Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 51
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 51
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
EINBÝLI
HRAUNHÓLAR - GARÐABÆR -
EINSTÖK STAÐSETNING Vorum að fá
í sölu afar reisulegt og fallegt einbýli á
tveimur hæðum ásamt tvöf. bílsk., samtals
254 fm. Húsið skiptist í 3 baðherb., afar
rúmgóðar og bjartar stofur og 4-5 svefnherb.
Gólfefni eru gólfborð og flísar. Heitur pottur
er á lóðinni. Mikið og fallegt útsýni yfir
hraunið og til fjalla. Eignin getur losnað
fljótlega. Áhv. ca 4,0 millj. Verð 34,9 millj.
FRAMNESVEGUR - LAUS STRAX
Nýtt á skrá. 118 fm einbýli á tveimur hæðum.
Tvö svefnherbergi og tvær stofur. Endur-
nýjað baðherbergi og lagnir. Verð 15,9 millj.
Áhv. 4,7 millj. byggsj. og húsbréf.
RAÐ- OG PARHÚS
GRASARIMI - RAÐHÚS Vorum að fá í
sölu 194 fm raðhús á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr. Á neðri hæð er stofa
með útg. í suðurgarð, eldhús með góðum
borðkrók, herbergi með svefnlofti, þvottahús
og salerni. Á efri hæð er sjónvarpshol, þrjú
herbergi og baðherbergi með baðkari og
handklæðaofni. Rúmgóður innbyggður bíl-
skúr með rafmagni, heitu og köldu vatni.
Áhv. 9,3 millj. Verð 23,5 millj.
4RA HERBERGJA
HOLTSGATA Vorum að fá í einkasölu
fallega 98,4 fm 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í
vesturbænum. Íbúðin er einstaklega vel
skipulögð með fallegu og björtu rými. Parket
er á allri íbúðinni nema nýlegur korkur á
eldhúsi og flísar á baðherbergi. Búið er að
endurnýja, m.a. rafmagn ídregið, og raf-
magnstafla endurnýjuð, járn á þaki var
endurnýjað fyrir nokkrum árum. Hús málað
að utan og viðgert sl. sumar. Verð 15,3 millj.
Áhv. 5,3 millj.
SÓLVALLAGATA Vorum að fá í einka-
sölu einstaklega fallega 81 fm 4ra herbergja
íbúð á tveimur hæðum á þessum frábæra
stað. Íbúðin sem skiptist í tvö herbergi,
annað með nýjum skápum, tvær stofur,
eldhús með fallegri nýlegri innréttingu,
gashelluborði og veggofni. Baðherbergið er
flísalagt í hólf og gólf með baðkari og góðri
innréttingu. Góð og falleg eign á frábærum
stað. Áhv. 10,2 millj. Verð 15,6 millj.
3JA HERB.
KLUKKURIMI Góð 3ja herb. 86 fm íbúð á
2. hæð í litlu fjölbýli innst í botnlanga við
opið svæði. Tvö stór herb. Rúmgóð og björt
stofa með útg. á suðvestursvalir með
fallegu útsýni. Dúkur á gólfum. Góðar innr.
Hús nýl. málað. Verð 12,4 millj.
KLAPPARSTÍGUR - HÆÐ OG RIS
Nýtt á skrá. Sérlega falleg og mikið
endurnýjuð 3ja herb. 78,8 fm íbúð á 3. hæð
með austursvölum. Íbúðin er á tveimur
hæðum. Risið er nýtt sem eitt stórt rými.
Eldhús með nýlegri innréttingu, gaseldavél
og borðkrók. Baðherbergi með mósaík-
flísum í hólf og gólf og sturtuklefa. Parket á
öllu nema risi. Verð 13,3 millj. Áhv. 6,0 millj.
SÓLVALLAGATA - LAUS FLJÓT-
LEGA Sérlega falleg, björt og mikið end-
urnýjuð 3ja herb. íbúð á 1. hæð í þríbýli.
Búið er að endurnýja t.a.m. skolplögn,
rafmagn ídregið+rafmagnstafla, gler endur-
nýjað og parket á gólfum. Rúmgott
svefnherbergi með miklu skápaplássi.
Samliggjandi stofur (aðra hægt að nýta sem
svefnherb.) með rennihurð á milli, suður-
svalir úr stofu. Verð 13,3 millj. Áhv. 5,8 millj.
ENGIHJALLI - ÚTSÝNI Vorum að fá í
sölu góða 3ja herb. 84 fm íbúð í lyftuhúsi.
Íbúðin skiptist í anddyri, tvö herbergi með
skáp-um, stofa með útg. á vestursvalir,
eldhús með góðri innréttingu og
baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með
baðkari og tengt fyrir þvottavél. Sérgeymsla
í kjallara. Áhv. 6,9 millj. Verð. 11,8 millj.
2JA HERB.
VESTURBERG - LYFTA Góð 2ja herb.
64 fm íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi. Íbúðin
skiptist í hol, svefnherbergi, eldhús með
uppþvottavél sem fylgir, stofa með útg. á
svalir og baðherbergi með baðkari. Gólfefni
eru parket og dúkur. Sérgeymsla í kjallara.
Verð 8,9 millj.
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12.15 í
neðri safnaðarsal. Opið hús kl. 14–17 í
neðri safnaðarsal fyrir unga sem aldna.
Organisti Áskirkju leiðir söng. Allir vel-
komnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækjargötu
14.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu eftir stundina.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20.
Mömmumorgnar kl. 10. Vinafundir kl. 13–
15.
Langholtskirkja. Foreldra- og ungbarna-
morgunn kl. 10–12. Opið hús, spjall,
fræðsla á vegum Heilsuverndar barna,
söngstund, kaffisopi. Umsjón hefur Gígja
Sigurðardóttir leikskólakennari. Allir for-
eldrar ungra barna velkomnir. Nánari upp-
lýsingar í Langholtskirkju. Lestur Passíu-
sálma kl. 18 í Guðbrandsstofu í anddyri
Langholtskirkju. Allir velkomnir.
Landspítali – háskólasjúkrahús. Grensás.
Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Kjartan Örn Sig-
urbjörnsson.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12 á
hádegi. Gunnar Gunnarsson leikur á org-
elið frá kl. 12. Þjónustu annast Bjarni
Karlsson og Sigurbjörn Þorkelsson með-
hjálpari. Kl. 12.30 er léttur málsverður í
boði í safnaðarheimilinu. Unglinga-Alfa kl.
19. Matur, fræðsla og samfélag fyrir ung-
linga í 9. og 10. bekk Laugalækjarskóla og
öll gömul fermingarbörn úr þeim árgöng-
um, hvar sem þau annars búa. Spennandi
tækifæri, frjáls mæting og eintóm
ánægja. (Námskeiðinu lýkur með tilboði
um helgarferð í Vatnaskóg.)
Neskirkja. Krakkaklúbburinn kl. 14.30.
Starf fyrir 8 og 9 ára börn. Sögur, leikir,
föndur o.fl. Stúlknakór Neskirkju kl. 16.
Kór fyrir 8 og 9 ára stúlkur. Stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson organisti. Uppl.
og skráning í síma 896 8192. NEDÓ-ung-
lingaklúbburinn. 8. bekkur kl. 17. 9. bekk-
ur og eldri kl. 19.30. Umsjón Munda og
Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 28.
febrúar kl. 14. Jón R. Hjálmarsson, fyrrver-
andi námsstjóri, segir frá ýmsu fróðlegu
og skemmtilegu. Kaffiveitingar. Þátttaka
tilkynnist í síma 511 1560 milli kl. 10 og
12 fram á föstudag. Allir velkomnir. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Helgistund í íbúðum
aldraðra á Skólabraut kl. 13.30. Minnum
á aðalfund Seltjarnarnessafnaðar sunnu-
daginn 29. febrúar í safnaðarheimili kirkj-
unnar að lokinni guðsþjónustu kl. 11.
Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin, andlegt
ferðalag í kvöld kl. 19.
Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 STN-starf með
sjö til níu ára börnum í Selásskóla.
Breiðholtskirkja. Tilvist, trú og tilgangur II:
Biblíulestrar í samvinnu leikmannaskól-
ans og Reykjavíkurprófastsdæmis eystra
kl. 20–22. Kennari dr. Sigurbjörn Árni Eyj-
ólfsson héraðsprestur.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl.
12.10. Unglingakór Digraneskirkju kl.
16.30–19. Barnastarf 6–9 ára kl. 17.15–
18 á neðri hæð kirkjunnar. (Sjá nánar:
www.digraneskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldustund
(mömmumorgnar) kl. 10–12. Biblíulestur
og helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12 í
umsjá Lilju djákna. Stúlknastarf 8–10 ára
kl. 16.30–17.30. Alfa-námskeið kl. 19.
Sjá nánar: www.kirkjan.is/fella-holakirkja.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Dagskráin er fjölbreytt. Boðið er upp á
áhugaverða fyrirlestra og skemmtilegar og
fræðandi samverustundir. Kirkjukrakkar
fyrir börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–
18.30 í Grafarvogskirkju og einnig í Húsa-
skóla á sama tíma. Æskulýðsfélag fyrir
unglinga í 8. bekk í Grafarvogskirkju kl.
20.
Hjallakirkja. Opið hús kl. 12. Kirkjuprakk-
arar, 7–9 ára starf kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldra fólki kl.
14.30–16 í safnaðarheimilinu Borgum.
Umsjón Sigríður Baldursdóttir. Bæna- og
kyrrðarstund kl. 17. Fyrirbænarefnum má
koma til kirkjuvarðar eða presta.
Lindakirkja í Kópavogi. Bænastund kl. 12
í safnaðarheimilinu, Uppsölum 3.
Seljakirkja. KFUM 9–12 ára kl. 17.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Bænarefnum er hægt að
koma til prestsins fyrir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 8–9 ára
börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Von-
arhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund (sbr.
mömmumorgunn) í dag kl. 13. Kjörið tæki-
færi fyrir heimavinnandi foreldra til að
koma saman og eiga skemmtilega stund í
notalegu umhverfi. Kaffi og léttar veiting-
ar, spjall, föndur, fyrirlestrar, kynningar og
fleira.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára krakka kl. 16.30–18.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í Safnaðarheimilinu.
Kaffi, djús og gott samfélag. Sr. Þorvaldur
Víðisson. Nú fer að styttast í næstu heim-
sókn. Kl. 14.30 helgistund á Heilbrigðis-
stofnun. Kl. 20 Tólf spora vinna heldur
áfram í KFUM&K-heimilinu. Umsjónarfólk.
Kl. 20 kóræfing kirkjukórs Landakirkju.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Spilakvöld aldraðra
og örykja fimmtudaginn 26. febrúar kl. 20.
Umsjón félagar úr Lionsklúbbi Njarðvíkur,
Ástríður Helga Sigurðardóttir og sr. Baldur
Rafn Sigurðsson. Natalía Chow organisti
leikur á orgel við helgistund að spilum
loknum.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur
í Kirkjulundi: Kl. 15.10–15.50 8.A í Holta-
skóla, kl. 15.55–16.35 8.B í Holtaskóla.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.30. For-
eldramorgnar kl. 10.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
AD KFUM, Holtavegi 28. Fundur í kvöld kl.
19. Hátíðar- og inntökufundur. Nýir með-
limir boðnir velkomnir í Aðaldeildina. Fund-
urinn er í umsjón stjórnar félagsins og
hefst með borðhaldi kl. 19. Skráning í
matinn á skrifstofunni í síma 588 8899.
Allir karlmenn velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu
verði í safnaðarheimili eftir stundina.
Glerárkirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12.
Æfing barnakórs Glerárkirkju kl. 17.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 20 ung-
lingafundur fyrir 8. bekk og upp úr.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 20 bibl-
íufræðsla og bæn. Snorri Óskarsson
kennir. Allir velkomnir.
Safnaðarstarf Hans klaufi í
Þorlákskirkju
Á SUNNUDAGINN kemur, 29.
febrúar, kemur Eggert Kaaber
með Hans klaufa sinn í sunnu-
dagaskólann í Þorlákskirkju kl.
11:00. Eggert Kaaber er með
Stoppleikhúsið og kemur nú
þriðja árið í röð í Þorláks-
kirkju. Allir krakkar eru hvatt-
ir til að koma og skemmta sér.
Sýningin er sérstaklega miðuð
við tveggja til níu ára gömul
börn og svo auðvitað fullorðin
börn.
Passíusálmalestur í
Langholtskirkju
23. FEBRÚAR hófst lestur
passíusálmanna alla virka daga
í Langholtskirkju. Komið er
saman í Guðbrandsstofu í and-
dyri kirkjunnar kl. 18 og verð-
ur lesinn einn sálmur hvern
virkan dag fram að páskum.
Allir eru velkomnir.
Gospelkvöld í
Hátúni 10
NÚ ER komið að hinu mán-
aðarlega gospelkvöldi í Hátúni,
sem haldið verður fimmtudag-
inn 26. febrúar kl. 20:00 á 9.
hæð í Hátúni 10.
Það er ÖBÍ og Laug-
arneskirkja sem standa saman
að þessu tilboði í umsjón Guð-
rúnar K. Þórsdóttur djákna og
Þorvalds Halldórssonar söngv-
ara. Fjöldi sjálfboðaliða und-
irbýr samveruna og ýmsir
koma fram með fjölbreytta
dagskrá í tónum og tali svo að
allir hafa gaman af.
Hér er um einstaka skemmt-
un að ræða sem enginn íbúi á
svæðinu ætti að missa af og
gott tækifæri til að bjóða með
sér gestum.
SVEIT Eyktar sigraði með nokkr-
um yfirburðum í sveitakeppninni sem
spiluð var á Hótel Loftleiðum og lauk
í fyrrakvöld. Sveitin hlaut samtals 198
stig eða 19,8 stig í leik sem er glæsi-
legur árangur. Sveitin vermdi efsta
sætið allt mótið og spilaði þar með við
allar sterkustu sveitir mótsins.
Sveit Eyktar sem kenndi sig í fyrra
við Subaru er skipuð þrautreyndum
fírum sem kunna alla klæki brids-
íþróttarinnar og gefa aldrei neitt eftir
átakalaust. Þeir eru Jón Baldursson,
Þorlákur Jónsson, Sverrir Ármanns-
son, Aðalsteinn Jörgensen, Ragnar
Hermannsson og Sigurður Sverris-
son.
Íslensku sveitirnar náðu þolanleg-
um árangri gegn útlendingunum að
þessu sinni en sveit SS varð fjórða,
Grant Thornton fimmta og Ferða-
skrifstofa Vesturlands sjöunda. Mest
á óvart kom gestasveitin þ.e. búlg-
arska liðið sem skipað var yngra og
eldra pari sem aldrei skilaði sínu í
mótinu en endaði þó í 14. sæti af tæp-
lega 70 sveitum sem tóku þátt í
mótinu.
Nokkuð var um pústra í lokaum-
ferðunum og auðséð að einhverjir
voru farnir að þreytast eftir langa
spilamennsku sem hófst á föstudag
með tvímenningi.
Lokastaðan:
Eykt 198
Gunnar Anderson 187
Peter Hecht-Johansen 181
SS 181
Grant Thornton 179
Rune Höge 178
Ferðaskr. Vesturlands 178
Janet de Botton 175
Stefán Stefánss. 175
Mark Feldman 175
Að venju stýrði Stefanía Skarphéð-
insdóttir, framkvæmdastjóri Brids-
sambandsins, mótinu af stakri snilld
að venju.
Öruggur sigur
Eyktar á Bridshátíð
BRIDS
Hótel Loftleiðir
SVEITAKEPPNI
Yfir 300 þátttakendur - 22.–23. febrúar.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Sigurvegararnir í sveitakeppninni á Bridshátíð ásamt Ingólfi Haraldssyni,
hótelstjóra á Hótel Loftleiðum. Talið frá vinstri: Ingólfur, Jón Baldursson,
Sverrir Ármannsson, Aðalsteinn Jörgensen og Þorlákur Jónsson.
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Sjötta og næstsíðasta umferðin í
aðalsveitakeppninni var spiluð 19.
febrúar sl. Úrslit urðu þessi:
Gísli Þ. og félagar – Ríkharður og fél. 22–8
Auðunn og félagar – Björn og félagar 15–
15
Anton og félagar – Gísli H. og félagar 25–2
Guðjón og félagar – Brynjólfur og fél. 25–1
Röð sveitanna er þá þessi:
Guðjón og félagar 130
Gísli Þ. og félagar 113
Anton og félagar 99
Gísli H. og félagar 98
Björn og félagar 88
Auðunn og félagar 85
Ríkharður og félagar 51
Brynjólfur og félagar 37
Staðan í butlerútreikningi að
loknum sex leikjum er:
Guðjón Einarsson – Sv. Guðjóns og fél.1,43
Gísli Þórarinsson – Sv. Gísla Þ. og fél. 1,19
Þórður Sigurðsson – Sv. Gísla Þ. og fél.1,19
Ólafur Steinason – Sv. Guðjóns og fél. 1,05
Björn Snorrason – Sv. Björns og félaga0,93
Kristján M. Gunn. – Sv. Björns og fél. 0,93
Lokaumferðin verður spiluð
fimmtudaginn 26. febrúar nk. Nán-
ar má finna um stöðuna á heima-
síðu félagsins, www.bridge.is/fel/sel-
foss. Næsta mót hjá félaginu verður
fjögurra kvölda tvímenningur, sem
nefnist Sigfúsarmótið, í höfuðið á
reyndasta spilara félagsins, Sigfúsi
Þórðarsyni, sem fluttist reyndar
búferlum á höfuðborgarsvæðið fyrir
nokkrum árum. Mótið er um leið
aðaltvímenningur félagsins.
Bridsfélag
Kópavogs
Þriggja kvölda Butler-tvímenn-
ingur hófst á níu borðum sl.
fimmtudagskvöld og ljóst að Ragn-
ar og Georg koma sjóðandi heitir út
úr sveitakeppninni, þar sem þeir
glutruðu sigrinum á síðustu metr-
unum. Erla og Sigfús komu líka
sjóðandi heit frá Kanarí rétt fyrir
spilamennsku!
Staða efstu para:
Georg Sverrisson – Ragnar Jónsson 66
Guðlaugur Bessason – Jón St. Ingólfss. 47
Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðarson
43
Guðjón Bragason – Vignir Hauksson 40
Símon Sveinsson – Sveinn Símonarson 24
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 13 borðum mánu-
daginn 23. febrúar. Miðlungur 264.
Efst vóru:
NS
Guðjón Ottóss. – Guðmundur Guðv. 357
Sigtryggur Ellertsson – Oddur Jónss. 320
Guðrún Gestsdóttir – Helgi Sigurðsson
307
Sigurður Björnsson – Viðar Jónsson 273
AV
Ruth Pálsdóttir – Elís Kristjánsson 321
Díana Kristjánsdóttir – Ari Þórðarson 314
Jóna Kristjánsdóttir – Sveinn Jenss. 310
Guðlaugur Árnason – Jón P. Ingibergss.
308
Frímann sigraði í
einmenningi fyrir norðan
Þriðjudagskvöldið 24. febrúar fór
fram eins kvölds einmenningur hjá
Bridgefélagi Akureyrar. Úrslit
urðu:
Frímann Stefánsson 67,2%
Haukur Harðarson 57,2%
Gissur Gissurarson 55,6%
Stefán Sveinbjörnsson 52,2%
Hermann Huijbnes 50,6%
Magnús Magnússon 50,6%
Sunnudagskvöldið 22. febrúar var
spilaður eins kvölds tvímenningur.
Úrslit urðu:
Gissur Gissurars.– Hans V. Reisenhus 28
Gissur Jónass.– Sigurgeir Gissurars. 26
Ragnh. Haraldsd.– Sveinbj. Sigurðss. 24
Spilað er á sunnudags- og þriðju-
dagskvöldum klukkan 19.30 í Fé-
lagsheimilinu Hamri. Á þriðjudags-
kvöldum eru forgefin spil og
keppnisstjóri er á staðnum.
Bridsdeild Samiðnar
Tvímenningskeppni um BYKO-
bikarinn er nú lokið.
Úrslitin eru þessi:
Sigurður I. Geirss. – Ingimar K. Cizz. 356
Ólafur Ingason – Zarioh Ómar 347
Indriði Guðmundss. – Pálmi S. Steinþ. 339
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson