Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 28
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Leikritið Þetta er allt að koma eftirHallgrím Helgason, í leikgerð ogleikstjórn Baltasars Kormáks,verður frumsýnt á stóra sviði Þjóð-
leikhússins í kvöld.
Þetta er allt að koma er sannkölluð rússí-
banaferð í gamansömum dúr um íslenskt
samfélag síðustu áratuga, strauma og stefnur
í lífi og listum, þar sem fjölmargar skraut-
legar persónur koma við sögu!
Æviferill listakonunnar Ragnheiðar Birnu
er allt annað en venjulegur, og þrautaganga
hennar í leitinni að hinum hreina tóni er oft
og tíðum stormasöm!
Ragnheiður Birna er aðalpersóna verksins,
og dugar ekkert minna en tvær leikkonur til
að túlka hana. Það eru þær Þórunn Erna
Clausen og Ólafía Hrönn Jónsdóttir sem það
gera.
En hver er Ragnheiður Birna?
Það er Ragnheiður Birna eldri, Ólafía
Hrönn, sem svarar því:
„Ragnheiður Birna er ung og mjög metn-
aðarfull kona, sem lætur ekkert aftra sér frá
því að gera það sem hún vill. Hún er ákveðin
og stendur fullkomlega með sjálfri sér. Henni
reiðir þokkalega af í sínu umhverfi, – gerir
allavega allt sem hún getur, en hún getur
ekki meira en það. Hún þyrfti þó að eiga
meira til, til þess að verða það sem hana lang-
ar til að verða.“ Þórunn Erna segir að stóri
draumur Ragnheiðar Birnu snúist um frægð.
„Hún fer í gegnum ýmislegt til að ná þangað,
prófar ýmislegt á þeim sviðum sem henni
finnst hún hafa hæfileika. En þegar ekkert
gengur skiptir hún bara um og prófar eitt-
hvað annað! Hún er svo úrræðagóð; – finnur
sér alltaf eitthvert nýtt svið til að láta reyna á
frægðina.“
Ólafía Hrönn útskýrir það nánar:
„Að einhverju leyti langar hana til að verða
góð í einhverju og öðlast viðurkenningu. En
hún er bara í þessu á röngum forsendum.“ Og
Þórunn Erna tekur undir það: „Hana langar
til að verða þekkt og metin af öllum, en byrj-
ar þar; í stað þess að hafa alvöru ástríðu fyrir
því sem hún er að gera snýst ástríðan um út-
komuna.“
Ólafía Hrönn segir að það hafi verið alveg
frábært að deila hlutverkinu með annarri
leikkonu. „Ég leik hana eldri og Þórunn Erna
er að leika það sem ég er að tala um. Þar
kemur fram sá eiginleiki Ragnheiðar Birnu
að ef eitthvað hentar ekki í minningunni, þá
fegrar hún það fyrir sjálfri sér.“ Þórunn Erna
segir að samstarfið um persónuna hafi verið
ánægjulegt. „Það hefur verið frábært fyrir
mig að fá að vinna sama hlutverk og jafn
stórkostleg leikkona og Ólafía Hrönn. Mér
finnst ég hafa lært mikið af því að vinna með
henni. Okkur hefur vonandi tekist að ná sam-
an á miðri leið í túlkun Ragnheiðar Birnu.“
Fyrsta stóra hlutverkið
í Þjóðleikhúsinu
Þórunn Erna Clausen er hér í fyrsta sinn í
stóru hlutverki í Þjóðleikhúsinu, en áður lék
hún – og söng – í Syngjandi í rigningunni og
leysti Selmu Björnsdóttur jafnframt af í aðal-
hlutverki söngleiksins.
Þórunn Erna útskrifaðist fyrir þremur ár-
um úr erlendum leiklistarskóla og hefur ekki
setið auðum höndum síðan.
„Ég var í Rauðhettu í Hafnarfjarðarleik-
húsinu, Lykli um hálsinn í Vesturporti, Guð-
ríði í Skemmtihúsinu, og svo í Dýrlingageng-
inu og Le Sing, og auk þess hef ég leikið í
bíómynd, sem ekki er búið að sýna.“
Það hefur stundum verið sagt, að þeir sem
mennta sig erlendis í leiklistinni eigi erfiðara
uppdráttar þegar heim kemur að fá vinnu en
þeir sem hafa lært hér. Þórunn Erna segir
það ekki hafa átt við sig. „Ég er ekki fastráð-
in við stóru leikhúsin, en ég er búin að vera í
stanslausri vinnu frá því ég kom heim, – líka
á sumrin. Ég veit ekki hvort þetta er jafn erf-
itt og af er látið, eða hvort ég hef bara verið
svona heppin. Ég get í það minnsta ekki
kvartað.“ Vinnan við atvinnuleikhús er að
mati Þórunnar Ernu svolítið öðruvísi en með
litlu leikhópunum og þar kemur ýmislegt til.
„Það er stærra batterí í kringum allt í at-
vinnuleikhúsinu, margar deildir sem sinna
hver sínu hlutverki. Stemmningin hjá leik-
hópunum er öðru vísi, og þar eru allir með
meiri ábyrgð á að allt gangi upp. En það er
svo skrýtið, – að mér finnst sú stemmning
hafa náðst í hópnum sem er í þessu verki í
Þjóðleikhúsinu – og kannski er hún bara allt-
af til staðar, ég veit það ekki. Baltasar hefur
þjappað fólkinu vel saman. Ætli mesti mun-
urinn sé ekki hvað það er allt stórt hér í sam-
anburði við litlu leikhúsin.“
Þórunn Erna ítrekar hvað leikhópurinn í
Þetta er allt að koma sé góður. „Já, hann er
alveg frábær. Þetta er líka svo skemmtilegt
hlutverk og mér finnst leikgerðin hjá Baltas-
ar hafa tekist mjög vel. Ég bind miklar vonir
við verkið.“
Þórunn Erna segir það ekki hafa verið erf-
itt að setja sig inn í hlutverk Ragnheiðar
Birnu. „Hún er ekkert svo ólík mér. Ég held
reyndar að það séu margir í þessum bransa
sem geta séð sjálfa sig í Ragnheiði Birnu; –
og kannski bara fólk yfir höfuð. Það virðist
auðvelt fyrir fólk að tengjast þessari mann-
eskju.“
Þær Þórunn Erna og Ólafía Hrönn segja
að í leitinni að Ragnheiði Birnu hafi þær lagt
á ráðin um að koma sér upp sameiginlegum
kæk. „En hann er bara ekki kominn ennþá,“
segir Ólafía Hrönn og fitjar upp á trýnið.
Ragnheiður Birna er músíkmanneskja og
spilar á fiðlu. Það þarf Þórunn Erna því líka
að gera á sviðinu. „Sko, komdu bara á sýn-
inguna og sjáðu …!“ Ólafía Hrönn vill útskýra
þetta nánar. „Ég held að við Þórunn Erna
séum svolítið eins og Ragnheiður Birna að
sumu leyti. Við erum þrjóskar. Þórunn Erna
tók fiðluna og sargaði á hana endalaust, því
hún ætlaði sér að geta spilað aðeins á fiðlu –
og henni tókst það.“ „Aðeins, – það er rétta
orðið,“ bætir Þórunn Erna hlæjandi við. „Það
er mjög erfitt að læra á fiðlu, þannig að ég
held að ég hafi bara náð ágætis árangri á
svona stuttum tíma. Fiðlan var samvaxin öxl-
inni á mér í langan tíma, og ég festist meira
að segja í hálsinum við æfingar!“ „Það má
segja að við séum heppnar að því leyti,“ segir
Ólafía Hrönn, „að Ragnheiður Birna verður
aldrei mjög góð í neinu, þótt hún ætli sér
mikið. Það er svolítil Ragnheiður Birna í okk-
ur öllum. Hún er eins og svo margir, – ég sé
mig líka í henni. Ragnheiður Birna hefur eig-
inleika sem er gott að hafa. Hún er bjartsýn,
og ætlar sér að ná langt. Hún er algjör Ís-
lendingur. Ef henni finnst eitthvað óþægilegt,
þá hendir hún því aftur fyrir sig og vill ekki
muna það. Þennan eiginleika er nauðsynlegt
að hafa þótt hann gangi svolítið langt hjá
henni.“
Bókin hlaut góðar viðtökur
Hallgrímur Helgason er Íslendingum að
góðu kunnur, bæði sem myndlistarmaður og
rithöfundur. Hann hefur meðal annars sent
frá sér skáldsögurnar Hella, Þetta er allt að
koma sem hlaut geysigóðar móttökur lesenda,
101 Reykjavík, Höfundur Íslands og Herra
Alheimur. Fyrir leiksvið hefur hann m.a.
skrifað eintalsþættina Óbreyttur maður, róm-
antíska gamanleikinn Kossinn og ljóðaleikinn
Skáldanótt. Baltasar Kormákur byggði kvik-
myndina 101 Reykjavík á samnefndri sögu
Hallgríms en hún er ein vinsælasta og fjöl-
sóttasta kvikmynd íslenskrar kvikmyndasögu.
Baltasar og Hallgrímur vinna nú saman að
nýrri kvikmynd.
Saga Hallgríms Helgasonar, Þetta er allt að koma, naut mikilla vinsælda þegar hún kom út. Baltasar Kormákur
hefur gert leikgerð úr sögunni, sem verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Bergþóra Jónsdóttir ræddi við
Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Þórunni Ernu Clausen, sem fara með hlutverk aðalpersónunnar, Ragnheiðar Birnu.
begga@mbl.is
Ragnheiður Birna í okkur öllum
Morgunblaðið/Þorkell
Kvennakór, með Eddu Arnljótsdóttur í forystu, lætur að sér kveða í sýningu Þjóðleikhússins á leikritinu Þetta er allt að koma.
eftir Hallgrím Helgason
Leikgerð og leikstjórn:
Baltasar Kormákur
Tónlistarumsjón: Sigurður Bjóla
Tónlistarflutningur: Davíð Þór Jónsson
Hreyfingar og dansar: Helena Jónsdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Leikmynd: Gretar Reynisson
Leikarar: Þórunn Erna Clausen, Ólafía
Hrönn Jónsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson,
Björn Thors, Brynhildur Guðjónsdóttir,
Edda Arnljótsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir,
Inga María Valdimarsdóttir, Kjartan Guð-
jónsson, Valdimar Örn Flygenring, Þórunn
Lárusdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson.
Þetta er allt
að koma
„Hún sargaði á fiðluna endalaust…“ Þórunn Clausen í hlutverki Ragnheiðar Birnu.
„Ragnheiður Birna hefur eiginleika sem gott
er að hafa,“ segir Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
„Góður hópur sem stendur að sýningunni.“
Þórunn Clausen og Björn Thors á sviðinu.