Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 61 www. lands bank i. is s ími 5 6 0 6 0 0 0 Árlega veitir Landsbankinn ellefu námsstyrki til virkra viðskiptavina Námunnar. Styrkirnir skiptast þannig: • 3 styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms á Íslandi, 100.000 kr. hver • 2 styrkir til háskólanáms á Íslandi, 200.000 kr. hvor • 2 styrkir til BS/BA-háskólanáms erlendis, 300.000 kr. hvor • 2 styrkir til meistara/doktors-háskólanáms erlendis, 400.000 kr. hvor • 2 styrkir til listnáms, 200.000 kr. hvor Umsóknarfrestur er til og með 31. mars. Í S L E N S K A A U G L Ý S IN G A S T O F A N /S IA .I S L B I 2 3 5 9 5 0 2 /2 0 0 4 Námsstyrkir til Námufélaga Kjörið tækifæri til að fá fjárhagslegan stuðning meðan á námi stendur Allar nánari upplýsingar má finna á www.landsbanki.is og þar má einnig nálgast skráningarblað sem nauðsynlegt er að fylgi hverri umsókn. Umsóknum skal skilað í næsta útibú Landsbankans, merkt: Námustyrkir, Markaðs- og þróunardeild Landsbankans, Austurstræti 11, 155 Reykjavík. Styrkirnir eru afhentir í byrjun maí. SKÓLABLAÐ Verzlunarskólans hefur ævinlega verið sérlega vand- að og er eiginlega orðið að bók frek- ar en blaði. Ólafur Páll Ólafsson sem ritstýrði blaðinu að þessu sinni segir ástæðuna fyrir því að svo mik- ið sé lagt í skólablöðin sem raun ber vitni, vera þá að hugsunarhátturinn í Versló hafi af einhverjum ástæð- um ævinlega verið sá að toppa blað- ið frá árinu á undan. „Þau sem gáfu út blaðið í fyrra sprengdu eiginlega allan skalann með því að hafa blaðið innbundið í harðspjöld. Okkur í rit- nefndinni núna var því ekki stætt á öðru en hafa þetta enn flottara.“ Verzlunarskólablaðið í ár er því bæði í stærra broti en í fyrra, heilar 245 blaðsíður, innbundið í harð- spjöld og auk þess í viðhafnaröskju. „Uppsetjarinn hjá okkur var sá sami og í fyrra, Ólafur Breiðfjörð, sem er alveg rosalega fær á sínu sviði eins og sjá má þegar blaðinu er flett.“ Ísland er langflottast Og í flettingum kemur líka í ljós að pappírinn er ekkert slor og allt í lit. Íslensku fánalitirnir rauður, blár og hvítur eru áberandi í blaðinu enda er Ísland þema blaðsins þessu sinni. Sjálft föðurlandið. „Í sam- hengi við þetta þema þá skiptum við blaðinu í þrjá kafla með heitum ís- lenska fánans: Eldur, vatn og ís. Með hverju þessara þriggja ele- menta fylgir ljóð með ljósmynd sem nær yfir eina og hálfa síðu.“ Í blaðinu eru líka viðtöl við hin fjögur fræknu, eins og Ólafur Páll kallar þau: Íslendinga sem hafa skarað fram úr hver á sínu sviði: Ólaf Ragn- ar Grímsson forseta Íslands, Björk Guðmundsdóttur tónlistarkonu Ís- lands, Eið Smára Guðjohnsen íþróttamann Íslands og Ingvar E. Sigurðsson leikara Íslands. En hversvegna Íslandsþema? „Hugmyndin um Íslandsþemað kom fljótt upp hjá ritnefndinni og tilgangurinn er auðvitað að fylla alla af þjóðarstolti. Enda er Ísland best,“ segir Ólafur Páll með dul- arfullri blöndu af drambi og húmor. Minningargrein um Keikó Heilmikið spennandi efni er í blaðinu auk stóru viðtalanna við stóru Íslendingana, t.d. dagbók of- urhuga, smásögur og ljóð, minning- argrein um Íslendinginn Keikó, grein um að vera kvenkyns, um deit, um vöðvafíkn og viðtal við guð, svo fátt eitt sé nefnt. Og glás af aug- lýsingum, því heilmikið hljóta her- legheitin að kosta. Ólafur Páll fær- ist undan því að nefna kostnaðartölu en segir að blaðið standi undir sér. „Við erum með sjö- tíu auglýsingar og í um helming þeirra sköffuðum við sjálf ljósmynd- ara og módel, síðan erum við með sjöhundruð gamla Verzlinga sem eru áskrifendur að blaðinu og hvert eintak kostar 1.900 krónur og svo keypti Þorvarður skólastjóri 150 eintök sem hann lætur dreifa í grunnskóla og á hina ýmsu staði, þannig að þetta reddast.“ Peysufatadagurinn framundan Einar tíu opnur hér og þar í blaðinu eru lagðar undir nafn- greindar myndir af fjórðubekk- ingum skólans. „Þetta eru annars árs nemendur skólans og framundan hjá þeim er sú hefð og hátíð sem kallast peysu- fatadagur og þá er svaka stuð.“ Ofan á allt saman var svo haldin útgáfuhátíð í Háskólabíói sl. föstu- dag, þar sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, var viðstaddur og flutti ræðu í tilefni dagsins. „Hann fór á kostum og var alveg rosalega skemmtilegur,“ segir nafni hans Ólafur Páll og bætir við að á hátíðinni hafi verið sýnt myndband sem tengdist Íslandsþema blaðsins. „Þar voru íslenskir fossar, eldfjöll og annað rammíslenskt í aðal- hlutverki, Vala Flosa að stökkva af sinni alkunnu snilld og ýmislegt fleira og tónlist Bjarkar hljómaði undir,“ segir Ólafur Páll að lokum, hæstánægður með glæstan afrakst- ur ritstjórnarinnar. 70. árgangur Verzlunarskólablaðsins kominn út Veglegt blað og útgáfuhátíð Morgunblaðið/Páll Bergmann Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskól- ans, ásamt stoltri ritnefnd á hátíð í Háskólabíói sem haldin var í tilefni útkomu 70. heftisins. Morgunblaðið/Eggert Ólafur Páll Ólafsson ritstjóri kampakátur með eitt veg- legt eintak og askjan góða við hlið hans í sófanum. khk@mbl.is Og í aðalhlutverki Pancho Villa sjálfur (And Starring Pancho Villa Himself) Drama Bandaríkin 2003. Skífan VHS. (117 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjóri Bruce Beresford. Aðalhlutverk Antonio Banderas, Alan Arkin, Jim Broadbent. ANTONIO Banderas fer á kost- um í þessari ágætu sjónvarpsmynd sem tekur á skemmtilegan hátt á sérkennilegu skeiði í sögu Banda- ríkjanna á fyrstu árum 20. aldarinn- ar þegar vestrið hætti að vera villt. Þá urðu árekstrarn- ir eins og gefur að skilja margir, stundum sorglegir en einnig skondnir eins og í þessu fjar- stæðukennda dæmi. Myndin gengur nefnilega út á það þegar D.W. Griff- ith og félagar í Hollywood fengu þá flugu í höfuðið að byltingin í Mexíkó gæti verið hið fínasta efni í bíómynd- ir, og þá sér í lagi byltingarleiðtoginn sjálfur, Pancho Villa. Buðu þeir hon- um því fúlgur fjár í byltingarsjóðinn gegn því að fá að mynda hann og gera úr honum kvikmyndastjörnu, sem var samþykkt. Banderas leikur Villa af miklum og trúverðugum krafti og drífur áfram annars fremur máttvana mynd hins mistæka Beres- fords (Driving Miss Daisy). ½ Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Þegar vestr- ið hætti að vera villt LHASA/The Living Road Mikil og merkileg uppgötvun fyrir mann, þessi 31 árs gamla mexí- kóska-bandaríska-kanadíska tónlist- arkona. Ekkert skrýtið að hún sé að ná til eyrna fólks með þessari annarri plötu sinni því hún er aldeilis magnaður seiður sem satt best að segja er erfitt að lýsa svo vel sé. Þetta er heimstónlist, svo mikið er víst, og hún er grípandi. Ræturnar eru klárlega suðrænar, mexíkóskar eins og gefur að skilja, en það segir ekki einu sinni hálfa söguna því áhrifin sem greina má eru ómælandi mörg og úr öllum áttum. Þetta er til- gerðarleg samlíking, vissulega, en það er eins og hin víðförla Lhasa De Sela leiði mann í ferðalag um heim- inn sem á sér endastöð á mettuðu kaffihúsi í öngstræti í París, djass- inn og blúsinn ómar í grunninn (Billie Holiday er helsta átrún- aðargoð Lhösu), Almodovar-mynd uppi á tjaldinu og ilmandi indversk- ur matur í boði. Þannig minnir Lhasa mann stundum á hina lítt þekktu en frábæru bresku og ind- verskættuðu Susheela Raman sem tekist hefur með ævintýralegri út- komu að sameina indverska arfinn einhvers konar breskum djassi. Frábær plata sem höfðar til miklu fleiri en ætla mætti í fyrstu.  Skarphéðinn Guðmundsson Erlendar plötur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.