Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 39 FRÁBÆRT VERÐ ! OSRAM flúrperur Lumilux Daylight, Lumilux Cool White Lumilux Warm White Lumilux Interna Kaupbætir fy lg i r hver jum 100 stk af perum. Jóhann Ólafsson & Co Johan Rönning Reykjavík/Akureyri Rekstrarvörur Reykjavík Rafbúðin Álfask. Hfj. Rafbúð R.Ó. Keflavík Árvirkinn Selfoss Faxi Vestmannaeyjar Rafás Höfn S.G. Raftv. Egilsstaðir Víkurraf Húsavík Ljósgjafinn Akureyri Tengill Sauðárkrókur Straumur Ísafjörður Glitnir Borgarnes Rafþj.Sigurdórs Akranes Það birtir til með OSRAM ÉG HEF á undanförnum misserum skrifað nokkrar greinar í Morg- unblaðið til að vekja athygli á þeim að- búnaði, sem stjórn- endur Akureyrarbæjar bjóða öldruðum bæj- arbúum. Þótt ég segi sjálfur frá held ég að þessi skrif hafi ýtt við fólki. Í kjölfarið hefur farið af stað mikil um- ræða um þessi mál og sem betur fer virðist það hafa orðið til þess, að bæjarstjórnarmenn hafa vaknað af löngum Þyrnirósarsvefni. Jafn- vel er ekki útilokað, að Jakob Björnsson, oddviti framsókn- armanna, hafi aðeins rumskað. Stað- reyndin er nefnilega sú, að það er bæj- arstjórnendum til háborinnar skammar hvernig búið hefur verið að þessum aldurshópi. Á undanförnum árum hafa tugir aldraðra Akureyringa beðið eftir rými á dvalarheimilum á vegum bæjarins. Þar af hafa lengstum verið um þrír tugir aldraðra, sem hafa verið í sárri þörf fyrir hjúkrun. Þetta fólk hefur átt lífið undir heimahjúkrun og ætt- ingjum, sem sumir hverjir hafa þurft að minnka við sig vinnu til að geta sinnt mömmu eða pabba, afa eða ömmu. Þrátt fyrir þetta var ekkert gert ár eftir ár til að bæta úr ástand- inu. Það er ríflega hálfur annar áratug- ur frá því að stjórnendur bæjarins hafa gert eitthvað róttækt til að bæta hag aldraðra, sem þurfa á umönnun og hjúkrun að halda. Framsóknarmenn fóru mikinn í síð- ustu bæjarstjórnarkosningum og lof- uðu úrbótum. Þeir skrifuðu síðan und- ir samning við flokksbróður sinn, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, þeg- ar hann var að ganga til alþingiskosn- inga. Samkvæmt því áttu framkvæmdir við ný- byggingu fyrir aldraða á Akureyri löngu að vera hafnar. Ekkert bólar á framkvæmdum enn, enda kom í fréttum í vik- unni, að verið er að semja við hönnuði. Þessi bygging verður því ekki tilbúin fyrr en 2006 í fyrsta lagi. Eftir að stjórnendur bæjarins höfðu legið undir feldi í nokkra mán- uði í leit að húsnæði til bráðabirgða datt þeim snjöll lausn í hug. Hvernig væri að gera upp gamla elliheimilið í Skjaldarvík? Það hefur staðið autt síð- an í lok síðustu aldar, þegar vistmenn þar voru fluttir á burt, sumir nauðugir, og settir í Kjarnalund. Síðan hafa þessar eignir ekki orðið bænum til gagns, það var Stefán heitinn Jónsson sem kom þessu elliheimili upp og gaf bænum síðan eignirnar og jörðina. Hvernig stjórnendur bæjarins hafa spilað úr þessari stórgjöf er enn ein skömmin í hatt bæjarins varðandi að- búnað fyrir aldraða. En batnandi mönnum er best að lifa. Loksins vöknuðu stjórnendur bæjarins af dvala og áttuðu sig á, að með tiltölulega litlum tilkostnaði mætti endurbæta eignirnar til að gera þar boðlegt hjúkrunarheimili samkvæmt kröfum nútímans. Og þá skorti ekki upp á stórhuginn maður minn; ákveðið var að hafa þetta fyrir fimmtán manns, þótt ljóst væri að ríflega helmingi fleiri bíða í sárri neyð eftir vistun á slíku hjúkrunarheimili. Hefði nú ekki mátt hugsa aðeins stærra? Að mínu mati þarf að horfa til fram- tíðarskipulags um nýtingu mannvirkja og landkosta í Skjaldarvík. Þetta var „út úr“ eins og sagt var, en samgöngur nútímans hafa eytt þeim þröskuldi. Þess vegna finnst mér vel koma til greina, að byggja þarna upp öldr- unarþjónustu til framtíðar, jafnvel samhliða annarri mannlegri ræktun til líkama og sálar fyrir alla aldursflokka. Þarna er kjörið svæði til útivistar; þarna mætti koma upp golfvelli og göngustígum, svo dæmi séu tekin. Að- stæður frá náttúrunnar hendi gætu ekki verið betri. Það mega stjórnendur bæjarins á undanförnum árum eiga, að þeir hafa lagt nokkurn metnað í uppbyggingu heimahjúkrunar og félagsaðstöðu fyrir aldraða, þannig að fólk geti dvalið sem lengst á eigin vegum í eigin húsnæði. Starfsmenn dvalar- og hjúkr- unarheimilanna, heimahjúkrunar og félagsmiðstöðvanna hafa raunar bjarg- að því sem bjargað verður í þessum málaflokki með einstaklega fórnfúsu starfi, langt umfram það sem kjara- samningar og launakjör krefjast. En nú ætla stjórnendur bæjarins enn að höggva að öldruðum með því að skerða þessa þjónustu eða leggja á hana gjöld, sem aldraðir standa ekki undir. Þar að auki á að takmarka eftirgjöf á fast- eignaskatti til aldraðra og skapa þeim alls konar amstur við að fá þessa eft- irgjöf. Hafa þeir nú ekki greitt nóg í bæjarhítina í gegnum árin? Á sama tíma og bæjarstjórnarmeirihlutinn lætur sig hafa að plokka nokkrar krón- ur upp úr vösum aldraðra kastar hann 30 milljónum króna í hlutafé í kjötiðn- aðarfyrirtækinu Norðlenska, sem hef- ur verið á brauðfótum í mörg ár. Hvað mega dugandi Kjarnafæðismenn segja, sem eru í harðri samkeppni við þetta „bæjarkjötfyrirtæki“, sem KEA á að stærstum hluta? Hanga enn leyni- þræðirnir milli Framsóknar og KEA í bæjarstjórn? Umræðan að undanförnu virðist hafa leyst krafta úr læðingi. Aldraðir hafa verið seinþreyttir til vandræða við bæjarstjórnarmenn og þeir hafa gengið á lagið. En seinagangurinn við að koma upp hjúkrunarrýmum, ný gjaldtaka á félagsþjónustuna, auknir fasteignaskattar og sleifarlag við að koma upp félagsþjónustu á Bjargi virðist vera kornið sem fyllti mælinn. Aldraðir hafa látið heyra í sér. Þeir hafa komið mótmælum sínum á fram- færi við stjórnendur bæjarins. Aldr- aðir láta ekki bjóða sér þetta lengur. Húrra fyrir þeim. Nú verður formaður félagsmálaráðs, Jakob Björnsson, og hans menn í Framsókn, sem töluðu með fagurgala til aldraðra fyrir síðustu kosningar, að bretta upp ermar og láta verkin tala. Aldraðir sætta sig ekki við annað. Öldruðum Akureyringum er freklega misboðið Sverrir Leósson skrifar um aldraða á Akureyri ’Þeir láta ekki bjóða sérsofandahátt bæjar- stjórnarinnar í mál- efnum aldraðra lengur.‘ Sverrir Leósson Höfundur er útgerðarmaður á Akureyri. ÉG er ein af forsvarskonum í félagi sem kallast Fjölskylduvernd og vil koma á framfæri viðfangsefnum þess. Félagið hyggst afla upplýsinga um helstu umkvörtunarefni for- eldra í meðförum op- inberra starfsmanna í málefnum barna. Félagið ætlar að koma þeim upplýs- ingum á framfæri og krefjast úrbóta á því sem miður fer í þeim meðförum. Félagið mun koma á tengslum milli foreldra til gagnkvæms stuðn- ings í ýmsu sem varðar meðferð vist- unar-, fóstur-, umgengnis- og forsjár- mála. Tilgangurinn er að félagsmenn geti stutt hver annan, hjálpað og miðlað upplýsingum sín á milli. Félagið hyggst standa fyrir fyr- irlestrum og annarri fræðslu í tengslum við ofangreind málefni. Við í félaginu höfum orðið áþreif- anlega varar við mikla þörf fyrir vett- vang af þessu tagi. Þar er helst að nefna að mörgum foreldrum þykir að sér vegið með lögbrotum, virðing- arleysi og annarri hegð- un sem veldur áföllum á heimilum. Svo virðist sem sumir starfsmenn, sem í mörgum tilvikum eru sérstaklega ráðnir til að gæta hagsmuna barna, hafi hvorki reglugerðir, verkferla sína né starfs- lýsingar að leiðarljósi. Ekkert eftirlit virðist vera með störfum þeirra. Hvergi hefur verið hægt að koma á framfæri kvörtunum, óskum um leið- réttingar né er hægt að kæra í þess- um málum. Framkomu þeirra við foreldra má oft líkja við aðför. Sá sem vegur að foreldri, vegur í leiðinni að barni. Þannig skerða þessir starfsmenn möguleika barna á að lifa við öryggi og vellíðan. Það er athyglisvert að það virðast aðallega konur verða fyrir þessu þar sem öll mál á borði félagsins hingað til eru reynslusögur mæðra, flestar þeirra einstæðar. Við viljum hvetja foreldra og annað áhugafólk til að hafa samband. Net- fang okkar er bjorgin@strik.is. Viljum eftirlit með starfsháttum María Gunnlaugsdóttir skrifar um málefni barna ’Sá sem vegur aðforeldri, vegur í leið- inni að barni …‘ María Gunnlaugsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur og móðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.