Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 50
ÍÞRÓTTIR
50 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
HEIÐAR Davíð Bragason og Magnús Lárus-
son, kylfingar úr Kili í Mosfellsbæ, léku báðir
á 78 höggum á meistaramóti áhugamanna á
Spáni sem hófst í gær. Þeir félagar voru báð-
ir 6 yfir pari vallar og á heimasíðu sinni segja
þeir að líklega þurfi þeir að leika á pari eða
betur til þess að komast í gegnum niður-
skurðinn. Magnús fékk þrjá tvöfalda skolla
(+2), þrjá skolla, þrjá fugla og níu pör. Heið-
ar fékk þrefaldan skolla (+3) á einni braut-
inni, 5 skolla, 2 fugla og 10 pör.
Heiðar og Davíð segja að vindurinn sé í að-
alhlutverki þegar líður á daginn á keppnis-
vellinum en þeir eiga að fara út í síðari rás-
hóp dagsins í dag. Sergio Garcia vann þetta
mót árið 1998 líkt. Darren Clarke frá N-Ír-
landi vann árið 1990 og Jose Maria Olazabal
vann mótið tvívegis.
Heiðar og
Davíð byrjuðu
illa á Spáni BJARKI Sigurðsson, handknattleiksmaðurinn örvhenti hjá Val,
brotnaði á einum fingri vinstri handar á æfingu á dögunum og
verður af þeim sökum frá keppni í þrjár til fjórar vikur, eftir því
sem Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, reiknaði með þegar
Morgunblaðið hafði tal af honum í gær. „Þetta hefur svo sann-
arlega ekki verið veturinn hans Bjarka í handboltanum,“ sagði
Óskar og benti á að fingurbrotið væri þriðju meiðslin sem Bjarki
hefði orðið fyrir á einu ári. Í fyrravor sleit hann krossband í hné
og fór af þeim sökum ekki að leika með Val af krafti fyrr en undir
lok síðasta árs. Þá voru slegnar úr honum fjórar tennur í kapp-
leik og síðan fingurbrotnar hann nú. Einnig sagði Óskar að
Bjarki væri orðinn aumur í öllu hnénu vegna þess að hann hefði
hlíft fætinum þar sem krossbandið slitnaði í fyrra. „Bjarki hefur
svo sannarlega fengið að reyna sitt af hverju og óskandi er að
þessu sé lokið hjá honum,“ sagði Óskar.
Bjarki leikur því ekkert meira með Val í úrvalsdeildinni en ætti
að verða orðinn klár í slaginn þegar að úrslitakeppninni kemur
eftir rúman mánuð. „Við hinir verðum bara að þjappa okkur sam-
an og tryggja okkur sæti í úrslitakeppninni, það er svo sem ekk-
ert gefið í því,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals.
Óheppnin eltir Bjarka
Sigurðsson
HARALDUR Freyr Guðmundsson,
varnarmaður í úrvalsdeildarliði
Keflavíkur í knattspyrnu, hefur æft
með rússneska liðinu Shinnik Yaro-
slavl undanfarna daga. Umboðs-
maður hafði samband við Arnór
Guðjohnsen og fyrir hans atbeina
hélt Haraldur til Hollands í fyrra-
dag en Rússarnir hafa dvalið þar í
æfingabúðum.
Haraldur lék æfingaleik með
Rússunum gegn belgíska liðinu
Genk í fyrrakvöld og í gær átti
hann fund með forráðamönnum
liðsins. Shinnik varð í fimmta sæti á
síðustu leiktíð en með liðinu leikur
Hvít-Rússinn Sergei Shtanyuk sem
var áður í herbúðum Stoke.
„Þeir sögðust vera ánægðir með
mig en vildu fá að skoða mig betur í
Rússlandi. Ég veit ekki hvað ég
geri en ég á eftir að ræða málin bet-
ur við minn umboðsmann,“ sagði
Haraldur við Morgunblaðið í gær.
Boðið til æfinga hjá Waalwijk
Rússarnir halda til síns heima í
dag en Haraldur verður í Hollandi
fram til sunnudags því forráða-
menn hollenska 1. deildarliðsins
Waalwijk, liðsins sem Jóhannes
Karl Guðjónsson lék með, buðu
Haraldi að æfa með liðinu til
reynslu.
Haraldur, sem er 23 ára, hefur
verið fastamaður í liði Keflvíkinga,
og á að baki átta leiki með U-21 árs
landsliðinu.
Rússar skoða Harald
Eyjakonur náðu með sigrinumfimm stiga forskoti á Hauka og
Val og eiga að auki þrjá leiki svo ansi
mikið þarf að ganga á
ef deildarmeistaratit-
ilinn á að ganga leik-
mönnum ÍBV úr
greipum. Eins og úr-
slitin gefa til kynna var fátt um farnir
á Ásvöllum í gær. Sóknarleikurinn
var í hávegum hafður, hraðinn mikill
og engu líkara en maður væri að
fylgjast með borðtennisleik. ÍBV
hafði undirtökin allan tímann og þó
svo að Haukarnir hafi af og til náð að
narta í hæla Eyjakvenna og minnkað
muninn niður í eitt mark þá hafði
maður alltaf á tilfinningunni að sig-
urinn myndi falla ÍBV í skaut. Meist-
ararnir bættu einfaldlega í þegar
Haukar komust nærri og undir lokin
var aðeins spurning hvort ÍBV næði
að rjúfa 40 marka muninn.
„Við erum orðin vön að skora 34–35
mörk í leik og það er markaskor sem
við viljum hafa. Ég var óánægður
með varnarleikinn að vanda og hann
þurfum við að bæta. Það var svolítið
erfitt að koma stemningu í liðið svona
stuttu eftir bikarleikinn og leikurinn
bar þess merki að stutt var liðið frá
því að liðin áttust við í Höllinni í allt
annarri umgjörð en hérna,“ sagði
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV.
Ramune Pekarskyte var eins og
oftast áður yfirburðamaður í liði
Hauka. Litháíska stórskyttan skoraði
17 mörk úr 23 skotum og var allt í
öllu. Erna Þráinsdóttir átti góðan leik
í horninu en það munaði talsverðu
fyrir Hauka að fyrirliðinn Ragnhildur
Guðmundsdóttir, sem átti stórleik í
bikarúrslitaleiknum, náði sér ekki á
strik.
Anna Yakova var fremst á meðal
jafningja í öflugri liðsheild ÍBV.
Sylvia Strass og Birgit Engl áttu fín-
an leik en Alla Gorkorian virkaði
hálflúin og varla búin að ná sér eftir
bikarslaginn.
Morgunblaðið/Þorkell
Anna Yakova skoraði 10 mörk fyrir ÍBV í gærkvöld.
Markaflóð
á Ásvöllum
ÍSLANDS- og bikarmeistarar ÍBV eiga deildarmeistaratitilinn næsta
vísan eftir sigur á Haukum í æðisgengnum markaleik á Ásvöllum í
gær. Í 73 marka leik fagnaði ÍBV sigri, 39:34, og lék því nánast sama
leikinn og í Laugardalshöllinni um síðustu helgi en þar lagði ÍBV
Hauka, 35:32, í úrslitaleik bikarkeppninnar.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin:
Grindavík: UMFG - Breiðablik............19.15
Ásvellir: Haukar - Keflavík ..................19.15
Ísafjörður: KFÍ - Snæfell .....................19.15
DHL-höllin: KR - ÍR.............................19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll - UMFN .....19.15
Þorlákshöfn: Þór Þ. - Hamar................19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni karla
Efri deild, A-riðill:
Reykjaneshöllin: Haukar - Njarðvík...18.15
Reykjavíkurmót
Neðri deild kvenna:
Egilshöll: Þróttur R. - Fylkir ....................19
Egilshöll: HK/Víkingur - Fjölnir ..............21
Í KVÖLD
RÓBERT Gunnarsson átti stjörnu-
leik með Århus GF sem sigraði
Ringsted á útivelli, 34:27, í dönsku úr-
valsdeildinni í handknattleik í gær.
Róbert skoraði 12 mörk, þar af þrjú
úr vítaköstum. Þorvarður Tjörvi
Ólafsson skoraði 2 mörk.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson skor-
aði 4 mörk fyrir Essen þegar liðið
lagði meistara Lemgo, 29:24, í þýsku
Bundesligunni í handknattleik í gær.
Rússneski landsliðsmaðurinn Dmitri
Torgavanov skoraði 7 mörk fyrir
Essen og Oleg Veleky 6. Í liði Lemgo
var Daniel Stephan með 7 mörk og
Marc Baumgartner 6.
EINAR Örn Jónsson skoraði 4
mörk fyrir Wallau Massenheim í sigri
liðsins á Nordhorn, 36:31.
HAFÞÓR Einarsson, markvörður
bikarmeistara KA í handknattleik,
varð fyrir því óláni að brjóta bein í
framhandlegg á æfingu í fyrrakvöld
og er reiknað með að hann verði frá í
allt að mánuð. Hafþór átti stórleik á
milli stanganna í bikarúrslitaleiknum
gegn Fram um síðustu helgi þar sem
hann varði vel á þriðja tug skota.
NORÐMAÐURINN Erik Mykland
mun ekki leika fleiri leiki með
danska liðinu FC København vegna
meiðsla og allt útlit er fyrir að hann
hafi leikið sinn síðasta leik með
danska liðinu þar sem samningur
hans við félagið rennur út í sumar.
NORSKA liðið Rosenborg er úr
leik í UEFA-keppninni í knattspyrnu
þrátt fyrir 2:1-sigur gegn Benfica frá
Portúgal í síðari leik liðanna. Benfica
vann fyrri leikinn 1:0 og komst áfram
á marki skoruðu á útivelli. Miguel
Nuno Gomes kom mikið við sögu í
leiknum; hann skoraði markið sem
skipti sköpum en var vísað af leikvelli
í lok fyrri hálfleiks. Norðmennirnir
sóttu án afláts í leiknum en náðu ekki
að bæta við marki.
ÞAÐ heyrðist vel í 3.000 stuðnings-
mönnum Vålerenga er norska liðið
sótti Newcastle heim á St. James
Park. Fyrri leik liðanna lauk með
jafntefli, 1:1, í Ósló og um tíma í gær
var staðan 1:1 og útlitið bjart.
ALAN Shearer þakkaði fyrir
veruna á varamannabekknum í fyrri
leiknum með því að skora á 19. mín-
útu, Erik Hagen jafnaði á 25. mínútu
en varamaðurinn Shola Ameobi skor-
aði tvívegis í síðari hálfleik. Lokatölur
3:1.
HELGI Bragason körfuknattleiks-
dómari hefur ákveðið að hætta störf-
um sem alþjóðlegur dómari á vegum
FIBA og mun ekki sækja námskeið á
Kanaríeyjum í sumar til að viðhalda
réttindum sínum. Helgi tók prófið
sem FIBA-dómari í Osló árið 1992 og
hefur því starfað sem slíkur í 12 ár. Á
ferli sínum hefur hann dæmt marga
leiki í Evrópu, bæði hjá félagsliðum
og landsliðum. Frá þessu er greint á á
vefsíðunni www.kki.is.
FÓLK
HANDKNATTLEIKUR
Haukar – ÍBV 34:39
Ásvellir, Hafnarfirði, 1. deild kvenna, RE/
MAX-deildin, miðvikudaginn 3. mars 2004.
Gangur leiksins: 0:2, 2:3, 2:5, 6:6, 9:8, 12:13,
14:18, 16:20, 18:22, 22:23, 24:29, 28:31,
30:35, 34:39.
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 17/5,
Erna Þráinsdóttir 5, Ragnhildur Guð-
mundsdóttir 3, Sandra Anulyte 3, Anna G.
Halldórsdóttir 2, Martha Hermannsdóttir
1, Erna Halldórsdóttir 1, Petra Baumruk 1,
Inga Karlsdóttir 1.
Varin skot: Bryndís Jónsdóttir 12/1 (þar af
3 til mótherja), Berglind Hafliðadóttir 3
(þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍBV: Anna Yakova 10, Birgit Engl 7,
Sylvia Strass 6/2, Alla Gorkorian 5, Guð-
björg Guðmannsdóttir 4, Anja Nilsen 3,
Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Nína K.
Björnsdóttir 1, Edda Eggertsdóttir 1.
Varin skot: Júlia Ganhimorova 17/1 (þar af
3 til mótherja).
Utan vallar: 12 mínútur (Anna Yakova fékk
rautt spjald vegna þriggja brottvísana þeg-
ar 6 mín. voru eftir).
Dómarar: Hlynur Leifsson og Anton Páls-
son, nokkuð mistækir.
Áhorfendur: Um 150.
Staðan:
ÍBV 16 15 0 1 500:392 30
Valur 19 12 1 6 451:403 25
Haukar 19 12 1 6 523:498 25
Stjarnan 19 12 0 7 450:420 24
FH 17 9 0 8 440:412 18
Víkingur 19 8 1 10 441:446 17
Grótta/KR 19 6 3 10 449:474 15
KA/Þór 18 4 1 13 438:510 9
Fram 18 0 1 17 363:500 1
1. deild karla
Víkingur – Selfoss ................................33:30
Mörk Víkings: Þröstur Helgason 8, Bjarki
Sigurðsson 7, Tomas Kovulivic 5, Davíð
Ólafsson 5, Ásbjörn Stefánsson 3, Benedikt
Jónsson 3, Björn Guðmundsson 2.
Mörk Selfoss: Haraldur Þorvarðarson 13,
Ívar Grétarsson 4, Ramunas Mikalonis 4,
Hjörtur Leví Pétursson 3, Hörður Bjarn-
arson 2, Ramunas Kalendauskas 2, Erling-
ur Klemensson 1, Karl Brynjar Larssen 1.
ÍBV – FH................................................33:29
Mörk ÍBV: Robert Bognar 8, Josef Böse 8,
Sigurður Bragason 5, Sigurður Stefánsson
4, Erlingur Richardson 3, Zoltán Belányi 2,
Guðfinnur Kristmannsson 2, Michael Lau-
ritzen 1.
Mörk FH: Brynjar Geirsson 8, Logi Geirs-
son 7, Guðmundur Pedersen 5, Valgarð
Thoroddsen 3, Magnús Sigurðsson 3, Svav-
ar Vignisson 2, Hjörtur Hinriksson 1.
Staðan:
ÍBV 5 4 1 0 167:127 9
Selfoss 6 4 0 2 188:177 8
Víkingur 5 3 1 1 153:127 7
FH 5 3 0 2 154:143 6
Þór 5 2 0 3 134:170 4
Afturelding 5 1 0 4 123:139 2
Breiðablik 5 0 0 5 137:173 0
Þýskaland
Wallau-Massenheim – Nordhorn ....... 36:31
Essen – Lemgo ..................................... 29:24
Eisenach – Stralsunder ....................... 25:24
Staða efstu liða:
Flensburg 23 18 2 3 739:603 38
Magdeburg 22 18 1 3 682:579 37
Lemgo 23 17 2 4 754:641 36
Kiel 22 16 2 4 696:586 34
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
Njarðvík – KR.......................................73:81
Stig Njarðvíkur: Andrea Gaines 27, Auður
Jónsdóttir 13, Sæunn Sæmundsdóttir 12,
Dianna Jónsdóttir 10, Sigurlaug Guð-
mundsdóttir 4, Guðrún Karlsdóttir 5, Eva
Stefánsdóttir 2.
Stig KR: Katie Wolve 27, Hildur Sigurð-
ardóttir 15, Guðrún Sigurðardóttir 13,
Halla Jóhannesdóttir 12, Tinna Sigmunds-
dóttir 7, Sigrún Skarphéðinsdóttir 5, Hólm-
fríður Sigurðardóttir 2.
Staðan:
Keflavík 19 16 3 1547:1168 32
ÍS 19 12 7 1258:1119 24
KR 19 11 8 1281:1222 22
Grindavík 19 9 10 1245:1211 18
Njarðvík 19 7 12 1141:1320 14
ÍR 19 2 17 1042:1474 4
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Miami – Toronto ................................... 86:89
Atlanta – LA Lakers ............................ 94:93
Dallas – Seattle................................... 107:96
Denver – New Jersey........................... 91:95
Sacramento – LA Clippers .............. 113:106
Golden State – Indiana ........................ 88:96
KNATTSPYRNA
Norðurlandsmótið
Powerade-mótið, Boganum, Akureyri:
Leiftur/Dalvík – KA.................................1:3
Jóhann Traustason – Hreinn Hringsson,
Bjarni Pálmason, Jóhann Helgason.
Staðan:
KA 7 6 1 0 27:5 19
Völsungur 6 3 2 1 24:9 11
Þór 7 3 2 2 24:14 11
Tindastóll 7 3 2 2 12:18 11
Leiftur/Dalvík 6 2 2 2 16:12 8
KS 6 2 0 4 7:13 6
Höttur 7 1 1 5 7:31 4
Hvöt 6 0 2 4 6:20 2
England
Úrvalsdeild:
Birmingham – Middlesbrough ...............3:1
Martin Taylor 23., Robbie Savage 57.,
Mikael Forssell 79. – Szilard Nemeth 75. –
29.369.
Staðan:
Arsenal 27 20 7 0 53:18 67
Chelsea 27 18 4 5 48:21 58
Man. Utd 27 18 4 5 51:25 58
Newcastle 27 10 12 5 38:28 42
Charlton 27 11 7 9 38:34 40
Liverpool 26 10 9 7 38:29 39
Birmingham 26 10 9 7 28:29 39
Aston Villa 27 10 7 10 32:32 37
Fulham 27 10 6 11 39:38 36
Tottenham 26 10 4 12 39:42 34
Bolton 26 8 10 8 32:40 34
Southampton 27 8 9 10 27:27 33
Middlesbro 26 8 7 11 28:34 31
Everton 27 7 8 12 33:39 29
Blackburn 27 7 7 13 39:44 28
Man. City 27 6 9 12 36:39 27
Portsmouth 26 6 6 14 29:40 24
Wolves 27 5 9 13 24:52 24
Leicester 27 4 11 12 37:51 23
Leeds 27 5 7 15 26:53 22
1. deild:
Derby – Crewe ..........................................0:0
Walsall – Sunderland................................1:3
Staðan:
Staða efstu liða:
Norwich 34 18 11 5 50:27 65
WBA 34 17 10 7 46:30 61
Wigan 34 15 13 6 46:32 58
Sheff. Utd 34 16 7 11 50:41 55
2. deild:
Swindon – Tranmere ................................2:0
UEFA-bikarinn
32 liða úrslit, síðari leikir:
Genclerbirligi – Parma............................3:0
Filip Daems (vítasp.) 36., Matteo Ferrari
(sjálfsm.) 81., Ali Tandogan 90. – 20.000.
Genclerbirligi áfram, 4:0 samanlagt.
Dnipro – Marseille....................................0:0
– 40.000.
Marseille áfram, 1:0 samanlagt.
Roma – Gaziantepspor.............................2:0
Feirera Emerson 22., Antonio Cassano 42.
–13.500.
Roma áfram, 2:1 samanlagt.
Debrecen – Club Brugge.........................0:0
–7.000.
Brugge áfram, 1:0, samanlagt.
Teplice – Celtic .........................................1:0
Jiri Masek 35. – 10.000.
Celtic áfram, 3:1, samanlagt.
Bordeaux – Groclin Grodzisk .................4:1
Marc Planus 41., Marouane Chamakh 42.,
Ivica Krizanac (sjálfsm.) 64., Albert Riera
(vítasp.) 74. – Tomasz Wieszczycki 90. –
9.197.
Bordeux áfram, 5:1, samanlagt.
Besiktas – Valencia ..................................0:2
Miguel Angulo 12., Juan Sanchez 56
Valencia áfram, 2:5 samanlagt.
Levski Sofia – Liverpool..........................2:4
Georgi Ivanov 27., Sasha Simonovic 40. –
Steven Gerrard 7., Michael Owen 11., Diet-
mar Hamann 44., Sami Hyypia 67.
Liverpool áfram, 6:2 samanlagt.
Panathinaikos – Auxerre ........................0:1
Bonaventure Kalou 71. – 24.000.
Auxerre áfram, 1:0 samanlagt.
PSV Eindhoven – Perugia ......................3:1
Kevin Hofland 22., Mateja Kezman 44., 48.
– Jose Marcello Ze Maria 88. –31.500.
PSV áfram, 3:1 samanlagt.
Inter Mílanó – Sochaux............................0:0
– 10.000.
Inter áfram, 2:2 samanlagt.
Newcastle – Vålerenga............................3:1
Alan Shearer 19., Shola Ameobi 47., 89. –
Eirik Hagen – 38.531.
Newcastle áfram, 4:2 samanlagt.
Rosenborg – Benfica................................2:1
Örjan Berg 8., Azar Karadas 16. – Miguel
Nuno Gomes 21. – 18.200.
Benfica áfram, 2:2 samanlagt.
Mallorca – Spartak Moskva ....................0:1
Alexander Samedov 43. – 5.000.
Mallorca áfram, 3:1 samanlagt.
Barcelona – Bröndby ...............................2:1
Sanz Luis Garcia 31., Philip Cocu 42. – Per
Nielsen 86. – 45.000.
Barcelona áfram, 3:1 samanlagt.
Villarreal – Galatasaray..........................3:0
Sonny Anderson 48., Garcia Roger 52., Ju-
an Riquelme 90. – 11.000.
Villareal áfram, 5:2 samanlagt.