Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 55
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hjartahlý/r og býrð yfir
hugrekki sem gerir þig oft að
forystumanni í mannréttinda-
baráttu. Þú þarft að læra eitt-
hvað mikilvægt af aukinni ein-
veru á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til fjár-
öflunar. Hugmyndir þínar eru
frumlegar og góðar og þú átt
auðvelt með að ná athygli fólks
í áhrifastöðum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta er góður dagur til að
taka áhættu. Fjármálin líta vel
út en morgundagurinn verður
þó enn hagstæðari hvað þau
varðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Yfirmenn þínir, foreldrar eða
aðrir yfirboðarar munu líklega
koma þér skemmtilega á óvart
í dag. Það liggur eitthvað
óvænt í loftinu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú færð snjallar hugmyndir
sem geta veitt vinum þínum
innblástur. Þú gætir líka feng-
ið hjálp í tengslum við fyr-
irhuguð ferðalög eða fram-
haldsmenntun. Það er mikill
sköpunarkraftur í loftinu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta ætti að verða góður dag-
ur í vinnunni. Þú gætir líka
fengið óvænta gjöf eða glaðn-
ing. Ef þú þarft að biðja um lán
þá er þetta rétti dagurinn til
þess.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fólk fær góðar hugmyndir í
dag. Hlustaðu á það sem fólk
hefur að segja en bíddu með
framkvæmdir til morguns.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ný tækni gæti sett þig út af
laginu í vinnunni. Samstarfs-
fólk þitt getur líka komið þér á
óvart með einhverjum hætti.
Þú munt þó fá þann stuðning
sem þú þarft á að halda.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Óvænt daður mun husanlega
fá þig til að roðna í dag. Vinir
þínir geta einnig komið þér
skemmtilega á óvart. Reyndu
að láta þig fljóta með straumn-
um.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þig langar til að gera miklar
breytingar á heimilinu. Farðu
þó ekki of hratt af stað heldur
gefðu fjölskyldunni tækifæri
til að melta hugmyndir þínar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert svo uppfull/ur af góðum
hugmyndum í dag að þú veist
varla í hvorn fótinn þú átt að
stíga. Ástarmálin og félagslífið
ættu að ganga sérlega vel.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú munt líklega fá óvæntar
fréttir varðandi fjármálin eða
vinnuna í dag. Þú gætir einnig
fengið óvænta gjöf eða fyr-
irgreiðslu. Gerðu ráð fyrir því
besta.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert jákvæð/ur og bjartsýn/n
í dag. Reyndu að halda í bjart-
sýnina en bíddu til morguns
með að framkvæma nokkuð.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 55
DAGBÓK
ÍSLAND
Ó! fögur er vor fósturjörð
um fríða sumardaga,
er laufin grænu litka börð,
og leikur hjörð í haga;
en dalur lyftir blárri brún
mót blíðum sólar loga,
og glitrar flötur, glóir tún,
og gyllir sunna voga.
Og vegleg jörð vor áa er
með ísi þakta tinda,
um heiðrík kvöld að höfði sér
nær hnýtir gullna linda,
og logagneistum stjörnur strá
um strindi hulið svellum,
en hoppa álfar hjarni á,
svo heyrist dun í fellum.
– – –
Jón Thoroddsen
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 26.
febrúar, er fimmtug Ingi-
björg Eiríksdóttir, hár-
snyrtimeistari, Túngötu 13,
Eyrarbakka. Af því tilefni
hafa hún og eiginmaður
hennar, Páll Halldórsson,
opið hús í samkomuhúsinu
Stað, Eyrarbakka, laug-
ardagskvöldið 28. febrúar
kl. 20–23.
BESTA leiðin í fjórum
hjörtum suðurs fór
framhjá mörgum kepp-
endum Flugleiðamótsins,
en spilið er frá fjórðu um-
ferð á sunnudaginn:
Norður
♠962
♥D43
♦K62
♣DG93
Suður
♠ÁKG5
♥ÁK982
♦1093
♣10
Sagnir voru almennt á
einföldum nótum: Suður
vakti á einu hjarta, norður
hækkaði í tvö og suður
stökk í fjögur. Spaði var
algengt útspil (fjarkinn,
þriðja hæsta) upp á drottn-
ingu austurs og ás suðurs.
Hvernig er best að spila?
Lykilatriðið er að sætta
sig við þá forsendu að tíg-
ulásinn verði að liggja í
vestur og reyna svo að
tryggja það að vörnin fái
ekki slag á spaða. Sig-
urbjörn Haraldsson spilaði
nákvæmt. Hann lagði nið-
ur ÁK í hjarta (báðir með)
og spilaði svo lauftíunni að
heiman. Miðað við útspilið
er líklegt að laufháspilin
séu skipt eða bæði í aust-
ur.
Norður
♠962
♥D43
♦K62
♣DG93
Vestur Austur
♠10842 ♠D7
♥106 ♥G75
♦ÁD5 ♦G874
♣K872 ♣Á654
Suður
♠ÁKG5
♥ÁK982
♦1093
♣10
Austur tók á ásinn og
spilaði spaða. Sigurbjörn
drap, fór inn í borð á
hjartadrottningu, spilaði
laufi og henti tígli heima.
Vestur fékk slaginn á lauf-
kóng og annan á tígulás,
en síðan ekki söguna meir.
Einn spaði suður fór niður
í frílauf.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 Rf6 2. Bg5 h6 3. Bh4 d5
4. e3 e6 5. Rd2 Rbd7 6. f4 c6
7. c3 b5 8. Rgf3 Be7 9. Bd3
a5 10. 0–0 Bb7 11. Re5 Hc8
12. f5 0–0 13. Rxf7
Kxf7 14. fxe6+ Kxe6
15. Bg6 Bd6 16. e4
dxe4 17. Db3+ Ke7
18. Rxe4 Dc7 19.
Hae1 Kd8 20. De6
Bxh2+ 21. Kh1 c5
Staðan kom upp á
Meistaramóti Tafl-
félagsins Hellis sem
lauk fyrir skömmu.
Björn Þorfinnsson
(2.340), hvítt, hafði
fórnað manni í 13.
leik gegn Gylfa Dav-
íðssyni (1.350) og
eins og svo oft áður
bar áhættusöm taflmennska
hans góðan árangur. 22.
Rxf6 Rxf6 23. Hxf6! Bxg2+
24. Kxg2 Db7+ 25. Kxh2
Hxf6 26. Bxf6+ gxf6 27.
Dd6+ og svartur gafst upp
enda verður hann mát eftir
27. … Dd7 28. He8#.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ljósmynd/Harpa Hrund
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 31. desember sl. í
Frírkikjunni í Reykjavík af
sr. Hirti Magna Jóhanns-
syni þau Borghildur Fjóla
Kristjánsdóttir og Torfi
Arason.
MEÐ MORGUNKAFFINU
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Laugavegi 20b, sími 552 2515
Útsölulok á laugardaginn
Allt á að seljast
Opið virka daga kl. 11-18, laugardag kl. 11-15.
AÐHALDS-UNDIRFATALÍNA
undirfataverslun
Síðumúla 3, s. 553 7355
Undirkjólar
Samfellur
Nærbuxur
Afmælisþakkir
Innilegar þakklætiskveðjur til fjölskyldu minn-
ar, ættingja, vina og allra þeirra, sem glöddu
mig með gjöfum, kveðjum og nærveru á 85
ára afmæli mínu þann 15. febrúar sl.
Guð geymi ykkur öll.
Ragnheiður Guðbjartsdótt-
ir.
Glæsileg 124,7 fm neðri hæð á þessum
eftirsótta stað ásamt 41,1 fm innbyggð-
um bílskúr. Hæðin skiptist í forstofu, hol,
stofu, borðstofu, sjónvarpshol, þrjú her-
bergi, eldhús, þvottahús og baðherbergi.
Íbúðin er öll í sérflokki og með sérsmíð-
aðri kirsuberjainnréttingu frá Brúnási,
merbau-parketi og flísum. Íbúðinni fylgja
tvennar flísalagðar svalir, samtals um 50
fm. Verð 26,4 m. 3878
HEIÐARHJALLI - EINSTAKT ÚTSÝNI