Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 10 boccia, kl. 13
myndlist.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–16
bókband.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 postulín, kl.
13 handavinna.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 alm.
handavinna, aðst. við
böðun, smíðar og út-
skurður, kl. 13.30 sag-
an.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Námskeið í
glerskurði kl. 9–16.30,
leikfimi kl. 10–11, söng-
hópurinn kl. 13.30, dans
kl. 15.15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ,
Dvalarheimilinu Hlað-
hömrum. Kl. 13–16
föndur og spil, kl.
12.30–15.30 tréskurð-
arnámskeið, kl. 13.30–
14.30 lesklúbbur. Kór
eldri borgara, Vorboð-
ar, æfingar kl. 17–19.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Glerbræðsla
kl. 10, tai chi kl. 12,
karlaleikfimi kl. 13.10,
málun kl. 13, búta-
saumur kl. 13.15. Bingó
í Kirkjuhvoli kl. 19.30 á
vegum Lions.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Bingó spilað
í Gullsmára 13 föstu-
daginn 27. febrúar kl
14.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, vídeókrókurinn
opinn, pútt í Hraunseli
kl. 10–11.30, leikfimi í
Bjarkarhúsi kl. 11.20,
tangódans kl. 11, gler-
skurður kl. 13, bingó kl.
13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13,
félagsvist kl. 20.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 10.30
helgistund, vinnustofur
opnar, kl. 13.15 fé-
lagsvist.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna,
kl. 9.05 og 9.55 leikfimi,
kl. 9.30 glerlist og ker-
amik, kl. 10.50 róleg
leikfimi, kl. 13 gler- og
postulín, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 9.05 og kl.
9.55 leikfimi, kl. 9
myndlistarhópur, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
13–16 handa-
vinnustofan opin.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10–11 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl. 13.30–16
félagsvist.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun sundleikfimi
í Grafarvogslaug kl.
9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 samverustund
og leir.
Vesturgata. Kl. 9.15–
12 bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 9–10
boccia, kl. 10.15–11.45
enska, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræf-
ing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9.30 gler-
skurður, perlusaumur
og morgunstund, kl. 10
boccia, kl. 13 hand-
mennt og bridge.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Opið kl.
9–14. Kl. 9.15 leikfimi,
kl. 10–12 verslunin.
Þórðarsveigur 1–5
Grafarholti. Kl. 13.30
opið hús, kaffiveitingar.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK Gullsmára
spilar í félagsheimilinu
í Gullsmára 13 mánu-
og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12.45. Spil hefst
kl. 13.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í bláa salnum kl.
11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Kiwanisklúbburinn
Geysir, Mosfellsbæ.
Spilakvöld í Kiw-
anishúsinu í kvöld kl.
20.30.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 skák.
Kristniboðsfélag
kvenna, fundur kl. 17 á
Háaleitisbraut 58–60.
Samtök lungnasjúk-
linga. Fræðslufundur í
kvöld kl. 20 í Síðumúla
6.
Í dag er fimmtudagur 26. febr-
úar, 57. dagur ársins 2004. Orð
dagsins: Þetta býð ég yður, að þér
elskið hver annan.
(Jh. 15, 17.)
Björn Bjarnason dóms-málaráðherra skrifar
um varnarmál á vef sinn,
bjorn.is, en þar birtast
vikulegir pistlar eftir ráð-
herra.
Hann segir: „Síðdegislaugardaginn 21.
febrúar voru þeir Jón
Kristinn Snæhólm, Eirík-
ur Bergmann Einarsson
og Atli Gíslason að ræða
saman í Silfri Egils. Þeir
ræddu meðal annars
varnarsamstarf Íslands
og Bandaríkjanna og
hlakkaði í Eiríki Berg-
mann, en hann er eins og
kunnugt helsti talsmaður
aðildar Íslands að Evr-
ópusambandinu, yfir því,
að við Davíð Oddsson sæt-
um eftir með sárt enni
vegna framgöngu Banda-
ríkjastjórnar við sam-
drátt í Keflavíkurstöð-
inni.
Létu þeir Eiríkur Berg-mann og Atli, vara-
þingmaður vinstri/
grænna og gamalgróinn
herstöðvaandstæðingur,
eins og varnarsamstarf-
inu væri lokið og fluttu
báðir óvildarorð í garð
Bandaríkjanna, sér-
staklega lá Eiríki Berg-
mann illt orð til George
W. Bush Bandaríkja-
forseta.
Þau minntu á það,hvernig vinstrisinnar
töluðu um Ronald Reagan
á tímum kalda stríðsins,
þegar þeir töldu hann
hina mestu ógn við heims-
frið, af því að hann vildi
ekki sætta sig við kjarn-
orkuyfirburði Sov-
étmanna og knúði þá til
undanhalds með stjörnu-
stríðsáætluninni.
Allt tal um, að minniumsvif PC-3 Orion
kafbátaleitarvéla Banda-
ríkjamanna hér á landi
séu til marks um, að
endahnútur hafi verið
bundinn á varnarsam-
starfið er út í bláinn. Inn-
tak samstarfsins hefur
allt frá upphafi þess tekið
mið af aðstæðum á hverj-
um tíma.
Við talsmenn varn-arsamstarfsins leggj-
um áherslu á það eins og
jafnan áður, að inntak
þess sé skýrt og ótvírætt
– hinir sem eru á móti því,
að Ísland sé varið eða
vilja alls ekki eiga neitt
samstarf við Bandaríkja-
menn eru nú sem fyrr
með öllu ótrúverðugir í
þessum umræðum. Það
vakir ekki fyrir þeim að
tryggja öryggi lands og
þjóðar heldur að slá póli-
tískar keilur.
Um leið og þeir EiríkurBergmann og Atli
Gíslason gera sem minnst
úr varnarsamstarfi okkar
við Bandaríkjamenn,
skortir þá þrek til að lýsa
yfir nauðsyn þess, að við
Íslendingar látum sjálfir
meira að okkur kveða í
þágu eigin öryggis. Eng-
inn þarf að fara í graf-
götur um skoðanir mínar
í því efni.“
STAKSTEINAR
Pólitískar keilur og
varnarsamstarf
Víkverji skrifar...
Víkverji átti nokkurra daga frí ádögunum og styrkti þá kynni sín
við Mokkakaffi á Skólavörðustígnum.
Það er eitt af fáum kaffihúsum sem
aldrei breytast og hægt að ganga að
sínu þar. Í raun er sérstaða Mokka
afar mikil því þar er aldrei leikin tón-
list, sem væntanlega gæti truflað
gáfulegar samræður gestanna, né
heldur eru þar seldir áfengir drykkir.
Mjög fáa ef nokkra kaffistaði eða
bari er að finna í Reykjavík sem
skortir þetta tvennt, sem almennt er
talið að sé forsenda þess að slíkir
staðir geti þrifist.
Þannig leggur Víkverji stundum
leið sína á Mokka á síðkvöldum þegar
hann er alls ekki í skapi til þess að
vera í hávaða eða fjöri heldur vill eiga
notalega stund og glugga kannski í
blöðin.
x x x
Sama íhaldssemin gildir raunar umveitingaframboðið á Mokka. Allt
er þar í föstum skorðum, sömu kök-
urnar og sömu rjómavöfflurnar á
boðstólum árum og áratugum saman,
sömu skinkusamlokurnar með sama
franska sinnepinu. Ekkert kemur
gömlum gesti þarna á óvart og
heillandi að geta í heimi örra breyt-
inga og hverfulleika gengið að sama-
stað í tilverunnni sem ekkert breyt-
ist. Meira að segja gestirnir eru hinir
sömu árum og áratugum saman,
a.m.k. yfir daginn, en á kvöldin hefur
staðurinn alltaf laðað til sín yngra
fólk, ekki síst úr menntaskólunum.
Íhaldssemin á Mokka er skemmti-
legt mótvægi við síbreytileikann í
kaffihúsabransanum og hún virðist
eiga sér hljómgrunn því staðurinn er
sívinsæll. Víkverji hefur sótt þangað í
yfir tuttugu ár og man ekki eftir að
nokkur skapaður hlutur hafi breyst,
hvorki veitingaframboðið, húsgögn
né nokkuð annað.
Og þó. Eitt hefur breyst og það er
að á Mokka eru nú nokkur borð reyk-
laus en áður var þar svælt á hverju
borði. Loftræsting hlýtur að hafa
verið góð, því þrátt fyrir miklar reyk-
ingar varð þar eiginlega aldrei ólíft
og aldrei lykt af súrum og gömlum
tóbaksreyk. Ekki veit Víkverji
hversu marga fermetra Mokkakaffi
telur en þeir eru ekki margir og vilji
menn upplifa botnlausan fáránleika
reykingalaganna ættu þeir að líta þar
inn. Borðin á Mokka eru líklega ekki
nema eins og ellefu, þar af átta mjög
lítil. Plássið sem gestirnir eru í er
kannski 30 fermetrar og algerlega út
í hött að reyna að skipta slíkum stað í
reyklausan og reykingahluta. Hægt
er að teygja hönd af reykingaborð-
unum yfir á þau reyklausu, sem
reynast miklu síður eftirsótt en reyk-
ingaborðin. Þarna hafa reglugerð-
irnar rekist illa á við raunveruleik-
ann.
Saga örnefna
ÉG las, eða heyrði í út-
varpi, að einhverjir aðilar
teldu ekki vanþörf á að rita
sögu örnefna fyrir Vest-
mannaeyjar.
Vegna þess langar mig til
að upplýsa þessa aðila að út
kom bók sem heitir Örnefni
í Vestmannaeyjum, rituð af
dr. Þorkeli Jóhannessyni.
Þessi örnefnaskrá kom út
1938 og er þetta mikil og
merkileg bók sem tók höf-
undinn mörg ár að rita.
Þessa bók hefur verið
erfitt að fá en hún fæst
stöku sinnum í fornbóka-
verslunum.
Á.H.
Fyrirspurn
SÍÐAN hætt var að selja
kindaskrokka á Kirkju-
sandi veit ég ekki hvert ég
á að fara og hvar hægt er að
fá heila og hálfa skrokka,
niðursagaða eftir óskum.
Þeir sem gætu liðsinnt mér
hafi samband í síma
568 8165.
Fólk ætti að
hugsa sig um
MIKIÐ vildi ég að fólk
hugsaði sig um áður en það
fer að skrifa í blöðin og
agnúast eða setja út á
framkomu fólks eins og
gert er við stúlkurnar í Ís-
land í bítið og Ísland í dag.
Allt þetta fólk sem ég hef
séð á skjánum á Stöð 2 er
hvað öðru frambærilegra.
Mörg þeirra koma frá RÚV
sem eru góð meðmæli, bara
að hafa verið þar er eins og
háskólapróf í mínum huga.
Áhorfandi.
Hættið að agnúast
út í blaðberana
VIÐ búum í Andrésar-
brunni við Þórðarsveig í
Grafarholti og erum með
frábæran blaðbera, konu.
Það hefur aldrei vantað
blað í póstkassana og blaðið
er komið yfirleitt um kl. 2
að nóttu.
Kærar þakkir til blað-
bera Fréttablaðsins.
Þórdís Helga og Sólveig.
Gölluð auglýsing
Á BLS. 21 í Morgunblaðinu
sl. föstudag var heilsíðu-
auglýsing um Vetrarhátíð í
Reykjavík. Þessi auglýsing
var mjög gölluð. Hún var
prentuð í dökkum fjólu-
bláum lit í grunninn sem
gerði það að verkum að
ekki er hægt að lesa text-
ann með góðu móti. Vil ég
benda þeim sem hönnuðu
þessa auglýsingu á þetta.
Sverrir.
Dýrahald
Kettlingur fæst gefins
12 VIKNA kettlingur,
læða, fæst gefins. Hann er
kassavanur og yndislega
fallegur, brúnn, svartur og
hvítur. Upplýsingar í síma
587 3356.
Fresskettir
fást gefins
FJÓRIR fresskettir (1 árs
bræður) fást gefins vegna
sérstakra ástæðna. Þrír
eru kolsvartir og einn gul-
bröndóttur. Þeir eru allir
blíðir og góðir. Upplýsing-
ar í síma 552 5859 eða
847 1064.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 listamaður, 4 einföld, 7
aldin, 8 sett, 9 tíni, 11 áll,
13 baun, 14 æsingurinn,
15 görn, 17 klæðleysi, 20
knæpa, 22 svali, 23 ham-
ingjusamar, 24 út, 25
hlaupi.
LÓÐRÉTT
1 manns, 2 kvíslin, 3 ílát,
4 svik, 5 horskur, 6 seint,
10 klaufdýr, 12 úrskurð,
13 bókstafur, 15 persónu-
töfrar, 16 væskillinn, 18
skorturinn, 19 nauti, 20
vangi, 21 hæðir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 berfættur, 8 ragar, 9 negla, 10 ríg, 11 klaga, 13
lærði, 15 skúrs, 18 sinna, 21 kát, 22 undra, 23 Óttar, 24
risastórt.
Lóðrétt: 2 eygja, 3 firra, 4 tungl, 5 uggur, 6 þrek, 7 hali,
12 ger, 14 æði, 15 saup, 16 úldni, 17 skapa, 18 stórt, 19
notar, 20 akri.
Krossgáta
!
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16