Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Allir þurfa félagsskap Tilnefningar til óskarsverðlauna Besta mynd, besti leikstjóri, besta handrit og besti leikari í aðalhlutverki 4 Sýnd kl. 6. Frábær gamanmynd frá höfundi Meet the Parents f f i t t t Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS „Dýrmætt hnossgæti“ EPÓ Kvikmyndir.com Tilnefningar til óskarsverðlauna Besta mynd, besti leikstjóri, besta handrit og besti leikari í aðalhlutverki 4 Allir þurfa félagsskap Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. SV MBL 11 Tilnefningar til óskarsverðlauna kl. 5 og 9. Yfir 93.000 gestir Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12. Fréttablaðið SV Mbl. ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8 og 10.40. ÓHT Rás2 Sýnd kl. 4 og 6. Með ísl. textaSýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára. EMINEM hefur höfðað mál á hend- ur Apple-tölvurisanum fyrir að nota eitt af lögum sínum í auglýsingar í leyfisleysi. Eminem varð æfur er hann komst að því að Apple væri að nota bút úr „Lose Yourself“ í auglýs- ingu fyrir nettónlistarútgáfu sína iTunes. Í lögsókninni segir að rapp- arinn hafi aldrei leyft notkun á tón- list sinni í auglýsingaskyni fyrir aðrar vörur og ef hann myndi gera það þá þyrfti að borga fyrir það a.m.k. 10 milljónir dala eða sem nemur 680 milljónum króna. Sjálfur var Eminem lögsóttur um árið fyrir að hafa notað lagabút úr óþekktu lagi án þess að geta höf- undar. Reuters Eminem lætur engan vaða yfir sig – hvorki brúður né tölvunörda. Eminem í mál við Apple HANN kennir trompetleik við hinn virta Berklee-tónlistarháskóla í Boston og lék um ára- bil með stórsveit Buddy Rich. Á fjörutíu ára ferli hefur hann einnig blásið fyrir eins ólíka lista- menn og Dizzie Gillespie, Frank Sinatra, Tony Bennett, Burt Bacharach, Stevie Wonder, The Supremes, Woody Herman og Lenu Horne og í kvöld munu bætast í meðspilarahóp hans þeir Agnar Már Magnússon píanóleikari og Tómas R. Einarsson. Greg Hopkins heitir maðurinn, kemur frá Detroit og tríóið sem leikur í á Kaffi List í kvöld er kennt við hann. Hopkins er staddur hér á landi til að vinna með Stórsveit Reykjavíkur en á sínum tíma með stórsveit Rich samdi hann og út- setti mikið fyrir sveitina. Þegar Hopkins er ekki á þeysingi um heiminn til að blása í trompetið kennir hann djasstromp- etleik, útsetningar og samspil við Berklee-skóla og hefur gert síðan 1974. Á laugardaginn leikur svo á Kaffi List Djass- kvartettinn Kompa en hann er skipaður Sigurði Þór Rögnvaldssyni gítarleikara, Steinari Sigurð- arsyni saxófónleikara, Pétri Sigurðssyni bassa- leikara og Kristmundi Guðmundssyni trommu- leikara en þeir eru allir komnir langt í námi við Tónlistarskóla F.Í.H. Tríó Gregs Hopkins leikur á Kaffi List Blásið fyrir Gillespie, Sinatra, Bennett og stórsveit Buddy Rich Greg Hopkins mun blása af list á Kaffi List í kvöld. Tónleikarnir á Kaffi List hefjast um kl. 21.30 og standa fram til miðnættis. Aðgangseyrir er 500 kr. UMDEILD mynd Mels Gibsons um síðustu tólf klukkustundirnar í lífi Jesú Krists – Píslarsaga Krists – var frumsýnd í gær í Bandaríkjunum. Myndin hefur þegar vakið mikil og sterk viðbrögð kirkjunnar manna og trúarsamtaka af ýms- um toga. Myndin var forsýnd í Los Angeles og fékk þá mjög sterk og tilfinningarík viðbrögð frá áhorfendum. Það hafa einkum verið þrýsti- hópar gyðinga sem gagnrýnt hafa myndina og lýst yfir því að þeir óttist að hún ýti undir gyð- ingahatur vegna þess að í henni sé gefið í skyn að gyðingar hafi borið ábyrgð á dauða Krists. Gagnrýnendur sem mislíkar myndin hafa hins vegar fundið að henni fyrir yfirgengilega grimmd og alltof sýnilegt ofbeldi. Helgiathafnir að loknum sýningum En Gibson hefur varið myndina með kjafti og klóm og segir hana draga upp raunsanna mynd af píslargöngunni. Hann viðurkennir fúslega að hún sé ofbeldisfull og hefur brugð- ist svo við: „Ef það fer fyrir brjóstið á ykkur, farið þá ekki á myndina. Ef ykkur er skapi næst að ganga út í hléi, gerið það þá.“ En hann fullyrðir að hafa farið heið- arlega eftir lýsingum í Biblí- unni og hefur hlotið stuðning frá mörgum kristnum trú- félögum. Píslarsaga Krists var frum- sýnd í 2.800 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum, víðar en nokk- ur önnur mynd á erlendu tungumáli eða sem fjallar um trúarlegt efni. Mörg trúfélög hafa tekið sig til og keypt upp heilu sýning- arnar af myndinni fyrir sókn- arbörn sín. Leiðtogar First Family-kirkjunnar í Overland Park í Kansas-ríki keyptu t.d. upp 9 sýningar, alls 3500 sæti, og buðu upp á helgiathöfn að sýningu lokinni. Mótmælagöngur hafa einnig verið haldnar vegna myndarinnar og voru farnar víða um Bandaríkin í gær, nálægt kvikmyndahúsum sem sýndu myndina. Fræðimenn hafa sagt myndina uppfulla af sögulegum rangfærslum, eins og t.d. að Jesús skuli vera með sítt hár og að persónur mæli á latínu og aramísku. Gibson segist hins vegar hafa ráðfært sig við helstu fræðimenn, guð- fræðinga, presta og trúarlega rithöfunda áður en hann skrifaði handritið og stendur því við hvert orð. Meistaraverk eða misnotkun? Sjaldan hafa gagnrýnendur vestra skipst eins rækilega í tvö horn vegna kvikmyndar því að hún er ýmist sögð hið mesta stórvirki eða pínleg á að horfa – ekkert þar á milli. Til marks um það þá fær myndin 50% af 100% skala vefritsins metacritic.com sem safnar saman viðhorfum helstu gagnrýnenda í heim- inum og hjá sams konar vefriti sem er rotten- tomatoes.com er fengið út að 54 af hundraði séu dómar í jákvæðari kanntinum. Roger Ebert er einn þeirra sem telja mynd- ina stórvirki, segir hana í Chicago Sun-Times einu trúarlegu myndina sem hann hafi séð – að undanskilinni Mattheusarguðspjalli Pasolinis – sem taki á því sem gerðist í raun og veru: „Þetta er magnaðasta, mikilvægasta og langnákvæmasta túlkun á síðustu stundum Krists sem fest hefur verið á filmu.“ Ebert seg- ir og Gibson „meistara frásagnarlistarinnar og að myndin sé hans meistaraverk“. Todd McCarthy hjá Variety er nánast eins hrifinn og segir það deginum ljósara að hér sé á ferð mik- ilvægasta trúarmynd vorra daga. Hins vegar voru þeir gagnrýnendur margir sem ofbauð greinilega ofbeldið í myndinni og lýsti David Ansen henni þannig að Gibson væri allt að því að misnota áhorfendur og refsa þeim fyrir syndir þeirra, aðrir tala um að hún virki sem hin mesta píslarganga fyrir sjálfa áhorfendur og A.O. Scott hjá The New York Times hafnar henni og Gibson fyrir það að ná aldrei að gefa skýra mynd af því hver tilgangurinn með allri þessari blóðsúthellingu er – og við það hljóti Píslarsaga Krists að falla um sjálfa sig. Þá er eftir að sjá hver dómur fjöldans verð- ur sem mun best koma í ljós með sjálfri að- sókninni að myndinni. Píslarsaga Krists eftir Mel Gibson var frumsýnd í gær Ýmist sögð hugljómun eða píslarganga fyrir áhorfendur Reuters Töluverð mótmæli hafa verið í Bandaríkj- unum við sýningu myndarinnar en þessi mótmælandi úr röðum gyðinga sem mótmælti á Times Square lýsir myndinni sem „hættulegu vopni gegn gyðingum“. Jim Caviezel túlkar Jesú Krist í Píslarsögu Krists, með sítt hár og skegg. Reuters skarpi@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.