Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 39
FRÁBÆRT VERÐ !
OSRAM flúrperur
Lumilux Daylight,
Lumilux Cool White
Lumilux Warm White
Lumilux Interna
Kaupbætir fy lg i r hver jum
100 stk af perum.
Jóhann Ólafsson & Co Johan Rönning Reykjavík/Akureyri Rekstrarvörur Reykjavík
Rafbúðin Álfask. Hfj. Rafbúð R.Ó. Keflavík Árvirkinn Selfoss
Faxi Vestmannaeyjar Rafás Höfn S.G. Raftv. Egilsstaðir
Víkurraf Húsavík Ljósgjafinn Akureyri Tengill Sauðárkrókur
Straumur Ísafjörður Glitnir Borgarnes Rafþj.Sigurdórs Akranes
Það birtir til með OSRAM
ÉG HEF á undanförnum misserum
skrifað nokkrar greinar í Morg-
unblaðið til að vekja athygli á þeim að-
búnaði, sem stjórn-
endur Akureyrarbæjar
bjóða öldruðum bæj-
arbúum. Þótt ég segi
sjálfur frá held ég að
þessi skrif hafi ýtt við
fólki. Í kjölfarið hefur
farið af stað mikil um-
ræða um þessi mál og
sem betur fer virðist
það hafa orðið til þess,
að bæjarstjórnarmenn
hafa vaknað af löngum
Þyrnirósarsvefni. Jafn-
vel er ekki útilokað, að
Jakob Björnsson, oddviti framsókn-
armanna, hafi aðeins rumskað. Stað-
reyndin er nefnilega sú, að það er bæj-
arstjórnendum til háborinnar
skammar hvernig búið hefur verið að
þessum aldurshópi.
Á undanförnum árum hafa tugir
aldraðra Akureyringa beðið eftir rými
á dvalarheimilum á vegum bæjarins.
Þar af hafa lengstum verið um þrír
tugir aldraðra, sem hafa verið í sárri
þörf fyrir hjúkrun. Þetta fólk hefur átt
lífið undir heimahjúkrun og ætt-
ingjum, sem sumir hverjir hafa þurft
að minnka við sig vinnu til að geta
sinnt mömmu eða pabba, afa eða
ömmu. Þrátt fyrir þetta var ekkert
gert ár eftir ár til að bæta úr ástand-
inu. Það er ríflega hálfur annar áratug-
ur frá því að stjórnendur bæjarins
hafa gert eitthvað róttækt til að bæta
hag aldraðra, sem þurfa á umönnun og
hjúkrun að halda.
Framsóknarmenn fóru mikinn í síð-
ustu bæjarstjórnarkosningum og lof-
uðu úrbótum. Þeir skrifuðu síðan und-
ir samning við flokksbróður sinn, Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra, þeg-
ar hann var að ganga til alþingiskosn-
inga. Samkvæmt því áttu
framkvæmdir við ný-
byggingu fyrir aldraða á
Akureyri löngu að vera
hafnar. Ekkert bólar á
framkvæmdum enn,
enda kom í fréttum í vik-
unni, að verið er að
semja við hönnuði. Þessi
bygging verður því ekki
tilbúin fyrr en 2006 í
fyrsta lagi.
Eftir að stjórnendur
bæjarins höfðu legið
undir feldi í nokkra mán-
uði í leit að húsnæði til bráðabirgða
datt þeim snjöll lausn í hug. Hvernig
væri að gera upp gamla elliheimilið í
Skjaldarvík? Það hefur staðið autt síð-
an í lok síðustu aldar, þegar vistmenn
þar voru fluttir á burt, sumir nauðugir,
og settir í Kjarnalund. Síðan hafa
þessar eignir ekki orðið bænum til
gagns, það var Stefán heitinn Jónsson
sem kom þessu elliheimili upp og gaf
bænum síðan eignirnar og jörðina.
Hvernig stjórnendur bæjarins hafa
spilað úr þessari stórgjöf er enn ein
skömmin í hatt bæjarins varðandi að-
búnað fyrir aldraða.
En batnandi mönnum er best að
lifa. Loksins vöknuðu stjórnendur
bæjarins af dvala og áttuðu sig á, að
með tiltölulega litlum tilkostnaði mætti
endurbæta eignirnar til að gera þar
boðlegt hjúkrunarheimili samkvæmt
kröfum nútímans.
Og þá skorti ekki upp á stórhuginn
maður minn; ákveðið var að hafa þetta
fyrir fimmtán manns, þótt ljóst væri að
ríflega helmingi fleiri bíða í sárri neyð
eftir vistun á slíku hjúkrunarheimili.
Hefði nú ekki mátt hugsa aðeins
stærra?
Að mínu mati þarf að horfa til fram-
tíðarskipulags um nýtingu mannvirkja
og landkosta í Skjaldarvík. Þetta var
„út úr“ eins og sagt var, en samgöngur
nútímans hafa eytt þeim þröskuldi.
Þess vegna finnst mér vel koma til
greina, að byggja þarna upp öldr-
unarþjónustu til framtíðar, jafnvel
samhliða annarri mannlegri ræktun til
líkama og sálar fyrir alla aldursflokka.
Þarna er kjörið svæði til útivistar;
þarna mætti koma upp golfvelli og
göngustígum, svo dæmi séu tekin. Að-
stæður frá náttúrunnar hendi gætu
ekki verið betri.
Það mega stjórnendur bæjarins á
undanförnum árum eiga, að þeir hafa
lagt nokkurn metnað í uppbyggingu
heimahjúkrunar og félagsaðstöðu fyrir
aldraða, þannig að fólk geti dvalið sem
lengst á eigin vegum í eigin húsnæði.
Starfsmenn dvalar- og hjúkr-
unarheimilanna, heimahjúkrunar og
félagsmiðstöðvanna hafa raunar bjarg-
að því sem bjargað verður í þessum
málaflokki með einstaklega fórnfúsu
starfi, langt umfram það sem kjara-
samningar og launakjör krefjast. En
nú ætla stjórnendur bæjarins enn að
höggva að öldruðum með því að skerða
þessa þjónustu eða leggja á hana gjöld,
sem aldraðir standa ekki undir. Þar að
auki á að takmarka eftirgjöf á fast-
eignaskatti til aldraðra og skapa þeim
alls konar amstur við að fá þessa eft-
irgjöf. Hafa þeir nú ekki greitt nóg í
bæjarhítina í gegnum árin? Á sama
tíma og bæjarstjórnarmeirihlutinn
lætur sig hafa að plokka nokkrar krón-
ur upp úr vösum aldraðra kastar hann
30 milljónum króna í hlutafé í kjötiðn-
aðarfyrirtækinu Norðlenska, sem hef-
ur verið á brauðfótum í mörg ár. Hvað
mega dugandi Kjarnafæðismenn
segja, sem eru í harðri samkeppni við
þetta „bæjarkjötfyrirtæki“, sem KEA
á að stærstum hluta? Hanga enn leyni-
þræðirnir milli Framsóknar og KEA í
bæjarstjórn?
Umræðan að undanförnu virðist
hafa leyst krafta úr læðingi. Aldraðir
hafa verið seinþreyttir til vandræða
við bæjarstjórnarmenn og þeir hafa
gengið á lagið. En seinagangurinn við
að koma upp hjúkrunarrýmum, ný
gjaldtaka á félagsþjónustuna, auknir
fasteignaskattar og sleifarlag við að
koma upp félagsþjónustu á Bjargi
virðist vera kornið sem fyllti mælinn.
Aldraðir hafa látið heyra í sér. Þeir
hafa komið mótmælum sínum á fram-
færi við stjórnendur bæjarins. Aldr-
aðir láta ekki bjóða sér þetta lengur.
Húrra fyrir þeim. Nú verður formaður
félagsmálaráðs, Jakob Björnsson, og
hans menn í Framsókn, sem töluðu
með fagurgala til aldraðra fyrir síðustu
kosningar, að bretta upp ermar og láta
verkin tala. Aldraðir sætta sig ekki við
annað.
Öldruðum Akureyringum
er freklega misboðið
Sverrir Leósson skrifar
um aldraða á Akureyri ’Þeir láta ekki bjóða sérsofandahátt bæjar-
stjórnarinnar í mál-
efnum aldraðra lengur.‘
Sverrir Leósson
Höfundur er útgerðarmaður
á Akureyri.
ÉG er ein af forsvarskonum í félagi
sem kallast Fjölskylduvernd og vil
koma á framfæri viðfangsefnum þess.
Félagið hyggst afla
upplýsinga um helstu
umkvörtunarefni for-
eldra í meðförum op-
inberra starfsmanna í
málefnum barna.
Félagið ætlar að
koma þeim upplýs-
ingum á framfæri og
krefjast úrbóta á því
sem miður fer í þeim
meðförum.
Félagið mun koma á
tengslum milli foreldra
til gagnkvæms stuðn-
ings í ýmsu sem varðar meðferð vist-
unar-, fóstur-, umgengnis- og forsjár-
mála. Tilgangurinn er að félagsmenn
geti stutt hver annan, hjálpað og
miðlað upplýsingum sín á milli.
Félagið hyggst standa fyrir fyr-
irlestrum og annarri fræðslu í
tengslum við ofangreind málefni.
Við í félaginu höfum orðið áþreif-
anlega varar við mikla þörf fyrir vett-
vang af þessu tagi. Þar
er helst að nefna að
mörgum foreldrum
þykir að sér vegið með
lögbrotum, virðing-
arleysi og annarri hegð-
un sem veldur áföllum á
heimilum.
Svo virðist sem sumir
starfsmenn, sem í
mörgum tilvikum eru
sérstaklega ráðnir til að
gæta hagsmuna barna,
hafi hvorki reglugerðir,
verkferla sína né starfs-
lýsingar að leiðarljósi. Ekkert eftirlit
virðist vera með störfum þeirra.
Hvergi hefur verið hægt að koma á
framfæri kvörtunum, óskum um leið-
réttingar né er hægt að kæra í þess-
um málum.
Framkomu þeirra við foreldra má
oft líkja við aðför. Sá sem vegur að
foreldri, vegur í leiðinni að barni.
Þannig skerða þessir starfsmenn
möguleika barna á að lifa við öryggi
og vellíðan.
Það er athyglisvert að það virðast
aðallega konur verða fyrir þessu þar
sem öll mál á borði félagsins hingað til
eru reynslusögur mæðra, flestar
þeirra einstæðar.
Við viljum hvetja foreldra og annað
áhugafólk til að hafa samband. Net-
fang okkar er bjorgin@strik.is.
Viljum eftirlit með starfsháttum
María Gunnlaugsdóttir
skrifar um málefni barna ’Sá sem vegur aðforeldri, vegur í leið-
inni að barni …‘
María Gunnlaugsdóttir
Höfundur er hjúkrunarfræðingur
og móðir.