Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 24
AKUREYRI
24 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.hekla.is
Fyrir ástina á bílnum.
Meiri heiður fyrir Touran
HEKLA, Laugavegi 170-174, sími 590 5000
www.hekla.is, hekla@hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416
fia› flekkir enginn hugtaki› „skynsamlegt val“ betur en fijó›verjar. fia›
var flví sérstakur hei›ur fyrir VW Touran a› hljóta útnefninguna
„skynsamlegasta vali›“ hjá fl‡ska neytendatímaritinu „Guten Rat“
(Hollrá›). Sérfræ›ingar tímaritsins hafa örugglega haft í huga a› Touran
fékk fullt hús e›a fimm stjörnur hjá NCAP, Gullna st‡ri› og Auto
ver›launin 2003. Er hægt a› bi›ja um meira? Komdu og finndu af hverju
Touran er meira en fjölskyldubíll.
Touran 6 gíra beinskiptur – frá 37.742 kr. á mánu›i*.
Touran me› Tiptronic sjálfskiptingu – frá 39.877 kr. á mánu›i*.
Touran er líka „skynsamlegasta valið“
*M.v. einkaleigu í 36 mán. flar sem innifali› er:
20.000 km akstur á ári, olíuskipti og ábyrg›ar- og fljónustusko›anir.
Einkaleiga er há› gengi gjaldmi›la og getur flví breyst án fyrirvara.
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
S
ÍA
·
2
5
6
5
4
ÞAÐ er raunhæfur möguleiki að sveitarfélög í
landinu verði 50 talsins, en þau eru nú 104 alls,
og að það takist með frjálsum sameiningum.
Þetta er álit Grétars Þórs Eyþórssonar, for-
stöðumanns Rannsóknastofnunar Háskólans á
Akureyri, en hann hélt nýlega erindi á Fé-
lagsvísindatorgi sem nefndist: 50 sveitarfélög á
Íslandi. Tálsýn eða raunhæfur möguleiki?
Hann segir lítinn vanda að fækka sveitar-
félögum með lögum, en heldur snúnara að fá
menn til slíkra verka af fúsum og frjálsum vilja.
„Viðhorf íbúanna og sveitarstjórnarmanna er
lykilatriði í að það takist að fækka sveitarfélög-
um,“ segir Grétar Þór. Vilji fólksins og hugur
þess skipti miklu máli og fulltrúar þeirra í sveit-
arstjórn geti haft mótandi áhrif á þessi viðhorf,
þannig að viðhorf kjörinna fulltrúa skipti því
ekki síður máli. Grétar Þór benti á að nokkur at-
riði stýrðu viðhorfum fólks fremur en önnur, en
þar mætti nefna fjárhag sveitarfélaganna og
stærð þeirra auk þess sem menn veltu mjög fyr-
ir sér hver staða eigin sveitarfélags yrði eftir
sameiningu við annað. „Fólk horfir mjög til þess
hvar stjórnsýsla í nýju sameinuðu sveitarfélagi
verður, því vitanlega er ekki hægt að hafa hana
alls staðar.“ Grétar Þór nefndi því að væntingar
um stöðu eigin sveitarfélags væru þungar á met-
um, en þeim mun meiri möguleika sem tiltekið
sveitarfélag hefði á að vera í kjarnahlutverki
þeim mun jákvæðari væri afstaða manna til
sameiningar. Aftur á móti væru þeir neikvæðari
sem teldu sitt sveitarfélag ekki hafa möguleika á
áhrifum. „Menn upplifa þá missi valds, fjarlægð-
in við stjórnsýsluna verður meiri en áður og
fólki finnst staða sveitarfélagsins veikjast.“
Grétar Þór sagði staðsetningu stjórnsýslu
nýs sveitarfélags ávallt viðkvæmt mál, einkum
og sér í lagi þar sem sveitarfélög af áþekkri
stærð væru að sameinast. Hann sagði að ef til
sameiningar kæmi t.d. í Eyjafirði, Þingeyjar-
sýslum eða Húnavatnssýslum, þar sem hefð
væri fyrir sterkri stjórnsýslu á Akureyri, Húsa-
vík og Blönduósi, yrðu þessir stóru kjarnar að
taka tillit til þeirrar stjórnskipunarhefðar sem
ríkt hefði í smærri sveitarfélögunum og að bæta
þeim upp þann lýðræðishalla sem hlytist af sam-
einingunni. Þar væru íbúar vanir því frá fyrri tíð
að hafa stjórnsýsluna innan seilingar. „En íbúar
minni sveitarfélaganna verða einnig að gera sér
grein fyrir því að þótt þeir taki á sig ákveðinn
lýðræðishalla geta þeir engu að síður haft ávinn-
ing af sameiningunni. Ávinningurinn getur jafn-
vel orðið meiri en fórnin sem felst í því að fulltrú-
um þeirra fækki. Fulltrúar þeirri geta þannig,
þótt þeir séu færri en áður, átt þátt í að taka
ákvarðanir um fleiri og stærri mál.“
Hann sagði brýnt að leysa vanda smærri
sveitarfélaga, þarna væri um að ræða lands-
byggðarvanda og því væri sameining sveitarfé-
laga eitt stærsta byggðamálið sem menn fengj-
ust við nú. „Menn verða að staldra við og skoða
t.d. getu þessara smáu sveitarfélaga til að bjóða
íbúum sínum upp á þá þjónustu sem þeir kjósa,“
sagði hann og benti á að sum hver leystu málin
þegar með samvinnuverkefnum.
Fram kom að 52% sveitarfélaga væru með
500 íbúa eða færri. Meðalstærð sveitarfélaga á
Íslandi er 2.788 íbúar, en að Reykjavík frátalinni
eru þeir 1.747 talsins. Ef sveitarfélögum fækk-
aði í 50 nú yrðu að meðaltali 3.600 íbúar í hverju
sveitarfélagi sé höfuðborgin ekki meðtalin.
Nefndi Grétar Þór í þessu samhengi að fyrir 40
árum hefðu Svíar samþykkt að fækka sínum
sveitarfélögum úr 800 í tæplega 300, en á þeim
tíma var það mat manna að lágmarksstærð
sveitarfélags vegna rekstrar grunnskóla væri 5–
7000 manns og 6–8000 manns fyrir rekstur fé-
lagsþjónustu. „Með þessi viðmið í huga værum
við ekki að taka upp neitt stórborgarkerfi þótt
við fækkuðum sveitarfélögum í 50. Að mínu mati
er það nauðsynlegt skref inn í nútímann og þær
kröfur sem við gerum,“ sagði Grétar Þór.
Forstöðumaður RHA segir raunhæfan möguleika á því að fækka sveitarfélögum í 50
Viðhorf íbúa og full-
trúa þeirra lykilatriði
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Frá Húsavík: Ef til sameiningar kemur þar sem hefð er fyrir sterkri stjórnsýslu, t.d. á Ak-
ureyri, Húsavík eða Blönduósi, yrðu stóru kjarnarnir að taka tillit til þeirrar stjórnskip-
unarhefðar sem ríkt hefur í smærri sveitarfélögunum, segir Grétar Þór.