Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 57
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.40.
Kvikmyndir.com
HJ MBL
„Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S. Fréttablaðið
KRINGLAN
kl. 5.30, 8.30 og 10.
ÁLFABAKKI
kl. 5 og 8.
AKUREYRI
kl. 8.
KEFLAVÍK
kl. 8.
Kvikmyndir.com
B.i. 16 ára.
DV
SV MBL
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 14 ára
Já, það vantar ekki stjörnulið
leikara í þessari mynd. Sumir
hafa vilja líkja þessari mynd við
myndir á borð við The Royal
Tenenbaums og Virgin Suicides.
Leikstjóri er
Burr Sears en
hann hefur
komið nálægt
myndunum
Pulp Fiction,
Naked In New
York, Reservoir
Dogs, The Last
Days of Disco
á einn eða
annan hátt.
Myndin er uppfull af kolsvörtum
húmor auk þess sem hún er
skemmtilega djörf og dramatísk.
SÉRVISKA ER ÆTTGENG
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.
Renée Zellweger
besta leikkona
í aukahlutverki
Besta
teiknimyndin
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
TÖKUR á næstu mynd um Leðublökumann-
inn, Upphaf leðublökumannins (Batman Beg-
ins), eru hafnar hérlendis. Tökustaðurinn er
hjá Freysnesi við Svínafellsjökul, Öræfasveit.
Fréttir þessa efnis er hægt að nálgast í
gegnum umfangsmikinn vefmiðill sem snýst
um myndasögur, www.comicbookresources-
.com. Sá miðil vísar á minni miðil, www.su-
perherohype.com þar sem einhver dul-
arfullur Vignir segir frá. Hann staðfestir að
aðalleikararnir, Christian Bale og Liam Nee-
son séu komnir á staðinn ásamt leikstjór-
anum, Christopher Nolan, og tökur muni
standa yfir í eina eða tvær vikur. Hundrað
manns frá Warner-fyrirtækinu eru á staðnum
ásamt starfsfólki frá Saga Film og eru þetta
um 150 til 200 manns í allt. Einnig kemur
fram að íslenskir starfsmenn séu bundnir
ströngum þagnareiði. Vignir þessi hefur ver-
ið að skjóta fleiri fréttum á téða síðu. Á
www.superherohype.com er einnig ótrúlegt
fréttaskot sem leiðir lesendur á heimasíðu ís-
lenska alpaklúbbsins! Á www.isalp.is er hægt
að sjá myndir (dagsettar 8. febrúar og 27.
febrúar) af Susan Whitaker (aðstoðarstjórn-
anda leikmyndar), Quentin Davies (leik-
munaverði) og fleirum að klöngrast í Skafta-
felli og í Kvískerjum.
Fréttaritarar Morgunblaðsins, bæði í
Öræfasveit og á Hornafirði, hafa orðið varir
við mannaferðir er tengjast klárlega tökum á
erlendu stórmyndinni en geta ekki tjáð sig
neitt frekar um málið að svo stöddu. Þá segir
írska afþreyingarsíðan www.showbizirel-
and.com frá því að sjálfur Edge, gítarleikari
U2, muni fara með hlutverk í myndinni. Ekki
er gefið upp hvaða hlutverk það verður. Þess
má geta að U2 átti aðallagið í þriðju mynd-
inni um Leðurblökumanninn, Leðurblöku-
maðurinn að eilífu (’95). The Edge mun jafn-
framt semja tónlist við teiknimyndaröð um
Leðurblökumanninn sem frumsýnd verður í
haust. Frumsýning á Upphafinu … er hins
vegar áætluð sumarið 2005.
Upphaf leðurblökumannsins er fimmta
myndin um þessa ofurhetju en áður hafa þeir
Michael Keaton, Val Kilmer og George Cloo-
ney farið með hlutverkið. Eins og nafnið gef-
ur til kynna er sagt frá því hvernig hinn ungi
Bruce Wayne varð að Leðurblökumanninum,
eftir að hafa horft upp á morð foreldra sinna.
Aðrir sem koma við sögu í myndinni, utan
þeir sem taldir hafa verið upp, eru Michael
Caine, Morgan Freeman, Liam Neeson, Ken
Watanabe, Katie Holmes og Cillian Murphy.
Mikil leynd hvílir yfir tökum á nýrri mynd um Leðurblökumanninn
Felur sig í Öræfasveit
Bale sem Batman, séð með augum aðdáanda.arnart@mbl.is