Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 6og 8.
Sýnd kl. 6 og 10. B.i. 16 ára. Síðustu sýningar!
H A L L E B E R R Y
Þau eiga 12 börn og mamman er fjarverandi -
þetta endar með ósköpum! Frábær skemmtun!
Vinsælasta fjölskyldumynd ársins í USA!
Fleiri börn...meiri vandræði!
Frábær gamanmynd
frá höfundi Meet the Parents
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
„Dýrmætt
hnossgæti“
EPÓ Kvikmyndir.com
Allir þurfa félagsskap
Sýnd kl. 8 og 10.20.
SV MBL
kl. 5 og 9.
Yfir 94.000 gestir
Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12.
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslenskum texta
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
Þau eiga 12 börn og mamman er fjarverandi - þetta
endar með ósköpum! Frábær skemmtun!
Vinsælasta fjölskyldumynd ársins í USA!
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
Fleiri börn...meiri vandræði!
11 Óskarsverðlaun
þar á meðal besta myndin,
besti leikstjóri og besta handrit
Besta
frumsamda
handrit
Kvikmyndahátíðin Hinseginbíódagar í Reykjavíkhefst í dag og stendur til14. mars. Opnunarmynd-
in er hollensk dans- og söngvamynd
sem heitir Já systir, nei systir en við-
stödd sýninguna verður aðalleikkon-
an Loes Luca. Allar sýningar hátíð-
arinnar verða í Regnboganum við
Hverfisgötu. Að Hinsegin bíódögum
standa Samtökin ’78, félag lesbía og
homma á Íslandi, og FSS, félag sam-
kynhneigðra og tvíkynhneigðra
stúdenta. Stjórnandi hátíðarinnar er
Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Þetta er í annað sinn sem efnt er
til slíkrar kvikmyndahátíðar hér á
landi, en hinir fyrstu Hinsegin bíó-
dagar voru haldnir í Reykjavík vorið
1995 á vegum Samtakanna ’78 og
þaðan er nafn hátíðarinnar runnið. Á
dagskrá hátíðarinnar eru leiknar
myndir, tónlistarmyndir, heimildar-
myndir og stuttmyndir. Heiðurs-
gestir Hinsegin bíódaga eru tveir
auk hinnar hollensku leikkonu,
Spánverjinn, Antonio Hens, leik-
stjóri hinnar stuttmyndarinnar, Í
slæmum félagsskap, og hollenski há-
tíðarskipuleggjandinn Jankees Boer
en hann verður einn af fulltrúunum í
dómnefnd Hinsegin bíódaga, en í lok
hátíðar 13. mars mun dómnefnd
veita þrenn verðlaun fyrir besta
framlag til hennar í flokki leikinna
mynda, heimildarmynda og stutt-
mynda. Auk Boer eru í dómnefnd
þau Elísabet Ronaldsdóttir, Hanna
María Karlsdóttir, Jankees Boer og
Sigursteinn Másson.
JÁ SYSTIR, NEI SYSTIR
(Ja zuster, nee zuster)
HOLLAND 2003. (35 MM.)
Pieter Kramer
Hollensk dans- og söngvamynd sem
byggist á nýlegri dans- og leikgerð á
vinsælum sjónvarpsþáttum sem
sýndir voru í hollenska sjónvarpinu á
7. áratugnum. Systir Klivia stendur
fyrir gistiheimili eða athvarfi þar
sem sundurleitur hópur fólks á öllum
aldri á sér skjól.
Fimmtudagur 4. mars kl. 20
Sunnudagur 14. mars kl. 16
AÐALHLUTVERK: ROSA FURR
(Starring: Rosa Furr)
BANDARÍKIN 2002. (16 MM.)
Lára Martin
Stuttmynd eftir íslensku kvik-
myndagerðarkonuna Láru Martin
sem nam kvikmyndagerð í Banda-
ríkjunum og hefur starfað þar um
árabil. Sagan um Rosu Furr er gerð í
stíl þöglu myndanna. Með verki sínu
„endurritar“ leikstjórinn söguna
með því að skipa lesbíum, hommum
og svörtu fólki í þau hlutverk í kvik-
myndasögunni sem þau aldrei léku
og hér fá þeir kynþættir og þær kyn-
hneigðir sem aldrei birtust í aðal-
hlutverkum að baða sig í sviðsljós-
inu. Á eftir myndinni er sýnt stutt
viðtal við Láru Martin á ensku en
hún verður viðstödd frumsýninguna
og mun spjalla við gesti að henni lok-
inni.
Sunnudagur 7. mars kl. 18
Föstudagur 12. mars kl. 20
PABBI OG PÁPI
(Daddy and Papa)
BANDARÍKIN 2002. (BETA.)
Johnny Symons
Óvenjuleg heimildarmynd um sam-
kynhneigða feður sem rutt hafa öðr-
um slíkum brautina sem vilja gerast
feður og taka ábyrgð á börnum.
Áhrifamikil mynd af nýstárlegum
fjölskyldugerðum og fjölskyldulífi á
tímum mikilla breytinga og umbylt-
inga.
Laugardagur 6. mars kl. 16
Laugardagur 13. mars kl. 16
HREIN OG BEIN
(Sögur úr Íslensku Samfélagi)
ÍSLAND 2003. (BETA.)
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
og Þorvaldur Kristinsson
Fyrsta íslenska heimildarmyndin
sem fjallar um samkynhneigð á Ís-
landi. Tilnefnd í flokki heimildar-
mynda til Eddu-verðlaunanna 2003
og var kjörin besta heimildarmyndin
á stærstu kvikmyndahátíð samkyn-
hneigðra í heiminum, San Francisco
International Lesbian and Gay Film
Festival, sumarið 2003.
Þriðjudagur 9. mars kl. 18
Miðvikudagur 10. mars kl. 22
Fimmtudagur 11. mars kl. 20
ÞÚSUND FRIÐARSKÝ Á HIMNI, ÁST,
ALDREI HÆTTIR ÞÚ AÐ VERA ÁST
(Mil nubes de paz cercan el cielo,
amor, jamás acabaras de ser amor)
MEXÍKÓ 2002. (35 mm)
Julián Hernández.
Í fimm daga ráfar Gerardo, sautján
ára hommi, stefnulaust um götur
Mexíkóborgar í leit að einhverjum
sem gæti upplýst hann um það sem
liggur milli línanna í kveðjubréfinu
sem elskhuginn hans, Bruno skildi
eftir handa honum.
Myndin hlaut Teddy-verðlaunin á
Kvikmyndahátíðinni í Berlín 2003,
en þau eru veitt fyrir besta framlag
til kvikmyndagerðar samkyn-
hneigðra í heiminum.
Föstudagur 5. mars kl. 22
Sunnudagur 7. mars kl. 16
BRÓÐIR OG UTANGARÐSMAÐUR
(Brother Outsider –
The Life Of Bayard Rustin)
BANDARÍKIN 2002. (BETA.)
Nancy Kates, Bennett Singer.
Bayard Rustin var svertingi sem op-
inberaði samkynhneigð sína löngu
áður en hommar almennt öðluðust
hugrekki til. Af þeim sökum komst
hann í kast við lögin og hlaut sinn
dóm. Síðar gerðist hann einn helsti
ráðgjafi Martins Luthers King og
barðist við hlið hans en starfaði þó
alla tíð í skugga leiðtogans, sökum
kynhneigðar sinnar. Heimildarmynd
sem unnið hefur til fjölda verðlauna,
m.a. á Sundance-kvikmyndahátíð-
inni í Bandaríkjunum og á Kvik-
myndahátíðinni í Berlín.
Föstudagur 5. mars kl. 18
Fimmtudagur 11. mars kl. 22
EINSTEIN HVATALÍFSINS
(Einstein des sex – leben und
werk des Dr. Magnus Hirschfeld)
ÞÝSKALAND 1999. (35 MM.)
Rosa Von Praunheim
Leikin kvikmynd um ævi gyðingsins,
hommans, sósíalistans og læknisins
Magnus Hirschfeld, eins mesta
áhrifavaldar í sögu samkynhneigðra.
Stofnaði fyrsta baráttuhóp homma í
Berlín árið 1897 og lagði grunn að
rannsóknum á lífi samkynhneigðs og
transsexúal fólks í Þýskalandi á
þriðja áratug 20. aldar.
Mánudagur 8. mars kl. 20
Föstudagur 12. mars kl. 18
Sunnudagur 14. mars kl. 22
RÓTTÆKIR HLJÓMAR
(Radical Harmonies)
BANDARÍKIN 2002. (DVD)
Dee Mosbacher
Heimildarmynd um frumkvöðla í
kvennarokkinu í Bandaríkjunum,
forvera Melissu Etheridge, Ani
DiFranco og Indigo Girls. Þessar
konur töluðu máli fjölbreytileika,
femínisma og hins lesbíska lífstíls.
Tónlistarkonur, frá Meg Christian
og Cris Williamson til Sweet Honey
in the Rock.
Laugardagur 13. mars kl. 20
Sunnudagur 14. mars kl. 18
SKYNDILEGA
(Tan de repente)
ARGENTÍNA 2002. (35 MM.)
Diego Lerman
Pönkararnir og lesbíurnar Mao og
Lenin eru dauðleiðar á lífinu þegar
þær hitta Marcíu, hallærislega af-
greiðslustúlku í undirfataverslun í
Buenos Aires og taka hana höndum.
Þær kæra sig ekkert um peningana
hennar en vilja komast yfir hana. Er
Marcía lætur ekki undan leggja Mao
og Lenin af stað með hana í ferðalag.
Skyndilega hefur hlotið ýmis verð-
laun, m.a. Silfurhlébarðann á kvik-
myndahátíðinni í Locarno.
Sunnudagur 7. mars kl. 20
Mánudagur 8. mars kl. 22
SÆL ERU ÞAU SEM ÞYRSTIR
(Salige er de som tørster)
NOREGUR 1998. (35 MM.)
Carl Jørgen Kiøning
Lesbíska leynilögreglukonuna
Hanne Wilhelmsen rannsakar dular-
fullt morðmál í Osló þar sem fundist
hefur blóð en ekkert lík. Sakamála-
mynd byggð á sögu eftir Anne Holt,
fyrrum dómsmálaráðherra Noregs
en nokkrar af sögum hennar hafa
verið þýddar á íslensku.
Sunnudagur 7. mars kl. 22
Föstudagur 12. mars kl. 22
Laugardagur 13. mars kl. 18
LÍSA
(Alice)
FRAKKLAND 2002. (35 MM.)
Sylvie Ballyot
Í brúðkaupi systur sinnar tekst Alice
á við sárar minningar sem vekja nið-
urbældar og hálfgleymdar tilfinn-
ingar. Um hvað snerist sameiginleg
æska þeirra systra? Hvaða þýðingu
höfðu leikir þeirra undir sænginni
Hinsegin bíódagar standa yfir dagana 4.–14. mars
Já systir, Nei systir
Bróðir og Utangarðsmaður Aðalhlutverk: Rosa Furr
Lísa
Bíómyndir í öllum regnbogans litum