG ÞIÐ SEM HÉLDUÐ ÁLFELGUR RAFMAGN Í RÚÐUM 4 LOFTPÚÐAR FJARSTÝRÐAR SAMLÆSINGAR ABS HEMLAKERFI SPÓLVÖRN GEISLASPILARI 4 HÁTALARAR VÖKVASTÝRI AKSTURSTÖLVA SJÁLFSKIPTUR EÐA BEINSKIPTUR G O T T F Ó LK M cC A N N · S ÍA · 2 5 3 9 0 Innifalið í rekstrarleigu: 20.000 km akstur á ári, þjónustuskoðanir og smurþjónusta. Rekstrarleiga er háð gengi gjaldmiðla og getur því breyst án fyrirvara. Rekstrarleiga frá 27.900 kr. á mánuði. DANSKUR flugumferðarstjóri, sem var á vakt þegar rússnesk farþega- þota og flutningaflugvél skullu sam- an yfir Sviss árið 2002, var stunginn til bana á heimili sínu í bænum Klot- en í Sviss í gær. Hinn myrti var 36 ára gamall og búsettur í Sviss. Hann var einn á vakt við flugumferðar- stjórn á svæðinu þegar slysið varð 2002 en félagi hans hafði brugðið sér frá. Tveir voru í áhöfn flutningaflug- vélarinnar, sem var af gerðinni Boeing 757, en 69 manns fórust með rússnesku flugvélinni, sem var af gerðinni Tupolev 154, þar af 52 börn og unglingar frá sjálfstjórnarlýð- veldinu Bashkortostan í Úralfjöllum. Þau höfðu unnið ferð til Spánar í verðlaun fyrir góðar einkunnir. Lög- regla í Sviss leitar nú morðingjans, sem sagður er vera um fimmtugt og tala lélega þýsku. Hann bankaði upp á heima hjá flugumferðarstjóranum og stakk hann til bana í dyragættinni en flúði af vettvangi. Talsmaður svissneska flugum- ferðarstjórnarfyrirtækisins Sky- guide, þar sem Daninn vann, viður- kenndi á sínum tíma, að sögn fréttavefjar BBC, að bilanir hefðu orðið í kerfinu en Daninn er talinn hafa sagt flugmanni að lækka flugið þótt viðvörunarbúnaður í vélinni mælti gegn því. Skyguide sagði í gær að flugumferð um loftrýmið yfir Zürich-Kloten yrði takmörkuð í ör- yggisskyni í kjölfar morðsins. Um væri að ræða varúðarráðstöfun þar sem kollegar hins myrta flugumferð- arstjóra væru miður sín vegna ör- laga hans. Flugumferðar- stjóri myrtur Genf. AFP. RÁNFISKUR, sem Norðmenn kalla Kanadareyði eða Kanadableikju, er farinn að ógna vistkerfinu í norskum vötnum. Norska náttúrufræðastofnunin, NINA, gerir hvað hún getur til að útrýma framandi fisktegundum í norskum vötnum og ám og þar er Kanadareyðurin efst á blaði. Var henni fyrst komið til í sænskum og finnskum vötnum og síðan hafa stangveiðimenn gerst sekir um að dreifa fiskinum viljandi til að hafa úr meiru að moða í veiðinni. Kom þetta fram á fréttavef Aftenposten í gær. Fyrsta Kanadareyðurin veiddist í Kvesjøen í Norður-Þrændalögum fyrir tveimur árum og var hún met- ers löng og 10 kíló. Nú er hún komin í tvö vötn önnur og líklega fleiri. Odd Terje Sandlund, sem vinnur við rannsóknir hjá NINA, segir, að Kanadareyðurin eyðileggi líffræði- lega fjölbreytileika í þeim vötnum, sem hún kemst í, og sé auk þess miklu lakari matfiskur en urriði eða bleikja. Telur hann eins víst, að bar- áttan við hana sé þegar töpuð. Kanadareyðurin (Salvelinus namaycush) er skæður fiskur. Ránfiskur ógnar vist- kerfinu ÖKUMENN í Helsinki, höfuðborg Finnlands, geta framvegis gleymt öllu um þriðja, fjórða og fimmta gír- inn á bílum sínum þegar þeir eru innan borgarmarkanna. Hér eftir mega þeir aðeins aka þar á 30 km hraða. Í borgarstjórninni hefur verið mikil umræða um þetta mál í langan tíma og nú hefur verið ákveðið að lækka hámarkshraðann úr 50 km í 30 km á klukkustund. Sagði frá því í dagblaðinu Helsingin Sanomat í gær. Gildir það einnig um mörg íbúðahverfi utan borgarmarkanna. Eina undantekningin er sú að á meginumferðaræðum borgarinnar má aka á 40 km hraða. Hámarkshraði 30 km í Helsinki ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.