Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 29 ÞÓRBERGUR Þórðarson skýtur upp kollinum víða á ferli Jóns Hjart- arsonar. Hann fór á kostum í Ofvit- anum á sínum tíma, algerlega trú- verðug mynd af meistaranum. Svo sannfærandi að, þökk sé velgengni sýningarinnar og síðar sjónvarpinu, að mynd hans er mynd Þórbergs í hugum margra, svo er allavega farið með undirritaðan, ef hann hefur ekki vara á sér. Seinna gerði Jón sviðsgerð af Sálminum um blómið, setti upp með Leikfélagi Hornafjarðar og lék sjálfur Sobbeggi afa. Og nú er leik- gerð sögunnar komin í útvarpið og enn er Jón Þórbergur, jafn trúverð- ugur og áður, stílsmáti skáldsins runnin honum í merg og blóð. Ekki hef ég þekkingu til að segja hversu mikið hin fyrri leikgerð Jóns er geng- in aftur í þessari, enda skiptir það svo sem engu máli. Þroskasaga Lillu Heggu, eða kannski frekar, saga viðbragða Þór- bergs við fullorðnun þessarar litlu vinkonu sinnar, er makalaust verk, hliðstæðulaust í íslenskum bókmennt- um, og mögulega heimsins. Leikgerð- in byrjar á því að guð birtist Þórbergi og setur honum verkefnið fyrir. Síðan er því lýst hvernig hann þarf að finna leiðina að verkefninu, sem endar með því að hann leitast við að gera sér upp og nálgast þannig þroskastig við- fangsefnisins. Síðan rekur hver gull- molinn annan í lýsingum á samskipt- um litlu manneskjunnar og höfundarins. Óneitanlega er því eins farið með leikgerðina og söguna, fyrri hlutinn er mun skemmtilegri en sá síðari, meðan framandleikinn er mestur og Lilla Hegga sjálf í for- grunni. Í seinni hlutanum verða önn- ur hugðarefni Þórbergs og hvernig hann kynnir Lillu Heggu þau meira áberandi: Kommúnismi, spíritismi og Suðursveit, og þá fatast verkinu flug- ið nokkuð. Eins og fyrr sagði er Jón Hjart- arson sannfærandi sem Þórbergur, en hefur að sama skapi minni mögu- leika á að sýna manni óvænta fleti á persónunni sem hann hefur tengst svo traustum böndum á löngum tíma, enda reynir hann það alls ekki. Það er sjálfsagt að varðveita sem mest af þessu sérstæða sambandi leikara og viðfangsefnis úr raunveruleikanum. Álfrún Örnólfsdóttir nær framúr- skarandi tökum á að lýsa þroska Lillu Heggu, óborganleg sem ungabarn, ótrúlega trúverðug upp frá því, og skemmtilegt hvernig hún dregur fram tilfinninguna fyrir því hvernig samneyti við fullorðna mótar orðfæri barnsins, eftir að málsnið þess hefur sett svip sinn á tungutak hinna full- orðnu. Anna Kristín Arngrímsdóttir er prýðileg sem Mammagagga, rödd skynseminnar og Þorsteinn Gunnars- son sömuleiðis sem rödd guðs. Aðrir vekja varla eftirtekt, enda hlutverkin lítil. Öll vinnan við verkið einkennist að mínu viti af vandvirkni og trú- mennsku við viðfangsefnið. Á það við um stælalausa leikstjórn Maríu Reyndal, áferðarfallega tónlist Úlfs Eldjárn, hljóðvinnslu og alla fram- setningu. Guði líkur LEIKLIST Útvarpsleikhúsið Leikgerð: Jón Hjartarson, leikstjórn: María Reyndal, hljóðvinnsla: Björn Ey- steinsson, tónlist: Úlfur Eldjárn. Leik- endur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Álf- rún Örnólfsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Gunnar Hansson, Gunnar Helgason, Hanna María Karlsdóttir, Jón Hjartarson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, María Heba Þorkelsdóttir, Ólafur Darri Ólafs- son, Víkingur Gunnarsson, Þorsteinn Gunnarsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. SÁLMURINN UM BLÓMIÐ Þorgeir Tryggvason ÞAÐ ER ávallt tilhlökkunarefni að heyra íslensk tónverk sem hafa ekki fengið að hljóma hér á landi áður. Í kvöld gefst tónleikagestum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands tækifæri á að heyra nýjan gítarkonsert eftir Karól- ínu Eiríksdóttur. Konsertinn samdi hún að beiðni argentínska gítarleik- arans Sergio Puccini sem frumflutti verkið með Sinfóníuhljómsveitinni í Santa Fe í Argentínu í júní 2001. Það er gítarleikarinn Arnaldur Arnarson sem fær það skemmtilega hlutverk að frumflytja gítarkonsertinn á ís- lenskri grundu. Aðspurð segist Karólína ekki hafa gert mikið af því að semja fyrir gítar í gegnum tíðina. „Ég hef aðeins sam- ið eitt einleiksverk fyrir gítar, Hvað- an kemur lognið, sem Einar Kristján Einarsson gítarleikari frumflutti fyr- ir um fjórtán árum auk þess sem ég hef notað gítar í kammerverki, en þetta er fyrsti gítarkonsertinn minn. Mér fellur hins vegar mjög vel að semja fyrir gítar enda er það ein- staklega litríkt og fjölhæft hljóð- færi,“ segir Karólína og bætir við að gaman sé að setja sig inn í hinar mis- munandi kröfur og möguleika ólíkra hljóðfæra. „Gítarinn er ekki sterkasta hljóð- færið hvað tónstyrk varðar og því þarf maður að hafa í huga að vel þarf að heyrast í einleikshljóðfærinu,“ segir Karólína þegar hún er spurð hvort gæta þurfi að einhverju sér- stöku í samspili gítars og hljóm- sveitar. „Gítarinn er náttúrlega í að- alhlutverkinu, þannig að stundum er hljómsveitin bara að elta gítarinn og styðja hann eins og þarf. En inn á milli koma hljómsveitarkaflar þar sem hljómsveitin tekur yfir og fær meira pláss. En gítarinn spilar mjög stórt hlutverk í öllum þáttum verks- ins og þess vegna gerir verkið miklar kröfur til einleikarans.“ Að sögn Karólínu er konsertinn í fjórum þáttum og að því leyti hefð- bundinn hvað formið varðar. „Kafl- arnir fjórir hafa hins vegar afar ólíkt svipmót. Það má segja að fyrsti og fjórði kaflinn séu viðamestu kafl- arnir. Annar kaflinn er frekar hægur og ljóðrænn en þriðji kaflinn er nokkurs konar scherzo. Í svona löngu verki er auðvitað alltaf að finna miklar andstæður, þótt maður reyni að skapa einn hljómheim.“ Innt eftir því hvert hún leiti inn- blásturs í verkum sínum svarar Kar- ólína því til að erfitt sé að setja fing- urinn á það nákvæmlega. „Maður verður fyrir alla vega áhrifum úr um- hverfinu, svo sem frá náttúrunni, því sem maður hefur lesið og sér í öðrum listgreinum. Ég get aldrei sagt að ég hafi fengið innblástur úr einhverjum sérstökum göngutúr eða eitthvað slíkt. Maður sest bara niður og vinn- ur sína vinnu, síðan fæðast hug- myndirnar smátt og smátt í vinnu- ferlinu.“ Spurð hvort jafn mikið stress fylgi því að heyra verkið nú og þegar það var frumflutt á sínum tíma svarar Karólína neitandi. „Frumflutningur er alltaf svolítið sérstakur viðburður því þá fyrst veit maður hvort verkið „gerir sig“, ef maður getur tekið þannig til orða. Og auðvitað var mjög sérstakt að fara yfir hálfan hnöttinn til Argentínu á sínum tíma,“ segir Karólína og tekur fram að vissulega verði spennandi að heyra flutninginn í kvöld, „enda hefur hver einleikari og hljómsveitarstjóri sína nálgun“. Auk gítarkonserts Karólínu eru á efnisskránni tvö önnur verk, annars vegar Inngangur að Choros eftir Heitor Villa-Lobos fyrir hljómsveit og gítar og hins vegar fimmta sin- fónía Pjotrs Tsjajkovskíjs. Hljóm- sveitarstjóri í kvöld er Stefan Sol- yom og hefjast tónleikarnir að vanda kl. 19:30. Morgunblaðið/Sverrir Karólína Eiríksdóttir tónskáld ásamt Stefan Solyom hljómsveitarstjóra og Arnaldi Arnarsyni gítarleikara á æfingu í Háskólabíói í gær. Gítarinn svo litríkt og fjölhæft hljóðfæri LEIKHÓPURINN Á Senunni æfir nú kabarettverkið „Paris at night“, byggt á ljóðum franska ljóðskálds- ins Jacques Prévert. Prévert fædd- ist í Frakklandi árið 1900 og lést 1977. Hann varð ungur meðlimur í hreyfingu súrrealista sem var leidd af André Breton og Louis Aragon. Ljóð Prévert draga almennt dám af þessari stefnu og einnig þeim tíðaranda sem einkenndi París millistríðsáranna. Frelsi, hömlu- leysi, hverfulleiki ástarinnar og dýrð hversdagsins má segja að séu lykilorð þegar lýsa á ljóðum Pré- vert. Það er þó oft stutt í hið spaugilega í hversdeginum. Ljóða- safnið Paroles kom út árið 1945 og hefur selst í milljónaupplagi um heim allan og á hundrað ára ártíð Préverts var safnið formlega sett inn á lista yfir sígildar franskar bókmenntir. Paroles hefur komið út í íslenskri þýðingu Sigurðar Pálssonar skálds, og ber heitið Ljóð í mæltu máli. Sýningin Paris at night mun fanga þennan tíðaranda með eins konar kabarettsýningu þar sem ljóðlestur, söngur, tónlist, frásagn- ir af skáldinu og kvikmyndabrot vinna saman að því að skapa Par- ísarstemningu eins og hún var á tímabilinu 1920 til 1940. Verkið verður frumsýnt á litla sviði Borg- arleikhússins 24. mars. Leikendur eru Felix Bergsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Leik- stjóri er Kolbrún Halldórsdóttir. Hljómsveitarstjórn er í höndum Karls Olgeirssonar og er hann einn þriggja tónlistarmanna sýning- arinnar. Elín Edda Árnadóttir er hönnuður búninga og leikmyndar og um lýsingu sér Egill Ingibergs- son. Þá mun Egill ásamt Gideon Kiers sjá um kvikmyndahluta verksins en Prévert skrifaði hand- rit að nokkrum þekktustu kvik- myndum Frakka. Morgunblaðið/Sverrir Leikhópurinn á Senunni æfir nú kabarettverkið „Paris at night“. Leikhópurinn Á senunni æfir kabarett ALÞJÓÐA leikhúsmálastofnunin, ITI, hefur ákveðið, að tillögu Jap- ansdeildar ITI, að veita Hauki J. Gunnarssyni leikstjóra í ár hin jap- önsku Uchimura-verðlaun. Haukur hlýtur þau vegna starfa sinna við að kynna og vinna með japanska leikhúsmenningu meira en aldar- fjórðung á Íslandi, Noregi og víð- ar. Einnig sérstaklega fyrir sýn- ingu sína á tveimur nútíma Noh-leikritum eftir Yukio Mis- hima, „Yoroboshi“ og „Hanjo“, undir samheitinu Mishima x 2 sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu í Þrándheimi í Noregi 2002. Haukur J. Gunnarsson stundaði nám í japönsku og japanskri leik- list og leiklistarhefðum, Noh og Kabuki, 1969–1972. Var hann fyrstur Íslendinga til að stunda nám í Japan. Eftir nám sitt þar hélt hann til náms í Englandi í leikstjórn 1972–1975. Að námi loknu hefur hann starf- að sem leikstjóri á Íslandi og í Noregi og verið afar ötull við að nýta í verkum sínum hinar alda- fornu leiklistarhefðir Japana. Hann hefur einnig kennt við leiklistarskóla í Noregi og á Ís- landi, þá aðallega japanskar leik- húshefðir og haldið fyrirlestra víða. Þá stjórnaði hann mikilli há- tíð um japanska menningu í Þrándheimi 2002, svo eitthvað sé nefnt. Haukur var leikhússtjóri Sam- íska þjóðleikhússins í Norður-Nor- egi þar sem hann gerði athygl- isverðar tilraunir við að koma menningararfleifð Sama á svið með tækni hinnar fornu japönsku leik- húsarfleifðar. Síðan var hann leik- hússtjóri Borgarleikhússins í Tromsö í Noregi, en starfar nú sem leikstjóri með aðsetur í Nor- egi. Uchimura-verðlaunin Uchimura-verðlaunin eru kennd við hið kunna japanska leikskáld og leikhúsfræðimann Naoya Uc- himura sem helgaði líf sitt að efla leiklist sem víðast um heim. Til verðlaunanna var stofnað eftir lát hans, 1992, af fjölskyldu Uchimura og er þeim ætlað að viðurkenna starf leikhúslistamanna fyrir utan Japan sem hafa fetað í fótspor Uchimura og byggja á japönskum leiklistarhefðum. Haukur er fyrsti Íslendingurinn til að hljóta þessi verðlaun. Haukur J. Gunnarsson hlýtur japönsk verðlaun Haukur J. Gunnarsson HJÁ Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands verður boðið upp á námskeið um óperuna Brúðkaup Fígarós í samstarfi við Vinafélag Íslensku óperunnar. Námskeiðið hefst 3. mars og er aðgöngumiði á óperuna hluti af námskeiðinu. Óperan Brúðkaup Fígarós eft- ir Wolfgang Amadeus Mozart (1756–1791) er stærsta verkefni Íslensku óperunnar á vormisseri 2004. Hljómsveitarstjóri í upp- færslu Íslensku óperunnar er Cristopher Fifield og leikstjóri Ingólfur Níels Árnason. Með helstu hlutverk fara Bergþór Pálsson, Auður Gunnarsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Hulda Björk Garðarsdóttir, Sess- elja Kristjánsdóttir, Davíð Ólafs- son, Sigríður Aðalsteinsdóttir og Snorri Wium. Aðgöngumiði að sýningu í Óperunni er innifalinn í námskeiðsgjaldinu. Kennari er Gunnsteinn Ólafs- son tónlistarmaður. Námskeið um Brúðkaup Fígarós
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.